Tíminn - 18.01.1996, Side 8

Tíminn - 18.01.1996, Side 8
8 Fimmtudagur 18. janúar 1996 okkur ógleymanlega hátíölegar stundir nokkrum sinnum. Fyrir það erum viö mjög þakklát. Nú á jóladag (1995) kom þetta sterklega upp í huga mér og varð til þess að ég setti það á blað. Að þessu sinni hafði séra Jón ísleifsson veg og vanda af undirbúningi jólakaffisins með góðu meðlæti og sýndi í því hlýja hugulsemi. Þá hugulsemi kunnu kirkjugestir vel að meta og voru honum þakklátir fyrir. Þó ég af sérstökum ástæðum gæti ekki sótt þessa jólaguðs- þjónustu og því ekki notið þess með vinum mínum, er þar fór fram, vil ég þakka vini mínum, séra Jóni, fyrir messuna og viö- aukann við hana. Okkur gáfust að þessu sinni kyrrlát jól. Jörðin er klædd hvítum jafnföllnum möttli frá fjöru til fjalla. Vegir til allra bæja sveitarinnar greiðfærir. Það nýttu sóknarbörnin vel. Var kirkjan vel sótt og öllum gafst kostur á að njóta jólaboð- skaparins. Aöeins eitt vantaði á að jólasería náttúrunnar væri í fullu samræmi við jólahugsun okkar. Himinninn var svo hul- inn samfelldum skýjum að ekki sást jólastjarnan „blika á himni hátt". En við vitum að hún var og er á sínum stað og veitti birtu sinni yfir jólahelgina. Því gátu allir sungið um hana í ljúf- um hugblæ jólanna hér við nyrsta haf íslands stranda. Sveitungum mínum og vin- um nær og fjær óska ég gleði- legra jóla. Bœ, á jóladag. Höfundur er bóndi. Ályktun lokaráöstefnu átaksins Stöövum unglingadrykkju: Veitum forvörnum forgang Meö forvörnum er hlúð aö grundvallarþáttum samfélags- ins og undirstöðum þess. í for- vörnum felst sú mannrækt sem mikilvægasti auður hvers sam- félags grundvallast á, mann- auöurinn. í ljósi þess skora þátt- takendur á ráöstefnu átaksins Stöðvum unglingadrykkju, sem haldin var í Reykjavík 10. janú- ar 1996, á stjórnvöld, skóla- og fræðsluyfirvöld, æskulýðssam- tök, foreldra og foreldrasamtök að sameinast um að veita for- vörnum þann forgang sem þeim ber. Mikilvægt er að þjóð- in standi saman í að afmá þann blett sem barna- og unglinga- drykkja er á íslensku samfélagi. Skilaboð samfélagsins þurfa að vera skýr: Ekki verður unað við áfengisneyslu barna og ung- linga. í æsku og á unglingsárum er lagður grunnur að framtíð hvers einstaklings. Á því ævi- skeiði er að finna mikilvægar forsendur lífssýnar, þroska og heilbrigði síöar á ævinni. Sífellt verður ljósara að áfeng- is- og fíkniefnaneysla barna og unglinga getur raskaö uppvaxt- arferli þeirra og ógnað velferð þeirra og framtíð. Sá vandi er fjölþættur og snertir nánast alla þætti samfélagsins. Þessu þarf aö mæta með víð- tæku forvarnastarfi. Að því verða allir að vinna. Upplýs- ingastarf er einn liður í for- varnastarfi gegn fíknifefna- neyslu og felur í sér allt það sem fræðslu- og uppeldisstarf getur áorkaö á hverjum tíma. Skólinn er áhrifamikill aðili í uppeldi og mótun ungmenna. Um árabil nær hann til flestra á við- kvæmu mótunarskeiði. Hann hefur auk þess á að skipa starfs- liöi með þekkingu á fræöslu- og uppeldisstarfi. Skólinn er því kjörinn vettvangur fyrir fræðslu og upplýsingar um fíkniefna- mál. Þrátt fyrir ótvírætt hlutverk skólans í forvarnastarfi má ekki undanskilja ábyrgð foreldra. í uppeldi á heimilunum leggja foreldrar mikilvægasta grunn- inn að lífsgildum og