Tíminn - 18.01.1996, Síða 9
Fimmtudagur 18. janúar 1996
Wmtim
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Fjölskylda Deng Xiaoping:
Auðmenn í kommúnísku kerfi
Deng Xioaping leiðtogi Kina
nálgast nú smám saman enda-
lok lífs síns. Hann er nánast
farinn að heilsu og áhrif hans
á stjórnun Kína eru nú talin
vera minniháttar. Margt er
hinsvegar sem bendir til þess
að börn hans stjórni nú miklu
að tjaldabaki og eru áhrif
þeirra og völd í kínversku sam-
félagi talin gríðarleg. Einnig er
talið að fjölskyldan hafi safn-
að að sér gríðarlegum auði.En
hvað gerist þegar leiðtoginn
deyr?
Spilar bara brids
Deng Xiaoping er aldraður
maður, 91 árs gamall. Samt
stjórnar hann fjölmennasta
landi heims, Kína, með 1200
milljónum íbúa, a.m.k. að
nafninu til. Margt bendir til
þess að heilsu Deng hafi nú
hrakað svo mjög að hann sé
næstum algjörlega ófær um að
fylgjast með því sem gerist í
kring um hann. Hann getur
ekki gengið nema með aðstoð
tveggja, er orðinn verulega
málhaltur og þjáist af Parkin-
sons veiki. Eina sem hann ger-
ir um þessar mundir er að spila
brids með aðstoð yngstu dótt-
ur sinnar. Hann sást síðast op-
inberlega fyrir um tveimur ár-
um, í tengslum við nýárshátið
Kínverja 1994. En stjórnmála-
menn eru duglegir við að bera
til baka sögusagnir um bága
heilsu leiðtogans, þar sem fjár-
magnsmarkaðir eru óskaplega
viðkvæmir fyrir öllum fréttum
um heilsufar Dengs og taka
dýfu um leið og minnst er á
slæmt ástand hans.
Umdeild fjölskylda
En fjölskylda hans stendur
að baki honum. Hann á þrjár
dætur og tvo syni. Dæturnar
eru Lin (54 ára), þá Deng Nan
og Rong, sem er 45 ára og
yngst dætranna. Synirnir eru
Pufang og Zhifang. Öll börn
Deng fengu bestu menntun
sem völ er á og er Rong t.d.
stjórnmálafræðingur frá John
Hopkins háskólanum í Banda-
ríkjunum og yngsta barn
Dengs, Zhifanger er doktor í
eðlisfræði frá Rochester í New
York. Og fjölskyldan er vægast
sagt umdeild, því að talið er að
hún hafi safnað miklum auði í
gegnum ýmisleg sambönd og
gert hluti sem teljast ekki við
hæfi samkvæmt kínverskum
hefðum. Til dæmis fékk dóttir-
in Rong greiðslu upp á 65
milljónir frá fjölmiðlakóngin-
um Rupert Murdoch, fyrir
samning um tveggja binda
ævisögu föður hennar. Þetta er
talið brjóta gegn venju sem
hefur skapast í Kína um að
skrifa ekki ævisögur leiðtoga
sem eru á lífi. Einnig saka and-
stæðingar hennar hana um að
hafa njósnað um Kínverja er-
lendis fyrir kínversku leyni-
þjónustuna á námsárum sín-
Deng Xiaoping.
um í Bandaríkjunum. Zhifang
er forstjóri þriðja stærsta stál-
fyrirtækis Kína. Hann er náinn
aðstoðarmaður háttsetts ráða-
manns í Kína, Zhou Beifang,
sem er í varðhaldi vegna ásak-
ana um spillingu og efnahags-
glæpi.
Almennt er talið að börn
Deng hafi á síðustu 15 árum
komið sér mjög vel fyrir í kerf-
inu í Kína og notað sambönd
sín til hins ýtrasta. Þá er talið
að Deng sjálfur hafi safnað að
sér gífurlegum auði, og hafa
tölur á bilinu 1-2,5 milljarðar
dollara, eða á bilinu 65-150
milljarðar íslenskra króna ver-
ið nefndar.
Rússneskur hermaöur gcebir sér á dósamat rétt hjá fallbyssu sem notub hefur verib í
stórskotaárusunum á bœinn Pervomaískoje nálcegt landamœrunum ab Téténíu. Fallbyssan á myndinni er í um
800 metra fjarlœgb frá Pervomaískoje, þar sem téténsku skcerulibarnir og u.þ.b. 100 gíslar þeirra eru staddir.
Rússnesku hermennirnir sögbust í gœr varla getab frelsab fleiri gísla. Engu ab síbur ákvábu rússnesk stjórnvöld ab
stórskotalibsárásinni skyldi haldib áfram og málib útkljáb endanlega meb hervaldi án tillits til mannfalls, sem
þab óhjákvcemilega hefbi í för meb sér. Þykir þessi harka endurspegla mannabreytingar í nokkrum cebstu emb-
œttum þjóbarinnar undanfarib, þar sem harblínumenn hafa komib í stabinn fyrir hófsamari.
Reuter
Italía:
Berlusconi fyrir rétt
Silvio Berlusconi, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ítalíu,
kom fyrir rétt í gær vegna
ákæru um spillingu, en
hann segir ab kærurnar séu
uppspuni einn í því skyni
gerðar að leggja stjórnmála-
feril sinn í rúst.
