Tíminn - 13.08.1995, Side 9
Þribjudagur 15. ágúst 1995
jliflMffflMfflt
9
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
Gíslarnir í Kasmír:
Indverska stjómin neitar a6 semja
Srinagar — Reuter
Indverjar sögðu í gær ekki
koma til greina aö Ieysa úr haldi
15 kasmírska aðskilnaðarsinna
gegn því að vestrænu gíslunum
fjórum, sem aðskilnaðarsinnar í
Kasmír hafa á valdi sínu, veröi
sleppt. Þessi ákvörðun var tekin
þrátt fyrir að norðmaðurinn
Hans Christian Oströ hefði
fundist látinn og hálshöggvinn
um helgina og gíslatökumenn-
irnir hafi hótað því að hinir
fjórir, sem enn eru á lífi, verði
drepnir innan tveggja sólar-
hringa verði ekki gengið að
kröfum þeirra.
„Þaö kemur ekki til greina að
Rússar setja Tsé-
tsénum tímamörk
Moskva — Reuter
Viktor Tsérnomyrdin, forsætis-
rábherra Rússlands, sagöi í gær að
Rússar hefðu sett aöskilnaðar-
sinnum í Tsétséníu úrslitakosti
varðandi hernaðarsamkomulagið
sem samninganefndir Rússa og
Tsétséna gerðu með sér í síðasta
mánuði. Sagbi hann að Tsétsénar
yrbu að lýsa því yfir formlega fyr-
ir kl. 18 í gær (14 ab íslenskum
tíma) að þeir muni halda sam-
komulagið, að öbrum kosti yrði
gripið til „hörðustu aðgerða,"
eins og hann komst að oröi.
Samkvæmt samkomulaginu er
gert ráð fyrir því ab skæruliðar
Tsétséna afvopnist gegn því aö
rússneski herinn fari ab hluta til
frá Tsétséníu. Samkomulaginu er
ætlað að vera grunnur að frekara
friðarsamkomulagi í Tsétséníu, en
báðir aðilar hafa sakað hinn um
ab reyna að rangtúlka skilmálana.
Samkvæmt rússneskum frétt-
um hefur Dúdajev verið andvígur
því að afvopna öflugustu her-
deildirnar sínar, sem hann kallar
tsétsénska herinn. Hann hefur
sagt að með orðalaginu „ólöglega
vopnaðar sveitir" í samkomulag-
inu sé ekki átt við herdeildir sínar.
Báðir aðilar eru líka ósammáia
um skiiyrði þess að fangaskipti
fari fram. Rússar hafa m.a. sakað
abskilnaðarsinnana um að fara
rangt með tölur um fjölda fanga
sem þeir hafa í sinni vörslu.
leysa neinn þeirra úr haldi í
skiptum fyrir erlendu ferða-
mennina," sagði Rajesh Pilot,
ráðherra innlendra öryggis-
mála.
Pranab Mukherjee utanríkis-
ráðherra sagði að stjórnin
myndi ekki gefa eftir vegna
hryðjuverkanna og „ef við gerð-
um það myndi það verka sem
hvatning á hryðjuverkamenn-
ina um ab framkvæma fleiri
hryllingsverk af þessu tagi."
Stjórnvöld í Jammú og Kasmír
sögðust raunar vita nokkurn
veginn hvar gíslarnir væru
hafðir í haldi. „Vib höfum hald-
ið uppi eins konar eftirliti og al-
Faran hafa haft samband við
okkur af og til."
Indverskur milliliður hafði í
gær samband við skæruliðana
sem hafa gíslana fjóra á valdi
sínu. K.B. Janidal, talsmabur
stjórnarinnar í Jammú og Ka-
smír, sagði milliliðinn hafa ver-
ið reglulega í sambandi vib
skæruliðana þær sex vikur sem
gíslarnir hafa verib á valdi
þeirra. ■
Innflutningur hjálpar
ekki íslenskum
heimilum - Við höfum
reynsluna af IFTA!
Veljum ÍSLINSKT.
kvenna
einkum að konunum, segir Mo-
hini Malhotra, sem hefur umsjón
með framkvæmdinni. „Þeir fá-
tækustu og bjargræðislausustu
meðal þeirra sem hafa fyrir heim-
ili að sjá eru konur," segir hún, og
margvíslegar hindranir eru í vegi
fyrir aðgangi þeirra að lánum.
