Tíminn - 25.01.1996, Blaðsíða 6

Tíminn - 25.01.1996, Blaðsíða 6
6 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Starf frétta- manns lagt nibur Starf fréttamanns Ríkisút- varpsins á Sauðárkróki hefur verið lagt niður. Er þetta liður í sparnaði í rekstri stofnunar- innar, en Steinunn Hjartar- dóttir, forseti bæjarstjórnar á Sauðárkróki, segir illt að una því að lögð séu niður störf á sama tíma og staðarmenn berjist fyrir því að fá til sín aukna opinbera þjónustu. María Björk Ingvadóttir, sem gegndi hálfri stööu frétta- manns á Sauðárkróki, starfar framvegis sem fréttaritari Rík- isútvarpsins á staðnum. Rábherra vekur athygli á Evrópu- verkefnum Fundir um átak í atvinnu- málum og möguleika ís- lenskra fyrirtækja eftir inn- gönguna í EES voru haldnir á Sauöárkróki og Blönduósi í liðinni viku. í tengslum við fundinn á Blönduósi, sem var fjölsóttur, skoðaði Finnur Ing- ólfsson iðnaðarráðherra ein tíu fyrirtæki á staðnum. Fund- inn á Sauðárkróki sóttu um áttatíu manns. Kom þar giöggt fram að menn eru von- góðir og áhugasamir um efl- ingu atvinnulífs, en ráðherra brýndi það fyrir forráðamönn- um fyrirtækja jafnt sem ein- staklingum, að nýta sér mögu- leika á Evrópuverkefnum sem ætluð eru litlum og meðal- stórum fyrirtækjum. Páll Pétursson félagsmála- ráðherra var á fundinum á Sauðárkróki og upplýsti að hann hefði orðið við ósk stjórnar Sambands sveitarfé- laga á Norðurlandi vestra um samvinnu við myndun starfs- hóps um úrbætur í atvinnu- málum kjördæmisins. Fælast fuglarnir frostib á Akureyri? Árleg fuglatalning fór fram á Akureyri 7. janúar og var þaö í 44. sinn sem talið var á vegum Náttúrufræðistofnunar íslands. Talið var á svæðum frá Skjaldarvík og suður fyrir Akureyrarflugvöll, en auk þess á ofanverðri Brekkunni þar sem ekki hefur verið talið áö- ur. Vart varð tuttugu fuglateg- unda, auk máfa, en þegar talið hefur verið undanfarin ár hafa íhygli setti svip sinn á fundinn á Sauöárkróki. tegundirnar verið á bilinu 19- 24. Fjöldi einstaklinga var með allra minnsta móti, og telur Jón Magnússon, einn þátttakenda, aö aldrei hafi verið jafnlítið um æðarfugl síðan talningar hófust. Jón telur þó óvarlegt að draga ályktanir um stofnbreytingar af þessu, en bendir á að æður- in kunni að hafa fært sig lengra út með Eyjafirðinum vegna kulda, sem voru svo miklir seinni hluta desember- mánaðar að Pollinn lagði. Ekki er óalgengt, að sögn Jóns Magnússonar, að 60-80 hrafnar séu á Akureyri um jólaleytið. Að þessu sinni voru þeir heldur fleiri og eru menn ekki frá því að krummi hafi verið að bera sig eftir jólahlað- borðunum í bænum. Páll á hvaba stöbum? Páll Pétursson hefur verið nokkuð áberandi í þjóðfélags- umræðunni eftir að hann tók við embætti félagsmálaráð- herra fyrir tæpu ári. Verka hans sér víöa stað. Og nú eru menn hættir aö tala um Pál á Höllustöðum — heldur þykir, atorku mannsins vegna og hve hann er áberandi, réttara að tala um „Pál á öllum stöð- um". Meiri fiskur keyptur í Eyjum Fiskkaup fiskvinnslufyrir- tækja í Vestmannaeyjum hafa aukist til muna á miili ára. Ár- ið 1994 keyptu fyrirtækin 3.446 tonn'á Fiskmarkaði Vestmannaeyja, en á árinu 1995 keyptu þau 1.146 tonn- um meira, eða 4.592 tonn. Þannig keyptu vinnslustöðv- arnar