„Ég lít ekki á sjálfan mig sem
sakborning," sagði fjölmiðiajöf-
urinn, sem var forsætisráðherra
í sjö mánuði árið 1994. „Fólk
veit hver er sekur og hver er
fórnarlamb, hver er góbur og
hver er slæmur. Fólk veit fullvel
hvað er á seyði."
Berlusconi er, ásamt bróður
sínum og níu öðrum, ákærður
fyrir að hafa greitt mútur til
skattalögreglunnar til þess að
koma fyrirtæki sínu, Fininvest,
hjá vandræðum á árunum
1989-1991.
-GB/Reuter
Viðskiptabrölt og
spilling
Einnig varð viðskiptabrölt
barna Dengs umtalað, sem
hófst um miðjan síðasta ára-
tug, en þá stofnaði Deng Pu-
fang heildsölufyrirtækið Kang
Hua. Hagnabur fyrirtæksins
átti ab mestu ab renna til
styrktar þeim sem minna
máttu sín í samfélaginu. En
fljótlega tók að bera á spill-
ingu í fyrirtækinu, og þab seldi
m.a. eitt sinn 10.000 úreldar
myndbandsupptökuvélar. Ár-
ið 1988 var fyrirtækið orðið að
einskonar ófreskju, hagnaður-
inn nam hundruðum milljóna
ísl. króna og allskonar undir-
fyrirtæki voru stofnuð, nokkr-
ir tugir alls. Fyrirtækið varð
vinsælt meðal framámanna í
flokknum og t.d. voru fjórir
ráðherrar á launaskrá þess um
tíma. Pufang lifði glæsilífi,
skipti á gamalli Toyotu og fékk
sér flottan Bens o.s.frv. Taliö
er að spillingin í kring um
hann hafi m.a. verið ein
ástæða mótmælanna á Torgi
hins himneska friðar, árib
1989, þar sem kínverskir her-
menn brutu á bak aftur lýð-
ræöishreyfingu í fæðingu, en
talið er að hundruð manna
hafi verið drepin. Síðan þá
hafa kínversk stjórnvöld tekið
af hörku á allri andstöðu, m.a.
fangelsað nýlega lýðræðis-
sinnan Wei Jingsheng, sem
fékk 14 ára fangelsisidóm fyrir
samsæri gegn stjórnvöldum,
en einnig hleypt af stokkun-
um gríðarlegri kapítalískri til-
raun í Shenzhen héraði í S-
Kína, sem ekki sér fyrir end-
ann á.
Falla börnin meö föö-
ur sínum?
En hvað gerist þegar Deng
deyr? Ljóst er ab við fráfall
hans mun þrýstingur á börn
hans mun aukast og sumir
segja að þegar Deng falli frá,
þá falli þau með honum. En í
það minnsta er ljóst að fjá-
magnsmarkaðir munu skjálfa
ærlega þegar hjarta hins mikla
leiðtoga stöðvast. Leiðtoga
sem gengið hefur í gegn um
borgarastríð, fjórar stjórnkerf-
isbreytingar, menningarbylt-
inguna (en meðan hún stóð
yfir voru börn hans m.a. pynt-
uð og bróðir Dengs framdi
sjálfsmorð eftir auðmýkingu
Rauðliða), hörmungar „Mikla
stökksins" og stjórnleysi Fjór-
menningaklíkunnar, þar sem
ekkja Maós formanns var
fremst í flokki. Sjálfsagt verður
mikil valdabarátta bakvið
tjöldin áður en einhver tekur
við. Hver það verður er erfitt
að segja til um en Kína verður
á sínum stað, með öllum sín-
um íbúafjölda og fjölskrúðugri
sögu og menningu.
G.H.Á.
Byggt á The Guardian Weekly og The
Economist.
D0MS- 0G KIRKJUMALARAÐUNEYTIÐ
Arnarhvoli, 150 Reykjavík
Lagasafn 1995
Lagasafn 1995 sem hefur að geyma gildandi lög miðað
vib 1. október 1995 kemur út 19. þ.m.
Dreifingu til bóksala og stofnana ríkis og sveitarfélaga
annast Ríkiskaup, Borgartúni 7.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 17. janúar 1996
LANDBUNAÐARRAÐUNEYTIÐ
Tollkvótar vegna
innflutnings á
unnum kjötvörum
Meb vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verb-
lagningu og sölu á búvörum, sbr. breytingu meb lögum nr.
87/1995 og með vísan til reglugerbar útgefinnar 17. janúar
1996, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna
innflutnings á unnum kjötvörum.
Nánari upplýsingar liggja frammi í rábuneytinu á skrif-
stofutíma frá kl. 9.00-16.00. Auglýsing um innflutningskvóta
verbur birt í Lögbirtingablabinu, mibvikudaginn 24. janúar.
Skriflegar umsóknir skulu sendar meb bréfi eba meb símbréfi til
landbúnabarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, og
skulu hafa borist fyrir kl. 15.00 fimmtudaginn 25. janúar nk.
Landbúnabarrábuneytib, 17. janúar 1996