verðmæta- mati barna sinna. Því má segja að vímuvarnir hefjist heima. bæði með samgöngur og ann- að. En samt héldu kirkjugestir áfram að stinga saman nefjum, heilsast og skiptast á orðum um •daginn og veginn að messu lokinni, úti undir veggjum kirkjunnar og annarstaðar þar sem afdrep var. Fór þaö þá eftir veðri og vindum hversu næðis- samt var til þeirra hluta. Með byggingu nýju sóknar- kirkjunnar hefur að nokkru verið hugsað fyrir þessum þætti safnaðarstarfsins. Fordyri kirkj- unnar er rúmgott og til hliðar við það eru á aðra hönd hrein- lætisaðstaða og fatageymsla, en á hina lítið herbergi. Hefur það m.a. verið notað til „að hella upp á könnuna" að gömlum sið, að lokinni messugerð. Þar hafa kirkjugestir fengið kaffi- sopa og eitthvert meðlæti, sér til hressingar. Hefur þetta mælst vel fyrir og er vinsælt að njóta þess í hlýju kirkjunnar. Hafa konur safnaðarins og sóknarprestur séð um undir- búning þess. Menn doka við, kastast á kveðjum og orðum, jafnframt því sem þeir gæða sér á volgum kaffisopa. Með þessu er sá gamli og góði siður „kirkjukaffið" endurvak- inn. Eru kirkjugestir sammála um að þetta sé góður þáttur í kirkjugöngunni, til viðbótar guðsorðalestri og sálmasöng, sem gott er að njóta hverju sóknarbarni og kirkjugesti sem þar kemur inn. Einnig býður kirkjan upp á fjölbreytni ýmiskonar og hafa sóknarbörn notið þess í nokkr- um mæli undanfarin ár í heim- sókn tónlistarmanna og að- komupresta, sem hafa veitt Sá siður mun hafa verið algeng- ur viö kirkjusókn í sveitakirkj- um landsins, að kirkjugestir voru boðnir inn á prestssetrun- um og þeim veitt hressing að messu lokinni. Eftir að farið var að hafa kaffi til skyndiveitinga mun það hafa orðið fyrir valinu ásamt einhverju meblæti. Var það kallað „kirkjukaffi". Þar sem prestar sátu kirkjustaðina kom í hlut þeirra að bera uppi þessa risnu. Á öðrum kirkjustöðum mun þessi risna hafa hvílt á kirkjuhaldaranum, sem þá var ábúandi á staðnum. Þessi góbi siður var kirkju- gestum kærkominn og mörg- um full þörf, eftir Ianga ferð til kirkjunnar, oft fótgangandi. Messur tóku þá lengri tíma en síðar varð. Aldrei vissi ég til að menn hefðu þá með sér nesti í kirkjuferðir og fólkinu var því full þörf á að fá hressingu áður en lagt var af stað heimleiðis. Hitt var þó engu síður mikil- vægt, að með þessu gafst fólki tækifæri til aö skiptast á orðum og fréttum eftir því sem tími gafst til og ná þannig nánari umræðu en það átti kost á í daglegri önn sinni og fá- breytni. Fyrir prestinn var þetta líka tækifæri til að ræða vib sóknarbörn sín um hagi þeirra, daglega hætti og störf, á öðru sviði en messugerðin bauð uppá. Hér í Árnesi var þessi siður viðhafður frá því ég man fyrst eftir mér við kirkju. Séra Sveinn Guðmundsson og frú Ingibjörg Jónasdóttir og Elínborgar frá Skarði héldu þessum sið vel við þau 20 ár (1916-1936) sem séra Sveinn var prestur hér. Þess var vel gætt að enginn yrði útund- an, þó minna ætti undir sér en Árneskirkja. aðrir. Allir voru jafnir við þeirra borð. Kaffib hennar frú Ingi- bjargar var sérstakt og ávallt til ef gest bar að garði. Var þó mik- il fátækt í búi þeirra fyrstu árin, en batnaði fljótt til muna. Þau séra Þorsteinn Björnsson, síðar Fríkirkjuprestur, og Sigur- rós Torfadóttir, kona hans, frá Ófeigsfirði, héldu