Tíminn - 03.02.1996, Page 5
Laugardagur 3. febrúar 1996
Mál dagsins — fíkniefnavandinn
í litlu þjóðfélagi eins og hér kemur alltaf
upp af og til umræða sem yfirgnæfir aðra
þjóðfélagsumræðu og svo helst um ein-
hvern tíma þar til bylgjan hnígur aftur. Slík
bylgja hefur nú risið um fíkniefnamál.
Stjórnmálaflokkarnir halda fundi um mál-
ið og fjölmiðlaumræða er afar mikil.
Ég er síður en svo að gera lítið úr nauð-
syn þess að slík umræða fari fram. Hér er
mjög alvarlegt mál á ferðinni og má með
sanni segja að hér sé um þá meinsemd að
ræða sem hættulegust er í nútímaþjóðfé-
lagi. Hins vegar verður að gjalda varhug við
að draga of algildar ályktanir af umræðum
sem blossa upp í fjölmiðlum í tengslum við
afmörkuð mál. Raunveruleikinn er flóknari
en það.
Innflutningur — einangrun
Fyrr á öldinni mátti greina þá von í
kvæðum skáldanna að einangrun okkar
héldi ýmsum ódyggðum frá íslands strönd-
um. Þessa skoðun mátti greina langt fram á
þessa öld. í þjóðhátíðarljóðum mátti lesa
setningu á borð við þá að við værum „langt
frá heimsins vígaslóð" og „frjáls við ysta
haf" svo tilvitnanir séu notaöar. Einangrun
okkar er löngu liðin tíð, og samskiptin við
umheiminn eru margvísleg og leiðir til
innflutnings greiðar. Jafnframt því fjölgar
leiðum til ólöglegs innflutnings vara á borð
við fíkniefni, enda hafa þær verib notaðar í
verulegum mæli á undanförnum árum.
Allir sem þekkja fíkniefnamálin best eru
sammála um að það sé óraunhæft mark-
mið að ísland verði fíkniefnalaust land.
Hægt sé að stemma stigu við útbreiðslunni
með efldu eftirliti, en þrátt fyrir landfræði-
lega legu íslands sem eylands í miöju Atl-
antshafi séu samgöngur með þeim hætti að
ekki sé hægt að girða fyrir innflutning efna
sem þar ab auki eru ekki mikil fyrirferbar,
ekki síst þau hættulegustu. Tilvist fíkniefna
hér er því staðreynd og þess vegna þarf að
heyja baráttuna á öllum vígstöbvum, ekki
aðeins á þeim stöðum sem umferö kemur
inn í landið erlendis frá.
Öllum ber saman um þab ab leitarhund-
ar hafi mikla þýbingu þegar tollurinn leitar
ab fíkniefnum. Þá starfsemi þarf ab efla,
þótt vissulega geti hundarnir haft sín tak-
mörk.
Fræðslustarfsemi
Það er alveg ljóst að fræðslustarfsemi um
skaðsemi fíkniefna er ekki næg. Vandamál-
ib er hvernig sú fræðsla nær til þeirra sem á
henni þurfa að halda. Það skiptir máli ef
unglingar og börn eru á _____________
viðkvæmum aldri að þeir
aðilar sem með fræbslu
fara í þessum efnum
nálgist þau á réttan hátt.
Þab verður mjög fróblegt
að fylgjast meb hvaða ár-
angur framtak fram-
haldsskólanema um
jafningjafræðslu hefur í
för með sér. Þetta fram-
tak er afar áhugavert og er sjálfsprottið
framtak í skólunum. Þab er vissulega vel.
Það er hvorki rétt né sanngjarnt að bendla
alla framhaldsskólanema við fíkniefna-
neyslu, og alltaf er hætta á því þegar um-
ræðan rís sem hæst að ýmsir þjóðfélags-
hópar séu hafðir fyrir rangri sök og alhæft
um hlutina.
Jafningjafræðslan er áhugaverð hug-
mynd og jákvætt framtak sem sýnir ab
ungu fólki er ekki sama um framvinduna í
þessu alvarlega máli. Hins vegar verður að
huga að því á fleiri sviðum hvaða aðgerðir
eru árangursríkastar í fræðslumálum.
sem neysla á sér stab og neytendur eru
saman komnir. Ekki hefur fundist stór-
vægilegt magn í þessum áhlaupum, en þau
hafa það gildi ef þróunin verður þessi að
þeir sem hópast saman til neyslu fíkniefna
geta ekki verið öruggir um að fá að stunda
iðju sína í fribi. Þetta getur haft fyrirbyggj-
andi áhrif, þótt þessi vegur sé ávallt vand-
rataður og gráa svæðið um friðhelgi einka-
lífsins sé skammt undan. Góð stjórn og
skýrar vinnureglur þurfa að vera um slíka
starfsemi.
