Tíminn - 08.03.1996, Side 8

Tíminn - 08.03.1996, Side 8
8 Föstudagur 8. mars 1996 Palme: „hela manskligheten." „Pettersson eöa tvífari hans" Moröstaöurinn: leyniþjónustur margra ríkja og aöilar í lögreglu, her og flokki jafnaöarmanna meö í samsœriskenningum. Samsœriskenningar viövíkjandi morbinu á Palme eru í fullum gangi enn, þótt marg- ir telji líklegast aö aö- eins einn maöur hafi þar veriö í ráöum og aö verki f morbum í Norbur- landasögu er moröib á Olof Palme (f. 1927), for- sætisrábherra Svíþjóbar og leib- toga þarlendra jafnabarmanna, líklega þab sem hvab mesta at- hygli hefur vakib. Palme var skotinn til bana seint ab kvöldi 28. febrúar 1986, á gatnamót- um Sveavágen og Tunnelgatan (sem nú heitir Olof Palmes gata) í Stokkhólmi. Palme var á heimleib gangandi ásamt konu sinni Lisbet, eftir aö þau höfbu horft á kvikmynd í bíói viö Sveavágen. Lífveröir voru ekki meb þeim. Meö 500 afbrot og glæpi á sakaskrá Af tilefni þess aö nú er áratugur liöinn frá morði þessu, hefur nokkub verið um þaö og Palme sjálfan fjallað í fjölmiðlum und- anfarið. M.a. það að enn er ekki vitað hver morðið framdi. En einni heimild samkvæmt tekst að upp- lýsa um níu af hverjum tíu morð- um frömdum í Svíþjóö. Þetta hef- ur ásamt meö ööru ýtt undir sam- særiskenningar viðvíkjandi morðinu á Palme. Leyniþjónustur Bandaríkjanna, Sovétríkjanna, Chile, írans og I’akistans hafa þar verib til nefndar, svo og P2, ill- ræmd leynistúka ítölsk, Verka- mannaflokkur Kúrdistans (PKK), aðilar í sænsku lögreglunni og sjóhernum, hægriarmi jafnaöar- manna og jafnvel Lisbet Palme sjálf hefur ekki alveg sloppið í því samhengi. Christer Pettersson, fíkniefna- neytandi og alkóhólisti, komst undir grun um morðib. Hann hafði þá þegar um 500 afbrot og glæpi á sakaskránni, þ.ám. mann- dráp, og hafði að eigin sögn fram- ið um 700 rán. Það segir út af fyr- ir sig sína sögu um þá vernd, sem núverandi mannúðleg Vestur- landaríki veita þegnum sínum. Lisbet Palme, sem séð hafði fram- an í moröingjann, fullyrti að Pett- ersson væri hann, og Márten, sonur Palmehjóna, sagði að Pett- ersson hefði fylgt foreldrum hans eftir frá kvikmyndahúsinu. Nokk- ur vitni báru að þau hefðu séð Pettersson nálægt moröstabnum þá um nóttina. Líka kom fram ab Pettersson hafði skömmu eftir morðið brennt buxur og jakka á svölum íbúðar sinnar. A því gat hann ekki gefið neina skýringu. Eigi að síður var hann um síðir sýknaður vegna þess að fyrirliggj- andi sönnunargögn þóttu ekki nægja honum til sakfellingar. Nú segir Ingemar Krusell, ábur annar æösti maöur í rannsóknar- hópi þeim, sem skipaöur var vegna morösins, aö morðinginn hafi „annaðhvort verið Christer Pettersson eða tvífari hans". Und- ir það taka nú margir eöa telja a.m.k. aö hér hafi aðeins einn maður verið að verki, án nokkurs samráðs við aðra. Sem sagt: ekkert samsæri. Nokkuö sérstæöur Allir vissu — eða gátu vitað — hvar Palme bjó, og hver og einn sem vildi hefbi getað áttað sig á daglegri „rútínu" hans og því hvenær lífverðir hans voru í ná- munda vib hann og hvenær ekki. Meb því að viðhafa gætni hefði slíkt verið hægt án þess að vekja athygli lífvarða eba lögreglu á sér. Sá sem þetta ritar átti heima í Svíþjób síðari hluta Palme-tím- ans. Hann minnist þess að hafa heyrt talað um Palme af