Tíminn - 25.01.1996, Síða 3
Fimmtudagur 25. janúar 1996
Pfnrlmi
3
Alþjóölega kvikmynda-
hátíöin í Berlín:
Agnes meðal
markverðustu
myndanna
Kvikmyndin Agnes í leik-
stjórn Egils E&var5ssonar hef-
ur verit) valin til sýninga í Pa-
norama-hluta alþjóölegu
kvikmyndahátí&arinnar í
Berlín sem haldin er árlega í
febrúar.
Panorama er mjög virt dag-
skrá sem endurspeglar þab
markver&asta á ári hverju í kvik-
myndagerð. Um 600 myndir
sækja um þátttöku ví&s vegar ab
úr heiminum en aðeins 40 eru
valdar til þátttöku. Auk þess er
stór kvikmyndamarkaður á
Berlínarhátíðinni og verður
myndin boðin þar.
Alls hafa 12.700 manns séð
Agnesi sem frumsýnd var fyrir
réttum mánuði síðan.
Herdís Þorvaldsdóttir í hlutverki
sínu í Ástarbréfi.
Nýjung í Þjóöleikhúsinu:
Ástarbréf
með sunnu-
dagskaffinu
Leikritib Astarbréf, sem sýnt
var vi& miklar vinsældir á
Litla sviöi Þjóöleikhússins fyr-
ir tveimur árum, ver&ur sýnt
sí°is á sunnudögum í Leik-
húskjaliaranum.
Ástarbréf er hugljúft banda-
rískt verk um mann og konu
sem komin eru á efri ár. Þau
hafa þekkst allt frá bernsku og
hafa haldið stöðugu bréfasam-
bandi í gegnum árin. Samband
þeirra hefur þróast í gegnum
bréfin, dýpkað og tekið á sig
ýmsar myndir. Aðstæður hafa
þó valdið því að þau hafa aldrei
náð alveg saman. Leikritið lýsir
ást þeirra, tilfinningum og eftir-
sjá, segir í tilkynningu frá leik-
húsinu.
Leikritið er eftir bandaríska
leikskáldið A.R. Gurney og það
var Úlfur Hjörvar sem þýddi
verkið. Leikendur eru Herdís
Þorvaldsdóttir og Gunnar Eyj-
ólfsson, leikstjóri Andrés Sigur-
vinsson, Þórunn S. Þorgríms-
dóttir annaðist leikmynd og Ás-
mundur Karlsson hannar lýs-
ingu. Sýningar hefjast nk.
sunnudag kl.15 en leikhúsgestir
njóta kaffiveitinga meðan horft
er á sýninguna.
Þátttakendur í íslandsmeistarakeppni í kökuskreytingum 1996. í miöiö er íslandsmeistarinn frá því í fyrra í nýjum hátíöar- og keppnisbúningi fyrir bak-
ara sem Klúbbur bakarameistara lét hanna. Hönnuöur búningsins er Margrét Elín Þóröardóttir. Tímamynd: s
Spennandi keppni í Perlunni um helgina:
Bakarar keppa í kökuskreytingum
íslandsmeistarakeppni í
kökuskreytingum veröur
haldin í Perlunni um helg-
ina. Perlan veröur opin al-
menningi allan tímann á
me&an á keppninni stendur.
Keppt ver&ur í gerö borö-
skreytingar, skreytingu
þriggja hæöa tertu og skreyt-
ingu kransakökuverks.
Keppnin er haldin af Lands-
sambandi bakarameistara,
Klúbbi bakarameistara og Bak-
arasveinafélagi íslands.
Keppnin var haldin í fyrsta
sinn í fyrra og þótti þá takast
svo vel til að ákveðið var að
keppnin yrði árlegur viðburb-
ur. Þrettán bakarar taka þátt í
keppninni að þessu sinni.
Stefán Sandholt, bakara-
meistari sem sæti á í keppnis-
nefnd, segir að tilgangur
keppninnar sé ekki síst að
vekja athygli almennings á
greininni og þeirri flóknu
vinnu sem liggur að baki
glæsilegrar kökuskreytingar.
Keppninni er einnig ætlab að
efla samkeppni og metnab
innan stéttarinnar.
Keppnin er þríþætt og felst í
því að skreyta þriggja hæba
tertu og kransakökuverk auk
borðskreytingar. Keppendur
mega koma með tertuna og
kransakökuverkið bakað en
allar skreytingar laga þeir á
staðnum. Dómarar munu taka
tillit m.a. til hugmyndar og
efnisvals, bragðs kökunnar og
faglegra vinnubragba.
Keppnin hefst kl. 9 á laugar-
dagsmorgun og stendur til kl.
17 þann dag og frá kl. 10-14 á
sunnudeginum.
-GBK
Hart deilt í bæjarstjóm um málið
Akureyrarbær verbur aðili ab
Skólaþjónustu Eyþings, sem eru
samtök sveitarfélaga í Eyja-
fjar&ar- og Þingeyjarsýslu, ver&i
af flutningi á rekstri grunnskól-
ans frá ríkinu til sveitarfélaga.
Tillaga þess efnis var samþykkt
á fundi bæjarstjórnar í vikunni.
Miklar umræbur uröu um mál-
i& á fundi bæjarstjórnar og
komu alls fram fjórar tillögur.
Meirihlutaflokkarnir í bæjar-
stjórn, Framsóknarflokkur og
Alþý&uflokkur, lög&u til a& a&-
ild að skólaþjónustunni yrbi
samþykkt en sjálfstæ&ismenn
gangrýndu þær hugmyndir
harblega og töldu ab meb því
væri veriö a& framselja vald og
skyldur auk þess sem hætta
væri á a& ný yfirbygging mynd-
aðist í skólamálum sem engum
tilgangi þjóna&i.
