Tíminn - 13.08.1995, Qupperneq 7

Tíminn - 13.08.1995, Qupperneq 7
Þriðjudagur 15. ágúst 1995 7 PJETUR SIGURÐSSON Alþjóölegt GSM rall í Reykjavík: Þrír breskir Land Rover her- j eppar hingað til lands Nú er ljóst að þrjár áhafnir frá flutningadeild breska hersins (British Army Rally Team) munu verða meðal þátttakenda í Alþjóðlega GSM ralli Reykja- víkur sem haldið verður dagana 8.-10. september. Munu þeir flytja meö sér sex Land Rover herjeppa, þrjá keppnisbíla og þrjá þjónustubíla. Alls eru 20- 25 manns í hópnum, með þjónustuliði, en einnig verður tækifærið notað og farið víðar um landið bæði fyrir og eftir rallið, en þeir verða hér á landi dagana 4-14. september. Að auki hafa þrír aðrir öflugir bílar og ökumenn verið skráðir til keppni, en um er að ræða bíla sem eru á bilinu 250- 300 hest- öfl og því líklegir til sigurs. Ástæða þess að breskir her- menn taka þátt í keppnum sem þessum er að litið er á þær sem hluta af þjálfun hermannanna í akstri. Land Rover jepparnir eru allir óbreyttir, eru með mis- munandi vélarstærðum og allir að styttri gerð þessara bíla. Tryggvi Þórðarson, keppnis- stjóri rallsins, segir að hingað til hafi breska sveitin einbeitt sér að þátttöku í tveimur keppnum, annarri í Þýskalandi og svo Skoska rallinu. Nú hins vegar hafi þeir tekið þá ákvörð- un að taka þátt í íslenska rall- inu, sem sé í raun nokkur við- urkenning á sérstöðu þessarar keppni með hliðsjón af þeim leiðum sem eknar eru. Eins og áður sagði mun breska sveitin nota ferðina einnig til æfinga bæði fyrir og eftir keppni og þá munu aðrir meðlimir sveitarinnar einnig aka um hina erfiðari vegi lands- ins undir leiðsögn íslenskra að- ila. Þeir þrír erlendu ökumenn sem þegar hafa skráö sig, eru allir mjög sterkir ökumenn. Einn þeirra er íslendingum að góðu kunnur, Philip Walker frá Englandi, en hann ekur Mözdu bifreið í flokki óbreyttra bíla, en um er að ræða tæplega 300 hestafla bifreið. Þá verður Eng- lendingur að nafni David Mann, en hann ekur á Toyotu Celicu, sem er 300 hestafla bif- reið. Að síðustu kemur hingað Skoti, sem er álitinn mjög sterkur og er meðal annars til- raunaökumaður hjá Subaru- verksmiðjunum. Bragi Bragason, fram- kvæmdastjóri Landssambands íslenskra akstursíþróttafélaga, segir að komu Bretana megi rekja til öflugrar kynningar á keppninni erlendis og samband hafi náðst við þá í Skoska rall- inu í sumar. Allt stefnir í að með þeim sex erlendu áhöfnum sem þegar hafa verið skráðar að alls verði um 25 bílar með í rallinu og er búist við að allir bestu íslensku ökumennirnir veröi á meðal keppenda. Skráning er reyndar nýhafin og skipuleggjendur rallsins eru enn að vinna í því að fá erlenda keppendur til landsins. ■ Knattspyrna: Umboösmaö- ur í bann Norski umboðsmaðurinn Rune Hauge, sem hefur séö um sölu á mörgum knattspyrnumönnum á Norðurlöndum til Englands og fleiri landa, hefur verið settur í bann af Alþjóba knattspyrnusam- bandinu. Astæða þess er að upp komst um ólöglegar greiðslur Hauge til George Graham vegna sölu á leikmönnum til Arsenal. Bann þetta þýðir ab Hauge getur eigi lengur komið nálægt neinum viðskiptum með knattspyrnumenn í framtíðinni. ■ Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum lauk í Gautaborg um helgina: Dagskrá 01' 96 breytt vegna ár- angurs Michael Johnson? Svo getur farib ab dagskrá Ólymp- íuleikanna verði breytt vegna hins frábæra árangurs bandaríska hlauparans Michaels johnsons, en hann varð þrefaldur heims- meistari. Hann vann gullverölaun í 200 og 400 metra hlaupum, auk þess sem hann var í sigursveit Bandaríkjanna í 4X400 metra hlaupi. Samkvæmt tímatöflu Ólympíuleikanna í Atlanta er ekki hægt að vinna til