Tíminn - 09.12.1995, Qupperneq 9
Laugardagur 9. desember 1995
wmm*
9
Krossanesverksmib j an
seld á 150 milljónir
Þessa dagana er verib aö ganga
endanlega frá samningi Akureyr-
arbæjar vib Fimmuna hf. og Lán
hf. um sölu á hlut bæjarins í
Krossanesverksmibjunni. Samn-
ingurinn var endanlega af-
greiddur á fundi bæjarstjórnar
nú í vikunni og hljóbar upp á
greibslu á 150 milljónum króna
fyrir bréfin, en nafnverb þeirra
er 110 milljónir.
í samkomulaginu kemur fram ab
greiöslur vegna bréfanna veröa
inntar af hendi á næstu sex mán-
uöum, auk þess sem ábyrgöum Ak-
ureyrarbæjar aö upphæö 280 millj-
ónum króna veröur aflétt. Fyrsta
greiösla aö upphæö 10 milljónir
veröur innt af hendi við undirritun
samningsins, 20 milljónir verða
greiddar þann 20. desember næst-
komandi, 45 milljónir 15. febrúar,
35 milljónir 31. mars og 40 millj-
ónir 31. maí.
Fjögur tilboð bámst í Krossanes-
verksmiöjuna: frá Þórarni Krist-
jánssyni og fleirum er standa aö
baki Fimmunni og Láni, frá Laxá
hf., frá Oddi H. Halldórssyni og
fleirum, og frá Sverri Leóssyni.
Sverrir Leósson er afar ósáttur viö
afgreibslu bæjarstjórnar, þar sem
hann telur tilboö sitt hafa veriö
hagstæðara en það tilboö sem tek-
iö var, eöa 160 milljónir króna á
móti 150 milljónum. Tilboð Sverr-
is barst á hinn bóginn mjög seint
eöa eftir að bæjarráösfundur, er
fjallaði um tilboöin, var hafinn og
aö sögnjakobs Björnssonar bæjar-
stjóra því ekki unnt aö taka þaö á
dagskrá á fundinum þar sem lagt
var til aö ganga til samninga viö
Fimmuna og Lán. M.
Úr myndinni.
Kvikmyndin Agnes frumsýnd fyrir jól:
Svik og blóðug hefnd
Sumartími ræddur á Alþingi
Fjórir þingmenn hafa flutt
frumvarp á Alþingi þess efnis
að tekinn veröi upp sumar-
tími hér á landi, er hefjist síö-
asta sunnudag í mars og ljúki
síðasta sunnudag í október.
Fyrsti flutningsmabur frum-
varpsins er Vilhjálmur Egils-
son, Sjálfstæbisflokki.
Flutningsmenn segja þetta
gert vegna samræmds sumar-
tíma í aöildarríkjum Evrópu-
sambandsins, en algengt sé ab
forráðamenn fyrirtækja og aörir
hér á landi, sem þurfi aö hafa
mikil samskipti við Evrópu,
kvarti undan því aö sá tími, sem
unnt sé aö hafa samskipti, stytt-
ist verulega þegar tímamismun-
ur lengist úr einni klukkustund
í tvær yfir sumartímann. Þá
benda flutn-
i n g s m e n n
einnig á að
mikilvægt sé
fyrir flugsam-
göngur til og
frá landinu aö
sami tími gildi
hér á landi og í
Evrópu, þar
sem breyta
þurfi öllum
flugáætlunum
haust og vor þegar breytingar
veröa á tímamun.
Tilkoma sumartíma þýöir aö
dagurinn er tekinn klukkustund
fyrr aö sumrinu miöaö viö vet-
urinn. Vinnutími hefst fyrr og á
fólk því meiri möguleika til þess
aö njóta sumarveöráttu og úti-
veru eftir aö vinnutíma lýkur,
þar sem samkvæmt sumartíma
yröi sól hæst á lofti um vestan-
vert ísland kl. 2.30 aö deginum.
