Tíminn - 09.12.1995, Blaðsíða 15
Laugardagur 9. desember 1995
15
Lögreglan afhendir sektarmiba.
Blátt-áfram
bók kemur út
um að hann ætli að gefa út opin-
skáa bók um hana. Jodie og
ónefndur maður röltu í makind-
um sínum um Southampton-
þorpið á Long Island og sýndi hún
engin merki þess að yfirlýsingar
Buddys kæmu á nokkurn hátt illa
við hana.
Óskarsverölaunahafinn hefur ver-
ið lítið fyrir að hlaða kringum sig
glitiandi lúxusvarningi, þótt hún
hefði sjálfsagt efni á því. Hún og
dularfulli gæinn rúntuöu um á Ve-
spu, keyptu fisk og franskar, skoð-
uðu í búðarglugga og fóru í kynn-
isferðir um nágrennið. Að vísu féll
einn léttur blettur á ferðalagið,
þegar lögreglan stoppaði þau
vegna þess að hjálmarnir sátu ekki
rétt á höfði þeirra. Jodie tók mál-
inu með stillingu, eins og hennar
er von og vísa, tók við sektarmiö-
anum, stakk honum í vasann og
hjúin brunuðu af stað með hjálm-
ana í réttum stellingum. ■
Hjáimarnir á höfubiö.
í SPEGLI
TÍMANS
Elizabeth Taylor.
Jodie Foster er þekkt fyrir að halda
þéttan vörð um einkalíf sitt. Hún
sýndist samt sem áður skemmta
sér hið besta í fríi sem hún tók sér
fyrir skömmu, þó að Buddy bróðir
hennar hafi verið með yfirlýsingar
Elizabeth Taylor:
Lætur Fort-
ensky fjúka
Veslings Elizabeth Taylor stend-
ur í stórræðum einu sinni enn.
Nú er hún nefnilega að skilja við
8. eiginmann sinn, hinn unga
Larry Fortensky, verkamanninn
sem hún kynntist á Betty Ford-
drykkjumannahælinu fræga. Ja,
ljótt er frá aö segja.
Larry getur bara ekki þolaö
hroturnar í Liz síðan hún kom
heim af sjúkrahúsinu eftir vel-
heppnaða mjaðmakúluaðgerð.
Þá lét Elizabeth hann líka vita,
að keðjureykingar hans væru al-
veg óþolándi.
Punktur! Nú er illt í efni og
búist er viö lögskilnaði þá og
þegar. ■
Dularfulli maburinn og jodie fyllilega afslöppub á röltinu um Long Is-
land meb nokkrar tegundir af hreingerningarlegi í poka.
Fréttir I vikulok
Samtök norrænna kennarafélaga:
Styrkja skólastarf á Flateyri og Súbavík
Féiag íslenskra leikskólakenara, Kennarasamband íslands og
Hið íslenska kennarafélag vinna að því að mynda stuðnings-
hóp kennara er geti farið vestur og stutt skólastarf í Súðavík og
á Flateyri eftir snjóflóðin í ár. Til stuðnings þessa átaks hefur
kennarafélögunum verið veittur styrkur að upphæö 1,7 millj-
ónir króna af hálfu Samtaka norrænna kennara.
Sameining sex sveitarfélaga á Vestfjörðum samþykkt:
Kosib í vor um nafn og stjórn
íbúar í sex sveitarfélögum á norðanverðum vestfjörðum sam-
þykktu sameiningu sveitarfélaganna með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða í kosningum sem fram fóru um sl. helgi. Form-
leg sameining þessara sveitarfélaga kemur til framkvæmda
um mitt næsta ár, en þau eru ísafjörður, Flateyri, Þingeyri,
Suðureyri við Súgandafjörð, Mýrarhreppur í Dýrafirði og Mos-
vallahreppur í Önundarfirði. Stefnt er að því að kjósa í nýja
sameinaða sveitarstjórn 11. maí í vor á næsta ári og er fastlega
búist við að þá verði einnig kosið um nafn á sveitarfélaginu.
25 tonn af kalkúni í ár
Kalkúnn verður sívinsælli sem jóla- eða áramótamatur hjá ís-
lendingum. Á Reykjum í Mosfellsbæ fer nánast öll Iandsfram-
leiðslan fram en þar er gert ráð fyrir að setja um 25 tonn á
markað í ár.
Tillaga um mótun fjölskyldustefnu lögð fram í ríkisstjórn:
Fjölskyldu- og jafnréttisráb stofnab
Félagsmálaráöherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í gær til-
lögu til þingsályktunar urn mótun fjölskyldustefnu. Þetta er
afrakstur vinnu sem starfshópur til að yfirfara og endurskoða
tillögur sem geröar höfðu verið ítíö fyrri ráðherra. Nái þetta
mál fram að ganga er þetta í fyrsta sinn sem hér á landi er
mótuð opinber fjölskyldustefna.
Ekki markmib ab fjölga námsmönnum
sem taka lán
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, sagði á Alþingi á mið-
vikudag að ekki væri markmið að fjölga námsmönnum sem
tækju lán. Námsmönnum hafi fjölgað í heild frá því ný lög
um LÍN tóku gildi á árinu 1992 og það hljóti að vera markmiö
í menntamálum. Þessi orð menntamalaráðherra féllu í um-
ræðum utan dagskrár á Alþingi, en málshefjandi var Mörður
Árnason, þingmaður Reykvíkinga.
Lagafrumvarp um réttarstöbu samkyn-
hneigbra
Vinna við lagafrumvarp um réttarstöðu samkynhneigðra í
sambúð er á lokastigi í dómsmálaráðuneytinu og kveöst
dómsmálaráðherra vonast til að geta lagt það fyrir Alþingi
innan tíðar.
Ábúbarfullir Dagsbrúnarmenn á félagsfundi í Bíóborginni á fimmtudag.
Upphlaup á Dagsbrúnarfundi
Upphlaup varð á fundi Dagsrúnar í Bíóborginni á fimmtudag
þegar félagsmenn gengu út í hópum til að sýna andúð sína á
ræðu Hjálmfríðar Þórðardóttur, starfsmanns á skrifstofu Dags-
brúnar. Hluti fundarmanna gerði hróp að henni þegar hún í
ræðu sinni veittist að málflutningi og persónu Siguðar Rúnars
Magnússonar, en hann hafði fyrr á fundinum gagnrýnt stjórn
Dagsbrúnar harðlega. Leystist fundurinn síðan upp í fram-
haldi af því.
Frumvarp félagsmálarábherra um Hús-
næbisstofnun lagt fram
Lánveitingar Húsnæðisstofnunar ríkisins verða framvegis til
15, 25 og 40 ára samkvæmt frumvarpi sem Páll Pétursson, fé-
lagsmálaráðherra, hefur lagt fram um Húsnæðisstofnun. Þá
verður Húsnæðisstofnun ríkisins heimilt að veita skuldurum
fasteignaverðbréfa húsnæðisdeildar og lánþegum Byggingar-
sjóðs ríkisins skuldbreytingu með því að skipta á fasteigna-
verðbréfum fyrir húsbréf til 15 ára. Skilyrði þess sé að fólk eigi
í greiðsluvanda er stafi af óvæntum atburðum, veikindum,
missi atvinnu eöa öðru sem rekja má til óviðráðanlegra or-
saka.