Tíminn - 25.01.1996, Síða 7

Tíminn - 25.01.1996, Síða 7
Fimmtudagur 25. janúar 1996 7 Umhverfisáhrif mislœgra gatnamóta Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar: Náttúrufar ber ekki skaba af Gerb nýrra gatnamóta Reykja- nesbrautar og Fífuhvarnmsvegar, tvöföldun Reykjanesbrautar og gerb tilheyrandi undirganga og göngustíga eykur öryggi þeirra vegfarenda sem fara um svæbib. Ekki er séb ab náttúrufar eba þjóbleg verbmæti beri skaba af. Þetta eru mebal niburstabna frummats á umhverfisáhrifum vegna fullnabarhönnunar Reykja- nesbrautar um Kópavog. Aformað er að ráðast í gerö mislægra gatna- móta Reykjanesbrautar og Fífu- hvammsvegar í sumar. i niðurstöðum frummatsins seg- ir að það sé mat höfunda að fram- kvæmdirnar séu lykilþáttur í eðli- legri uppbyggingu nýrrar byggöar. Ekki verði séð að náttúrufar eða þjóðleg verðmæti af neinu tagi beri skaða af og ekki er talin þörf á mót- vægisaðgerðum vegna loftmeng- unar. Staðsetning gatnamótanna er sögð ákjósanleg og þau verði að- löguð að núverandi landi. Umferð- arhávaði er sagður verða innan settra viðmiðunarmarka við þær byggingar, sem hafa þegar verið reistar í nágrenninu. Hljóðstig er á hinn bóginn talið verða of hátt við sum þeirra húsa, sem fyrirhugað er aft reisa næst Reykjanesbraut. Bygging 3-4 metra hárra hljóð- mana á milli Reykjanesbrautar og byggöar er talin nægja til aö vinna bug á því. Athugasemdir við framkvæmd- imar þurfa að berast Skipulagi rík- isins eigi síðar en 19. febrúar nk. -GBK Frá undirritun samnings um samstarf um rekstur Kringlunnar og Borgar- kringlunnar í fyrradag. Kringlan og Borgar- kringlan sameinast Leikfélag Menntaskólans vib Hamrahlíö: Dýrabær Leikfélag Menntaskólans vib Hamrahlíb frumsýnir leik- verkib Animal Farm, eba Dýrabær, sem byggt er á skáldsögu eftir George Orwell, laugardaginn 27. janúar. Leikgerbin er eftir breska leik- stjórann Peter Hall og er frá ár- inu 1984. í leikritinu er mikið um tónlist sem er samin af Ri- chard Peaslee, en söngtextar eru eftir Adrian Mitchell. Leikgerð- in var frumsýnd í Breska þjób- leikhúsinu í London og hlaut þar mjög góbar viðtökur, en þetta er í fyrsta sinn sem verkið er flutt hérlendis og hefur það verið íslenskab af þeim Mel- korku Teklu Ólafsdóttur, sem þýddi leiktexta, og Kristjáni Þórbi Hrafnssyni, sem þýddi söngtexta og bundið mál. Leikstjóri er Andrés Sigurvins- son og taka fimmtíu leikendur þátt í sýningunni. Tónlistar- stjórn er í höndum Gústavs Sig- urðssonar, leikmynda- og bún- ingahönnun annaðist Stígur Steinþórsson, sem mebal annars hefur gert leikmyndir fyrir at- vinnuleikhúsin, og nú síðast Rocky Horror í Loftkastalanum. Kóreógrafíu stjórnar Lára Stef- ánsdóttir, dansari og danshöf- undur hjá íslenska dansflokkn- um, en lýsing er hönnub af Sig- urbi Kaiser. Sýningar verða í Tjarnarbíói og standa til 15. feb. Mibasala er í Tjarnarbíói sýningardaga frá kl. 17, en einnig er hægt að panta miba í síma 561 0280. ■ Islenskir útflytjendur: Rúmlega 400 kynna starfsemina í bók Útflutningsráb hefur gefib út öbru sinni handbókina Ice- land Export Directory í sam- vinnu vib Miblun hf. í bók- inni er fjallab um fjölbreyti- lega möguleika íslendinga í útflutningi. Bókin gerir skil yfir 400 ís- lenskum útflytjendum af öllu tagi, ekki aðeins í fiskiðnaðar- greinum, heldur líka á ótal mörgum sviðum ibnabar, ráb- gjöf af ýmsu tagi, hestaútflutn- ingi og ótal mörgu öðru. Upplagið er 10 þúsund eintök og verður bókinni dreift af Út- flutningsráöi gegnum ýmsar viðskiptaskrifstofur erlendis og af einstökum rábuneytum. Upplýsingar bókarinnar hafa verið á Veraldarvefnum í nærri 2 ár, öll fyrirtækin í bókinni fá sína heimasíðu á Internetinu. Fjölmargar heimsóknir hafa ver- ið á vefsíöurnar og fer sífjölg- andi, enda er þjónustan tengd öllum helstu leitarvélum Ver- aldarvefsins. -JBP Sameiginlegur rekstur Kringl- unnar og Borgarkringlunnar hefst næsta haust, eftir tölu- verbar breytingar sem gerbar verba á svæðinu. Stjórnum Hús- félags Kringlunnar og Kringl- unnar 4-6 var í fyrradag veitt umbob til ab ganga frá samn- ingum um sameiginlegan rekst- ur. Samningar þar ab lútandi voru undirritabir sama dag. Helstu atriði samningsins eru að Húsfélagib Kringlan taki að sér að sjá um rekstur eignarhluta Kringlunnar 4-6 í Borgarkringl- unni (1. og 2. hæð). Um hann hefur verið stofnað nýtt félag, ís- lenska fasteignafélagið ehf. Stjórn Húsfélagsins mun í framtíðinni ákveða hvers konar rekstur verður