Tíminn - 29.04.1995, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.04.1995, Blaðsíða 2
2 Wímími Laugardagur 29. apríl 1995 Talsverb endurnýjun varb í þingmannalibinu í kosning- unum og nýtt fólk var kosib inn á þing í öllum kjördæm- um nema á Norburlandi vestra. Á Norburlandi eystra féllu Sig- björn Gunnnarsson, krati, og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, framsóknarmabur. Gunnlaug- ur Stefánsson, krati, féll á Austfjörbum, Eggert Haukdal, sjálfstæbismabur/utan flokka, féll naumlega á Suburlandi, Petrína Baldursdóttir, Jóhann Einvarbsson og fleiri hættu í Reykjanesi. Gubrún Helgadótt- ir nábi ekki kjöri í Reykjavík, Jóhann Ársælsson á Vestur- landi, Jóna Valgerbur Krist- jánsdóttir sat úti í kuldanum á Vestfjörbum og svo mætti áfram telja. Tíminn hafbi tal af nokkrum fyrrverandi þingmönnum og forvitnabist um hvernig þeir hefbu þab og hvab þeir hefbu fyrir stafni um þessar mundir. Ingi Björn Albertsson, Sjálfstcebisflokki, Reykjavík: Ekkert at- vinnuleysis væl í mer Ingi Björn Al- bertsson, sem sat á þingi fyrir Sjálfstæbis- flokkinn í Reykjavík, baub sig ekki fram fyrir þess- ar kosningar. Ingi Björn lýsti stubningi vib Framsóknarflokkinn fyrir kosn- ingar. Hann segist hættur í pólit- ík í bili, en hvab framtíbin beri í skauti sér vill hann ekki spá um. „Ég hef þab mjög gott, því er fljótsvarab," segir Ingi Björn ab- spurbur. „Ab öbru leyti er ég ab reka heildverslun og verslunina Joss í Kringlunni og síban er ég ab þjálfa knattspyrnulib ÍBK í fyrstu deild." — Fylgir því engin tómleikatil- fmning að vera hœttur á þingi? Sagt var... „ Vitlausustu menn sem ég heyri tala um verkalýbsmál og atvinnulíf er þorri kennara þó ab þab sé mikib af góbum mönnum í stéttinni. Verka- lýbshreyfingu hafa þeir bara lesib um." Gu&mundur jaki í Alþý&ubla&inu í gær. • „Þab er alveg ótrúlegt ab hjá sum- um er þab hápunkturinn ab fá ab sjá skítinn og moka hann." Árni Lý&sson fræ&slufulltrúi ÍTÍman- um f gær um skítkast barna í Hús- dýragar&inum. • „ Love lauk tónleikum sínum á því ab velta hátölurum, mölva gítara, þeyta trommum um koll og kasta hljóbnemum út í áhorfendur. Þetta var synd vegna þess ab áhorfendur kunnu vel ab meta frammistöbu hljómsveitarínnar í fyrstu." Fólk í fréttum Mogga í gær. • „ Þab var mikib óheillaspor sem Fiug- leibir stigu meb reykingarbanni í öli- um flugvélum og á öllum flugleibum félagsins. Nú eru farþegar sem vilj- andi eba óviljandi brjóta bannib mebhöndlabir sem glcepamenn og tekib á móti þeim af lögreglu vib lendingu." Ragnhildur í lesendabréfi DV í gær. • „Ég sé ekki betur en ab þessir menn hafi náb þeim árangri einum ab fá eitt orb fellt úr stefnuskránni. í upp- kasti ab stjórnarsáttmálanum stób ab áfram skuli stefnt ab aflamarks- kerfinu í meginatribum. Þeir munu hafa náb út orbinu áfram þannig ab nú stendur ab fylgt skuli aflamarks- kerfinu í meginatribum." Sighvatur Björgvinsson í DV í gær um sjálfstæ&ismenn á Vestfjör&um. Tíminn rœddi vib nokkra af fyrrverandi þingmönnum, sem ekki gáfu kost á sér eöa féllu í kosningunum: Hvar eru þau og hvað gera þau? „Þab er ekkert atvinnuleysis- væl í mér. Ég held ab mabur átti sig ekkert á því fyrr en þing kem- ur saman í haust, hvort mabur saknar þess eba ekki. En ég á frek- ar