Tíminn - 07.03.1996, Síða 1
80. árgangur
Fimmtudagur 7. mars
47. tölublað 1996
Spurt um meöferö trún-
aöarupplýsinga á þingi:
Engin sér-
stök lög
Engin sérstök lagaákvæði
gilda um meöferð trúnaðar-
upplýsinga hér á landi. Hins
vegar er að finna í ýmsum
lagagreinum fyrirmæli um
hvort og hverjum skuli veita
upplýsingar um persónuleg
málefni fólks. Má þar meðal
annars nefna lög um rétt-
indi og skyldur opinberra
starfsmanna þar sem þeim
er gert skylt að gæta trúnað-
ar. Þetta kom fram í svari
Þorsteins Pálssonar dóms-
málaráðherra við fyrirspurn
frá Lúðvík Bergvinssyni á
Alþingi.
Lúðvík vitnaði til atviks þar
sem maður sem leita vildi rétt-
ar síns gagnvart hinu opinbera
hafi komist að því að í máli
hans hafi meðal annars komið
fram upplýsingar um forræðis-
deilu er hann hafi átt í og ekki
átti skylt við þau mál er hann
leitaði réttar í. Lúðvík spurði
dómsmálaráðherra í framhaldi
af því hvort einhver sérstök
lagaákvæði væru um meðferð
trúnaðarupplýsinga og hvort
til stæði að setja sérstaka lög-
gjöf um slíkt. Þorsteinn Páls-
son, dómsmálaráðherra sagði
að ekki hafi komiö til tals að
setja slíka löggjöf þar sem með-
ferð trúnaðarupplýsinga væri
tryggð í ýmsum gildandi laga-
greinum. -ÞI
Grásleppuvertíöin:
Góbar horfur
Örn Pálsson framkvæmda-
stjóri Landssambands smá-
bátaeigenda segir að sölu-
horfur á komandi grásleppu-
vertíð séu góðar, en vertíðin
hefst þann 20. mars nk.
Þá verður heimilt að stunda
veiðar frá Grindavík og Sand-
gerði og austur og norður um
að Skagatá. Þá hefur verb fyrir
hrognatunnuna hækkað úr
1600 í 1700 þýsk mörk sem
þýðir að skilaverð til sjómanna
verður rúmar 70 þúsund krón-
ur fyrir hverja tunnu. Auk þess
hafa kaupendur skuldbundið
sig til að sjá grásleppukörlum
fyrir tunnum, salti og rotvarn-
arefnum þeim að kostnaðar-
lausu. -grh
l
gœr. Á stóru myndinni má sjá
formenn samtakanna rceöa viö
sittfólk. F.v. Eiríkur jónsson, Páll
Halldórsson og Ögmundur jón-
asson.
Tímamyndir: BC
Söguleg stund er stjórnir og formenn aöildarfélago BHMR, BSRB og
Kl funduöu í fyrsta skipti saman í gœr:
Samninga eba átök
„Ef ríkisstjórnin dregur ekki
frumvörpin til baka og leitar
samninga við samtök opin-
berra starfsmanna um þessi
mál, þá munu samtökin snúa
sér að því af alefli að verja öll
gildandi réttindi félagsmanna
og félagslega stöðu stéttarfé-
laganna með öllum tiltækum
ráðum," segir ályktun sem
samþykkt var á sameiginleg-
um fundi stjórna og for-
manna aðildarfélaga BHMR,
BSRB og KÍ í gær.
Þar kemur einnig fram að
forsendan fyrir viðræbum við
stjórnvöld um framtíðarfýrir-
komulag á réttindum og réttar-
stöðu opinberra starfsmanna
er að niðurstaðan feli m.a. í sér
óskertan samningsrétt stéttar-
félaga, óskert áunnin réttindi
einstaklinga og óskert heildar-
kjör einstaklinga til framtíðar.
Hátt í 200 manns höfðu
þátttökurétt á þessum sögulega
fundi, en þetta mun vera í
fyrsta skipti svo vitað sé að
stjórnir og formenn aðildarfé-
laga samtaka opinberra starfs-
manna koma saman til fundar.
