Tíminn - 24.02.1996, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.02.1996, Blaðsíða 2
2 VimtNft Laugardagur 24. febrúar 1996 Borgarleikhúsib — situr þab uppi meb unga leikara eingöngu? Uppsagnir leikara hjá LR á nœsta leiti. Formaöur Félags íslenskra leikara: Verður skortur á eldri leikurum? „Ef ab þessi bréf eru byrjun á uppsögn í Borgarleikhúsinu, og ég tala nú ekki um ef fleiri á þessum aldri verba látnir fara, þá getur þab orbib stórvanda- mál í leikhúsinu eftir kannski 10 ár. Þá vantar okkur fólk um sextugt. Þá verbur þab þannig ab mabur þarf ab fara til út- landa til þess ab sjá leiksýningu þar sem öll flóran er," sagbi Edda Þórarinsdóttir, formabur Félags íslenskra leikara, en nú hafa þrír leikarar á mibjum aldri hjá Leikfélagi Reykjavíkur fengib bréf meb „tillögu ab starfslokasamningi" frá Leikfé- laginu. Edda bendir á ab leikar- ar um fimmtugt hafi einmitt verib stærstur hluti þess hóps sem sagt var upp þegar Stefán Baldursson tók vib í Þjóbleik- húsinu á sínum tíma. „Það er til mjög mikib af ung- um og efnilegum leikurum en mér persónulega finnst þab óspennandi leikhús þar sem ekki er boðið upp á aldursflóru mann- lífsins." Edda hræbist ab hörgull verbi á eldri leikurum þegar elsta starfandi kynslóðin hverfur úr leikhúsunum því þá verði enginn til ab fylla skarb hennar, þab verbi búib ab segja þeim öllum upp og þeir kannski búnir ab snúa sér ab öbrum störfum. Abeins einn leikari hefur fengib uppsagnarbréf frá LR en Soffía Jakobsdóttir, Jón Hjartarson og Valgerbur Dan fengu ofangreind bréf. Ab sögn Eddu var svipabur háttuí hafbur á þegar Stefán Bald- ursson tók vib í Þjóbleikhúsinu. Þá var leikurum sagt upp fyrir 1. mars svo uppsagnirnar tækju gildi fyrir næsta leikár. Þegar leik- ararnir kærbu Stefán kom í ljós ab hann hafbi í raun ekki vald til ab segja upp leikurum þar sem Gísli Alfrebsson var þá enn starfandi leikhússtjóri. í kjölfarib var leik- urunum dæmd eins árs laun. Sú stabá getur hins vegar ekki komib upp í Leikfélagi Reykjavík- ur. Samkvæmt þeirri túlkun laga LR sem yfirleitt hefur verib unnib eftir ræbur leikhússtjóri allt starfs- lib en hann þarf samþykki leik- húsrábs fyrir fastrábningu. Leikari telst fastrábinn sé hann rábinn til leikhússins í eitt ár og fær þar meb 6 mánaba uppsagnarfrest. í leikhúsrábi situr stjórn Leikfélags Reykjavíkur, einn fulltrúi frá borgarstjóra og leikhússtjóri. Eins og er sitja bæbi Sigurbur Hróars- son, núverandi leikhússtjóri, og Vibar Eggertsson, tilvonandi leik- hússtjóri, í leikhúsrábi. Vill helst ævirábningu Edda sagbi ab sökum þessa væri óvíst hvernig félagib myndi koma ab þessu máli. „Þab er hins vegar mín persónulega skobun ab þegar leikari hefur verib á föstum samn- ingi hjá leikhúsi í 8-10 ár og fyrst ab leikhúsib hefur getab nýtt sér fólkib í þetta mörg ár þá eigi þab einhver réttindi. Eg er ekki endi- Edda Þórarinsdóttir - sótt ab leikurum um fimmtugt. Sigurbur Karlsson - tvö lögfrœbileg álit sem stangast á. Vibar