Tíminn - 08.03.1996, Síða 5

Tíminn - 08.03.1996, Síða 5
5 Föstudagur 8. mars 1996 @$ÍSi$ÍfEH Neytendasamtökin biöla til neytenda um aö ganga til liös viö samtökin. Formaöur: Stjómvöld ættu aö kosta kvörtunarþjónustuna aö fullu Jóhannes Gunnarsson. Rúmlega 19.000 félagsmenn eru nú í Neytendasamtökun- um og ná þau því til um 20- 25% fjölskyldna í landinu, enda segist Jóhannes Gunn- arsson, formaöur Neytenda- samtakanna, geta veriö nokkuö sáttur viö fjöldann. Miöaö viö hina títtnefndu höföatölu eru þetta stærstu neytendasamtök í heimi. En betur má ef duga skai og standa Neytendasamtökin nú fyrir átaki til aö fá fleiri neytendur til aö ganga til liös viö samtökin. Vanda- máliö sé þó hve fáir búi á þessu landi og því þurfi hærra hlutfall landsmanna aö standa á bak viö samtökin en hjá stærri þjóöum, svo hægt sé aö vinna þaö starf sem Jóhannes telur aö sam- tökin þurfi aö inna af hendi. Samtökin hafa fundið fyrir erfiðu árferði líkt og aðrir, en félagsmönnum hefur fækkað nokkuð síðastliðin 3 ár. Þegar ráðstöfunartekjur minnka, sparar fólk almennt fyrst í áskriftar- og félagsgjöldum. „En við erum oft með upplýs- ingar í okkar blaði, sem sent er til félagsmanna, sem við telj- um að spari heilt árgjald eða jafnvel meira en það." Félags- gjald samtakanna er 1950 kr. á ári og nema félagsgjöldin rúm- lega 80% af tekjum Neytenda- samtakanna. Restin kemur frá ríki og örfáum sveitarfélögum. Til samanburðar má geta þess að 70% af tekjum dönsku neytendasamtakanna eru rík- isframlag. „Samt rekur danska ríkið líka neytendastofnun með fjölmörgum starfsmönn- um," segir Jóhannes, en hann er afar ósáttur við lítið framlag ríkis til þessa málaflokks. Jóhannes bendir á að fram- lag stjórnvalda á Norðurlönd- um sé mun hærra til neyt- endamála en hér. Þar leggi stjórnvöld 95-142 kr. á íbúa fram til neytendamála, en hér er framlag ríkisvalds áætlað tæpar 40 kr., þar af fara 13,50 kr. til Neytendasamtakanna. Það sem eftir stendur fer til reksturs Neytendamáladeildar Samkeppnisstofnunar, sem hefur tvo starfsmenn og er ætl- að að framfylgja lögum um óréttmæta viðskiptahætti og neytendavernd. „Á Norður- löndunum hafa stjórnvöld lit- ið svo á að ef byggja á sem jafnasta stöðu neytenda ann- ars vegar og framleiðenda og seljenda hins vegar, þá þurfi stjórnvöld að koma myndar- lega inn í neytendamálin." Ætti aö vera hlut- verk ríkis „Eins og málum er háttað í dag, þá þurfum við að nota stóran hluta af okkar starfs- fólki einvörðungu í kvörtunar- og leiðbeiningaþjónustu til þess að sinna þeirri eftirspurn sem er eftir þeirri aðstoð. Á öðrum Norðurlöndum, og raunar víðar, er litið á þessa þjónustu sem hluta samfélags- þjónustu og þar eru það ýmist stjórnvöld, ríkisvald eða sveit: arfélög sem sinna þessu eins og hverri annarri félagslegri þjónustu," segir Jóhannes og telur að Neytendasamtökin séu í mörgum tilvikum að sinna hlutverki sem stjórnvöld ættu að sinna hér á landi. „Við ætlumst til að stjórnvöld greiði fyrir þá starfsemi, þar sem við í raun erum aö reka þjónustu fyrir hið opinbera." Aðspurður hvaða þætti Neytendasamtökin hafa þurft að vanrækja vegna fjárskorts, segir hann samtökin þurfa að fylgjast betur með, gera gæða- kannanir, upplýsa fólk um fjármálamarkaðinn, fjármál heimila og öryggi neysluvöru, svo eitthvað sé nefnt. „Raunar er þetta svo óþrjótandi verk- efni að ég gæti haldið langan fyrirlestur um það. En við stöndum frammi fyrir því vandamáli að við verðum sí- fellt að velja og hafna." Jó- hannes segir það jafnvel koma fyrir að vísa þurfi neytendum frá með mikilvæg mál, vegna þess að ekki sé til mannafli eða fjármagn til að skoða málið til hlítar. Almenningur getur leitað eftir upplýsingum hjá Neyt- endasamtökunum