Tíminn - 30.01.1996, Page 8
8
Þriöjudagur 30. janúar 1996
Molar...
... KR-ingar ætla ekki að taka
þátt í deildarbikarkeppninni í
knattspyrnu, sem hefst í mars
næstkomandi, en KR var hins
vegar eitt þeirra liða sem sam-
þykktu þessa hugmynd á árs-
þingi KSÍ í haust. KR- ingar ætla
þó að vera með í Reykjavíkur-
mótinu og hyggja síðan á utan-
ferb í maí, rétt áður en íslands-
mótib hefst.
... Það er oft athyglisvert sem
sagt er í beinum útsendingum
frá íþróttavibburðum og er
málfar lýsenda stundum ekki af
albestu gerb. Þetta átti vib
Björn Inga Hrafnsson á Stöð 3
þegar hann lýsti leik Aston Villa
og Sheffield Utd. Sem dæmi
má nefna að Björn Ingi var að
segja frá Paul McCrath, leik-
manni Aston Villa, að hann
hefbi átt við persónuleg vanda-
mál að stríba, en hann hefði
síban „tekið sig kverkataki" og
málefni hans værj nú öll á betri
veg. Þá sagbi Björn Ingi um
Townsend hjá Aston Villa að
„hann hefði oftar en ekki skor-
að glæsileg mörk". Ótrúlegt en
satt.
... lan Wright hefur verið gert
að mæta fyrir aganefnd enska
knattspyrnusambandsins f ann-
að sinn á viku. Nú á hann að
svara til saka fyrir ummæli sín í
garb enskra dómara, þar sem
hann kallaði nokkra þeirra „litla
Hitler". í síðustu viku mætti
hann fyrir aganefndina vegna
atviks í leik Arsenal og Middles-
bro, á Riverside- leikvanginum,
þar sem Wright hrækti á and-
stæbing. Safnast þegar saman
kemur og refsingin gæti orbiö
harkaleg.
... Clasgow Rangers hefur gert
Blackburn kauptilbob í Alan
Shearer, markamaskínuna
miklu, og er liðið tilbúið að
greiba Blackburn tólf milljónir
punda, eða sem nemur um 1,2
milljarbi íslenskra króna. Þetta
yrbi hæsta verb sem greitt hef-
ur verib fyrir enskan knatt-
spyrnumann.
... Arsenal er á höttunum eftir
Nicola Berti, sem leikur meb
Inter Milan, og er Bruce Rioch
tilbúinn að greiða um fimm
milljónir punda fyrir kappann.
... Suður-Afríka, Zambía,
Ghana og Túnis hafa tryggt sér
sæti í undanúrslitum í Afríku-
keppninni í knattspyrnu. Þab
bar helst til tíðinda ab Tony
Yeaboah tryggbi sínum mönn-
um frá Ghana sæti í undanúr-
slitum.
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN _ 27.1.1990
(í l)(38) (2?)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1 . 5 al 5 0 7.908.863
O 4 af 5 (ft PIÚ8 ^ W2 308.360
3. 4 of 5 103 10.320
4. 3 al 5 3.578 690
Heildarvinningsupphseð: 12.057.363
m \ BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Körfuknattleikur:
Titill eftir 10 ára bið
Haukar eru bikarmeistarar í
körfuknattleik, eftir sigur á ÍA í
rislitlum úrslitaleik í Laugardals-
höll á sunnudag, 85-58. Þessa úr-
slitaleiks verður vart minnst, því
eins og áður sagði var hann ris-
lítill auk þess sem umgjörð hans
minnti helst á venjulegan deild-
arleik. Bilun varð í ljósabúnaöi
fyrir leikinn og varð ab seinka
leiknum um rúman hálftíma.
Haukarnir hafa ekki unnið titil í
10 ár og það var svo sannarlega
kominn tími til, en libið er nú
skipaö mörgum ungum strákum,
sem veitir svo sannarlega ekki af
þeirri reynslu sem það er að
vinna bikarúrslitaleik.
Það var greinilegt í fyrri hálfleik
að liðin áttu erfitt með að ná sér á
strik eftir tafirnar sem orðið höfbu,
og það virtist erfitt að ná upp
stemningu á leiknum.
Haukar höfðu yfir í hálfleik 31-
26.
Þeir tóku hins vegar vel við sér í
síðari hálfleik, höfðu öll völd á
vellinum og sigruðu eins og áður
sagði með ágætum yfirburöum.
Jón Arnar Ingvarsson lék best
Haukanna og þá áttu þeir Jason
Williford og ívar Ásgrímsson ágæt-
an leik, sérstaklega í síðari hálfleik.
í Skagaliðinu var Milton Bell best-
ur, en aðrir náðu sér vart á strik í
leiknum, enda við ofurefli að etja.
Stig Hauka: Jason Williford 20,
Sigfús Gizurarson 16, ívar Ásgríms-
son 14, Jón Arnar Ingvarsson 11,
Björgvin Jónsson 10, Pétur Ingvars-
son 8, Þór Haraldsson 2, Vignir
Þorsteinsson 2, Sigurður Jónsson 2.
