Tíminn - 27.01.1996, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 27. janúar 1996
Haayrðinqaþáttur
Vegur hins vinnulúna verkamanns er þyrnum
stráöur.
Áþján
Meöan áþján eflist hér
og illvíg skuldaþrautin,
geta fáir eins og er
eignast salt ígrautinn.
Aö afloknu stjórnarkjöri í Dagsbrún:
Þarna situr sama stjórn,
scel meö bros á vörum.
Skyldi hún vilja faera fóm
fyrir bœttum kjörum?
Pétur Stefánsson
Enn skera valdhafarnir.
Þó að þeir skeri og skeri
og skerði mjög velferðina,
eru þeir aftast á meri
hvað áhrœrir fjármunina.
Aðalsieinn Sigurðsson
Forsetalistinn
Forsetanna frœgi listi
fer að verða stór.
Er nú Ragnar organisti
einn í þessum kór.
Samkynhneigö - konur
Að konur séu með konum
kynlegt mér einatt líst,
en óléttar verða þær ekki
afþví— svo mikið er víst.
Kynlífskynning í sjónvarpsþáttunum „Þeytingur"
með Gesti E. Jónassyni:
Get ég um gæðakönnun
hjá Gesti Einari.
Hann framkvæmir kynlífskönnun
— og keppnin fer harðnandi!
Auðunn Bragi Sveinsson
Búi enn hagmælti sendir línu:
„í skammdeginu gerast gjarnan miklir atburðir,
jafnt á sviði jarðgangamála sem trúmála. Ástæða er
til að geta þeirra í leirburðarþáttum — ef þeir eru
enn á lífi.
Svo er almættinu og Búa og hans líkum fyrir að
þakka að enn tórir þátturinn og er vonandi að brag-
gast heldur en hitt. Og Búi hefur upp raust sína:
Speliríum ríkónis
Bráðum verða volduggöng
vígð á norðurhveli;
ekki stutt og ekki þröng,
óháð skúr og éli.
Þá finnst engum leiðin löng,
þótt landið snjóar feli.
Því skal hefja sigursöng
sérhver íslandsdeli.
Aðstoð vor er ekki röng
né ábyrgð — handa Speli."
Botnar og vísur sendist til Tímans
Brautarholti 1
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Andfemínísk tíska
rybur sér til rúms
Litrík vortíska og kvenleg er sá
boðskapur sem tískuhönnuðir
senda frá sér. Þeir eru í óðaönn
að kynna nýja útlitið, sem að
mörgu leyti er gamalt eða styðst
við eldri tísku, jafnvel frá
fimmta og sjötta áratugnum.
Nokkuð var fjallað um sumar-
klæðnaðinn í síðasta þætti og
hvað verið er að kynna í há-
tískuborgunum, sem að nokkru
leyti ráða útliti og lífsstíl næstu
missera.
í ár er tískan mjög femínín, að
sögn Heiðars, sem ávallt er með
fyrstu mönnum hér á landi til
að kynna sér hræringar í tísku-
heiminum og hefur sitthvað
um málin að segja.
Heiðar: Það er einhver þver-
sögn í þvi að sú femíníska tíska,
sem nú er verið að kynna, er
mikil andfemínistatíska.
Fyrirsætum á myndum í blöð-
um er stillt upp, jafnvel á skrif-
stofum, sækjandi kaffi í kaffi-
bolla, réttandi kaffibollann til
yfirmanns síns. I rauninni er ég
svolítið móðgaður fyrir hönd
kvenna, sem eru femínistar,
gagnvart því sem þessi tíska
virðist fara mjög hart inn á.
Fölar og Interessant
Fyrirsæturnar eru ennþá
grennri en fyrr, þær eru ennþá
fölari og veiklulegri. Það er ein
stór stjarna sem heitir Jodie
Kidd. Hún er svo horuð að hún
var látin fara í rannsókn og
læknarnir sögðu að hún væri
heilbrigðasta og hraustasta
þvengmjóa stelpan sem þeir
hefðu rannsakað. En hún er svo
mjó og veikluleg að hún þurfti
að bera af sér þann óhróður að
eitthvað væri að henni. Þetta er
stórstjarnan í ár.
Önnur stórstjarna er Tish Gi-
off, sem gefur svolítið þessa
sömu mynd, þó að þær séu ekki
líkar.
Þær eru svona lasnar, þurfa
mikið á okkur körlunum að
halda og líta hreint ekki út fyrir
að vera langskólagengnar. Þær
eru það reyndar og báðar af að-
alsættum.
Konur virðast vera að hætta
að leika karla, en ég hefði viljað
sjá það gerast á svolítið annan
máta. Mér finnst eins og tískiy
hönnuðir, tískustílistar og þeir
sem eru að vinna í þessum há-
tískugeira fari þarna beint í að
andmæla femínistamyndinni
með dálítið miklu offorsi.
Breytt kvenímynd
Hvort tískufrömuðir eru að
búa til breytta kvenímynd upp
á eigin spýtur, eða hvort þeir
eru öðrum næmari fyrir breytt-
um straumum skal látið ósagt
urh.
Það getur vel verið að femín-
istarnir hafi farið fullgeyst. Það
er að minnsta kosti mat margra,
og að þarna séu þær að fá ofan-
ígjöf. Líklega er ég fullmikill
femínisti sjálfur að taka þetta
nærri mér. En líka ber að gæta
að því, að margar af frumkvöðl-
um femínistans hafa dregið
mjög úr fullyrðingum og fyrri
kenningum sínum. Þær tala nú
um að vissum markmiðum sé
náð og þá tekur íhaldssemin
við.
Vertu bara sæt og
fín
Oft hefur verið gagnrýnt hve
mikil áhrif tískunnar eru. Til
dæmis það hvað krafist er að
stúlkur séu grannar.
En ég er hræddari við þau
áhrif sem nú eru að komá í ljós.
Þegar maður flettir tískublöðun-
um, er eitthvað sem segir mér
að boðskapurinn þar sé eitthvað
á þessa leið: Vertu ekkert að fara
í skóla, vænan. Þú ert eitthvað
svo glær, þú getur ekkert lært.
Vertu bara rosalega sæt og fín
og reyndu að ná þér í einhvern
karl sem sér fyrir þér.
Mér finnst þetta hættulegri
skilaboð heldur en hvab fyrir-
sætan er mjó. Ef við setjum
þetta upp svona, þá þætti mér í
rauninni vænt um að fá fyrir-
spurnir um þessi mál. Annars
vegar frá konunni sem vill vera
kona og þetta fellur í kramið
hjá. Og síðan frá konunni sem
er femínisti og vill senda ein-
hver skilaboð til ungu stúlk-
unnar, sem vega upp á móti
röngum skilaboðum tískunnar.
Hvaö ræöur?
Aldrei fæst úr því skorið ab
hve miklu leyti tískustílistarnir
skapa nýja tísku og breyta við-
horfum, eba hvort þeir eru öðr-
um næmari á þær stefnur og
strauma, sem eru undiralda
mannlífsins, og breyti verkum
sínum samkvæmt því.
Sé femínisminn á undan-
haldi, veit enginn hvab við tek-
ur og hver verður þá karlmanns-
ímyndin. Er hún líka að breyt-
ast og þá hvernig?
Heibar
Jónsson,
snyrtir,
svarar
spurningum
lesenda
Hverniff
áégaö
vera?