Tíminn - 20.01.1996, Page 1

Tíminn - 20.01.1996, Page 1
80. árgangur Laugardagur 20. janúar 14. tölublað 1996 10 hross drápust Eldur kom upp í Fjárborg A24 á móts viö Rauðhóla laust upp úr klukkan eitt í gær og þegar slökkvilibib kom á staöinn var eldur og mikill reykur í tveimur hesthúsum. „Þegar við komum þarna á staðinn þá rauk töluvert mikið úr. Það voru fimm hestar í hvoru húsi og þau voru öll dauð þegar við komum á staðinn. Það var alveg hreint á mörkunum að eldurinn næði í hlöðuna en hún slapp," sagði Kristján Ólafs- son, hjá Slökkviliðinu á Árbæj- arstöð. Talið er að reykurinn hafi banab hrossunum. Eldsupptök eru ókunn. -LÓA Hlíf vill semja viö VSÍ um aö lágmarkslaun í dagvinnu veröi 85 þús. kr. á mánuöi: Samninga í staö skítkasts Trúnaðarráð Verkamannafé- lagsins Hlífar í Hafnarfirði hefur lagt það til í ályktun ab fram- kvæmdastjóri VSÍ hætti öllu „skítkasti" í garð félagsins í fjöl- miblum. Þess í stað er honum boðið að sýna hug sinn í verki til láglaunafólks með að setjast að samningaborðinu með for- manni Hlífar þar sem samið verði um 85 þús. króna lág- markslaun á mánuði fyrir dag- vinnu. -grh jón Baldvin rifjar upp atburö- ina þegar Eystrasaltsríki uröu frjáls og kommúnisminn hrundi: Einnar mínútu þögn og kross- mark á brjóstiö — til minningar um kommún- ismann Sjá bls. 8 Slökkviliösmenn aö störfum viö Fjárborg ígcer en ekki tókst aö bjarga hrossunum 10. Tímamynd S Kartöflubœndur rœöa afleitt ástand hjá mörgum í greininni á fundi á Selfossi: Fá allt niður í 30 kr. á kg. „Það er ekki einu sinni svo vel í kartöfluviðskiptunum aö þar geti gilt hiö fræga lög- mál frelsins um framboð og eftirspurn. Því aö jafnvel þótt framboðið sé ekki nægiiegt fyrir innanlandsneysluna þá er ástandiö samt þannig, aö núna í lélegu uppskeruári eru menn aö fá niður í 30 krónur fyrir kílóið og jafnvel ennþá minna", sagöi Sveinberg Lax- dal á Túnsbergi á Svalbarðs- strönd, varaformaöur Lands- sambands kartöflubænda, sem gengst fyrir fundi um vanda kartöflubænda á Sel- fossi á sunnudagskvöld, þ.e. annað kvöld. Meöal fram- sögumanna veröur Ari Teits- son formaður Bændasamtak- anna og „viö væntum þess aö sjá einhverja af þingmönnum Sunnlendinga", sagbi Svein- berg. Ástæður fyrir lágu kartöflu- verði til bænda sagbi hann ýmsar. „Meðal annars þær að smásalinn er búinn að stækka sinn hlut og heildsalinn er bú- inn að stækka sinn hlut, en bóndinn fær alltaf minna og Tvö tilboö bárust í útboöi FIB á bifreiöatryggingum félagsmanna: 15-30% iðgjaldalækkun Félagi íslenskra bifreiðaeigenda bámst tvö raunhæf tilboö í bif- reibatryggingar fyrir félaga sína. Tilbobin fela í sér verulega lækk- un frá núverandi ibgjöldum ís- ienskra tryggingafélaga. Tilbobin voru opnuð á skrifstofu FÍB í gær. Tilbob bárust frá trygg- ingafélaginu Skandia á íslandi og frá NHK International sem er al- þjóðlegur tryggingamiblari. Að auki bárust bréf frá öllum hinum ís- lensku tryggingafélögunum en þar var eingöngu boðið uppá gildandi iðgjaldaskrá að sögn