og fengið svar, en vilji neytandi að starfsmenn samtakanna leggi vinnu í að knýja fram rétt hans, þarf hann að gerast fé- lagsmaður. Öll lögfræðileg ráðgjöf er innifalin í félags- gjaldinu. Hins vegar sækja samtökin afar sjaldan mál fyrir dómstólum og eingöngu í þeim tilvikum þegar talið er að um stefnumarkandi mál sé að ræða, sem nýtist neytendum í heild. „Þegar það liggur ljóst fyrir að neytandinn á rétt, þá bakka flest fyrirtæki sem betur fer," sagði Jóhannes. Að sögn Sigríðar Arnardótt- ur, lögfræðings Neytendasam- takanna, nægir oft fyrir við- skiptavin að nefna nafn Neyt- endasamtakanna til þess að fyrirtæki gangi að kröfum hans um endurgreiðslu, við- gerð eða annað sem við á. Enda sé ákveðin hætta fólgin í því að fallast ekki á réttmæta kröfu, því þegar mál fá óviðun- andi meðferð hjá seljanda er fjallað um þau mál í Neyt- endablaðinu, sem geti augljós- lega komið seljendum illa. LÓA Björgum Miðbæjarskólanum Senn vorar. Jafnvel bölsýnustu mönnum dylst ekki, að hér í Reykjavík er grasið tekið að grænka dulítið í skjóli sumra húsa. En vorið dvelur víðar en í náttúrunni. Líkt og aðrar árstíð- ir á það sér einnig vísan stað í hjörtum fólks. Við getum sem hægast kallað þetta árstíðaspil sálarinnar menningu. Þegar haustið hélt innreið sína í náttúmna á liðnu ári, virtist svo sem kaldur vetrarhrammur mundi ná að binda eitt af kenni- leitum reykvískrar menningar klakaböndum. Hér á ég við þeg- ar Ásmundarsalur hafði næstum verið gerður að barnaheimili. Eftir því sem mér skildist þá á einum af hinum pólitísku for- ystumönnum borgarinnar, voru forsendurnar m.a. þær, að á barnaheimilum væri bæði teiknað og litað. Því yrði sögu- legt samhengi Ásmundarsalar sem myndlistarhúss ekki rofið þótt honum yrði breytt í barna- heimili. Gott ef ekki þvert á móti. Á síðustu stundu greip borgarstjóri í taumana, góðu heilli. En nú, þegar vorið er í þann veginn að kveðja sér hljóðs í ríki náttúrunnar, næða enn kaldir vetrarvindar um menningu borgarinnar. Að þessu sinni ætl- ar Vetur konungur að blása í skafla við Tjörnina og breyta Miðbæjarskólanum úr lifandi fræðasetri í snjóhús yfir freðinn tæknikratisma. Miðbæjarskólinn á sér langa sögu, sem rekja má til loka síð- ustu aldar. Upphaflega var hann eini barnaskóli bæjarins og kall- aöist þá einfaldlega Barnaskól- inn. í u.þ.b. sjö áratugi fór þarna fram barna- og unglingakennsla á skyldunámsstigi. Síðar, þegar börnum í miö- bænum fór fækkandi, var Menntaskólinn við Tjörnina starfræktur í þessu húsi. Eftir að hann hafnabi inn við sundin bláu, eins og komið getur fyrir besta fólk, fengu Námsflokkarn- ir inni í þessu gamla húsi, sem og einkareknir barnaskólar. Mikið ef Kvennaskólinn hefur ekki einhverja aðstöbu þarna líka. Meðal annarrar kennslu, sem þama fer fram á vegum Náms- flokkanna, er ablögun aðfluttra SPJALL PJETUR HAFSTEIN LÁRUSSON útlendinga að íslensku samfé- lagi. Að vísu munu Námsflokkarnir fá að vera þarna áfram enn um sinn, eftir því sem sagt er. En fyrirbæri eins og fræðsluskrif- stofur hafa tilhneigingu til að þenjast út, og er þá hætt við að það, sem næst þeim er, verði að víkja. Er þá ekki aö vita nema Námsflokkarnir hafni austur í Mjódd, eins og raunar hefur ver- ið gefið í skyn. Væri það ómæld- ur skaði, enda aðkomufólk betur komið þar sem hjarta borgarinn- ar slær heldur en í útjöðmm mannlegs samfélags. Amma mín og fóstra var Reyk- víkingur allar götur aftur til Inn- réttinganna. Hún trúbi mér fyrir því ungum, að það væri ógæfa að búa austan Rauðarár. Ég skal ekki segja hvab hæft er í þeirri kenningu. Hitt veit ég, að ungir Reykvíkingar virðast vera á þess- ari skoðun. Að minnsta kosti vilja þeir helst búa í Miðbænum, eða sem næst honum. Hann