Tíminn - 01.06.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 01.06.1995, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 1. júnf 1995 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM HÖFN í HORNAFIRÐI By stra-1 hornl Um 180 ær báru á einum og hálfum sólarhring á sama bænum Sauöburöur hefur nú náö há- marki. Þrátt fyrir kulda er Bjarni á Fornustekkjum hugar ab lambfé. þokkalegt hljóö í bændum. ---------------------------------- Á Fornustekkjum í Nesjum reka Bjarni Sigjónsson og Ást- hildur Gísladóttir eitt stærsta fjárbú sýslunnar, en þar bera í vor um 760 kindur aö gemsum meötöldum. Þaö má því nærri geta aö nóg er aö gera á bænum og oft þung augnlokin. í mestu törninni báru 180 ær á einum og hálfum sólarhring. Bjarni segir að miklu muni aö geta gefiö fénu úti allan vetur- inn. Hann hefði skipt fénu í fyrra og þær ær sem heföu verið úti heföu skilað töluvert þyngri lömbum en þær sem gefið var inni. Einnig gengi þeim betur að bera. Bjarni hefur gefið fé sínu úti í alian vetur og aðeins hýst þaö tvisvar sinnum. Það er því spurning hvort gamla beitar- rómantíkin sé að hefja innreið sína að nýju. Frá afhendingu búnabarins. Ceorg sýslumabur, Agnar yfirlögregluþjónn og Bára formpbur Eykyndils. VESTMANNAEYJUM Glæsilegur árangur nemenda FÍV í vísindakeppni fram- haldsskólanema: Gull og silfur Nýlega var tilkynnt hverjir hrepptu verölaun í Hugvís- keppninni, vísindakeppni framhaldsskólanema. Náöu nemendur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum þeim glæsi- lega árangri aö hreppa bæöi gull og silfur í keppninni, en Menntaskólinn í Reykjavík fékk 3. verölaun. Þessi frábæri árangur er ekki aðeins viöurkenning fyrir krakkana heldur einnig skól- ann, Rannsóknasetur Háskól- ans í Eyjum og Náttúrugripa- safniö, en forstööumenn þess- ara stofnana voru þeim innan handar viö úrlausn verkefn- anna. Þau samanstóöu af rannsókn á hrygningu loön- unnar og atferli hennar, o~g ætisvenjum þykkvalúru. Loðnuverkefniö fékk gulliö og þykkvalúran silfriö. Borgar sig ekki aö gera at í lögreglunni í Eyjum: Sést strax hvaban hringt er Hann ríður ekki viö einteym- ing rausnarskapurinn hjá stelp- unum hjá slysavarnadeildinni Eykyndli og umhyggja þeirra er lýtur aö öryggismálum. Nýveriö afhentu þær form- lega búnaö sem gerir það aö verkum, að þegar hringt er í neyðarnúmer og til lögreglu kemur strax fram á tölvuskjá hvaðan hringt er.. tlm er að ræða hugbúnað sem kostar vel á annað hundrað þúsund krón- ur. Öryggisþátturinn viö þetta er mikill, því þegar hringt er í neyðamúmeriö eöa til lögreglu í neyöartilfellum gleymist oft að tilkynna hvaðan er hringt. Einnig aðstoöar nýi búnaður- inn lögreglu viö aö taka hrekkjalóma í landhelgi, sem iöka aö hringja og gera at í lög- reglu og slökkviliöi. (jJMíJTfl 'ISJf! KEFLAVIK 27 þús.t. magnesí- umverksmíbja á Suburnesjum? Hitaveita Suðurnesja er sam- starfsaöili um könnun á hag- kvæmni byggingar 27 þúsund tonna magnesíumverksmiðju. í tengslum við þaö hefur verið ákveöið að senda menn frá fyr- irtækinu til Kanada og Banda- ríkjanna til aö skoöa slíkar verk- smiðjur og til viðræðna við þar- lenda aðila um möguleika á að slík verksmiðja yrði reist hér- lendis. Samkvæmt upplýsingum Suö- urnesjafrétta hefur þetta mál verið í skoðun hjá MOA og HS um nokkurt