Tíminn - 16.02.1996, Qupperneq 1

Tíminn - 16.02.1996, Qupperneq 1
STOFNAÐUR 191 7 Föstudagur 16. febrúar 33. tölublaö 1996 Framkvœmdastjóri NATO: Friður og ör- yggi í Bosníu innan 12 mánaða Javier Solana, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, kom til íslands í gærmorgun og ræddi vib forsætisrábherra, utanríkisrábherra og utanríkis- málanefnd Alþingis. Solana átti fund meö blaöa- mönnum eftir viöræöurnar og kom þar m.a. fram aö ísland yröi mikilvægur hluti af bandalaginu í framtíöinni en hann kvaöst þó ekki hafa fariö fram á frekari þátttöku íslands i starfi NATO. Málefni friðargæslusveita NATO i Bosníu voru einkum til um- ræöu enda telur Solana Bosníu- verkefniö vera þaö stærsta sem NATO heföi tekist á viö frá stofn- un þess áriö 1949. Solana var sannfærður um aö friðargæsla NATO myndi leiða til friöar í Bo- sníu-Herzegóvínu. I'riöargæslu- verkefnið myndi ná takmarki sínu innan árs en aö sjálfsögðu tækju samningaviðræður milli hinna stríöandi afla lengri tíma. Aöspuröur um hvort NATO ætl- aöi ekki aö taka stríðsglæpamenn úr rööum Bosníu-Serba sagöi Sol- ana aö NATO gegndi ekki hlut- verki lögreglu heldur væri friðar- gæslusveitunum ætlað að tryggja öryggi og friö svo þeir sem sinna eiga löggæslu geti unniö sína vinnu. Javier Solana fór aftur utan síð- degis í gær. -LÓA Stofnlánadeild: Aukib sjálfstæbi Skipuð hefur verib nefnd á veg- um landbúnaöarráöuneytisins til ab fara yfir störf Stofnlána- deildar landbúnabarins. Guö- mundur Bjarnason landbúnab- arrábherra segir eölilegt ab gera hana sjálfstæöari í störfum, skipun starfshópsins nú sé meb- al annars tilkomin vegna um- ræbu um skipulag Búnabar- bankans. Ráöherra sagöi í samtali við Tímann í gær aö hvort sem skipu- lagi Búnabarbankans yföi eba ekki breytt teldi hann rétt að stofnlánadeildin fengi meira rými og yrði sjálfstæður fjárfestingar- sjóbur. Verið væri aö skoöa starf- semi annarra fjárfestingarsjóöa en hann teldi aö stofnalánadeild- inni bæri ab halda utan viö það starf. Stofnlánadeildin hefur hingað til fengib til ráöstöfunar sjóöa- gjöld þannig aö hún hefur getað lánaö út á lægri vöxtum en gerist á almennum markaði. „Það væri alveg útilokað fyrir landbúnabinn eins og rekstrarskilyröi eru núna að ætla í einu vetfangi aö stökkva út á hinn frjálsa markað. Þróunin verður hins vegar sú aö deildin færi sig meir á þann grunn aö markaðstengja sig, auk þess sem sú umræöa hefur komiö upp í Bændasamtökunum að endur- skoöa beri sjóðagjöldin." -BÞ Solana í Reykjavík Hinn nýi framkvœmdastjóri NATO, javier Solana, átti dag í Reykjavík ígœr. Hér er Solana, annar frá vinstrí á myndinni, ásamt Halldóri Asgrímssyni utanríkisráöherra. Tímamynd: GS Guöni Ágústsson, alþingismaöur, leggur áherslu á aö sala á Pósti og síma veröi ekki á dagskrá eftir breytinguna / hlutafélag: Málib lítið rætt í þingflokknum „Málib hefur enn verib lítib rætt í þingflokki framsóknar- manna. Frumvarpib var kynnt af starfsmönnum rábuneytisins og Pósts og síma sl. mibvikudag og umræöa um málib vart haf- in. Þab kom aldrei til greina ab svona stórt mál færi í gegnum þingflokkinn á sama fundi og stór