Tíminn - 18.01.1996, Síða 3

Tíminn - 18.01.1996, Síða 3
Fimmtudagur 18. janúar 1996 wnTlíEEO.12. tui. 3 Lögreglufélag Reykjavíkur óskar eftir endurskobun á kaupsamningi Hitaveitu Reykjavíkur vegna Hvamms- víkur. Hitaveitustjóri: Ekkert mál að selja löggunni jarðhitann „Ég veit ekki hvaö vakir fyrir þeim. Þeir ætla víst aö selja þetta," segir Gunnar Kristins- son hitaveitustjóri Hitaveitu Reykjavíkur. Hann segir aö þaö sé í sjálfu sér ekkert mál aö selja Lögreglufélaginu jarö- hitaréttinn á svæöinu fyrir sama pening og borgin greiddi fyrir hann á sínum tíma. Á fundi borgarráðs þriöjudag- inn 9. janúar sl. var lagt fram bréf frá Lögreglufélagi Reykja- víkur frá 8. þ.m. þar sem óskað er endurskoðunar á kaupsamn- ingi Hituveitu Reykjavíkur vegna jarðanna Hvamms og Hvammsvíkur í Kjósarhreppi varöandi kaup á heitu vatni. Er- indinu var vísað til umsagnar stjórnar veitustofnana, sem væntanlega mun taka afstöðu til málsins á fundi sínum n.k. föstudag. Eins og kunnugt er þá keypti borgin á sínum tíma jarðhita- réttinn og borholurnar á svæö- inu af Lögreglufélagi Reykjavík- ur fyrir 25 milljónir króna. Um tíma stóð til að borgin keypti jarðirnar líka fyrir allt að 70 milljónir króna en af því varð ekki. Hitaveituveitustjóri segir að samkvæmt niðurstöðu mælinga á svæðinu sé þar ekki að hafa nema eina litla borholu með sjálfrennandi vatni, sem með dælingu gefur 12-13 sekúndu- lítra lítra af 84-85 stiga heitu vatni. Hann segir að það sé of lítið til aö hægt sé að fara með það á markað, auk þess sem markaöurinn þarna í kring sé lítill. -grh / Margrét Fribriksdóttir, skóiameistarí MK, í nýbyggingunni viö Menntaskólann í Kópavogi, sem veröur innréttaöur á nœstU mánuöum. Tímamynd: BC Menntaskólinn í Kópavogi hefur kennslu í matvœla- og hótelgreinum nœsta haust: Mekka kennslu í matvæla- og ferðaþjónustugreinum Segja Island aðila að grófum mann- réttindabrotum Fimm íslendingar hafa sent áskorun til ríkisstjórnar ís- lands þar sem aðild íslend- inga aö grófum mannrétt- indabrotum er mótmælt. Þá er átt viö viðskiptabann sem ís- land er aöili aö gagnvart írösku þjóöinni og er árásum Bandaríkjamanna og Breta á skotmörk í írak áriö 1991 jafnframt harölega mótmælt. „Engin mannréttindabrot sem ógnarstjórnin í Baghdad er sökuð um að hafa framið jafnast á við þau mannréttindabrot sem orsakast af þessum refsiað- gerðum. Þótt þær séu að undir- lagi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er framkvæmd refsi- aðgerðanna í höndum einstakra ríkja, þ.m.t. íslands... Það er því krafa okkar að íslensk stjórn- völd afturkalli hið fyrsta aðild íslands að þessum glæpum og jafnframt láti rannsaka með opnum og opinberum hætti hvernig á því stendur að ís- lenskir stjórnarhættir geti leitt til þess ab slík óhæfuverk njóti libsinnis handhafa ákvöröunar- valds í landinu," segir m.a. í ályktuninni. Undir þetta skrifa Axel Árna- son sóknarprestur, Carlos A. Ferrer sóknarprestur, Elías Dav- íðsson tónskáld, Óskar Dýr- mundur