Tíminn - 24.02.1996, Side 4

Tíminn - 24.02.1996, Side 4
4 Laugardagur 24. febrúar 1996 Útgáfufélag: Ritstjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Fréttastjóri: Ritstjórn og auglýsingar: Sími: Símbréf: Pósthólf 5210, Setning og umbrot: Mynda-, plötugerb/prentun: Mánabaráskrift 1550 kr. m/v< Tímamót hf. jón Kristjánsson Oddur Olafsson Birgir Gubmundsson Brautarholti 1, 105 Reykjavík 5631600 55 16270 125 Reykjavík Tæknideild Tímans ísafoldarprentsmibja hf. k. Verð í lausasölu 150 kr. m/vsk. Skuldarar eru ekki einu sökudólgarnir Greiðsluerfiðleikar og gjaldþrot einstaklinga eru orðin slík samfélagsvandamál að stjórnvöld verða að grípa í taumana. Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur bob- að aðgerðir og lagafrumvörp til að freista þess að færa málin til betri vegar. Skuldir einstaklinga og heimila eru vægast sagt of- boðslegar, og er athugunarefni út af fyrir sig að komast að hvernig þær verða til og hlaða síöan utan á sig þar til menn og heilu fjölskyldurnar sökkva í skuldafenin. Umtalsverður hluti skuldanna er til kominn vegna húsnæðiskaupa, en ræturnar liggja víðar. Lánastofnanir og viðskiptafyrirtæki lána ótæpilega og sýnast sjaldan hafa áhyggjur af greiðslugetu, en láta mistryggar ábyrgðir vina og vandamanna duga. Eða taka veb í bíl- um, mublum eða hverju því sem fengiö er upp á krít. Skuldirnar eru til komnar með ýmsum hætti. Hætt er við að einhverjum hafi brugðið í brún, þegar upplýst var á blaðamannafundi félagsmálaráðherra að ógreidd barnsmeðlög næmu nær sex milljörðum króna og að bróðurparturinn af því innheimtist aldrei. Nú á ab gefa megnið af þessum skuldum eftir og freista þess að fá eitthvaö af þeim greitt. Vel má vera að hér takist vel til og að ríkissjóður fari ekki alltof illa út úr viðskiptunum. En óneitanlega hlýtur þeim, sem ávallt bera allan kostnað af uppeldi barna sinna, ab þykja sem hér sé mismunun á ferðinni. Skattaskuldir einstaklinga eru einnig miklar og verður reynt að létta undir með þeim, sem verst eru settir, með greiðsluerfiðleikaaðgerðum. Þarna er svipað uppi á ten- ingnum og hjá þeim sem skulda barnsmeðlög, að það er borin von að skuldir fáist greiddar. Þá þarf ab semja og kemur þá til kasta Ráðgjafarstofu í fjármálum heimil- anna. Við þá skattgreiöendur, sem alltaf standa í skilum, þarf aldrei að semja um eitt eða neitt. Þeir bara borga, líka fyrir skattsvikarana og þá sem geta helst aldrei staðið í skilum. Ráðgjafarstofnun til hjálpar einstaklingum í fjárhags- erfiðleikum er tímabær stofnun og á áreiðanlega eftir að koma mörgum til góöa. Þeir, sem misst hafa tökin á eig- in fjármálum, ráða sjálfir illa við að koma þeim í lag, en með faglegri aðstoð og eftirgjöf einhverra skulda geta vonandi sem flest illa stæð heimili rétt úr kútnum og komist til bjargálna. En jafnframt þarf að herða tökin á nýjum lántökum. Lánastofnanir verða að bera meiri ábyrgð á gjörðum sínum en nú er. Það er óhæfa að bankar og krítarkorta- fyrirtæki, svo eitthvað sé nefnt, ausi út peningum í van- skilafólk í trausti þess að „ábyrgðarmenn" greiði skuld- irnar. Einstaka menn eiga ekki að komast upp með að greiða ekki meðlög eða skatta á tilskildum tíma, því það býður aðeins skuldasöfnun heim og síðan mismunun, vegna þess að gengið er ab flestu fólki og það látið greiða skuldir á gjalddaga og skattar teknir með staðgreiðslu. Ábyrgðin er ekki aðeins skuldara, heldur einnig þeirra sem lána og þeirra sem láist ab innheimta gjöld sem renna eiga í almannasjóði. Birgir Cuömundsson: Með opnar kirkjudyr Fyrir rúmum áratug var ég við nám í Manitobahá- skóla í Kanada og haföi þá m.a. að aukastarfi