Stig ÍA: Milton Bell 19, Elvar Þór-
ólfsson 10, Bjarni Magnússon 9,
Haraldur Leifsson 8, Jón Þór Þórð-
arson 4, Dagur Þórisson 3, Brynjar
Sigurðsson 2, Gubjón Jónasson 2.
Þaö voru aöeins tvö liö sem tryggbu sér áframhatdandi þátttöku í 4. umferö í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu, en aöeins voru leiknir 4 leikir af i 5
og var 11 frestaö vegna veöurs. Einn leikur var ígærkvöldi. Man. Utd sigraöi Reading 3-0 og Aston Villa vann Sheff. Utd I -0. Everton og Tottenham lentu hins vegar í
bullandi vandrœöum, en Everton geröi jafntefli viö Port Vale 2-2 og Tottenham geröi jafntefli viö Úlfana 1-1. Meöfylgjandi mynd er einmitt úr þeim leik. Þarna eigast viö
þeir Eric Young, fyrrum leikmaöur meö Wimbledon, og Teddy Sheringham, markahrókur Tottenham, en hann átti slakan dag á laugardag. símamynd
Bikarkeppnin í handknattleik:
KA og Víkingur í úrslit
KA og Víkingur mætast í úrslit-
um bikarkeppninnar í hand-
knattleik, en þau báru sigurorb
af mótherjum sínum í undan-
úrslitum um helgina.
KA-menn fóru suður á Selfoss
þar sem þeir sigruðu heimamenn
31-32 í skemmtilegum og nokk-
uð spennandi leik, eftir ab Selfoss
hafbi haft yfir í hálfleik, 15-14.
Selfyssingar bitu nokkuð frá sér
og höfðu framan af síbari hálf-
leiks yfirhöndina, en þá tók Juli-
an Duranona, Kúbumaðurinn
ótrúlegi í liöi KA, öll völd og
skorabi hann 9 af síðustu 10
mörkum KA í leiknum og tryggði
KA aðgöngumiöann að bikarúr-
slitaleiknum.
Duranona var eins og áður
sagði bestur í liði KA og gerði
hann 13 mörk í 16 skotum í
leiknum. Patrekur Jóhannesson
lék einnig nokkub vel, en hann
gerbi 6 mörk; Jóhann G. Jó-
hannsson geröi sömuleiðis 6
mörk, Björgvin Björgvinsson 4
og Leó Örn Þorleifsson gerði 3.
Guðmundur Arnar Jónsson varði
13 skot.
Einar G. Sigurðsson gerði 10
mörk fyrir Selfoss, Valdimar
Grímsson geröi 8 mörk, Sigurjón
Bjarnason 5, Björgvin Rúnarsson
5, Hjörtur Levý Pétursson 2 og
Einar Guðmundsson 1.
Á sama tíma áttust við lið Vík-
inga og Framara og sigruöu Vík-
ingar 16-19 í mjög kaflaskiptum
leik, þar sem liðin skiptust á að
hafa forystuna og stundum leið
langur tími án þess að ööru lið-
inu tækist að skora, en þá nýtti
hitt liðið tækifæriö og náði for-
ystunni. Þaö var einmitt einn
slíkur leikkafli sem tryggði Vík-
ingum sigurinn í leiknum.
Knútur Sigurðsson og Birgir
Sigurðsson voru markahæstir
Víkinga meb 5 mörk. Hjörtur
Arnarson gerði 4 mörk, Kristján
Ágústsson 2, Davor Kovacevic 2
og Árni Friðleifsson gerði eitt
mark.
Oleg Titov, línumaburinn
sterki hjá Fram, var markahæstur
þeiria með 5 mörk; Hilmar
Bjarnason gerbi 4 mörk, Jón
Andri Finnsson 3, Sigurður Gub-
jónsson 2 og þeir Siggeir Magn-
ússon og Jón Þórir Jónsson gerðu
eitt mark hvor.
Skjaldarglíma Ármanns:
Orri sigraði meb yfirburðum
Orri Björnsson, KR, sigraði
með yfirburðum í Skjaldar-
glímu Ármanns, sem fram fór
í íþróttahúsi Kennaraháskól-
ans um helgina, en alls tóku
sex glímumenn þátt í mótinu.
Orri sigraði alla andstæöinga
sína, síöast helsta keppinaut
sinn, Ingiberg Sigurðsson, Ár-
manni, sem hafnaði í öðru sæti,
eftir aukaglímu við Ólaf Odd
Sigurðsson, sem einnig er úr Ár-
manni, en þeir voru bábir með
þrjá vinninga. Þetta er fyrsti sig-
ur Orra í Skjaldarglímu Ár-
manns.
í fjórba til fimmta sæti voru
þeir Jón Birgir Valsson og Helgi
Bjarnason, en Þórbur Hjartar-
son varð í neðsta sæti. Mótið
var að sögn glímumanna vel
heppnað og skemmtilegt og var
vel glímt.