Eignaréttindi eru í mörgum lönd-
um þess eðlis að karlar njóta þar
forréttinda gagnvart konum, og
oft er þess krafist að undirritun
karlmanns sé á láni sem á að fara
til konu. Á hinn bóginn hafa fá-
tækar konur veriö til fyrirmyndar
í því að endurgreiða lán sín. Þær
hafa miklu frekar en karlar séð til
þess að peningamir verði notaðir
til að styrkja velferð fjölskyldunn-
ar, með því til dæmis að greiða
fyrir menntun, betra mataræði og
heilsugæslu.
í mörgum löndum eru þegar til
„bankar fyrir fátæklinga", en yfir-
leitt skortir slíka banka fé og setur
það þeim þröngar skoröur. I þessu
tilviki er slíkum takmörkunum
ekki fyrir að fara og er vonast til
þess að þetta geti valdið einhverj-
um straumhvörfum í efnahagi
fjölmargra landa þriöja heimsins
svonefnda. ■
Alþjóöabankinn lánar fátœkasta fólki jaröar:
Flest lánin fara til
Washington — Reuter
Alþjóðabankinn er farinn að
gera tilraun meb að veita fátæk-
asta fólki heimsins lán í stórum
stíl. í öllum tilvikum er raunar um
smáar uppphæðir að ræöa, allt
niður í 100 Bandaríkjadali, sem
eru rúmlega 6.000 krónur. Og
flest fara þessi lán til kvenna.
„Meðal kvenna er eftirspumin
eftir þessum lánum gífurleg," seg-
ir Ismail Serageldin, varaforseti
Alþjóðabankans, en hann er for-
maður „Ráðgjafarhóps um aðstoð
til hinna fátækustu", sem settur
var á laggirnar í júní til þess aö
hrinda þessari smálánastarfsemi í
framkvæmd.
Ýmis ríki, bankar og stofnanir
hafa þegar veitt 200 milljón doll-
urum í þessa starfsemi, eða milli
12 og 13 milljörðum íslenskra
króna. Um þrír fjórðu hlutar þessa
fés fara til kvenna. Þegar er búiö
ab veita lán fyrir um 200 milljón-
ir króna.
Með því aö beina lánunum sér-
staklega til fátækasta fólksins á
hverjum stað er nánast óhjá-
kvæmilegt aö athyglin beinist
Saddam hreins-
ar til í hemum
London — Reuter
írákskur stjórnarandstöðuflokkur
sagði í gær ab 10 háttsettir foringjar
í hernum, þar á meðal tveir hers-
höfðingjar, hefðu verið handteknir
í kjölfar þess að tveir tengdasynir
Saddams Husseins flúðu til Jórdan-
íu í síðustu viku.
Fjöldinn allur af lægra settum yf-
irmönnum í hernum var einnig
handtekinn, ab því er Dr. Hamid al-
Bayati sagði í London í gær, en
hann er talsmabur stjórnarand-
stöbuflokksins sem nefnist Æðsta-
ráð íslamskrar andófshreyfingar í ír-
ak (SCIRI). Hann sagöi hreinsanirn-
ar vera lið í því að gera hugsanlega
stuðningsmenn Husseins Kamels
Hassans hershöfðingja, annars
tengdasonanna tveggja sem flúði í
síðustu viku, áhrifalausa í írak.
„Saddam er að reyna að handtaka
alla sem gætu verið fylgismenn eða
stuöningsmenn Husseins Kamels,
vegna þess ab Hussein Kamel fór
þess á leit við herinn að grípa til að-
gerða gegn Saddam. Þannig að hver
sá sem hugsanlega mun verða við
þessari beiðni verður handtekinn
og jafnvel líflátinn," sagði Bayati.
Bayati sagði einnig að allir þeir
sem hefðu verið handteknir kæmu
frá Takrit héraði í írak, sem er heim-
kynni Saddams og beggja tengda-
sonanna sem flýðu.
SCIRI eru samtök shíta og hafa
þau aðalbækistöðvar í Teheran, en
líkt og flestir aðrir írakskir stjórnar-
andstöbuhópar hafa þau einnig
bækistöðvar í London. ■
Tjarnarbíó
Söngleikurinn jOSEP
og hans undraverða skrautkápa
eftir Tim Rice og Andrew Lloyd Webber.
Föstud. 18/8 — mi&nætursýning kl. 23.30 - Sunnud. 20/8 — fjölskyldusýning kl.
17.00 (lækkab verb) - Sunnud. 20/8 — sýning kl. 21.00
Mi&asala opin alla daga í Tjarnarbíói frá kl. 12.30 — kl. 21.00. Miöapantanir
símar: 561 0280 og 551 9181, fax 551 5015.
„Þab er langt síban undirritabur hefur skemmt sér eins vel í leikhúsi."
Sveinn Haraldsson, leiklistargagnrýnandi Morgunblabsins.