aðstoð- arkennslu við stjórnmálafraeðideildina eins og títt er um fólk í framhaldsnámi. í þessu fólst m.a. aö sjá um umræðutíma og fara yfir ritgerðir og gera nem- endunum einstaklingslega grein fyrir niðurstöðu ritgerða, styrkleika þeirra og göllum. Allt eru þetta hversdagslegir hlutir og varla frásagnarverðir nema kannski fyrir það, að þáverandi deildarforseti tók mig tali í upphafi þessa starfs og gaf mér nokkur heilræði varðandi samskiptin við nemendur, einkum kven- nemendur. Hann benti mér á aö gæta þess að vera helst ekki einn með kvenstúdenti inni á skrifstofu minni þegar ritgerð var skilað og í öllu falli yrði ég að gæta þess að hafa huröina á skrifstofunni opna þannig að hver sem er gæti séð inn til mín ef svo bæri undir. í fyrstu þóttu mér þetta einkennilegar ráð- leggingar en var þá bent á aö þess væru mörg dæmi að stúd- entar hefðu komið fram opin- berlega og sakað kennara um að hafa lofað sér hærri ein- kunnum gegn því ab þær gerðu þeim einhvern kyngreiða. M.ö.o. deildarforsetinn var að vara mig við því aö ég gæti átt von óréttmætum ásökunum um kynferðislega áreitni ef ég gerði ekki tilteknar varúbarráð- stafanir. Þetta var í fyrsta sinn sem ég heyrði um kynferðis- lega áreitni á vinnustað. Ég lenti aldrei í neinu veseni með þessi mál, hvort sem það var nú vibvöruninni að þakka eða ekki. Hins vegar komu upp mál sem fóm beina leið inn á kvennréttindasíöur Stúdenta- blabsins og uröu þeim kennur- um sem í slíku lentu ekki til framdráttar svo ekki sé meira sagt. Fælingaráhrif opin- berrar umfjöllunar Eflaust hefur þessi opinbera umfjöllun og umræða um að konur ættu að láta vita um kynferöislega áreitni orðið til þess að halda aftur af einhverj- um kennurum sem annars heföu áreitt nemendur. Og vissulega haföi þeim fækkað málunum sem náðu því að komast í almenna umræðu. Hins vegar var það líka viðurkennt (túlkað sem ákveðinn fórn- arkostnaður) að eitthvað væri um grá svæbi þar ásakanir byggðust á miklum oftúlkunum eba jafn- vel hreinum uppspuna þar sem námsmenn væru ab ná sér niðri á kennara fyrir ab hafa gefið lágar ein- kunnir. Ekki var nærri alltaf hægt að vinsa af neinu viti þau mál sem voru raunveruleg frá þeim málum sem voru tilbúningur. Það breytti ekki því að nibur- staðan var sama ærumorðið, hvort sem menn eru sekir eða saklausir, enda almannarómur samur við sig: lendi Jón í því að stolið sé frá honum eru tals- verðar líkur á því að hann verði kallaður Jón þjófur. Þab á við hvar sem er í heiminum. Aö sanna sakleysi sitt Svona var veruleikinn sem kennarar skólans urðu ab búa við, en þeir voru ekki og eru ekki einir á báti því svipaba meðvitund um kynferðislega áreitni mun vera að finna í háskólum og öðrum vinnustöð- um víba um heim. Hér á landi hefur þessi umræða annað slagib skotib upp kollinum, nú síðast í vetur, en ekki náb almennilegri fótfestu. Allsstaðar eru menn þó sammála um að aubvelt sé að brenna sig illa á svona málum. Um leið og kynferðisleg áreitni sé vissulega óþolandi, þá standi menn nánast ber- skjaldaðir gagnvart óréttmætum ásökunum um slíka áreitni. Menn standi frammi fyrir því að þurfa einhvern veginn að sanna sakleysi sitt í máli þar sem orb stendur gegn oröi, eba túlkun gegn túlkun. Aðalreglan í svona málum verður því ab vera sú, að reyna ab fá einhvern abila til leysa málið í kyrr- þey og komast ab raun um hvort ásakanir eiga við rök ab styðjast, hvort um sættanlegan misskilning er aö ræba og þá taka á málinu i samræmi við efnis- aöstæður hverju sinni. Hættan á tilefnislausu mannorbsmorði er einfaldlega átakanlega raunveru- leg og þó opinberar aftökur geti haft heilmikil