Ólafsson sagnfræðing- ur og Pétur Knútsson lektor. -BÞ „Viö höfum aldrei veriö aö horfa á nám á háskólastigi heldur framhaldsskólastigi," sagöi Margrét Friöriksdóttir, skólameistari Menntaskól- ans í Kópavogi í samtali við Tímann. Nýbygging viö MK er aö komast á lokastig, búiö er aö semja um innréttingar sem til þarf þannig aö mat- argeröarmeistarar framtíöar- innar fái góða aöstöðu til náms síns. „í þennan matvælaskóla sem hér er verið að byggja flyt- ur Hótel- og veitingaskóli ís- lands sem verið hefur á Hótel Esju. Hann verður þá lagður niður þar. Síðan koma mat- væladeildirnar úr Iönskólan- um í Reykjavík, bakararnir og kjötiðnaöarmennirnir sem þar hafa verið. Þetta eru þessar lögbundnu iðngreinar á þessu sviði, þjónar, matsveinar, bak- arar, kjötiðnaðarmenn, slátr- arar og svo munum við einnig bjóða styttra starfsnám á þessu sviöi, sem er ekki lögbundið nám, til dæmis skyndirétta- matreiösla og smurbrauðs- gerð," sagði Margrét Friöriks- dóttir. Margrét sagði að auk þessa yrbi við skólann heföbundið meistaranám fyrir matvæla- greinarnar. Það mætti segja að það nám væri um sumt á há- skólastigi án þess að skólinn yrbi þó háskóli. „Námið hjá okkur rekst ekk- ert eða sáralítið við það sem á að fara að kenna við Háskól- ann á Akureyri. Fyrir norðan er mikið matvælaframleiöslu- svæbi og í sjálfu sér engin goð- gá þótt eitthvað nám á þessu sviði verði á boöstólum þar. Mér skilst að að veröi aðallega í matvælafræöum, á þessu sviði er mikil framtíð," sagði Margrét. Viðbyggingin við Mennta- skólann í Kópavogi er núna tilbúin undir tréverk. Nýlega var gengið frá samningi við verktaka um innréttingar og er hann ab hefja störf. „Við byrjum að kenna í haust. Kennslurýmið er fyrir 300 til 400 nemendur í verk- námi. En hins vegar eru ekki nærri svo margir í þessu námi í dag, ef horft er á þessar lögbundnu greinar. En við höfum um all- mörg ár verið með ferðamálin, Leiðsögumannaskólann og ferðamálabraut í dagskóla og kvöldskóla. Þá er meiningin að við förum að líta meira á hótelin og sérhæfa okkur og þróa í þessum skyldu greinum, ferða-, hótel-, veitinga- og matvælasviði," sagði Margrét Friðriksdóttir. Auknar líkur á oð gróöurhúsaáhrifin rœni íslendinga Golfstraumnum: Útstreymi koltvísýrings eykst um 63% á Islandi á áratugnum „Búist er viö aö útstreymi koltvísýrings á íslandi aukist um 5% á ári frá viömiöunar- árinu 1990 til ársins 2000, ef ekkert er aö gert", segir í frétt frá umhverfisráöuneyt- inu. Útstreymi koltvísýrings eykst þannig um 63% á ára- tugnum þrátt fyrir íslenska undirskrift Ríó-samningsins, þar sem því var heitiö aö út- blástur koltvísýrings yröi ekki meiri áriö 2000 heldur en áriö 1990. Meginástæðan er stöðugt vax- andi notkun á olíu og bensíni. Ný skýrsla byggð á niðurstööum 2.000 vísindamanna dregur upp enn alvarlegri mynd af um- hverfisvanda vegna gróður- húsaáhrifa en fyrri skýrslur hópsins. Hugsanleg röskun á Golfstraumnum yrði alvarleg- ust fyrir íslendinga, vegna áhrif- anna á veðurfariö og fiskimiðin. Ríkisstjórnin hefur ákveöið veita sérstaklega 1 milljón króna til að tryggja að a.m.k. tveir íslenskir fulltrúar, í stað eins, sitji þá þrjá samningafundi um loftlagsbreytingar á vett- vangi Rammasamnings S.