Tíminn - 07.03.1996, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.03.1996, Blaðsíða 1
80. árgangur Fimmtudagur 7. mars 47. tölublað 1996 Spurt um meöferö trún- aöarupplýsinga á þingi: Engin sér- stök lög Engin sérstök lagaákvæði gilda um meöferð trúnaðar- upplýsinga hér á landi. Hins vegar er að finna í ýmsum lagagreinum fyrirmæli um hvort og hverjum skuli veita upplýsingar um persónuleg málefni fólks. Má þar meðal annars nefna lög um rétt- indi og skyldur opinberra starfsmanna þar sem þeim er gert skylt að gæta trúnað- ar. Þetta kom fram í svari Þorsteins Pálssonar dóms- málaráðherra við fyrirspurn frá Lúðvík Bergvinssyni á Alþingi. Lúðvík vitnaði til atviks þar sem maður sem leita vildi rétt- ar síns gagnvart hinu opinbera hafi komist að því að í máli hans hafi meðal annars komið fram upplýsingar um forræðis- deilu er hann hafi átt í og ekki átti skylt við þau mál er hann leitaði réttar í. Lúðvík spurði dómsmálaráðherra í framhaldi af því hvort einhver sérstök lagaákvæði væru um meðferð trúnaðarupplýsinga og hvort til stæði að setja sérstaka lög- gjöf um slíkt. Þorsteinn Páls- son, dómsmálaráðherra sagði að ekki hafi komiö til tals að setja slíka löggjöf þar sem með- ferð trúnaðarupplýsinga væri tryggð í ýmsum gildandi laga- greinum. -ÞI Grásleppuvertíöin: Góbar horfur Örn Pálsson framkvæmda- stjóri Landssambands smá- bátaeigenda segir að sölu- horfur á komandi grásleppu- vertíð séu góðar, en vertíðin hefst þann 20. mars nk. Þá verður heimilt að stunda veiðar frá Grindavík og Sand- gerði og austur og norður um að Skagatá. Þá hefur verb fyrir hrognatunnuna hækkað úr 1600 í 1700 þýsk mörk sem þýðir að skilaverð til sjómanna verður rúmar 70 þúsund krón- ur fyrir hverja tunnu. Auk þess hafa kaupendur skuldbundið sig til að sjá grásleppukörlum fyrir tunnum, salti og rotvarn- arefnum þeim að kostnaðar- lausu. -grh l gœr. Á stóru myndinni má sjá formenn samtakanna rceöa viö sittfólk. F.v. Eiríkur jónsson, Páll Halldórsson og Ögmundur jón- asson. Tímamyndir: BC Söguleg stund er stjórnir og formenn aöildarfélago BHMR, BSRB og Kl funduöu í fyrsta skipti saman í gœr: Samninga eba átök „Ef ríkisstjórnin dregur ekki frumvörpin til baka og leitar samninga við samtök opin- berra starfsmanna um þessi mál, þá munu samtökin snúa sér að því af alefli að verja öll gildandi réttindi félagsmanna og félagslega stöðu stéttarfé- laganna með öllum tiltækum ráðum," segir ályktun sem samþykkt var á sameiginleg- um fundi stjórna og for- manna aðildarfélaga BHMR, BSRB og KÍ í gær. Þar kemur einnig fram að forsendan fyrir viðræbum við stjórnvöld um framtíðarfýrir- komulag á réttindum og réttar- stöðu opinberra starfsmanna er að niðurstaðan feli m.a. í sér óskertan samningsrétt stéttar- félaga, óskert áunnin réttindi einstaklinga og óskert heildar- kjör einstaklinga til framtíðar. Hátt í 200 manns höfðu þátttökurétt á þessum sögulega fundi, en þetta mun vera í fyrsta skipti svo vitað sé að stjórnir og formenn aðildarfé- laga samtaka opinberra starfs- manna koma saman til fundar. Þá er ekkert lát á sameiginlegri Spurt um nauman kvóta á skoöunum í fyrra: Á sjötta hundrað