Þá er ekkert lát á sameiginlegri
Spurt um nauman kvóta á skoöunum í fyrra:
Á sjötta hundrað ómskoðanir
Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, sagði í fyrirspurnartíma
á Alþingi að fjöldi ómskoðana
sé hluti af kjarasamningi sér-
fræðinga vib TryggingaStofnun
ríkisins og á síðasta ári hafi
verið framkvæmdar nokkuð á
sjötta hundrað ómskoöanir
samkvæmt því samkomulagi.
Kristín Astgeirsdóttir, þingkona
Kvennalista, spurði heilbrigðis-
og tryggingamálaráherra um
fjölda ómskoðana á liðnu ári og
kvað þann kvóta er væri á fjölda
slíkra skobana það nauman að
hann sé uppurinn á miðju ári.
Hún kvaðst efast um sparnað af
takmörkun á slíkum skoöunum
þar sem þær geti komið í veg fyrir
dýrari aðgerðir. Þá sagði Kristín aö
komið hafi fram ab læknar telji
fjölda þessara skoðana það lítinn
að hann dugi varla til þess að
halda læknum er vib þær fáist í
þjálfun. í umræðum um málið
deildi Össur Skarphéöinsson hart
á að fjöldi ómskoðana skuli vera
samningsatriði í kjarasamningum
við viðkomandi sérfræbinga. -ÞI
fundaherferð samtakanna til
að upplýsa félagsmenn sína
um hvab vakir fyrir stjórnvöld-
um í framkomnu frumvarpi
um réttindi og skyldur og í
væntanlegum frumvörpum
um lífeyrismál ríkistarfsmanna
og sáttastörf í vinnudeilum.
í dag, fimmtudag, verða stór-
fundir m.a. á Landsspítala, í
Háskólabíói, á Akureyri, Húsa-
vík, í Eyjum og á Selfossi. Búist
er við að fundaherferðinni
ljúki í næstu viku, en þá er tal-
ib ab hátt í 10 þúsund manns
hafi hlýtt á boðskap forystu-
manna opinberra starfsmanna
frá því fyrstu fundirnir voru
haldnir í seinnihluta sl. mán-
aðar.
í ályktun fundarins krefjast
samtökin þess að ríkisstjórnin
hafi raunverulegt samráð við
opinbera starfsmenn um þær
breytingar sem hún vill koma
fram. Minnt er á að lög um
ráðningarréttindi, lífeyrisrétt-
indi og samningsrétt séu af-
rakstur samninga á milli aðila.
Þá er í ályktuninni bent á ab
ríkisstjórnin reyni ab firra sig
ábyrgð á samskiptareglum við
starfsmenn sína í skjóli laga-
setningar. -grh
Samband ísl. banka-
manna hefur óskaö eftir
endurskoöun á launaliö
kjarasamnings:
Krefjast 2%
launahækkunar
Samband íslenskra
bankamanna hefur óskað
eftir því vib vibsemjendur
sína að launaliður í kjara-
samningi bankamanna
frá 8. júní sl. verbi endur-
skobaður. Bobab hefur
verið til samningafundur
um málið nk. mánudag,
en taliö er að bankamenn
geri kröfu um minnst 2%
launahækkun.
Helga Jónsdóttir fyrsti
varaformaður SÍB segir að
ástæðan fyrir þessu sé
vegna þess að í ljós hefur
komib að viðmiðunarhópar
bankamanna innan BSRB
og BHMR hafa fengið meiri
launahækkun en banka-
menn. Hún segir ab á sama
tíma og launaliöur í kjara-
samningi bankamanna
hækkar um rúm 8% á nú-
verandi samningstímabili,
þá hækka viðmiðunarhóp-
ar þeirra um allt að 14%-
20% á sama tímabili. Hún
sagðist í gær ekki vilja gefa
upp hver krafa banka-
manna væri, en heimildir
herma að þeir geri kröfu um
minnst 2% hækkun launa.
Helga segir að frá því
bankamenn fengu samn-
ingsrétt árið 1976 heföu
þeir tvisvar sinnum notab
heimild i kjarasamningi um
endurskoðun á launalib. í
bæði skiptin náðust ekki
samningar og fór málið fyr-
ir geröardóm. -grh