skeib. Finnbogi Björnsson, stjórnarformaður HS, staöfesti í samtali við blaðið að menn frá Hitaveitunni veröi sendir utan til að kanna málið frekar. Áætlaö er að um 300 manns gætu starfað við slíka magnesí- umverksmiöju, ef af yrði. DAGBLAÐ Cubjón Hjörleifsson bcejarstjóri fcerbi hópnum blómvendi vib komuna til Eyja. Frá vinstri Ármann, Björn, jóhann Örn, Markús Orri, Sighvatur, Aldís Helga, Cunnar og Margrét. Fyrir framan eru Egill og Reynir. AKUREYRI Þrjú norblensk frystihús hlutu gæbaskjöld Fiskiðja Raufarhafnar hf. hlaut nýlega gæðaskjöld Coldwater í Bandaríkjunum, dótturfyrirtækis Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. Það var Páll Pétursson, gæða- stjóri Coldwater, sem af- henti skjöldinn, en Fiskiðjan hefur hlotið hann 11 sinn- um síðan árið 1980, sem er frábær árangur. Alls hlutu átta frystihús, sem selja framleiðslu sína gegnum SH, gæðaskjöldinn að þessu sinni. Auk Fiskiðju Raufarhafnar hf. hlutu tvö norðlensk fyrirtæki sömu viðurkenningu: Hraðfrysti- hús Ólafsfjarðar hf. og Út- gerðarfélag Akureyringa hf., og á Austfjörðum Dverga- steinn hf. á Seyðisfirði og Síldarvinnslan hf. á Nes- kaupstað. Eplasneplar komin út Vaka-Helgafell hefur gefið út bókina Eplasnepla eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur. Eins og kunnugt er hlaut Þórey Islensku barnabóka- verðlaunin 1995 fyrir hand- ritið aö þessari bók á dögun- um, en það var í tíunda sinn sem verblaunin voru afhent. í umsögn dómnefndar um bókina segir m.a. ab sagan sé sögð á nýstárlegan hátt og skrifuð af mikilli leikni. í kynningu útgefanda á bókarkápu segir ab Eplasnepl- ar sé fyndin og bráðfjörug saga og smellfyndin fyrir stráka og stelpur á öllum aldri. Þórey Friðbjörnsdóttir hefur áður skrifab unglingabækurn- ar Aldrei aftur, sem'hún sendi frá sér árið 1993, og Þegar sál- in sér sem kom út árið 1994. Eplasneplar er 136 blaðsíður, Kristín Ragna Gunnarsdóttir gerði kápumynd bókarinnar og G.Ben.-Edda prentstofa hf. sá um prentvinnslu hennar. Verð bókarinnar er kr. 1490 með virðisaukaskatti. TÞ Ný Úrvalsbók: Blús yfir daubum hundi Út er komin ný Úrvalsbók, Blús yfir dauðum hundi. Höfundur bókarinnar er Ne- al Barrett, jr., en hann skrif- abi einnig Úrvalsbókina Bleikur vodkablús, sem kom út á síðasta ári og hlaut mjög góðar viðtökur. Ragn- ar Hauksson þýddi bókina, en hann hefur þýtt margar Úrvalsbækur. Blús yfir dauðum hundi fjall- ar um Jack Track, bæjarlöggu í smábæ í Texas. Þegar undar- legustu atburðir fara ab gerast, veit Jack varla í hvorn fótinn hann á að stíga. Enginn hörg- ull er á furðufuglum í bæn- um, en spurningin er hvort einhver þeirra sé morðóöur brjálæðingur. I frétt frá útgefanda segir að bókin sé „þrælfyndin" og „meinspennandi". Bókin er 256 síður og kostar kr. 895 út úr búð. í áskrift kosta Úrvals- bækurnar hins vegar 538 kr. og er heimsendingarkostnað- ur innifalinn. TÞ Þegar komið er af vegum með bundnu slitlagi \ tekur tíma nð venjast breyttum aðstæðum » V FÖRUM VARLEGA! UMFERÐAR RÁÐ Tímamynd GS MR fær andlitsförðun Iðnaöarmenn nota tækifærið meðan á sumarleyfum í Menntaskólan- um í Reykjavík stendur, til að gefa skólabyggingunni andlitslyftingu. Nú er unnið að því að skafa gömul lög af málningu áður en sett verð- ur ný áferö yfir. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.