Eggertsson - tilvonandi leikhús- stjóri þegar farinn ab skipuleggja sitt fyrsta leikár í Borg- arleikhúsi. lega ab tala um ævirábningu en ab þab sé ekki hægt ab sparka því meb örfárra mánaba fyrirvara." Edda sagbist þó aubvitab helst vilja ævirábningu. Abspurb um hvort þab væru ekki hagsmunir leiklistarinnar ab leikhússtjórar gætu sett saman eigin leikhóp sem hæfbi vibkomandi verkefna- vali sagbi hún svo ekki vera ef einungis eldra fólki yrbi ýtt út. Leiklistin og leikhúsin þurfi leik- ara á öllum aldri. Sigurbur Karlsson, starfandi formabur leikhúsrábs og stjórnar LR, vildi ekkert láta hafa eftir sér um afstöbu sína til uppsagnanna fyrr en eftir félagsfundinn í næstu viku en þá hyggst hann gera fé- lagsmönnum grein fyrir afstöbu sinni. Honum var ókunnugt um ab í bígerb væri vantrauststillaga á stjóm Leikfélagsins eins og fram kom í Alþýbublabinu fyrir skömmu. Þorsteinn Gunnarsson, í stjórn LR, vildi heldur ekki tjá sig um málib. Lögfræðiálitin tvö stangast á Sigurbur sagbi ab leitab hefbi verib lögfræbilegs álits á lögum LR varbandi þab hvort hægt sé ab túlka lögin á þann veg ab leikhús- stjóri geti rábib leikara án sam- þykkis leikhúsrábs. „Vib höfum fengib tvö álit sem stangast á. Þess vegna er þab metib svo ab þab sé félagsins ab skera úr um ágreining á túlkun laganna." At- kvæbagreibsla verbur þá væntan- lega um lögfræbiálitin á félags- fundinum í næstu viku. Kerpur þá í ljóst hvort Vibar Eggertsson geti rábib leikara og leikstjóra einn og án samrábs vib leikhúsráb. -LÓA FRAMHALDS- SAGA Skólalíf EFTIR FJÖLMANN BLÖNDAL Einn var sá deildarstjórinn sem enginn liafbi eigin- lega áttað sig á. l’etta var yngsti deildarstjórinn, drengjalegur í útliti, ljós á brún og brá, af finnskum ættum ab talib var, al- inn upp í Austur-Botni. Svo ungæbislegur var hann, ab þegar hann talabi var eins og hann væri ennþá í mútum. Þab var þó ekki bara af þessum sökum sem Dodda hafbi hugkvæmst ab kalla þennan unga deildarstjóra kjúklinginn. Sú hugmynd hafbi kviknab þegar deildar- stjórinn ungi hafbi stabib upp og haldib ræbu á kenn- arafundi. Doddi hafbi horft á hann frá hlib og um leib séb fyrir sér vangasvipinn á stálpubum kjúklingi meb tæplega hálfvaxinn, bleikan kamb á ljósfibrubum hausnum. 20 Talandinn kórónabi svo skapnabinn og kjúklingurinn bar nafn meb rentu, ab Dodda fannst. Kjúklingurinn var deildarstjóri verk- menntadeildar. Þab var sú deild sem skólayfirvöld bundu hvað mest- ar vonir vib, enda sótti námsfólk alltof mikib í Há- skólanám á meban skortur var á fólki í ýmsar verklegar greinar. Svo stálheppinn hafbi þessi ungi deildarstjóri verib, ab skömmu eftir ab hann tók vib deildarstjórn, hafbi skólanum áskotnast ný rafsuðuvél ókeypis frá framleib- anda slíkra véia. Kjúklingurinn hafbi tekib vib vélinni eins og hann ætti allan heiburinn og aflab sér vinsælda mebal nem- enda og foreldra, en síbur mebal samkennara sinna. Fleiri en ábur höfbu sýnt verklegu námi áhuga og deildin blómstrabi. Doddi ákvab ab