fæl- ingaráhrif er ekki þar með sagt að þær fullnægi rétt- lætinu. Sannleikurinn mun líka vera sá í háskólum t.d. ab þessi mál hafa í auknum mæli flust af síðum stúdentablaðanna og inn í stjórnsýslu skólanna þar sem reynt er að leysa málin í rólegheitum. Illdeilur innan kirkjunnar Þjóðkirkjan íslenska hefur verib merkilega óum- deild með þjóbinni í gegnum tíðina, en virðist nú standa á miklum tímamótum. Þessi tímamót hafa leikmenn úti í þjóðfélaginu þó ekki kallab yfir hana nema ab óverulegu leyti. Innan þjóðkirkjunnar sjálfrar virðast nú þrífast slíkar illdeilur ab með ólíkindum hlýtur ab teljast. Sjálfur biskupinn stend- ur í óskemmtilegu máli þar sem hann er sakaöur um kynferðis- lega áreitni, jafnvel nauðgunar- tilraun fyrir 17 árum og hefur gripib til þess að óska eftir opin- berri rannsókn á málinu. Konan sem ber fram hinar alvarlegu ásakanir á biskupinn hefur lýst því yfir ab tilgangur sinn hafi fyrst og fremst veriö sá að koma málinu áfram innan kirkjunnar. Hún hefur hvergi allan þennan tíma sem liðinn er lagt fram kæru á hendur biskupi, sem þó hefði verið hinn eðlilegi fram- gangur málsins. Þrátt fyrir að mörgum fjölmiðlum hafi vissu- lega verið kunnugt um ab til væri kona sem taldi sig hafa ver- ið áreitta af biskupi hefur eng- inn þeirra séð ástæðu til ab gera neitt í málinu enda ekkert hand- fast um það ab segja. Þab voru hins vegar deilur innan kirkj- unnar sjálfrar sem gáfu þessa handfestu og þab er þaðan sem málinu er ýtt úr vör og komiö á framfæri við fjölmiðla, sem margir- tóku málið upp. Enda fréttnæmt að greina frá því sem gerist innan siðanefndar presta- félagsins — þab er ekki oft sem mál þaðan eru rædd opinber- lega. Siöanefndarmál í fjölmiölum Stóra spurningin í þessu máli öllu er því kannski ekki endilega einhver atburður sem hugsanlega gæti kannski hafa gerst fyrir 17 árum en enginn er til frá- sagnar um nema einn biskup og ein kona. Stóra spurningin lýtur hins vegar að þeirri málsmebferð sem þetta mál fær innan kirkjunnar. Kastljósið hlýt- ur að beinast að deilunum í kirkjunni því þab eru greinilega þær sem leiða til þess að einhverjir innan kirkjunnar kjósa að gera málið að fjölmiðlamáli. Og eftir að málib er komib af stab í fjölmiðlum verður einfaldlega ekki aftur snúið. Ekki spillir þaö fyrir umfjölluninni að nóg virðist vera til af kirkjunnar mönnum sem eru tilbúnir tii að velta opinberlega fyrir sér fram og aftur hugsanlegri þýðingu þess að þetta og hitt sé svona eða hinsegin og ljá vangavelt- um fjölmiðla vigt: Kirkjunnar menn sjálfir séu jú ab senda bréf og föx fram og aftur um málið. Efnislega hafa þeir eða aðrir þó fátt til að styðjast við umfram það að orð stendur gegn orði. Mannorðsmorð er niðurstaðan og enginn veit eba getur í raun verið viss um raunveruleg efnisatribi málsins. Dæmin sanna að ásakanir um kynferðislega áreitni geta skotiö upp kollinum á ótrúlegustu stöð- um á ótrúlegustu tímum og kirkjan er þar engin undantekning. En það virbast hins vegar vera ill- skiljanlegir þverbrestir í íslensku þjóðkirkjunni sjálfri sem koma í veg fyrir ab hún geti tekið á slíku vandamáli meb nauðsynlegri gætni og tillitssemi við alla aðila. Tími hinna opnu dyra? Það væri kannski athugandi, í ljósi þess sem nú er að gerast, að prestar landsins tileinkuðu sér ný vinnubrögb í umgengni sinni við kvenkyns sóknar- börn sín og gættu þess að hafa alltaf þriöja aðila inn- an seilingar. Ég get líka lagt til, á grundvelli fram- haldsnáms erlendis, að reynandi væri að tryggja að kirkjudyrnar stæðu ávallt opnar í slíkum viðtölum.a I tímans rás

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.