á verslunarhæðum Kringlunnar. Hlutafé íslenska fasteignafé- lagsins er 500 milljónir króna. Fyrri eigendur Kringlunnar 4-6 eiga 85% hlutafjár, en félags- menn í Húsfélagi Kringlunnar 15%. Hluti Húsfélagsins er greiddur með aðgangi aö bíla- stæðum Kringlunnar. Breytingar verða gerðar á hús- næði Borgarkringlunnar. Opnað verbur á milli bílastæða á neðri hæð Kringlunnar og bílakjallara Borgarkringlunnar. Einnig verður ný aðkeyrsla tengd inn á annarri hæð bílahúss Kringlunnar. Þar veröur jafnframt gerður nýr inn- gangur inn á fyrstu hæð Borgar- kringlunnar í norðurenda. Farið verður í þessar framkvæmdir fljótlega og þeim lokið siðari hluta ársins. Samhliða framkvæmdunum verða gerðar ýmsar aðrar breyt- ingar á rekstri Borgarkringlunnar. Verslanir verða færðar til og nýj- um bætt við. Stefnt er að því að boðið verði upp á fjölbreyttara úr- val verslana og þjónustugreina en nú er á svæöinu. Sérstök verkefnastjórn hefur verið skipuð vegna breytinganna. Hana skipa þeir Ásgeir Bolli Krist- insson, Jón Pálmi Guðmundsson og Þorgils Óttar Mathiesen. -GBK Málþing í tilefni af 50 ára afmœli Tónlistarskólans á Akureyri: Framkvæðið verður að koma frá tónlistarmönnum Kostar tónlistarkennsla of mikib? var spurning sem menn veltu fyrir sér á mál- þingi, sem haldib var í tilefni af 50 ára afmæli Tónlistar- skólans á Akureyri um síbustu helgi. Frummælendur á mál- þinginu voru Þorsteinn Gunn- arsson rektor, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrv. alþingis- mabur, og Björn Th. Árnason. Auk frummælenda tóku Jak- ob Björnsson bæjarstjóri og tveir fulltrúar frá Tónlistar- skólanum þátt í pallborð- sumræbum. í máli frummælenda og þátt- takenda í pallborðsumræðum kom sú skobun fram aö síst væri of miklum fjármunum veitt til tónlistarkennslu og starfsemi tónlistarskóla. Jón Hlöbver Ás- kelsson, tónskáld og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri, sagði meðal annars að skammsýni væri mesti bölvald- ur allr^ útreikninga og lýsti furöu á ab betra væri talið að greiða kostnað viö að breyta íþróttahúsi á Akureyri í tón- leikahús á hverju ári, en leggja í eitt skipti fyrir öll í nokkuð meiri kostnaö til þess aö koma Listaskólinn viö Hamarinn: Nemendur sýna verk sín Nemendasýning Listaskólans vib Hamarinn, Strandgötu 50 í Hafnarfirði, veröur opnub laugardaginn 27. janúar kl. 14 í Sýningarsalnum viö Hamar- inn. Samhliba sýningunni fer fram kynning á þeim nám- skeiöum sem eru í bobi á vor- önn skólans. Á sýningunni ver&ur afrakstur nemenda haustannar viö lista- skólann. Má þar nefna teikning- ar, málverk, vatnslitamyndir, lágmyndir, þrívíð verk, mynda- sögur, skartgripi og handgerðan pappír. Sýningargestir geta ennfrem- ur kynnt sér þau námskeib sem eru í boði á vorönn. Sérstök deild fyrir börn og unglinga er starfandi við skólann, og er henni ætlab að efla sköpunar- gleöi og hugrekki nemenda til myndsköpunar. Þrjú námskeið eru nú í boði fyrir börn og ung- linga. í framhaldsdeild, sem ætlub er nemendum 16 ára og eldri, eru mörg námskeið í bobi sem skipta má á þrjú sérsvib: Mynd- list, hönnun og handíðir. Sýningin veröur opin helgina 27.-28. janúar, kl. 14-18 báöa dagana. Kennsla á vorönn hefst 30. janúar. - GBK Nemendur á námskeibi í myndasögugerb. upp aðstööu til tónleikahalds til frambúðar. Jakob Björnsson bæjarstjóri kvað erfitt að svara því hvort Tónlistarskólinn á Ak- ureyri skilaði arði, þar sem slíkt væri ætíð matsatriði. Engu að síður gerðu bæjaryfirvöld sér grein fyrir mikilvægi skólans fyrir bæjarfélagið og legðu starf- seminni því til verulega fjár- muni. í máli frummælenda kom fram ab fjármunir væru oft fyrir hendi til þess að standa straum af tónlistarnámi, ef eftir þeim væri leitað, og fáir stjórn- málamenn hefðu reynt aö sýna fram á að kostnabur við tónlist- arnám væri of mikill. Þeir lögðu áherslu á að þótt almannafjár- munum væri varið til reksturs tónlistarskóla, þá þyrfti frum- kvæðið fyrst og fremst að koma frá tónlistarmönnum og áhuga- mönnum um tónlistarstarf, en stjórnmálamenn legðu því síð- an lið að útvega fjármunina. Þá var mál manna að tónlistar- kennsla skilaði miklu til baka til þjóðfélagsins, þótt erfitt gæti verið að meta það í krónum og aurum. í augum stjórnmála- manna og þeirra sem með fjár- veitingar færu væri kostnaður við tónlistarnám fremur spurn- ing um forgangsröð en að þá skorti skilning eða væru haldnir viljaleysi. ÞI.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.