Tíminn - 26.01.1996, Blaðsíða 1
Sala á nýjum bílum hefur undanfarin ár dregi$t saman eöa allt þar til á síöasta ári. Þaö sama má segja um afskráningar:
Bílaflotinn að úreldast
Miðað við tölur frá Bifreiða-
skoðun virðist bílafloti
landsmanna vera að úreldast
og það nokkuð hratt. Þegar
bornar eru saman tölur yfir
afskráningar og nýskráning-
ar, kemur í ljós að nokkur
undanfarin ár hefur verið
nokkur munur á þeim,
þ.e.a.s. að fjöldi afskráninga
hefur verið mun lægri.
Á sama tíma hefur sala á
nýjum bílum dregist saman,
allt þar til nú að salan virðist
stefna lítillega upp á við. Þetta
gefur til kynna að bílafloti
landsmanna sé að eldast og
endurnýjun er ekki nægileg.
Þetta hafa forystumenn Bíl-
greinasambandsins reyndar
bent á, og kenna um að of há-
ar álögur séu lagðar á nýja
bíla.
Alls voru afskráðar um 4.800
bifreiðar hér á landi á síðasta
ári, þar af rúmlega 2.900 á
höfuðborgarsvæðinu, eða um
60%, og því virðist sem úreld-
ing bílaflotans gangi hraðar
fyrir sig á landsbyggðinni.
Töluvert fleiri bílar voru af-
skráðir árið 1994, eða um
6.500, og enn má sjá að úreld-
ingin er meiri á landsbyggð-
inni, því um helmingur af-
skráðra bíla er á landsbyggð-
inni. Enn athyglisverðara er
aö líta á tölur frá því árið
1993, en þá vom afskráðir um
10.100 bílar og enn er aðeins
rúmlega helmingurinn á höf-
uðborgarsvæðinu.
Sjá nánari útskýringar og
tölur yfir selda nýja bíla á
bls. 6
Tilbob í tilefni flutninga
hjá Bílheimum
Bls. 11
Almeran fer
vel af stab Bis. 2
Fjölskyldubíllinn mikil-
vægasta neysluvaran
Bls. 8
Reynsluakstur —
Peugeot Boxer
Bls. 18
Fimm stjörnu bílar
Bls. 9
Mjög gott verð
Nýkomin stór sending
af boddíhlutum íflestar
gerðir bifreiða, t.d.:
BMW,
Escort,
Sierra,
Fiat,
Charade,
Honda,
Mazda,
Toyotá
o.fi. tegundir.