uppi sama sið þegar þau tóku við prest- skap og staðarhaldi eftir séra Svein og Ingibjörgu. Eftir að þau fluttust í annað prestakall og aðrir komu til, varð þetta ekki eins fastur og sjálfsagður libur í kirkjusókninni. Enda fóru þá breyttir tímar í hönd, Gubmundur P. Valgeirsson: Gamalt og nýtt? Kirkjusókn — kirkjusibur Atvinnuleysi í hagfræbi samtíbarinnar í umræðum og blaðaskrifum um atvinnuleysi að undanförnu hér- lendis hefur lítill gaumur verið gefinn skýringum á því fyrirbæri í hagfræbi samtíbarinnar. Af þeim sökum er hér rakin útlistun kunns bandarísks hagfræðings, Pauls Krugman, á orsökum þess í erindi, fluttu á málþingi á vegum Seblabanka Bandaríkjanna í Jack- son Hole í Wyoming 25.-27. ág- úst 1994 (en birtu í Reducing Un- employment: Current Issues and Policy Options). Paul Krugman fórust m.a. svo orð: „Umfjallanir um tilgreiningu þess, hvert atvinnuleysi beri, hefj- ast oft á þeirri tilgátu, fram settri af Friedman og Phelps um daga síbustu kynslóðar, ab alla jafna marki „náttúrulegt stig" atvinnu- leysis efnahagslíf landa. Útþensla samanlagbrar eftirspurnar þrýstir atvinnuleysi niöur fyrir það stig, en þá ekki einungis gegn meiri, heldur líka vaxandi, verðbólgu. Bakfall samanlagbrar eftirspurnar kann hins vegar að þrýsta at- vinnuleysi upp fyrir hið náttúm- lega stig, og fer þá minnkandi verðbólga á eftir." (Bls. 51) Að þessari tilgátu (svo að end- ursögn sé upp tekin), veröur at- vinnuleysi sagt vera tvenns kon- ar: „Hagsveiflu"-tilvik kringum hið náttúrulega stig, sem rakin verða til breytinga á samanlagðri eftirspurn og innviða-hneigða EFNAHAGSMAL 1. GREIN (structural movements) í hinu náttúrulega stigi sjálfu fyrir sakir breyttra skilyrða á vinnumarkaði eða ýmissa breytinga á fólksfjölda eða fleira slíks. Frá áttunda áratugnum hefur tilgáta þessi notið viðurkenningar flestallra hagfræðinga við kennslu í háskólum, en síður á meöal stjórnmálamanna og blaðamanna. Ástæða er þess vegna til að benda á, að í Banda- ríkjunum að minnsta kosti komi hún heim og saman við reynsl- una. „Frá 1973 til 1992 var stig at- vinnuleysis á meðal kvæntra karla yfir 4% á ellefu árum, en neðan þess á átta árum.... Raunin er sú, að samhengi atvinnustigs og verðbólgustigs var mjög náið: Öll nema tvö ár atvinnuleysis- stigs umfram 4% dró úr verð- bólgu; öll ár atvinnuleysis undir 4% óx verðbólga (Bls. 52). ... Bandaríkin eru sérstæð um það, að í þeim verður ekki greind lang- tíma breytingarhneigö í stigi at- vinnuleysis." (Bls. 53) í öðrum iðnaðarlöndum þarf að meta tilvik í hinu náttúrulega stigi sem og samhengi þeirra og veröbólgu. „Hið vaxandi atvinnu- leysi í OECD-löndum frá önd- verðum áttunda áratugnum er að miklu leyti „innviöa atvinnu- leysi". Það verður ráðið af því, að þau atvinnuleysisstig, sem svara til jafnrar verðbólgu, hafa ótví- rætt fariö hækkandi, einkum í Evrópu.... Að vísu bendir fallandi verðbólga í OECD-löndum frá 1992 til þess, aö í viðvarandi stigi atvinnuleysis felist líka hag- sveifluþáttur. ... Engu að síður virðist vandamál atvinnuleysis að miklum hluta glögglega stafa af hækkunarhneigð hins náttúru- lega stigs og hér verður áfram haldið á þeirri forsendu, að sá sé mergur málsins." (Bls. 53) ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.