Ab öðru leyti þurfa samskiptaleiðir milli
________________ allra abila sem vinna að
þessum málum á sviði
löggæslu að vera skýrar.
Menn
°9
málefni
Löggæslan
Þess sjást merki nú að aðferðir lögreglu
til þess að stemma stigu við fíkniefna-
neyslu og ná til hópa sem stunda dreifingu
hafa tekið breytingum. Allir hafa heyrt
fréttir af skyndiáhlaupum lögreglu og
fíkniefnalögreglu í Reykjavík á staði þar
Dómar og
refslvist
Af og til heyrast þær
raddir að refsingar við
fíkniefnabrotum séu
ekki nægilega harðar, og
hertar refsingar geti haft fyrirbyggjandi
áhrif. Ég hef nýlega setib fund þar sem fjöl-
margir aðilar sem vinna að fíkniefnamál-
um á ýmsum stigum létu í ljós álit sitt á
þessu atriði og voru sammála um að lausn-
arinnar væri ekki að leita í hertum refsing-
um. Miklu fremur væri fræðslustarf og auk-
in virkni lögreglu á vettvangi árangursrík-
ari aðferbir. Tölur sýna einnig að nú líöur
miklu skemmri tími en ábur þar til dómar
eru kveönir upp í fíkniefnamálum og er
það vel og getur haft áhrif.
Abgerðir opinberra abila
Nú hefur verið skipuð samstarfsnefnd
dómsmála-, félagsmála-, heilbrigðis- og
menntamálaráðuneytis sem á að samræma
aðgerðir í fíkniefnamáium, og tengja sam-
an þau ráðuneyti sem þessi mál falla undir
á einhvern hátt. Dómsmálaráðuneytið fer
með löggæsluna, heilbrigbisráðuneytið
með þau mál sem snerta heilsufar og þær
afleiðingar sem neyslan hefur. Undir fé-
lagsmálaráðuneytið heyra ýmsar félagsleg-
ar afleiðingar og einstök meðferðarúrræði
og undir menntamálaráðuneytið fræðslu-
mál. Sú spurning vaknar hvers vegna fjár-
málaráðuneytið sem fer með fjárhagsmál
og þar að auki tollgæsluna á ekki einnig
hlut ab þessu samstarfi, sem getur ef vel til
tekst verið afar þýðingarmikið og gert bar-
áttuna gegn þessum vágesti markvissari en
ella.
Fólkib sjálft
Hins vegar fer mikilvægasti þáttur barátt-
unnar fram hjá fólkinu sjálfu. Það þarf ab
huga að því hvort þjóðfélagsástandið býb-
ur upp á aukningu á neyslu hvers konar
meðala sem hjálpa fólki til þess að komast
í falska vellíðan. Gott samband foreldra og
barna og eðlilegt aðhald er áreiðanlega'
mikilvægt. Frelsi til athafna er ungum og
gömlum nauðsynlegt en frelsið er afstætt
hugtak. Eðlilegar umgengnisreglur og að-
hald á heimilum og talsamband milli for-
eldra og barna og ekki síður unglinga er
mikil undirstaða þess að hinir síðarnefndu
leggi ekki á flótta frá heimilum sínum og
flýi á náðir götunnar. Að öllum þessum
þáttum þarf að huga. Langur og óregluleg-
ur vinnutími og harðnandi samkeppni og
lífsbarátta á öllum sviðum hefur áreiban-
lega sín áhrif á þá sem eru veikir fyrir.
Skyndilausnir
Sú mikla umræða sem er um þessi mál
nú er góbra gjalda verð. Hins vegar má hún
ekki leiöa til þess að flanað verði að van-
hugsuðum skyndilausnum. Heildarsýn er
nauðsynleg í þessum efnum, og allir þurfa
að leggjast á eitt um úrbætur. Samstarf
ráðuneyta að þessum málum vekur vonir
um að þau sjónarmið eigi að hafa í heiðri
að þessu sinni.
Jón Kristjánsson:
Tannverndardagurinn var ígœr og Karíus og Baktus voru meö sýnikennslu í Kringlunni og áttu í höggi viö Stellu Margréti tannírœöing. Tímamynd: BC