ómskoðanir Ingibjörg Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra, sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi að fjöldi ómskoðana sé hluti af kjarasamningi sér- fræðinga vib TryggingaStofnun ríkisins og á síðasta ári hafi verið framkvæmdar nokkuð á sjötta hundrað ómskoöanir samkvæmt því samkomulagi. Kristín Astgeirsdóttir, þingkona Kvennalista, spurði heilbrigðis- og tryggingamálaráherra um fjölda ómskoðana á liðnu ári og kvað þann kvóta er væri á fjölda slíkra skobana það nauman að hann sé uppurinn á miðju ári. Hún kvaðst efast um sparnað af takmörkun á slíkum skoöunum þar sem þær geti komið í veg fyrir dýrari aðgerðir. Þá sagði Kristín aö komið hafi fram ab læknar telji fjölda þessara skoðana það lítinn að hann dugi varla til þess að halda læknum er vib þær fáist í þjálfun. í umræðum um málið deildi Össur Skarphéöinsson hart á að fjöldi ómskoðana skuli vera samningsatriði í kjarasamningum við viðkomandi sérfræbinga. -ÞI fundaherferð samtakanna til að upplýsa félagsmenn sína um hvab vakir fyrir stjórnvöld- um í framkomnu frumvarpi um réttindi og skyldur og í væntanlegum frumvörpum um lífeyrismál ríkistarfsmanna og sáttastörf í vinnudeilum. í dag, fimmtudag, verða stór- fundir m.a. á Landsspítala, í Háskólabíói, á Akureyri, Húsa- vík, í Eyjum og á Selfossi. Búist er við að fundaherferðinni ljúki í næstu viku, en þá er tal- ib ab hátt í 10 þúsund manns hafi hlýtt á boðskap forystu- manna opinberra starfsmanna frá því fyrstu fundirnir voru haldnir í seinnihluta sl. mán- aðar. í ályktun fundarins krefjast samtökin þess að ríkisstjórnin hafi raunverulegt samráð við opinbera starfsmenn um þær breytingar sem hún vill koma fram. Minnt er á að lög um ráðningarréttindi, lífeyrisrétt- indi og samningsrétt séu af- rakstur samninga á milli aðila. Þá er í ályktuninni bent á ab ríkisstjórnin reyni ab firra sig ábyrgð á samskiptareglum við starfsmenn sína í skjóli laga- setningar. -grh Samband ísl. banka- manna hefur óskaö eftir endurskoöun á launaliö kjarasamnings: Krefjast 2% launahækkunar Samband íslenskra bankamanna hefur óskað eftir því vib vibsemjendur sína að launaliður í kjara- samningi bankamanna frá 8. júní sl. verbi endur- skobaður. Bobab hefur verið til samningafundur um málið nk. mánudag, en taliö er að bankamenn geri kröfu um minnst 2% launahækkun. Helga Jónsdóttir fyrsti varaformaður SÍB segir að ástæðan fyrir þessu sé vegna þess að í ljós hefur komib að viðmiðunarhópar bankamanna innan BSRB og BHMR hafa fengið meiri launahækkun en banka- menn. Hún segir ab á sama tíma og launaliöur í kjara- samningi bankamanna hækkar um rúm 8% á nú- verandi samningstímabili, þá hækka viðmiðunarhóp- ar þeirra um allt að 14%- 20% á sama tímabili. Hún sagðist í gær ekki vilja gefa upp hver krafa banka- manna væri, en heimildir herma að þeir geri kröfu um minnst 2% hækkun launa. Helga segir að frá því bankamenn fengu samn- ingsrétt árið 1976 heföu þeir tvisvar sinnum notab heimild i kjarasamningi um endurskoðun á launalib. í bæði skiptin náðust ekki samningar og fór málið fyr- ir geröardóm. -grh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.