einskon- ar hikandi virðingu, varla nokk- urn tíma af hlýleika, en hins veg- ar alloft með kulda nokkrum og BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON jafnvel í haturstón. Einnig af þeim sem sögðust vera jafnaðar- menn eða hallast að þeim. Það var sérstakt, því að yfirleitt virtust Svíar ekki mjög snortnir af stjórn- málamönnum sínum sem per- sónum og jafnvel ekki hafa nema takmarkaðan áhuga á þeim. Palme var e.t.v. nokkuð sér- stæður af sænskum stjórnmála- manni á síðari hluta aldarinnar að vera. Hann var hásvíi í aðra ætt, af þýsk-baltneska aðlinum í hina og allólíkur fyrri leiðtogum Svíþjóðar og jafnaðarmanna, Tage Erlander og Per Albin Hans- son, sem voru alþýðunnar menn. Yfirstéttar- og hægrifólk leit margt á hann sem stéttarsvikara. í hátterni og látbragði var hann ar- istókrat og beitti því kannski stundum dálítið óhlífið í kapp- ræðum við pólitíska andstæð- inga. Sumum mun hafa fundist sá stíll ögrandi. Á sjónvarpsöld, þar sem andlit stjórnmálamanna geta skipt miklu, kann það að hafa vakið ýmislegar kenndir. í umræðunni manna á meðal heyrðist sagt sem svo að Palme mætti hugsa aðeins minna um „hela mánskligheten" (gervallt mannkynið) og aöeins meira um hagsmuni Svía sjálfra. Þeir Per Al- bin Hansson og Erlander urðu jafnaöarmenn vegna reynslu sinnar af sænskum veruleika og vilja til að bæta hann, Palme lík- lega frekar út frá ferðalögum til Asíu. Vinir hans segja að Svíþjóð hafi veriö „of lítil fyrir hann". Palme tókst að verða „stjarna" á alþjóðavettvangi, alllangt um- fram það sem algengt er um stjórnmálamenn Norðurlanda, sérstaklega þó í þriðja heiminum. Vera kann að eitthvað hafi skort á raunsæi í afstöðu hans til þeirra heimshluta. Einn vina hans segir: „Hann lét stjórnast af siðrænum viðhorfum fremur en pólitískum viöhorfum og skynsemishyggju'" Honum kvab hafa þótt Vestur- Evrópa „leiðinleg og andstyggi- lega kaþólsk" og því vanrækt samböndin við hana. Enn mikiö tilfinn- ingamál Svo mjög hefur síðustu árin hallaö á velferðarríkið Svíþjóð, e.t.v. besta samfélag sögunnar, að sumir líkja því við hrun. Nú gætir þess að vöntun á raunsæi af hálfu Palme og meintu kæruleysi hans um sænska hagsmuni sé kennt um það. En margt stuðlaði að því að svo fór, t.d. það hve efnahags- líf Svíþjóðar var háð efnahagslífi Evrópu og heimsins, örlæti sænska samfélagsins, sem næg fyrirhyggja var varla alltaf sam- fara og takmörkuö abgæsla af hálfu velferðarkerfisins, sem margir misnotuðu. Örlæti þaö og aðgæsluleysi má trúlega að tals- verbu leyti skrifa á reikning Palme, en fráleitt er að kenna honum einum um það. Enn er Palme þjóð sinni mikið tilfinningamál og morðið á hon- um og ýmsar kenningar því við- víkjandi stuðla að því. Vera kann að það hafi hækkab hann í áliti, einnig meðal þeirra sem minnast hans af engri hlýju. Þeir segja sem svo að þrátt fyrir allt hafi hann verið umsvifamikill stjórnmála- maður og vakið athygli á Svíþjóð á alþjóðavettvangi. Þetta kann ásamt með öðru að halda í gangi samsæriskenningum viövíkjandi endalokum hans. Hugsanlegt er að margir Svíar, bæði vinveittir og óvinveittir Palme, eigi erfitt með að hugsa sér að morðingi hans hafi bara verið hálfruglaður síbrotamaður með engan í vitorði meb sér. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.