von á því ab ég muni ekki sakna þess mikib," segir Ingi Björn. Jóhann Árscelsson, Alþýöubandalagi, Vesturlandi: Fer ab nýju í bátasmíoina Jóhann Ársæls- son sat á þingi fyrir Alþýbu- bandalagib á Vesturlandi á síbasta kjör- tímabili. Hann nábi ekki kjöri nú, þrátt fyrir rúmlega 13% fylgi. Jóhann hefur unniö mestalla ævi viö skipaviö- geröir og bátasmíbi og á hlut í litlu bátasmíöafyrirtæki á Akra- nesi sem heitir Knörr hf. Þegar Tíminn sló á þrábinn til Jóhanns var hann ab svipast um eftir nýju og stærra húsnæöi fyr- ir Knörr. Hann segist hafa þab gott, en leynir því ekki aö hann er ósáttur vib niöurstöbur kosn- inganna. „Þetta var afskaplega fúl niöur- staba hjá Alþýbubandalaginu á Vestfjöröum. Viö höfum haldiö manni á svipuöu atkvæöamagni og ég kann reyndar ekki dæmi þess, ab menn hafi ekki náö manni á þeirri prósentu. Þetta kerfi er svolítiö skrítib. Ef Al- þýöuflokkurinn hér í Vesturlandi hefbi fengiö 18 atkvæöum meira, hefbi ég oröiö kjördæma- kjörinn og annar maöur Sjálf- stæöisflokksins." — Ertu hálfftill með niðurstöð- una? „Já, hvab heldur þú? Þab þýöir ekkert annaö en ab mebganga þab sem satt er." Gunnlaugur Stefánsson, Alþýbuflokki, Austfjörbum: Þingmennska ekki upphaf og endir lífsins Gunnlaugur Stefánsson, prestur í Hey- dölum í Breib- dalshreppi, vann sæti fyrir Alþýbuflokk í kosningunum fyrir fjórum ár- um. Hann tapaöi því aftur nú, en segist þrátt fyrir þaö ánægöur meb útkomu sína. Hann sinnir nú prestsstörfum og búskap, en hann býr meb hross og nytjar æöarvarp. En hyggst hann halda áfram í stjórnmálum? „Eru ekki allir landsmenn í pólitík, beint og óbeint?" spyr Gunnlaugur á móti. „Þátttakan hjá mér fer bara eftir aöstæöum." — Varsí þú sáttur við niðurstöð- ur kosninganna? „Nei, ekki fyrir hönd Austfirö- inga og ekki fyrir hönd kjósenda, en persónulega er ég mjög sáttur viö hlutskipti mitt. Þaö er ekki upphaf og endir lífsins aö vera á Alþingi." — Sérð þú fyrir þér einhverjar breytingar innan Alþýðuflokksins á nœstu misserum? „Ég ætla ekki aö spá neinu um þaö núna, en ég óska ríkisstjórn- inni velferöar og vona aö hún nái tökum á verkefnum sínum." Gubrún Helgadóttir, Alþýbubandalagi, Reykjavík: Á fjórum fótum undir rifstrjánum „Ég lá á fjórum fótum undir rifs- trjánum mínum, ef þú vilt vita þab," svaraöi Guörún Helga- dóttir spurn- ingunni hvaö hún heföi fyrir stafni um þess- ar mundir. Guðrún sat á þingi fyrir Al- þýöubandalagið í Reykjavík, en vék sæti fyrir tveimur fulltrúum óháöra á framboöslista flokksins í kjördæminu fyrir síöustu kosn- ingar. Hún færbi sig úr 2. sæti í 4. sæti og er nú fyrsti varamaður þeirra Svavars Gestssonar, Bryn- dísar Hlööversdóttur og Og- mundar Jónassonar. En eitthvað hlýtur Guðrún aö gera fleira heldur en að stússast í garðin- um? „Já, ég hef veriö á fundum í flokknum mínum og sinnt ýms- um störfum," segir hún. „Síðan hef ég tekið til heima hjá mér." — Ertu að skrifa? „Já, svolítið, hvað sem svo úr því verður. Ég er ab byrja, en þeg- ar ég byrja þá er ég oft dálítið mikið búin." — Heldur þú að þú saknir þess ekki að vera ekki á þingi lengur? „Jú, þaö hugsa ég að ég geri. Ég er aö yfirgefa vinnustað og maö- ur saknar góbra vina og skemmtilegra starfa." — Ætlar þú að fá þér annað starf, eða lætur þú þér nægja