Þáttur skólaþjónustunnar snýst
einkum um hverjum verbi falið
ab annast sérfræbiþjónustu vegna
grunnskóla og leikskóla á svæði
Eyþings eftir að rekstur grunn-
skólans flyst til sveitarfélaganna
því þá er gert ráð fyrir ab rekstri
fræðsluskrifstofa hins opinbera
verði hætt. Bæjarfulltrúar á Akur-
eyri hafa gagnrýnt hugmyndir
um uppbyggingu skólaþjónust-
Heilbrigöisráöherra gefur út reglugeröir:
Fullt gjald greitt
fyrir sjónmælingar
Réttur til afsláttarkorts vegna
læknisþjónustu á kjörum elli-
lífeyrisþega færist úr 67 árum
í 70 ára aldur. Fólki á aldrin-
um 16-70 ára ver&ur hér eftir
gert a& grei&a fullt gjald fyrir
komu til augnlæknis vegna
sjónmælinga.
Þetta eru helstu breytingarnar
sem felast í nýjum reglugerðum
sem heilbrigðisráðherra hefur
gefið út tO að ná fram sparnaði í
málaflokkum ráðuneytisins.
Með reglugeröunum hækka
gjöld fyrir sum læknisverk, þó
þannig að viðmiðunarfjárhæð-
um til útgáfu afsláttarkorta er
haldið óbreyttum. Eftir sem áð-
ur verða ekki tekin gjöld fyrir
mæðravernd, ungbarnaeftirlit
og heilsugæslu í skólum.
Sú breyting verður þó varð-
andi afsláttarkortin ab réttur til
þeirra á kjörum ellilífeyrisþega
færist úr 67 árum í 70, nema
vegna þeirra sem voru öryrkjar
fyrir 67 ára aldur.
Breyting verður á gjaldtöku
fyrir komu til augnlækna vegna
sjónmælinga. Börn innan 16
ára aldurs greiða eftir sem ábur
1400 kr. að viðbættum 40% af
umframkostnaði, ellislífeyris-
þegar 70 ára og eldri greiða 500
kr. ásamt 1/3 af 40% af umfram-
kostnaði en aðrir sjúkratryggbir
á aldrinum 16- 70 ára munu hér
eftir greiða fullt gjald sam-
kvæmt gjaldská Tryggingar-
stofnunar við sérfræðinga.
Koma til heilsugæslulæknis á
dagvinnutíma hækkar úr 600
krónum í 700 krónur. Gjald
vegna komu ellilífeyrisþega, ör-
orkulífeyrisþega og barna hækk-
ar í 300 krónur úr 200 krónum.
Grunngjald fyrir komu til sér-
fræðinga hækkar í 1400 krónur
úr 1200.
unnar og þá einkum þann þátt að
Akureyrarbæ sé ætlaö ab standa
undir meirihluta kostnaðar vegna
reksturs hennar, eða um 55%, á
sama tíma og bærinn eigi aðeins
tvo fuiltrúa í stjórn á móti meiri-
hluta fulltrúa hinna sveitarfélag-
anna. Heimir Ingimarsson, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins,
sagði að þessar hugmyndir byggð-
ust á arfleifð frá Fjóröungssam-
bandi Norblendinga þar sem Ak-
ureyrarbær hafi stabið undir
meiri hluta kostnaðar á sama
tíma og áhrif bæjarfélagsins hafi
verið lítil.
Þar sem tillögur meirihluta-
flokkanna og bæjarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins hljóbuðu um
margt á sama veg var ákveðið að
gera úr þeim eina tillögu, fjórðu
tillöguna í málinu, sem síðan var
flutt af Guðmundi Stefánssyni,
fulltrúa framsóknarmanna, og
kveður á um aðild Akureyrarbæj-
ar að Skólaþjónustu Eyþings. í til-
lögunni segir meðal annars að
gera megi ráð fyrir að verulegur
hluti verkefna fræðsluskrifstof-
unnar á Akureyri eigi eftir ab
flytjast til einstakra sveitarfélaga.
Slík þróun þurfi góðan undirbún-
ing og verkefni geti tæpast dreifst
á marga staði innan kjördæmis-
ins. Var tillagan samþykkt með
átta atkvæðum meirihlutaflokk-
anna og Alþýðubandalagsmanna
gegn þremur atkvæbum sjálf-
stæðismanna.
í tillögu sjálfstæðismanna var
gert ráð fyrir að sú starfsemi sem
færist frá fræðsluskrifstofu til
sveitarfélaga, með breytingum á
rekstri grunnskólans, yrbi unnin
af Skólaskrifstofu Akureyrar sem
veitti öðrum sveitarfélögun þjón-
ustu á því sviði en af hugmynd-
um um beina aðild Akureyrarbæj-
ar að skólaþjónustunni yrði ekki.
-ÞI
IÐJA, FÉLAG VERKSMIÐJUFÓLKS
SKIPHOLT1 50C —105 REYKJAVÍK
Allsherjaratkvæða-
greibsla
Allsherjaratkvæðagreibsla ver&ur vibhöfb vib kjör stjórnar, trún-
abarmannará&s og endurskobenda fyrir næsta kjörtímabil.
Tillögur skulu vera samkvæmt B-lið 19/greinar í lögum félags-
ins.
Tillögum, ásamt meðmælum hundrab fullgildra félagsmanna,
skal skila á skrifstofu félagsins, Skipholti 50 c, eigi síbar en kl. 11
fyrir hádegi fimmtudaginn 1. febrúar 1996.
Kjörstjórn l&ju.
-GBK