Tíminn - 06.01.1996, Blaðsíða 18
18
qrynyyw'ry
\
Laugardagur 6. janúar 1996
1- A N P L ÁT
Dr. Anna Sigurbardóttir,
forstööumaöur Kvennasögusafns íslands, Hjaröarhaga 26,
Reykjavík, lést aö morgni 3. janúar.
Ágústa Jónsdóttir,
- Vogatungu 87, Kópavogi, andaðist á heimili sínu 2. janúar.
Berta Snædal,
Hvassaleiti 69, lést í Landspítalanum á nýársdag.
Bjarney Holm Sigurgarösdóttir,
lést á vistheimilinu Kumbaravogi 29. desember. Útförin fer fram
frá Fossvogskapellu mánudaginn 8. janúar kl. 13.30.
Borghildur Sigrún Eggertsdóttir,
I.eirutanga 41a, Mosfellsbæ, andaöist á Reykjalundi þann 26.
desember 1995. Jarðarförin fór fram í kyrrþey aö ósk hinnar
látnu þann 4. janúar 1996.
Dagmar jensdóttir,
Hrafnistu við Kleppsveg, Rcykjavík, áður til heimilis á Siglufiröi,
lést á sjúkradeild Hrafnistu 17. desember sl. Jarðarförin hefur far-
ið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Einbjörg Einarsdóttir,
Ásvallagötu 35, Reykjavík, andaðist 20. desember sl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hinnar látnu.
Erica Pétursson Putney,
New Mexico, Bandaríkjunum, lést á heimili sínu þann 27. des-
ember. Jarðarförin hefur farið fram.
Esther Pétursdóttir,
Reynimel 26, lést á heimili sínu aðafaranótt 3. janúar.
Gréta Ólafsdóttir
kennari, Ægisgötu 21, Akureyri, lést að morgni 30. desember. Út-
förin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikud. 10. janúar kl. 13.30.
Guðrún Helgadóttir
er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Guðrún Þ. Júlíusdóttir
frá Sandprýði, Stokkseyri, lést á Kumbaravogi á nýársnótt.
Gunnar Guðmundsson,
Engjavegi 32, Selfossi, andaöist á hjúkrunarheimilinu Ljósheim-
um, Selfossi, 1. janúar.
Gunnlaug Guðmundsdóttir Baldwin
lést í Winnipeg 19. desember sl. Jarðarförin hefur farið fram.
Haraldur Tómasson,
Hvammsgerði 13, Reykjavík, lést á heimili sínu 2. janúar.
Jakob Vigtýr Leó Ólafsson
lést í Borgarspítalanum 3. janúar.
Jóhann M.P. Króknes
lést á Fjórðungssjúkrahúsi ísafjarðar 3. janúar.
Jónína Jakobsdóttir,
Þinghólsbraut 54, Kópavogi, andaðist 23. desember sl. Jaröarför-
in hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Karl M. Einarsson,
áður til heimilis á Nýlendugötu 18, lést á hjúkrunarheimilinu
Grund 3. janúar.
Kristín Kristjánsdóttir
lést 4. janúar.
Kristján Benediktsson
er látinn.
Magnús Jónasson
lést á heimili sínu í Bolungarvík 1. janúar.
Margrét Pálína Gústafsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Víöihlíð mánudaginn 1. janúar.
Martin Jensen
lést í Borgarspítalanum 2. janúar.
Ólafur Ásgeirsson
frá Höfðahólum, til heimilis í Fannborg 8, Kópavogi, lést í Vífils-
staðaspítala 27. desember.
Ólafur Pálsson,
fyrrv. mælingafulltrúi, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 3. janúar.
Ólafur Þórðarson,
Suöurgarði, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja að kvöldi nýársdags.
Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 6. jan. kl. 11. f.h.
Pétur Á. Gubmundsson,
til heimilis í Keflavík, lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 29. desember.
Ríkarbur Sigmundsson
rafvirkjameistari, Sundlaugavegi 20, Reykjavík, andaðist í Land-
spítalanum að kvöldi 28. desember.
Rósa Níelsdóttir,
Freyjugötu 34, Reykjavík, lést 29. desember.
Sigríður Eiríksdóttir,
frá Túnsbergi, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 3. janúar.
Sigrún Þorbjörg Gísladóttir
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness að morgni gamlársdags.