Flutningsmenn telja aö meö til-
komu sumartíma gæti skapast
sérstök sumarstemmning hér á
landi eins og gerist í nágranna-
löndunum, en segja jafnframt
aö flutningur frumvarpsins sé
fyrst og fremst tilkominn vegna
þarfa atvinnulífsins, sem sé aö
miklu leyti samtengt.
Sumartími tíökast í öllum
helstu viöskiptalöndum íslend-
inga og segja flutningsmenn
frumvarpsins aö spurningar
hljóti aö vakna um hvers vegna
þeir vilji skera sig úr aö þessu
leyti. -ÞI
„Ástríbur, svik og blóbug
hefnd eru vibfangsefni Agnes-
ar, nýrrar íslenskrar stór-
myndar, sem stybst viö at-
buröi frá fyrri hluta 19. aldar
og veröur mebal jólamynd-
anna í ár. Frumsýning Agnes-
ar veröur föstudaginn 22. des-
ember í Laugarásbíói og verba
almennar sýningar þar og í
Stjörnubíói.
Agnes fjallar um þá dramat-
ísku atburöarás sem leiddi til
síöustu aftökunnar á íslandi áriö
1830, þegar Agnes Magnúsdótt-
ir og Friðrik Sigurðsson voru
tekin af lífi fyrir morð á Natani
Ketilssyni. Þessir atburðir eru
kveikjan aö handriti myndar-
innar, sem Jón Ásgeir Hreinsson
og Snorri Þórisson skrifa. Agnes
er ung og ablaðandi einstæö
móðir, sem starfar sem vinnu-
kona hjá sýslumanni í Húna-
vatnssýslu og eiginkonu hans.
Hún fellur fyrir Natani Ketils-
syni, dularfullum og djarftæk-
um kvennamanni og sjálf-
menntuöum lyflækni, sem
dæmdur hefur veriö fyrir ólög-
lega lækningastarfsemi. Spinnst
af örlagarík atburðarás, þar sem
ástarsamband breytist í martröö
ofbeldis og tortímingar.
María Ellingsen og Baltasar
Kormákur fara með aöalhlut-
verkin, en helstu leikarar aðrir
eru Egill Ólafsson, Hilmir Snær
Guönason, Magnús Ólafsson,
Hanna María Karlsdóttir, Guö-
ný Guðlaugsdóttir, Gottskálk
Dagur Siguröarson og Árni Pétur
Guðjónsson.
Leikstjóri er Egill Eðvarösson,
Snorri Þórisson sá um kvik-
myndatöku, Þorbjörn Erlings-
son um hljóö, Þór Vigfússon um
leikmynd, Helga Stefánsdóttir
um búninga, Ragna Fossberg
um förðun, Steingrímur Karls-
son sá um klippingu og Gunnar
Þóröarson samdi tónlist. -BÞ
FRÖDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
HÉÐINSHÚSIÐ SELJAVEGUR 2
SÍMI: 515 5500 FAX: 515 5599
MIÐFJARÐARÁ er litauðug og glœsileg bók!
MIÐFJARÐARÁ er óskabók allra
stangaveiðimanna!
LITRÍK SAGA
NÁ TTÚR UPERLU
Miðfjarðaró er ein af perlum íslenskra
laxveiðióa og oftast í flokki þeirra sem gefa
mesta veiði. Miðfjarðará er fjölbreytt og
býður upp á flest það sem stangaveiðimenn
sœkjast eftir.
Bókin er leiðsögn til veiðimanna. Hún kynnir
þeim sögu héraðsins, segir frá jörðum sem
eiga land að ánni og ábúendum þeirra,
rekur sögu veiða fyrir daga stangaveiðinnar
og sögu Veiðifélags Miðfirðinga. Veigamesti
þáttur bókarinnar er nákvœm lýsing á öllum
veiðistöðum í ánni. Þá eru viðtöl við veiði-
menn og veiðisögur frá ánni.
Fjölmargar Ijósmyndir eru í bókinni,
flestar teknar af Rafni Hafnfjörð
sem kunnur er fyrir veiðimyndir
sínar sem þykjd'einstakar.