fylgjast vel meb þessum framagosa. Sagt var... Hallast á hltb „Prestar tala á milli hjóna í skilnabar- máli og enda meb eigin tungu uppí grátandi konu. Signeringum er snúib á vel vaxinn vibmælanda og kross- markib tekib frá vörum að nebri vör- um, af brjósti á brjóst. Krossar á kirkj- um landsins hallast á hlib og verba ab X-i sem varar vib klámfengri dag- skrá sem þar fer fram." Hallgrímur Helgason skefur ekki af því í skrifum sínum um kirkjuna og biskup í Alþýbublabinu í gær. Kæran er nóg „Sjálfur Biskupinn stendur strípabur uppi, í hugum fólks meb sperrtan lim sinn á lofti. Hann nær honum ekki aftur nibur f hugum okkar fyrr en hann hefur sagt af sér. Því miður. Kæran er nóg, og segir einhvern veg- inn allt um andlegt gjaldþrot kirkj- unnar." Sami. Löggur eru járnkallar „ímynd lögreglunnar hjá fólki er harði járnkallinn sem aldrei má sýna hin mannlegu merki veiklundar. Hvorki sársaukatár né gleðitár. Vib þessar abstæbur starfar lögreglan og álagib vex frekar en dvínar. Þjóbfé- lagib treystir því ab lögreglumenn bregbist rétt vib abstæbum á sínum tíma en hvernig bregst þjóbfélagib vib störfum lögreglumanna?" Spyr Ásgeir Hannes í Tímanum. Hefur vit „Fólk hefur vit á ab rábast ekki á lög- regluþjón." Hlynur Höskuldsson íTímanum. Engan helvítis snjó „Og nú spáir hann [Páll Bergþórsson] því ab ab hitinn næstu ár verbi sam- bærilegur vib árin 1931 -60 eins og þau voru ab jafnabi. Gangi þab eftir sjáum vib lítinn snjó eba svona álíka mikinn og þegar ég var voba lítil. Eba jafnvel ennþá minni snjó! Engan helvítis snjó!" Sigurbi Þór Gubjónssyni er mikib nibri fyrir í Mogga er hann gagnrýnir fjöl- mibla fyrir ab hampa snjónum. Opnar gub Kringluna? „Er þab þá gub sem opnar fyrir mann dyrnar í Kringlunni?" Spurbi lítil stúlka eftir ab presturinn hafbi sagt henni ab gub væri alls stabar nálægur til ab rétta hjálpar- hönd. Sandkornsritari DV segir þessa sögu úr » bókinni: „Þeim varb á í messunni". Þab vakti talsverba kátíng í pott- inum í gær þegar dyggi Mogga- lesandinn kom uppfullur af nýj- ustu fréttum. Moggamaðurinn kaupir ekkert annab blab en Moggann og horfir abeins og Ríkissjónvarpið. Nýju fréttir Moggamannsins fjöllubu um ásakanirnar á hendur biskupi sem hann hélt ab hefbu verið ab koma upp! Maburinn hafði ekki áttab sig á ab málið er búið að vera í fjölmiblaumfjöllun í u.þ.b. viku. Þetta varb hins vegar til þess að aðrir í pottinum áttuðu sig á því ab fréttablaðib Moggi hafði ekkert sagt frá málinu fyrr né hafbi birst um þab frétt í Rík- issjónvarpinu, ekki fyrr en biskup fór þá leib ab bibja um opinbera rannsókn á málinu. • Þab vakti mikla undrun manna í pottinum í gær þegar fréttist af tilkynningu Landsbankans um ab þeir ætlubu ab lækka vexti 1. mars. Einn pottverja sem þekkir til í íslandsbanka fullyrti ab hrokkib hefbi upp úr einum framkvæmdastjóranum þar þeg- ar hann heyrbi um tilkynning- una: Er Sverrir nú búinn ab éta óbs manns skít? ...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.