Sigurbjörn Þórbarson,
Ölduslóð 28, Hafnarfirði, lést á nýársnótt.
Sigurbur M. Þorsteinsson,
Aflagranda 40, andabist á Droplaugarstöðum 3. janúar.
Sigurpáll Marinó Þorkelsson,
Aflagranda 40, Reykjavík, lést á heimili sínu 3. janúar.
Svanborg Þórmundsdóttir,
Borgargerði 9, áður Mávahlíð 3, Rvík, lést í Landspítalanum 22.
des. sl. Bálförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Svanhildur Gubbjörg Sigurbardóttir,
Stífluseli 6, lést á gjörgæsludeild Landspítalans að morgni 31.
desember.
Þorbergur Gublaugsson,
veggfóðrarameistari, Frakkastíg 5, Reykjavík, andaðist 2. janúar.
Þorbjörg Jónína Gestsdóttir
frá Þórshöfn lést á dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn miðviku-
daginn 27. desember. Útförin fer fram frá Svalbarðskirkju laugar-
daginn 6. janúar kl. 14.00.
Þorvaldur Jónsson
frá Fáskrúðsfirði, Rauðalæk 20, andaðist 31. desember.
Ólína Magnúsdóttir
Olina Magnúsdottir, kennari á
Kinnarstöðum í Reykhóla-
hreppi, var fædd 1. apríl 1904.
Hún andaðist þann 30. desem-
ber s.l. á Dvalarheimilinu
Barmahlíð.
Ólína átti heimili sitt á Kinn-
arstöðum alla tíö. Hún stundaði
nám við Kennaraskólann í
Reykjavík ung aö aldri og strax
að námi loknu hóf hún störf
sem kennari. Fyrsta veturinn
við ísafjarðardjúp og síðan í
Geiradalshreppi, þar sem hún
starfaði sem kennari sveitarinn-
ar yfir fjóra tugi vetra.
Ólína mat mikils Kennara-
skólann, skólastjóra hans og
kennara, sem hún fékk notið
kennslu hjá. Þar hefur hún
vissulega hlotið vegarnesti, sem
varð henni heilladrjúgt í störf-
um hennar síðar á lífsleiðinni.
Það er óumdeilanlegt, að
kennslustörf Ólínu fyrir Geira-
dalshrepp (eins og hann hét í
hennar starfstíb) voru mikil og
farsæl. Það er stór hópur, sem
fékk notið kennslu hennar, um-
hyggju og alúðar. Oft heyröi ég
t MINNING
þess getið að nemendur frá
Ólínu væru vel undirbúnir til
þess að setjast í framhaldsskóla
til frekara náms.
Mér eru í minni margar góðar
minningar frá þeim tíma sem ég
fékk notið hennar tilsagnar,
þótt mörg ár séu nú liðin. Þá vil
ég minnast eins, að strax að
morgni, áður en kennsla hófst í
almennum fögum, hafði hún
stutta bænastund með nemend-
um sínum. Slíkar stundir gleym-
ast ekki.
Þegar kom að því, að foreldrar
Ólínu gátu ekki annast rekstur
búsins á Kinnarstöðum lengur,
tóku systurnar við, en þær voru
þrjár og ráku það sem félagsbú
af dugnaði og myndarskap. Þær
byggbu vandaö og gott íbúðar-
hús, fjárhús ásamt hlöðu.
Áður en ríkisrafveiturnar raf-
væddu sveitina höfðu systurnar
látið byggja rafstöð á Kinnar-
stöðum, knúna með vatnsorku.
Ráðdeild, framsýni og fyrir-
hyggja einkenndu allar fram-
kvæmdir þeirra.
Ólína giftist ekki og átti ekki
börn, en mörg voru þau börn og
unglingar, sem fengu notið
sumardvalar á Kinnarstöðum
við þroskandi sveitastörf og
góðrar umhyggju þeirra systra.
Systurnar á Kinnarstöðum ólu
upp frænku sína, Steinunni
Magnúsdóttur, sem reyndist
þeim alltaf vel, sérstaklega þegar
aldurinn færðist yfir þær.
Þegar vegasamband var opn-
að yfir Þorskafjarðarheiöi, áður
en Hótel Bjarkarlundur var
byggt, önnuðust systurnar á
Kinnarstöðum móttöku gesta,
sem leysti aðkallandi vanda
ferðamanna.