Þ., sem haldnir verða á árinu. Ríkis- stjórnin samþykkti einnig skip- un sérstakrar nefndar aðstoðar- manna ráðherra í 7 ráðuneyt- um, sem ætlað er að hafa um- sjón með framkvæmdaáætlun íslands vegna Rammasamnings- ins. Samkvæmt greinargerð um þróun loftlagsbreytinga hefur 2.000 manna hópurinn bætt vísindalegan grunn niðurstaðna sinna frá fyrri skýrslum. Og út- litið er enn alvarlegra en þeir héldu áður. í niöurstööum skýrslunnar kemur m.a. fram: -Styrkur gróðurhúsaloftteg- unda af mannavöldum heldur áfram að vaxa þrátt fyrir góö áform í Ríó- samningnum sem undirritaður var af fulltrúum flestra þjóða. -Síbustu árin hafa verið með þeim hlýjustu síðan mælingar hófust, um 1860, og svæðis- bundin dreifing loftlagsbreyt- inganna þykir benda til ab þær séu af mannavöldum. -Yfirborö sjávar hefur hækkað um 10 til 25 cm sl. hundraö ár, líklega vegna hækkandi sjávar- hita og vaxandi jöklaleysinga. -Þeir útreikningar sem raun- hæfastir þykja benda til 2ja gráðu hækkunar á mebalhita jarðar til ársins 2100, sem mundi líklega leiöa til 50 cm hækkunar sjávarborðsins. Talið er að jöklar, aörir en Græn- landsjökull og Suðurskautsjök- ull, muni rýrna um allt að 2/3 og hugsanlegt að hafstraumar geti breyst. Um ísland er ekki fjallað sér- staklega, en sagt ab á Norður- Atlantshafi norðanverbu verði hlýnun líklega ekki eins mikil og annars staðar á sömu breidd- argráðum, þar sem breyting á hafstraumum geti vegið upp vaxandi gróðurhúsaáhrif á haf- svæöum í grennd vib ísland. Fyrirsjáanlegar loftlagsbreyting- ar geta breytt búsetuskilyrðum ýmissa lífvera. Hætta þykir á að margar plöntu- og dýrategundir deyi út vegna þess hve hratt þessar loft- lagsbreytingar ganga yfir. Öll skilyrði til matvælaframleiöslu munu breytast mjög mikið, landkostir versna til muna á sumum svæðum en batna á öðr- um. Ljósu punktarnir í skýrslunni byggjast allir á: Ef... og ef... og ef... Með því að stöðva eyöingu skóga og efla skógrækt væri t.d. hægt að binda árlega 15-30% af magni koltvísýrings sem losað- ur var út í andrúmsloftiö 1990. -JBP Svavar Gestsson um uppskipt- ingu Landsvirkjunar: Útilokar ekkert Eins og fram hefur komiö í fréttum eiga sér nú stað viðræb- ur um að skipta upp Landsvirkj- un, annað hvort þannig að fyr- irtækið verði selt eða að eigend- ur leysi til sín eignarhluta. Svavar Gestsson, sem sæti á í iðnaöarnefnd þingsins og í stjórn Landsvirkjunar, segir að innan stjórnarinnar hafi verið komið á fót nefnd sem sé ab at- huga þessi mál sérstaklega. „Ég fyrir mitt leyti útiloka ekki neitt og geng í þetta verk með opnum huga," segir Svav- ar. „Hins vegar legg ég á það áherslu að umræba verði ekki til þess aö spilla fyrir eðlilegri þró- un málsins." a

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.