Tíminn - 21.10.1995, Qupperneq 8

Tíminn - 21.10.1995, Qupperneq 8
8 flflHllW FJÁRMÁL HEIMILANNA Laugardagur 21. október 1995 Kaupmáttur greidds tímakaups í dagvinnu jókst um 2,2% á 2. ársfj. 1994 til sama tíma 1995. Algengustu launahœkkanir 3-9%. Kjararannsóknarnefnd: Kaupmáttur mánaðartekna verkafólks jókst um 3,4% Greitt tímakaup í dagvinnu hjá Iandverkafólki innan ASÍ hækkaði um 3,5% frá 2. ársfjórðungi 1994 til 2. árs- fjórðungs 1995. Á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverös um 1,3%, þann- ig aö kaupmáttur greidds tímakaups í dagvinnu jókst um 2,2%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöð- um kjarakönnunar Kjara- rannsóknarnefndar. Þar kemur einnig fram að al- gengustu launahækkanir hjá landverkafólki innan ASÍ voru á bilinu 3-9%. Meðalmaður- inn fékk 5-6% hækkun; al- gengasta hækkunin var hins- vegar 3%, en hana fengu alls 10% launafólks. Aftur á móti var algengasta hækkun verka- fólks og afgreiðslukvenna um 6%, en hjá öðmm stéttum um 2-3%. Mánaðartekjur landverka- fólks innan ASÍ í fullu starfi hækkuðu um 4,7% frá 2. ársfj. 1994 og kaupmáttur ráöstöf- unartekna jókst því um 3,4%. Mánaðarlaun hækkuðu í öll- um hópum, en þó mest hjá verkafólki og afgreiðslukon- um. Á tímabilinu lengdist vinnuvikan lítillega, eða úr 46,7 klst. í 47 klst. Mestar breytingar urðu þó á vinnu- tíma verkakarla og afgreiðslu-. kvenna, en vinnuvika þeirra lengdist um 0,8 og 0,4 stundir. Endursöluaðilar: ""T-ræknival SðmocviroeKNiS tít <Q> _________■■ir.— nyherji OPIN KERFI HF BOÐBND © REIKNISTOFA LVUTÆKI VESTFJARÐA ert stöðvar þig Tími minnistaps er liðinn. Nú getur þú nýtt allt það minni sem tölvan þín hefur - og í nýjum víddum. Windows 95 er heimsviðburður á tölvumarkaði: Einfaldara • þægilegra • hraðvirkara • traustara • fjölhæfara. Með nettengibúnaði fyrir alnet og fjölda af nýjum frábærum hjálparforritum og möguleikum. Ekkert forrit hefur verið reynsluprófað af jafn mörgum, jafn víðtækt og i jafn langan tíma. EINAR j. SKULASON HF Grensásvegi 10, Sími 563 3000 Umboðsaðili fyrir Microsoft á íslandi Vinnutími annarra stétta breyttist lítið. Samkvæmt úrtaki nefndar- innar hækkaði tímakaup lægst launuðu hópanna mest á tímabilinu. Þannig hækkaði greitt tímakaup verkafólks og afgreiðslukvenna að meðaltali um 5- 5,8% á tímabilinu, en skrifstofukvenna, afgreiðslu- karla og iðnaðarmanna hækk- aði að meðaltali um 1,4-2,3%. Greitt tímakaup skrifstofu- karla hækkaði hinsve^gar um 0,2% að meðaltali. í úrtaki nefndarinnar eru skrifstofu- fólk og afgreiðslukarlar minnstu hóparnir og launa- munur innan þeirra því mest- ur. Kjararannsóknarnefnd tel- ur því að úrtakssveiflur hafi mikil áhrif á niðurstöður þess- ara hópa. Samkvæmt kjarasamning- um aðila vinnumarkaðarins í febrúar sl., hækkuðu allir kauptaxtar í lok þess mánaðar um 2.700 kr. á mánuði. Að auki hækkuöu laun undir 84 þús. kr. sérstaklega um allt að eitt þúsund krónur eftir ákveðnum „reiknireglum", eins og segir í frétt frá Kjara- rannsóknarnefnd. Vegna þess aö um krónutöluhækkun var að ræða, þá var hlutfallsleg hækkun mest á lægstu kaup- töxtum, sem síðan stigminnk- ar eftir því sem taxtarnir eru hærri. í samningunum mátu menn hækkunina um 3,6% á meðallaun. -grh Leiöbeiningastöö um fjármál heimilanna: Ráögjöf fyrir pá sem eiga í miklum vanda Stefnt er að því að Leiðbein- ingastöð um fjármál heimil- anna taki til starfa um næstu áramót. Leiðbeiningastöðin er tilraunaverkefni til tveggja ára á vegum félagsmálaráðu- neytisins. Viðfangsefni henn- ar er fyrst og fremst að að- stoða fólk sem á í verulegum greiösluerfiðleikum og er komið í þrot með fjármál sín. Árni Gunnarsson, aðstoöar- maður félagsmálaráðherra, seg- ir að áfram sé gert ráð fyrir að þungamiðja fjármálaráðgjafar verði hjá innlánsstofnunum og Húsnæðisstofnun, en hægt verði að vísa þeim, sem ekki fá úrlausn sinna mála þar, til Leið- beiningastöðvarinnar. Starf- semin muni felast í því að hjálpa fólki að fá yfirsýn yfir stöðu mála, veita því hjálp við gerð greiðsluáætlana, velja úr- ræði og semja við lánardrottna. Árni segir að fjöldi fólks leiti til ráðuneytisins í viku hverri vegna alvarlegra fjárhagsvand- ræða. Til lengri tíma litiö er ætlun- in að eitt meginmarkmið Leið- beiningastöðvarinnar verði að veita fræðslu um fjármál heim- ilanna, jafnframt því sem henni er ætlað að veita lána- stofnunum aðhald og standa vörð um réttindi skuldara. Félagsmálaráðuneytið er í viöræðum við 15 aðila um þátt- töku í verkefninu. Þar á meðal em ASÍ, BSRB, Húsnæðisstofn- un, Bændasamtökin, Neyt- endasamtökin, Þjóökirkjan, bankar og sparisjóðir. Tillagan hefur fengið góðar viðtökur hjá þeim aðilum sem rætt hefur verib við. - GBK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.