Tíminn - 03.02.1996, Síða 15

Tíminn - 03.02.1996, Síða 15
Laugardagur 3. febrúar 1996 WttmmU 15 Friðgeir Jónsson Friðgeir Jónsson var fœddur 28. janúar 1927 í Ystafelli í Suður- Þingeyjarsýslu. Hann lést á sjúkrahúsinu á Húsavík hinn 29. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Helga Friðgeirsdóttir frá Fitins- stöðum og Jón Sigurðsson, bóndi ög rithöfundur í Ystafelli. Að loknu námi við Alþýðuskól- ann á Laugum í Reykjadal þar sem hann stundaði m.a. smíða- nám, vann hann auk bústarfa heima í Ystafelli oft við byggingar og ýmsar smíðar. Hann bjó síðan félagsbúi í Ystafelli á móti bróður sínum Sigurði og konu hans Kol- brúnu Bjamadóttur. En allt frá því að skógrœkt var hafin í Fellsskógi í samvinnu við Skógrcekt ríkisins um 1960 stund- aði Friðgeir skógrœkt og umhirðu nýskóga í vaxandi mceli. Hin síð- ari ár tóku skógræktarstörfin allan tíma Friðgeirs á meðan að þeim var hœgt að vinna. En hann hafði þá í sinni umsjá auk Fellsskógar, skógræktarsvæði Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga í Fossseli. Auk þess vann hann við gróðursetn- ingu bændaskóga. Frá 1. maí 1992 bjó Friðgeir Jónsson á Húsavík með sambýlis- konu sinni, Klöru H. Haraldsdótt- ur frá Kaldbak á Rangárvöllum. Á hverju sumri fram á ung- lingsár fórum við systkinin með foreldrum okkar norður í Ysta- fell. Þessar ferðir höfðu mikil áhrif á okkur. í þeim sköpuðust ekki bara tengsl við afa, ömmu og ættingjana, heldur líka við landið og náttúruna. Fyrir norð- an er náttúra landsins fegurst, er skoðun sem þá tók bólfestu í hugum okkar. í minningu okkar var og verður Geiri frændi hluti af þessari náttúru. Fyrstu kynni okkar af Geira tengdust alltaf náttúrunni. Hann fór austur í skóg á daginn að vinna og veiöa. Sem krakkar munum við eftir skottum af rebba sem hann hafði skotið, yrðlingum sem hann tók með heim og löxum sem voru á stærð við okkur. Þeg- ar viö vorum oröin eldri, fórum við í skóginn með pabba að hitta Geira. Það voru margir trjáreitirnir sem hann gat sýnt okkur og alltaf urbu trén stærri og fallegri eftir því sem árin liöu. Skógurinn var hans ríki- dæmi og ævistarf. Það var ekki fyrr en núna, þegar okkur er hugsað til hans, ab okkur verður ljóst að hann hefur byggt sér minnisvaröa sem mun endast lengur en mörg önnur mann- anna verk. Það sem Geiri tók sér fyrir hendur, gerði hann af mikilli eLjusemi og sýndi mikið úthald. Hann gerði vel það sem hann vildi gera og þar nábi hann ár- angri. Hann gat hugsað fyrir hverri plöntu og vandað sig þegar henni var valinn réttur staður, en gat verib eins og í öbrum heimi þegar hann ók bíl. Þannig gerði hann upp á milli dauðra hluta og þess sem hafði líf og tilgang í náttúrunni. Hann var ekki meb fleiri eða betri verkfæri og hluti en hann t MINNING þurfti og átti þab jafnt vib um heimili, vinnu og veibiskap. Hann var nægjusamur og lét hluti duga þótt þeir létu á sjá. Með listrænum útskurði í tré geymdi hann minningar, sagbi sögur og túlkaði þab sem hann sá í náttúrunni, en vib hin sáum ekki. Skógarfell, húsið sem hann byggði í Fellsskógi og skreytti að innan meb útskurði, á sér fáa líka. Það er margt í lífi Friðgeirs sem vert væri að minnast, en verður ekki gert hér. Einn kafla í lífi hans verðum vib þó að nefna, en það eru árin sem hann átti með Klöru Haralds- dóttur frá því að þau kynntust upp úr 1990 og fram á síðasta dag. Geiri og Klara kynntust og eignubust hvort annab í gegn- um sameiginlegt áhugamál sitt, skógræktina. Ef segja ætti sögu af ungu og rómantísku pari, þá mætti allt eins segja sögu þeirra þann tíma sem þau áttu saman, þannig ljómaði af þeim. Við bróburbörn Friögeirs þökkum honum nú að leiðar- lokum allt sem hann kenndi okkur og var okkur, og sendum Klöru innilegar samúðarkvebj- ur. Sigríw, Helga, Jón Erlingur og Úlfhildur Jónasarböm Hann Geiri frændi er