í Eyjum fisk á markaðn- um fyrir 225 milljónir króna árið 1994, en fyrir 370 millj- ónir í fyrra. Vinnslustöbin slær met í frystingu Um helgina var búið að frysta fjögur þúsund tonn af síldarafurðum í Vinnslustöð- inni í Vestmannaeyjum. Er það íslandsmet í síldarfryst- ingu, en síldarvertíð er nú að ljúka og er gert ráð fyrir að þegar vinnslu lýkur verði heildarframleiðslan í Eyjum 7.400 tonn. Á laugardaginn var tertuveisla í Vinnsiustöbinni í tilefni afþví ab búib var ab frysta fjögur þúsund tonn af síld. Fimmtudagur 25. janúar 1996 Sigrún Edda Björnsdóttir leikur Snœfríbi íslandssól, en Pálína jónsdóttir leikur hib Ijósa man á sínum yngri árum. Leikfélag Reykjavíkur œfir sögu Sncefríöar íslandssólar: Hi& ljósa man Æfingar á Hinu ljósa mani, sögu Snæfríðar íslandssólar, eru nú hafnar hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Er hér um að ræða nýja leikgerb Bríetar Hébinsdóttur á íslandsklukku Halldórs Laxness. Leikbúningur Bríetar er veru- lega frábrugöinn fyrri leikgerð- um af íslandsklukkunni og mun án efa koma á óvart, segir í tilkynningu frá LR. Einnig mun ný frumsamin tónlist eftir Jón Nordal tónskáld prýða sýn- inguna. Sigrún Edda Björnsdóttir er í hlutverki Snæfríðar íslandssól- ar, en Pálína Jónsdóttir leikur Snæfríði á sínum yngri árum. Þetta er í annað sinn sem Sig- rún Edda túlkar íslandssólina, þar sem hún lék Snæfríði í sýn- ingum Nemendaleikhússins á íslandsklukkunni árið 1981. Fjöldi annarra leikara tekur þátt í sýningunni, en Bríet Héð- insdóttir leikstýrir. Stígur Stein- þórsson annast leikmynd, Messíana Tómasdóttir sér um búninga og David Walters hef- ur umsjón með lýsingu. Hið ljósa man verður frumsýnt 1. mars nk. Astþór Magnússon og Yogesh K. Candhi. Friöarsinnar frá öllum heiminum á ráöstefnu í Lawr■■ ence í Bandaríkjunum: Friðarvagninn a ab heim- sækja allan heiminn „Vib komum ekki á fribi meb því móti ab beina byssum gegn hvort öbru," sagbi Ástþór Magnússon frá Fribur 2000 í vibtali vib breska blabib The Times á sunnudag. Ástþór er í hópi talsmanna fribarsamtaka, sem koma frá ýmsum löndum heims til borgarinnar Lawr- ence í Bandaríkjunum. í The Times er mynd af Ástþóri og sonarsyni Mahahma Gandhi sáluga, Yogesh K. Gandhi, en hann og samtök hans vinna að því að fá ungt fólk til að snúa baki við ófriðarflokkum í San Francisco og snúa sér í staðinn að friðsamlegri iðju. Hópurinn, sem samankominn er vestur í Bandaríkjunum, vinn- ur að því að koma af stað „friðar- vagni", sem á ab fara um öll lönd heims. I maí næstkomandi hefst ferð þessa friðarvagns með heim- sóknum í 56 borgir Bandaríkj- anna, en á næstu árum verða öll lönd veraldar heimsótt. Ástþór Magnússon segir í við- talinu við The Times að Friður 2000 hafi í starfi sínu stuðst við almenn markaðslögmál til að afla fjár til ab vinna ab friði. Nefndi hann þar Friðarleikinn, skafmiða sem seldir eru og hafa að mark- miði að fræða fólk um frið og umhverfismálefni, Penny and Peace sem gengur út á að eitt penní af söluvöru renni til bar- áttu fyrir friöi, og Change to Peace sem er verkefni sem miðar að því að ferðamenn gefi í ferða- lok myntir sem orðið hafa af- gangs. -JBP

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.