Tíminn - 29.02.1996, Side 1

Tíminn - 29.02.1996, Side 1
LANDBÚNAÐUR Verö á minka- og refaskinnum hefur tvö- til þrefaldast á rúmu ári. Arvid Kro, framkvœmdastjóri Félags loödýrabcenda: Skinnaverð ekki ver- ib hærra síðan 1988 Skinnaverð hefur hækkab mikið á undanförnum mán- ubum. Sem dæmi um það má nefna að verð á minkaskinn- um á uppboösmarkabi í Dan- mörku hefur nær þrefaldast á rúmlega einu ári. Verb á refa- skinnum hefur einnig hækk- að mikib og nær tvöfaldast á sama tíma. Arvid Kro, loð- dýraráðunautur og fram- kvæmdastjóri Félags lobdýra- bænda, segist vera bjartsýnn á að þetta verð haídist og jafnvel hækki eitthvað. Á markaði í febrúar fengust 222 krónur danskar fyrir fyrsta flokks minkaskinn, sem er meðalverð, og fyrir fyrsta flokks ref fékkst að meðalverði 662 krónur danskar. Meðalverð fyr- ir fyrsta flokks mink allt síðasta ár var 116 krónur danskar og meðalverð á refnum var 550 danskar krónur. Arvid segir að reyndar hafi léleg verð á fyrstu uppboðum ársins dregið meðal- verðið niður, en þegar líða tók á árið fór veröið hækkandi. í desember fyrir rúmu ári fengust 79 krónur danskar fyrir fyr^ta flokks minkaskinn, en ári síðar voru skinnin komin í 174 krónur danskar og eru nú, eins og áður sagði, komin í 222 krónur. Refaskinnið var í desember 1994 á 360 krónur, í desember 1995 var skinnið komið í 450 krónur, en nú stendur það eins og áður sagði í 660 krónum dönskum. Alls eru framleidd um 120 þúsund minkaskinn á ári hér- lendis, og miðað við það verð sem nú er í gildi er verðmæti skinnanna á markaði erlendis um 312 milljónir. Refaskinnin, sem framleidd eru á ári, eru um 27 þúsund talsins og er verð- mæti þeirra um 210 milljónir króna. Skinnin eru flest send til upp- boðsfyrirtækja í Danmörku, Finnlandi og víðar, en flest eru þó seld í þessum tveimur lönd- um. „Já, það er allt annað hljóð í loðdýrabændum nú. Það þarf að fara allt aftur til ársins 1988 til að finna sambærileg verð á minkaskinnum. Allar markaðs- horfur benda til þess að minka- skinnin haldi þessu verði og jafnvel að verðið á þeim hækki eitthvað. Það er aðeins meiri spurning um refinn, en verðiö á refaskinnum er komið það hátt að þau mál eru í góðum farvegi. Það er þó vitað að framleiðsla á refaskinnum mun eitthvað aukast á næstu árum í Finnlandi, en þetta verð helst örugglega út þetta ár," segir Arvid Kro. Hins vegar segir hann aö á móti komi að eftirspurnin sé mikil á stórum mörkuðum eins og í Rússlandi og Kína, og því gæti alveg eins farið svo að verðið haldist óbreytt þrátt fyrir meira framboð. „Það verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni og ég held að útlit- ið hafi sjaldan verið jafn bjart og nú," segir Arvid að lokum. -PS Ágúst H. Bjarnason hjá Vistfrœöistofunni: Lífræn rækt- un ekkert nýtt hér á landi Frá glœsilegri sýningu loödýrabœnda á dögunum. Ágúst H. Bjarnason grasa- fræbingur, sem rekur Vist- fræbistofuna, hefur sótt um löggildingu sem vottunaraöili að gæðum lífrænnar fram- leiðslu í íslenskum landbún- aði, en hefur ekki fengib leyf- ið enn. Mál hans eru til skoð- unar hjá Löggildingarstof- unni, en Ágúst segist eiga von á því að hann fái úrlausn sinna mála fljótlega. Hann segir lífræna ræktun fyrst og fremst pólítik, ákveðna stefnu sem menn hafa tekiö, að losa sig vib þessi aukaefni sem notuð eru í landbúnaði. „Lífræn ræktun er ekkert nýtt á Islandi, því þangað til menn fóru að nota tilbúinn áburð hér á landi þá var þetta allt saman lífræn ræktun. Menn mega því ekki halda að þetta sé eitthvað nýtt á íslandi," segir Ágúst. Ágúst telur að lífrænn land- búnaður eigi framtíð fyrir sér og sé það sem koma skal. Það sé bara stundarfyrirbrigði að viö ræktun sé alltaf hugsað meira um magn en gæði. Agúst segir að þrátt fyrir að lífrænt ræktaðar afurðir séu dýrari þá hljóti almenningur að opna augun fyrir gildi hans, eins og fólk hefur gert úti í hinum stóra heimi. „Ræktun erlendis var komin út í slíkar öfgar aö fólki var farið aö ofbjóða og því hefur þab snúið sér að lífrænt ræktuöum afurðum." Gefðu þér tíma til að njóta . BRAGA KAFFI -ilmandi nýtt og eiga goðar minningar ÞRJAR LJUFFENGAR TEGUNDIR I NYJUM UMHVERFISVÆNNI UMBUÐUM KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF -PS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.