dáinn. Fréttin kom ekki á óvart, við vissum að hverju dró, þó að- dragandinn væri ekki langur. Þegar leiöir skiljast er margs aö minnast. Geiri var alltaf fastur punktur í lífi okkar systkinanna. Eg held að ég muni fyrst eftir honum sitjandi á dráttarvélinni „Grána gamla", eins og við köll- uðum hana. Ég fékk að dingla með, Geiri var með pípuna í munninum og söng hástöfum. Hann var alltaf syngjandi, kannski ekki alltaf lag sem mað- ur þekkti, svo bommaði hann eins og við sögðum. Athafna- semin fylgdi honum fram í and- látið, á dánarbeðnum hafði hann áhyggjur af því sem hann átti ógert. Vib lofuðum honum að sjá til þess að hlutirnir yrðu unnir, og þab verðum við aö standa við. Geiri var sannkallað náttúru- barn. Hann undi sér best úti í náttúrunni, með gróbri jarbar, og lífsstarf hans einkenndist af því. Skógrækt og náttúruvernd voru hans líf. Hann hafði ofur- trú á því sem jörbin gefur og sýndi ab sú trú var á rökum reist. Hans bestu stundir voru vafalaust þegar hann var stadd- ur í Fellsskógi og sá trén, sem hann hafði gróðursett, orðin einnar, tveggja eba jafnvel þriggja mannhæba há og rækt- unarstarfib var farið að bera arð í eiginlegum og óeiginlegum skilningi. Stærsta gæfusporið í lífi Geira var þegar hann kynntist Klöru og hóf meb henni sambúð. Þeg- ar ég hitti Klöru fyrst, á sólbjört- um og hlýjum sumardegi, var hún eins og sólargeislarnir sem glömpuðu á Skjálfanda, svoleið- is kynntumst vib Klöru. Hún lýsti upp umhverfið og lífið hans Geira. Þau áttu saman nokkur yndisleg ár, ár sem aldr- ei verða fullþökkuð og óskandi hefbi verið að þau hefðu orðib fleiri. Heimilið þeirra er fallegt og ber þess ljósan vott hvað Geiri var mikill listamaður. Út- skornir stólar, myndir, hillur og fleira eru fallegur minnisvarði og eiga eftir að bera listrænum hæfileikum Geira fagurt vitni um ókomin ár. Ánægðastur var hann með þá hluti, sem hann vann úr birki úr Fellsskógi, enda hafa þeir sérstaka þýðingu í hugum þeirra sem þá eiga. A meban Geiri lá á Sjúkrahús- inu á Húsavík, áttaði ég mig enn betur á því að þó Geiri ætti enga afkomendur, leit hann á okkur systkinabörn sín senr afkom- endur sína, þannig að í raun- inni átti hann stóran afkom- endahóp. Hann var okkur systk- inunurn meira en föburbróbir, hann tók þátt í uppeldi okkar á sinn hátt og fylgdist vel meö okkur í gleði og sorgum. Þegar við eignuðumst okkar börn, var eins og hann væri að eignast sín barnabörn. Á afmælum þeirra var Geiri ávallt ómissandi gest- ur, eins og afar og ömmur. Þegar við vissum að þab var aö koma að leiðarlokum hjá Geira, hjálpabi hann okkur á ótrúleg- an hátt að sætta okkur við orð- inn hlut. Hann var ákveðinn í að taka því sem að höndum bar meb æðruleysi og meö Klöru sér vib hliö voru síðustu dagarnir fallegir og gefandi. Þegar ég kom inná sjúkrastofuna til þeirra einn janúarmorguninn, voru glitský á himni. Klara stóð við gluggann og dáðist að útsýninu og hún lét snúa rúminu hans Geira, svo hann gæti notið feg- urðar himinsins með henni. Vib blasti skógræktargirðingin í Húsavíkurfjalli, glitský á himni og sólaruppkoman. Saman nutu þau þess sem fyrir augun bar og ég fann aö þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau í sameiningu dáðust ab fegurð náttúrunnar. Og ég veit aö í þeirra augum var ekkert til fallegra en litbrigði jarðarinnar. Þaö að kveðja er okkur alltaf svolítiö erfitt. Þó vitum við að lífiö heldur áfram og þab væri ekki Geira ab skapi ab vera ab velta sér of mikið upp úr sorg- inni. Ég þakka fyrir samfylgdina og leiðsögnina, við eigum góðar minningar sem ekki verða frá okkur teknar. Við geymum þær og minnumst samvistanna við Geira með gleði og þökk og lát- um brosin hennar Klöru lýsa upp tilveruna. Regína Siguröardóttir Nýr umboðsmaður Tímans í Þorlákshöfn Hrafnhildur Harðardóttir Egilsbraut 22 Sími 483 3627 