Tíminn - 03.02.1996, Side 19
Laugardagur 3, febrúar 1996
Hfontins
19
Konstantín fyrrum Grikkjakonungur:
Útlægur, en ekki gleymdur
höllina og í raun var fjölskyldan
fangar í Tatoi-höll norður af
Aþenu.
Þögull og fölleitur sat konung-
ur fyrir á ljósmynd ásamt nýrri
ríkisstjórn. Mánuði eftir upp-
reisnina fæddist Pavlos krón-
prins og 13. desember sama ár
reyndu stuðningsmenn Konst-
antíns konungs að hrifsa völdin
á ný úr höndum herforingj-
anna, en sú tilraun fór út um
þúfur.
14. desember, kl. 02.55, var
hann landflótta konungur. Þá
lenti hann með fjölskyldu sinni
á Rómarflugvelli. Hann var þó
ekki formlega settur af fyrr en
við þjóðaratkvæðagreiðslu 7 ár-
um síðar.
Afleiðingar uppreisnarinnar,
flóttinn og allt sem því fylgdi
hafði þær afleiðingar að Anna-
María drottning missti fóstur að
þriðja barni sínu.
Konungsfjölskyldan settist
síðar að í London, þar sem
Anna-María drottning fæddi
þrjú börn.
Nú nýlega gekk Pavlos krón-
prins að eiga bandaríska millj-
óneradóttur og fór sú athöfn
fram með mikilli viðhöfn. Að
hann eigi eftir að verða konung-
ur Grikklands þykir heldur ólík-
legt í dag. ■
Gríska konungsfjölskyldan, sem nú
dvelur í útlegö. F.v. Theodora
prinsessa, Konstantín konungur,
Alexía prinsessa, Anna-María
drottning, Filippos prins, Nicolaos
príns og Pavlos krónprins.
Það byrjaði sem reglulegt ævin-
týri. Anna-María Danaprinsessa
varð ástfangin 16 ára gömul af
Konstantín Grikkjaprinsi. Þau
voru gefin saman í Grikklandi
og hún varö drottning landsins
aðeins'18 ára gömul.
En ævintýrið tók skjótt enda.
21 árs gömul varð Anna-María
að flýja land með manni sínum
og 2 kornungum bömum þeirra.
Konstantín var 23 ára þegar
hann tók við konungdómi af
föður sinum, Páli I. Grikkjakon-
ungi, sem dó 6. mars 1964. Ekk-
ert bar til tíðinda fyrr en aðfara-
nótt 21. apríl 1967. Þá fékk
Konstantín konungur skeyti
þess efnis að uppreisn væri í að-
sigi. Símasamband var rofið við
Berfætt
Óvenju mikið virðist boriö í
vináttu þeirra Juliu Roberts og
sjónvarpsþáttastjörnunnar
Matthews Perry, ef marka má
myndina þar sem þau faðmast
innilega á sólbjörtum sunnu-
degi, hann á sokkaleistunum
en hún berfætt.
Það er sagt hafa komið flatt
upp á Perry, þegar honum
tóku að berast ástleitin skila-
boð í gegnum faxtækiö frá
Juliu, og varð hann upp með
sér af því að kona af hennar
kalíberi og stöðu skyldi hafa
áhuga á sjónvarpsleikara eins
og honum. ■
í SPEGLI
TÍIVIANS
Drottningamar
og durgarnir
Til Wong Foo, takk fyrir allt! Julie New-
mar (To Wong Foo, Thanks For Everyt-
hing! Julie Newmar *★ 1/2
Handrit: Douglas Carter Beane
Leikstjóri: Beeban Kidron
Abalhlutverk: Patrick Swayze, Wesley
Snipes, John Leguizamo, Stockard
Channing, Blythe Danner, Arliss Howard
og Chris Penn
Háskólabíó
Öllum leyfb
Það hefur Iengi veriö hefð fyr-
ir því að karlkyns skemmtikraft-
ar klæöist kvenmannsfötum til
að fá fólk til að hlæja. Það gefur
augaleiö að þessi eini brandari
heldur ekki heilii kvikmynd
uppi. Meira þarf að koma til.
Þetta tekst ekki sem skyldi í Til
Wong Foo..., því sagan í kring-
um dragdrottningarnar þrjár er
heldur væmin og vitlaus þrátt
fyrir aö margar skemmtilegar
persónur bæti að einhverju leyti
fyrir þetta lýti á myndinni.
Myndin hefst á því að ungfrú
Vida Bohemme (Swayze) og
Noxeema Jackson (Snipes)
verða jafnar í kjöri á dragdrottn-
ingu ársins í New York og þurfa
að komast til Hollywood í loka-
keppnina. Þær aumka sig yfir
fremur misheppnaða drottn-
ingu, Chi Chi Rodrigues (Legu-
izamo), og taka hana með í
ferðalagiö vestur á bóginn. Þær
lenda síöan í miklum kröggum,
þegar bíllinn þeirra bilar og þær
þurfa að eyöa nokkrum dögum í
krummaskuöinu Snydersville.
Bæjarbúar taka þeim misjafn-
lega, en þær ákveöa að setja svip
sinn á bæjarlífið svo um munar.
Til Wong Foo... kemur í kjöl-
farið á vinsældum hinnar ástr-
ölsku Priscilla — Queen of the
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
Desert og dregur talsvert dám af
henni. Þegar Hollywoodma-
skínan sá að græða mátti á drag-
drottningum, voru þeir ekki
seinir að taka við sér og Til
Wong Foo... var geysivinsæl
vestra.
Það athyglisverðasta við
myndina er hve vel aðalleikar-
arnir þrír standa sig. Patrick
Swayze hefur hingað til ekki tal-
ist til stórleikara, en hann er hér
tvímælalaust í sínu besta formi
á ferlinum. Wesley Snipes
stendur sig einnig vel, en það er
þó John Leguizamo sem stelur
senunni í hverju atriðinu á fæt-
ur öðru. Hann er nú reyndar
bara skrambi trúveröugur sem
kvenmaður!
Það dregur myndina hins veg-
ar talsvert niður aö sagan fer vel
yfir strikið í væmni og tilfinn-
ingafroðu. Þegar endirinn nálg-
ast, koma kveðjustundir og
uppgjör á færibandi með til-
heyrandi tárum og mígandi
(ó)hamingju. Þaö hefði mátt
draga úr þessu, þó ekki væri
nema til að koma í veg fyrir að
persónurnar endurtaki sig.
Til Wong Foo er í heildina
ágæt skemmtun, þar sem bæöi
aðal- og aukaleikarar standa sig
mjög vel, en hnökrar í sögunni
koma í veg fyrir að hún verði
verulega eftirminnileg. ■
Á EFTIR BOLTA áQjÍ
KEMUR BARN... OO
’BORGIN OKKAR OG BÖRNIN f UMFERÐINNI' JC VÍK ' "ÍV/