Ólína var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu.
Nú, við leiðarlok, kveðjum
við Ólínu kennara okkar með
einlægum vinarhug og þakklæti
fyrir langa samfylgd 0£ góða.
Ólafur E. Ólafsson og
fjölskylda
frá Króksfjarðamesi
NYJAR
BÆKUR
í síðasta sinn
— smasögur
eftir Ágúst
Borgþor
Sverrisson
í síðasta sinn heitir smásagna-
safn eftir Ágúst Borgþór Sverris-
son sem út er komið hjá Skjald-
borg. Ein sagan í bókinni,
„Fljótið", hlaut viðurkenningu í
smásagnakeppni Ríkisútvarps-
ins, Klukku Islands, í fyrra, en
hinar hafa ekki birst áður.
í kynningu á bókarkápu segir
m.a. að í sögunum séu leiddar
fram persónur sem séu hvers-
dagslegar á yfirborðinu, en við
lesturinn komi í Ijós margskon-
ar brjálæði og leyndarmál.
„Eitt af meginstefjum bókar-
innar er sjúklegt hömluleysi þar
sem áður viðurkennd fíkniefni
koma ekki við sögu, heldur kyn-
lífsfíkn, matarfíkn og spilafíkn.
Tónninn er oft sorglegur, en
sumar sögurnar eru líka bráð-
fyndnar, því persónurnar lenda
margar hverjar í kostulegum
ævintýrum," segir í kynning-
unni.
Á valdi örlag-
anna — ævi-
minningar
Sigurðar
Demetz
Það er óskadraumur sem fæst-
um óperusöngvurum hlotnast
að komast á samning hjá Scala-
óperunni í Mílanó, en þótt Sig-
urði Demetz hlotnaðist þaö fá-
gæta hnoss varö ævistarf hans
einkum í því fólgið aö vera læri-
meistari margra mestu söngvara
íslands.
Það er Þór Jónsson sem skráir
æviminningar Sigurðar Demetz,
Á valdi örlaganna, en þar er rak-
in mikil saga, bernskuár í Ölp-
unum í skugga styrjaldar, her-
þjónusta á Italíu, söngnám og
glæstar framavonir, uns tilvilj-
unin bar þennan merka lista-
mann til íslands.
Það er Iðunn sem gefur bók-
ina út.
Ný hljóöbók:
Odysseifs-
kviða Hómers
í þýðingu
Sveinbjarnar
Egilssonar
Út er komin á hljóðbók Odys-
seifskviða Hómers í þýðingu
Sveinbjarnar Egilssonar, lesin af
Kristjáni Árnasyni. Odysseifs-
kviða er eitt af öndvegisverkum
heimsbókmenntanna og lýsir
ævintýralegri heimferð kappans
Odysseifs frá Trójuborg og
heimkomu til eyjarinnar Iþöku
þar sem hin trygga eiginkona,
Penelópa, hefur beðið hans,
umsetin biðlum, í nær tuttugu
ár. Upptakan var gerð hjá Ríkis-
útvarpinu og flutt þar síöastlið-
inn vetur, en fjölfölduð hjá
Hljóðbókagerð Blindrafélagsins
og er á átta snældum. Hljóðbók-
in er gefin út af Bókmennta-
fræðistofnun Háskóla íslands.
Háskólaútgáfan sér um dreif-
ingu.
Júlíus Blum
veit sínu viti
Út er komin barna- og ung-
lingabókin Júlíus Blum veit sínu
viti eftir Bo Carpelan.
Júlíus er 11 ára gamall og á fáa
sína líka. Hann fer ótroðnar
slóðir, áhugamálin eru sérstök,
uppátækin skrýtin og heimur-
inn er honum óendanlegt
furðuverk. Hvernig bregðast
menn við slíkum fugli?
Þetta er einstök bók eftir einn
fremsta höfund Norðurlanda og
vekur bæði börn og fullorðna til
umhugsunar. Bókin er prentuð
í Gutenberg. Kápugerð annaðist
Gunnar Karlsson. Útgefandi er
BJARTUR. Verð bókarinnar er
1.380 krónur. ■
Odysseifur hlýðir á söng sírenanna, bundinn fastur við mastrið á skipi
sínu. Forn teikning.