UMBOÐSMENN TÍMANS Kaupstaður Nafn umboðsmanns HeímHi Simi Keflavík-Njarðvík Erla Knudsen Elíasdóttir Heibarbraut 7D 421-5669 Akranes Cuðmundur Cunnarsson Háholti 33 431-3246 Borgarnes Hrafnhildur S. Hrafnsdóttir Hrafnaklettur 8 437-1642 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgata 25 438-1410 Crundarfjörbur Gubrún |. jósepsdóttir Grundargata 15 438-6604 Heliissandur Ævar Rafn Þrastarson Hraunsás 11 436-6740 Búbardalur Inga C. Kristjánsdóttir Cunnarsbraut 5 434-1222 Reykhólar Adolf Þ. Guðmundsson Hellisbraut 36 434-7783 ísafjörður Hafsteinn Eiríksson Pólgata 5 456-3653 Subureyri María Fribriksdóttir Eyrargötu 6 456-6295 Patreksfjörbur Snorri Cunnlaugsson Abalstræti 83 456-1373 Tálknafjörbur Margrét Gublaugsdóttir Túngata 25 456-2563 Bíldudalur Vilborg jónsdóttir Dalbraut 42 456-2141 Þingeyri Karítas Jónsdóttir Brekkugata 54 456-8131 Hólmavík júlíana Ágústsdóttir Vitabraut 13 451-3390 Hvammstangi Hólmfríbur Gubmundsdóttir Fífusund 12 451-2485 Blönduós Snorri Bjarnason Urýarbraut 20 452-4581 Skagaströnd Dagbjört Bæringsdóttir Ránarbraut 23 452-2832 Saubárkrókur Cubrún Kristófersdóttir Barmahlíb 13 453-5311 Siglufjörbur Cuðrún Auðunsdóttir Hafnart ún 16 467-1841 Akureyri Baldur Hauksson Drekagil 19 462-7494 Dalvík Harpa Rut Heimisdóttir Bjarkarbraut 21 466-1816 Ólafsfjörbur Sveinn Magnússon Ægisbyggb 20 466-2650 Húsavík Þórunn Kristjánsdóttir Brúnagerbi 11 464-1620 Laugar, S-Þing. Bókabúð Rannveigar H. Ölafsdóttur 464-3181 Reykjahlíb v/Mývatn Daði Friðriksson Skútahrauni 15 464-4215 Raufarhöfn Helga jóhannesdóttir Ásgata 183 465-1165 Þórshöfn Matthildur jóhannsdóttir Austurvegur14. 468-1183 Vopnafjörbur Ellen Ellertsdóttir Kolbeinsgata 44 473-1289 Egilsstabir Páll Pétursson Árskógar 13 471-1350 Seybisfjörbur Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegur 7 472-1348 Reybarfjörbur Ragnheiður Elmarsdóttir Hæðargerði 5 474-1374 Eskifjörbur Björg Sigurbardóttir Strandgata 3B 476-1366 Neskaupstabur Bryndís Helgadóttir Blómsturvellir 46 477-1682 Fáskrúbsfjörbur Ásdís jóhannesdóttir Skólavegur 8 475-1339 Stöbvarfjörbur Sunna K. jónsdóttir Einholt 475-8864 Breibdalsvík Davíb Skúlason Sólheimar 1 475-6669 Djúpivogur Ingibjörg Jónsdóttir Hammersminni 10 478-8916 Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 478-1274 Nesjar Kristín Gunnarsdóttir Stöbli 478-1573 Selfoss Bárður Cuðmundsson Tryqqvaqata 11 482-3577 Hveragerbi Þórður Snæbjörnsson Heibmörk 61 483-4191 Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 483-3300 Eyrarbakki Jóhannes Erlingsson Túngata 28 483-1198 Hvolsvöllur Ómar Eyþórsson Litlagerbi 10 4b7-8353 Vík í Mýrdal Pálmi Kristjánsson Sunnubraut 2 487-1426 Kirkjubæjarklaustur Bryndís Cuðgeirsdóttir Skribuvellir 487-4624 Vestmannaeyjar Auróra Friðriksdóttir Kirkjubæjarbraut 4 481-1404 Loödýraræktar- ráðunautur Bændasamtök íslands og Bændaskólinn á Hvanneyri óska að rába sameiginlega ráðunaut og kennara í loð- dýrarækt, sem jafnframt hafi umsjón meb loödýrabúi skólans. Umsækjendur þurfa að hafa háskólapróf í búvísindum og sérþekkingu á loðdýrarækt. Launakjör og starfsskyldur eru samkvæmt rábningar- kjörum opinberra starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk. og umsóknir skulu sendar Bændaskólanum á Hvanneyri eða Bænda- samtökum íslands, sem veita nánari upplýsingar um starfið. ÚTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræbings er óskab eftir tilbobum í vinnu og efni vib dúkalagnir 1996 í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Útbobsgögn verba seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri. Opnun tilboba: þribjud. 20. febrúar nk. kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Frikirkjuvegi 3 - Sími 5525800 Venjum unga hestamenn strax á að N0TA HJÁLM! yUMFERÐAR RÁÐ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.