hluti þingmanna var ab sjá frumvarpib í fyrsta sinn. Svo- leibis gera menn ekki," segir Gubni Ágústsson þingmabur Framsóknarflokksins í Subur- landskjördæmi. Hann segir að þingmenn flokks- ins vilji vanda sig í þessu stóra máli og tryggja ýmsa þætti vegna fyrir- hugaörar breytingar á rekstrarformi Pósts og síma í hlutafélag. Hann bendir einnig á að hjá Pósti og síma vinna hátt á þriðja þúsund manns. Hann segir að þingmennirnir vilji heyra rök starfsmanna stofnunar- innar og býst við að forystumenn stéttarfélaga þeirra muni gera grein fyrir viðhorfum sínum á fundi með þingmönnum flokksins n.k. mánu- dag. Guðni segir að það sé einkum tvennt sem verður að vera tryggt vegna fyrirhugaðra breytinga á rekstrarformi Pósts og síma. Fyrir það fyrsta að starfsfólk búi við áframhaldandi öryggi og að þjón- usta við dreifðar byggðir landsins verði ekki skert. En síðast en ekki síst að sala á fyrirtækinu sé ekki á dagskrá. Þar að auki sé jwð mjög mikil- vægt hvemig staðið verður að starfsmannamálum fyrirtækisins. Af einstökum þáttum í því sam- bandi nefnir Guðni m.a. lífeyrisrétt- indi starfsmanna o.fl. -grh Könnun manneldisrábs: 25-35 ára karlmenn sólgnastir allra í ís í viöamikilli könnun Mann- eidisráös nýlega kom í ljós ab karlmenn á aldrinum 25-35 ára borba langmest af ís. Þab eru því ekki unglingarnir eba börnin sem sem hafa vinning- inn í þeim efnum eins og ein- hverjir gætu ætlab. Þessi hópur þjóöfélagsþegna hefur nokkra yfirburði umfram aðra neysluhópa en nokkub mikill munur er á kynjuniim. Framkvæmdastjóri Kjöríss, Valdimar Hafsteinsson, sagði að niðurstaðan kæmi ekki á óvart en útilokaði ekki að ímynd aug- lýsinga tæki einhverjum breyt- ingum. Hingað til hefði fremur veriö reiknað með ab konur stýrðu innkaupunum. -BÞ Vélstjórar telja nauösyn á sérstöku verölagsráösveröi á loönu: Sjómönnum hótaö vegna deilna Helgi Laxdal formaður Vélstjóra- félags íslands telur einsýnt að frjáls verðlagning á loðnu í orði en ekki í verki sýni nauðsynina á sérstöku verðlagsráðsverði. Hann getur ekki betur séð en að kaup- endur séu að óska eftir því með einhliða verðákvörðunum á hrá- efninu. Athygli hefur vakið að þrátt fyrir óánægju sjómanna með Ioðnuverð upp úr sjó til bræðslu og þá sérstak- lega einhliða ákvörðun einstakra kaupenda að lækka verö á flokkaðri loðnu til bræðslu um nær helming, þá hefur engin séð ástæðu til að skjóta ágreiningi um verðmyndun- ina til úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna. En þessi nefnd var sett á fót í framhaldi af gerð núgild- andi kjarasamninga sjómanna. Tíminn hefur fyrir því öruggar heimildir að einstökum áhafnar- meðlimum á loðnubát úr Eyjum hafi hreinlega verið hótað af út- gerðinni og að þeir gætu bara tekið pokann sinn og farið ef þeir gerðu alvöru úr hugmyndum sínum að fara með ágreining um verðmynd- un loðnu til úrskuröarnefndar sjó- manna. Af þeim sökum treysti eng- inn úr viðkomandi áhöfn sér til ab láta máliö fara lengra. Þama átti í hlut útgerð sem jafnframt rekur vinnslustöð í landi og kaupir því aflann af sjálfum sér til vinnslu.-gr/r

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.