Runólfs Ólafs- sonar, framkvæmdastjóra FÍB. Run- ólfur segir að við fyrstu sýn virðist tilboðin tvö hljóða upp á 15-30% iðgjaldalækkun, mibab við það sem í bobi er á markaðnum í dag. Hann vill ekki tjá sig nánar um efni til- boöanna á þessari stundu. Stjórn FÍB mun á næstu dögum fara yfir tilboöin með abstoð tryggingasér- fræðinga og ákveða hvoru tilboð- inu verður tekið eða hvort báðum verður hafnað. FÍB bauð út bifreiðatryggingar fé- Árni Sigfússon og Runólfur Ólafsson opna tilboöin á skrifstofu FÍB í gœr. Tímamynd: CS lagsmanna sinna eftir að könnun leiddi í ljós mikinn verðmun á bif- reiðatryggingum hér og landi og í nágrannalöndum. Runólfur segir á tólfta þúsund félagsmenn hafa bæst í félagið á undanförnum mánuðum ekki síst vegna umræðunnar um ið- gjöld tryggingafélaganna. -GBK minna". Sveinberg segir kart- öflubændur þó misjafnlega vel/illa setta. „Þessi vandamál ná til kartöflubænda um allt land, en í mismunandi miklum mæli. Sums staðar er kannski nokkurn vegin normal ástand. En ýmsir stórir aðilar eru orðn- ir mjög áhrifamiklir og ráðandi um verðlag á þessu sviði", sagði Sveinberg. „Það á sér stað alveg gengdar- laus sóun á mannafla og fjár- munum í gegn um þessa grein, og einnig miklu víðar, þar sem svona villimannlegt ástand á sér stað. Húsnæði er t.d. leigt á ótal stöðum og keypt ógrynni pökkunarvéla og sendibíla sem síöan keyra hver á eftir öbrum í halarófu í sömu búðirnar". Sveinberg segir ástandið m.a. vera afleiðingu skipulagsleysis og samstöðuleysis. „Og þetta er líka nákvæmlega það ástand sem við kartöflubændur vitum að muni gerast ef ab svo fer að tekin yrði upp umboðssala í kjötsölu á nýjan leik og frjálst verðlag, sem sumir hyggja gott til, aðrir eru efablandnir um". Það muni leiba til sömu niður- stöðu; að framleiðandur fengju alltaf minna og minna. Þetta gerist einnig hjá heild- sölum sem bændurnir teljast eiga sjálfir, eins og Ágæti. „Og eitt er það líka sem eiginlega er orðin viðurkennd staðreynd, þótt hún sé sé kannski ekki orð- in þab opinberlega, að her- kostnaður heildsala í ávaxta- sölu og jafnvel grænmetissölu, er að stórum hluta yfirfærður á kartöflubændur og þeir látnir bera hann í lækkuðu verði". Þótt kartöflubændur eigi í vandræðum víða um land býst Sveinberg við að ástandið sé einna verst á Suðurlandi, í Þykkvabæ og víðar. Nokkrar harðir hafi þar þegar farið í nauðungarsölu og ýmsir bænd- ur standi höllum fæti. ■ Jón ekki rekinn Sóknarnefnd Langholtskirkju fundaði í gær til ab taka af- stöðu til kröfu séra Flóka Kristinssonar sóknarprests að Jóni Stefánssyni organista og kórstjórnanda yrði tafarlaust sagt upp störfum. Niðurstaða fundarins var ab hafna þeirri kröfu og mun því Jón starfa áfram innan Langholtskirkju. Ekki virðist ljóst með hvaða hætti messuhald verður í kirkj- unni á morgun en þó er sýnt að Ragnar Jónsson forsetafram- bjóðandi mun spila á orgelið í stað Jóns. Álits Eiríks Tómasson- ar er vænst eftir helgi. -BÞ \

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.