verðlauna í 200 og 400 metra hlaupum, en nú er verið að skoða hvort ekki sé mögulegt að breyta því. Michael Johnson telst tvímælalaust maöur mótsins, en auk þeirra þriggja gullverðlauna sem Johnson skil- aði þeim, unnu þeir til níu ann- arra gullverðlauna, auk tveggja silfurverðlauna og fimm brons- verðlauna. Af öðmm greinum má nefna að Jan Zelesny hafði yfirburði í spjót- kastinu og engum dylst að hann er enn besti spjótkastari í heimin- um í dag, en hann kastabi 89.58 metra, sem var reyndar abeins styttra en hann kastaði í undan- keppninni. Steve Backley varö í öðru sæti en hann kastaði 86.30 metra. Það bar til tíðinda að írar náðu í ein gullverðlaun á mótinu, þegar írska stúlkan Sonia O'Sullivan sigraði í 5000 metra hlaupi. Þá sigraði Alsírbúi í 1500 metra hlaupi Ana Fidela Quirot frá Kúbu sigrabi í 800 metra hlaupi. ■ Evrópuboltinn: Gott start hjá B. Munchen Hið stjörnum prýdda lið Bayern Munchen byrjaði vel í þýsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu um helgina, en liðið sigraði Hamburg 3- 2 í hörkuleik. Jurgen Klinsmann lék sinn fyrsta leik með liöinu, en hann var þó ekki á meðal marka- skorara. Þýsku meistararnir Boruss- ia Dortmund byrjuðu ekki eins vel, en þeir gerðu jafntefli við Kaisers- lautern, 1-1. í Belgíu tapaði Anderlecth fyrir Charleroi 0-2, sem hefur hins vegar byrjab mun betur og trónir nú á toppi deildarinnar ásamt fimm öðrum liðum, með tvo sigra að baki. Anderlecht hefur hins vegar tapað báðum sínum leikjum. íslendingaliðin í Svíþjóö léku bæði um helgina. Örebro sigraði Malmö 5- 0, en íslendingarnir þrír, þeir Hlynur Stefánsson, Arn- ór Guðjohnsen og Hlynur Birgis- son léku ekki með. Órgryte, lib Rúnars Kristinssonar, tapaði hins vegar fyrir Halmstad 0-2. ■ Sigursveit Bandaríkjamanna í4x4oometraboöhiauP,sést hér fagna sigri aö lokinni keppni á sunnudag. Árangur Bandaríkjamanna á Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum var mjög góöur og unnu þeir til flestra verölauna, þar af 12 gullverölauna. Maöur mótsins var einnig í þeirra herbúöum en þaö er Bandaríkjamaöurinn Michael johnson, sem var ísigursveit í4X400 metra boöhlaupi, auk þess sem hann sigraöi í200 og 400 metra hlaupum. símamynd Reuter Leikur um Góögeröarskjöldinn í ensku knattspyrnunni: Meistararnir lágu í lélegum leik Englandsmeistarar Blackburn lágu gegn bikarmeisturum Ev- erton í leik um góðgerðar- skjöldinn á Wembley leik- vanginum í Lundúnum á sunnudag, 1-0 í afspyrnuléleg- um leik. Það var Winny Sam- ways sem skoraði sigurmarkið á 57. mínútu og var þar um sérlega glæsilegt mark að ræða. Eftir að mark Everton leit dagsins ljós sóttu leik- menn Blackburn án afláts en tókst ekki að nýta sér þau færi sem gáfust. Undir lokin vildu leikmenn Blackburn fá víti, þegar varn- armaður Everton, Dave Wat- son, virtist brjóta á Alan She- arer innan vítateigs, en dóm- ari leiksins var ekki á sama máli. Þrátt fyrir að Blackburn ætti meira í leiknum undir lokin, verða úrslit leiksins að teljast sanngjörn, en þess skal þó getið að Blackburn saknaði nokkurra lykilleikmanna. Um helgina var einnig leikið í ensku 1. deildinni og léku þeir Þorvaldur Örlygsson og Lárus Orri Sigurðsson báðir með Stoke gegn Reading og léku nokkuð vel. Úrslit leikja voru annars eftirfarandi: Birmingham-Ipswich .....3-1 Crystal Pal.-Barnsley...4-3 Millwall-Grimsby........2-1 Oldham-Huddersfield ....3-0 Portsmouth-Southend ...4-2 Stoke-Reading...........1-1 Sunderland-Leicester....1-2 Tranmere-Wolves.........2-2 Watford-Sheff.Utd.......2-1 WBA-Charlton............1-0 Derby-Port Vale.........0-0 Luton-Norwich...........1-3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.