mun því aftur „óma af bernsku- glöðum hlátri", svo slegið sé lán úr sjóði Tómasar. Og þá verður enn á ný þörf fyrir gamla, góða Miðbæjarskólann sem almenn- an barnaskóla, eða grunnskóla eins og það heitir víst á hunda- þúfuíslensku. Þegar þar að kem- ur þarf að finna Námsflokkun- um hentugt húsnæði í nágrenni skólans. Þangað til á hann að fá ab vera þar í friði. Tæpast þarf að rökstyðja það fyrir sæmilega siðmenntuðu fólki, hvílíkt ólán það yrði ef skólahald yrði aflagt í Miðbæjar- skólanum. Og þess skyldu þeir gæta, sem „hagkvæmnin" plag- ar úr hófi fram, að það mun kosta sitt að breyta Miðbæjar- skólanum, fyrst í kontórista- greni og því næst aftur í skóla innan fárra ára. FÖSTUDAGS PISTILL ÁSGEIR HANNES í FJÖTRUM KVEN- FRELSIS Frelsi og fjötrar eru afstæö hugtök. Ví&áttumikiö frelsiö á heiðinni í sögu skáldsins um Sjálfstætt fólk hneppti líka persónur sögunnar ífjötra. Frels- iö er afstætt. Hreyfingin að baki Kvennalistan- um átti upptök sín á jafnréttissíðu Þjóðviljans seint á áttunda áratugn- um. Kvennaframboðin fengu strax kjörna fulltrúa bæði í borgarstjórn ár- ið 1982 og á Alþingi ári seinna. Snemma beygðist krókurinn í mál- flutningi þessara nýju kvenkynsfrels- ara og þeir sem bjuggust við alhliða umbótastefnu urðu fyrir vonbrigðum með hálfómerkilegar áherslur listans og þrútnar af vanmetakennd. Kvennasiðfræðin hefur leikið jafn- réttið mun sárar en nokkurn mann gat órað fyrir og hvergi nema í Suð- ur-Afríku var boðið upp á jafn ein- hliða jafnrétti og hjá Kvennalistan- um. í stað þess að bjóða kjósendum faðminn eins og opin rós á sólskins- morgni, greri listinn inn í fótinn á sér eins og hver önnur kartnögl. Hnipr- aði sig saman úti í horni og lét ver- öldina halda framhjá sér óáreitta. Kvennalistinn er einu stjórnmálasam- tök sögunnar sem eiga fulltrúa bæði á þingi og í byggðastjórnum án þess að hafa nokkurn tíma tekið þátt í stjórnmálum. Svokölluð kvennafræöi hafa aðeins eitt markmið: karlmenn. Ekki svo að skilja að kvennalistakonur gangi á eftir karlpeningi með grasið í skón- um, heldur leggja þær karlkynið í einelti. Feður sína og bræður, jafnt sem syni. Baráttan snýst um að ná verðmætum eða réttindum frá karl- mönnum. Veraldlegum og andleg- um. Raunverulegum eða ímynduð- um. Til að hnykkja á atlögunni hefur Kvennalistinn slegið eign sinni á nokkra óviðkomandi málaflokka og í þeim hópi er kynferðisleg áreitni. í svo neikvæðu andrúmslofti vaxa úr grasi klappstýrur á borð við Guð- rúnu Jónsdóttur, forstöðufrú Stíga- móta. Alin upp viö aðskilnað kynj- anna og hert í einlægri andúð á karl- fólki heimsins. Forstöðufrúin lét meira að segja hafa eftir sér á sínum tíma að hún hefði verið kynferðislega áreitt í borgarstjórn Reykjavíkur og hváðu fleiri en pistilhöfundur við þau tíðindi. Nánar spurð um atburðarás- ina sagði frúin gerandann vera eng- an annan en Albert Guðmundsson og trúi því hver sem vill. Hér hefur stórmannlegri hlýju Alberts heitins verið snúið upp á kvennafræðin og mega nú venjulegir afar passa sig að faðma afabörnin í fjölmenni. En hér fara engin gamanmál: Undan pilsfaldi forstöðufrúarinnar hefur grímuklætt fólk vegið að bisk- upi íslands úr launsátri. Sjálf hefur frúin rofið trúnað við Stígamót með því að nafngreina fólk sem kemur við sögu samtakanna. Ljóst er að Stíga- mót hafa sett verulega niður við þennan trúnaöarbrest, en vonandi ríður frúin samtökunum ekki að fullu. Stígamót eru bráðnauðsynlegt at- hvarf í þjóðfélaginu og yfir það hafin að vera notuð til að hrinda laskaöri hugmyndafræði í framkvæmd. Hitt er svo annað mál að eftir ab hafa horfst í augu við forstöðufrú Stígamóta dreymir fáa um kynlíf þann daginn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.