að vinna fyrir þér sem rithöfiindur? „Þab er dálítiö erfitt að draga fram tómna af því. Ég á heldur von á aö ég þurfi að finna mér eitthvert starf. Ég er satt aö segja ekkert farin að hugsa fyrir því," sagði Guörún aö lokum. Petrína Baldursdóttir, Alþýbu- flokki, Reykjaneskjördcemi: Sinnir fjol- skyldunni til aö byrja meö Petrína Baldursdóttir var í þriöja sæti á lista Al- þýöuflokksins í Reykjavík, en hún kom inn á þing sem vara- þingmaður þegar Jóhanna Sigurðardóttir yfirgaf flokkinn á síöasta kjörtímabili. Hún er heimavinnandi húsmóðir þessa dagana og segist hafa það mjög gott. Petrína á samt ekki von á því að vera lengi í húsmóður- hlutverkinu. „Ég hef aöallega verið í því þessa dagana að hugsa um börnin mín og gera ýmislegt varðandi fjölskylduna, sem ég hef vanrækt undanfariö." — Er þetta stór fjölskylda? „Ég á tvö börn." — ,Ertu sátt við úrslit kosning- anna? „Ég er ekki sátt viö hlut Al- þýðuflokksins, en tel aö útkom- an hafi þó verib þokkaleg miðað viö þaö sem á undan er gengiö. Þetta var varnarbarátta, en ég heföi kosið aö flokkurinn fengi a.m.k. 10 þingmenn í stað 7." — Reiknar þú með að fara út á vinnumarkaðinn aftur? „Já, það er alveg á hreinu. Ég er kona sem er úti á vinnumark- aönum, ég sé ekki sjálfa mig öðruvísi." — Ertu búin að ákveða hvað þú ferð að gera? „Ég er ekki alveg búin aö ákveöa mig. Ég var leikskóla- stjóri hér 1 Grindavík áöur en ég fór á þing og fékk leyfi frá störf- um á meðan. Það liggur ekkert á aö ákveöa þetta. Ég á frekar von á aö ég fari aö vinna viö mitt fag. Mér finnst gaman að þessu barnastússi." ■ í heita pottinum... ...voru menn aö tala um sam- dráttinn í kindakjötsölunni. Kenna menn ýmsu um eins og gengur, m.a. síauknu pizzu- og pastaáti. Kona nokkur í heita pottinum sagði að ungt fólk þekkti fátt annaö en skyndibita nú orðið og sagði því til rök- stuðnings frá ferö sinni í Hag- kaup á dögunum. Þar ákvað hún að kaupa hrogn en þegar átti ab greiða fyrir gúmmelaðib starbi kasSadaman, sem var í yngri kantinum, í forundran á hrognin og spurði: „Oj bara, hvab er þetta?" „Hrogn" var svarað. „Hvab er þab, einhver fiskur?" ■ ... þá munu prestarnir Cylfi jónsson og Sólveig Lára Guö- mundsdóttir ganga í það heilaga um helgina eftir landsfrægt ást- arævintýri. Veislan fer fram í skíðaskálanum í Hveradölum og munu gestir borga sjálfir fyrir matinn. Sagt er ab þetta brúð- kaup mælist vel fyrir á biskups- stofu enda magnaðar kjaftasögur gengib í tengslum vib þetta mál allt. ■ ... eru menn að ræða um hver fái rektorsembættið í MR eftir að skólanefnd mælti einróma meb Ragnheibi Torfadóttir. Sem kunnugt er var Ólafur Oddsson, kennari vib skólann og bróbir Davíðs Oddssonar forsætisráb- herra, einn af þeim sem sóttu um stöðuna og virðast skiptar skob- anir um þab meðal þeirra sem til þekkja hvort þab muni há Ólafi á endasprettinum eba gagnast honum. Fleiri tefja þó að það muni vinna gegn honum úr því sem komib er. ■ ... er nú upplýst ab svo mikil ásókn hafi verið í abstoðar- mennsku hjá framsóknarráðherr- um ab útbúinn hafi verib sérstak- ur listi yfir alla hersinguna og sé sá listi upp á ein 30-40 nöfn. Rábherrarnir hafi svo listann hjá sér og spái í spilin fram í næstu viku.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.