Tíminn - 08.03.1996, Síða 9
Föstudagur 8. mars 1996
pmhl'TEl illlfli ítjl
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Harkalegar aögeröir lögreglunnar í Palestínu viö leit
aö hryöjuverkamönnum:
„Þetta er bara
byrjunin"
Setningarræ&a Jassers Arafats
á löggjafarþingi Palestínu-
manna í gær féll a& mestu í
skuggann af a&gerðum palest-
ínsku lögreglunnar og ísraels-
manna sem stefnt var gegn
skæruliðum Hamas-hreyfing-
arinnar.
Yfir þúsund lögreglumenn
kembdu m.a. Sajaiha-hverfi í
Gazaborg í fyrrinótt í leit að
meðlimum Hamas, sem ber
ábyrgö á sjálfsmorðsárásunum
fjórum í ísrael sem orðið hafa
57 manns að bana. „Það er nóg
hjá okkur að gera þessa nótt,"
sagði einn yfirmaður í lögregl-
unni á meðan undirsátar hans
voru að rífa ungmenni upp úr
rúmum sínum.
Ghazi al-Jabali, lögreglustjóri
í Gaza, sýndi fréttamönnum
vopn sem hann sagði að hefðu
verið gerð upptæk í næturað-
geröunum á Gazasvæðinu og
Vesturbakkanum í fyrrinótt.
Hann sagði að lögreglan hefði
handtekið yfir 500 manns, sem
Tyrkland:
Yasar Kemal
dæmdur
Dómstóll í Istanbul í Tyrk-
landi dæmdi í gær tyrkneska rit-
höfundinn Yasar Kemal í 20
mánaða skilorösbundið fangelsi
vegna tveggja greina sem hann
skrifaði þar sem hann gagnrýnir
m.a. stefnu Tyrklands gagnvart
Kúrdum.
-GB/Reuter
væru meðlimir í Hamashreyf-
ingunni eða Jihad, sem er mun
smærri hópur. „Þetta er bara
byrjunin," sagði hann við
fréttamenn, og bætti því við að
10 meðlimir í Qassam, sem er
hernaðararmur Hamas, hefðu
gefið sig fram sjálfir.
í yfirlýsingu frá Qassam- her-
deildunum var-það staðfest að
sumir meðlimir hreyfingarinnar
hefðu gefið sig fram við palest-
ínsku lögregluna.
Arafat hefur verið undir gífur-
legum þrýstingi frá ísraels-
mönnum og Bandaríkjamönn-
um um að ráðast til atlögu gegn
Hamas og handtaka yfirmenn í
Qassam. Eftir aðgerðirnar í fyrri-
nótt sagði Shimon Peres að Ara-
fat hefði gert meira en nokkru
sinni fyrr, „en ég verð ekki
ánægður fyrr en hann kemur
með yfirmenn í hernaðararmi
Hamas."
Eins og gefur að skilja hafa að-
gerðirnar valdið töluveröum
usla meöal Palestínumanna, og
sýnist sitt hverjum. „Þeir eru
bara að handtaka krakka. Þeir
ná ekki til æöstu mannanna,"
sagði Iyad Omar, sem er tvítug-
ur, en honum tókst að laumast
út úr íbúð sinni í Gazaborg rétt
áöur en lögreglan handtók
bróður hans, Nihad, sem er 17
ára.
í setningarræðu sinni í lög-
gjafarráði Palestínumanna
hvatti Arafat til þess að haldinn
verði alþjóðafundur æðstu ráða-
manna um hvaða aðferðir séu
vænlegastar til árangurs í barátt-
unni gegn hryöjuverkum um
allan heim. -GB/Reuter
Þessi taívanski hermaöur¥g g ann meb því sem er ab gerast á
sundinu milii Taívans og Kína, þar sem hann stendur vörb í virki á eyjunni Matsu í abeins 5,5 sjómílna (9,2 km)
fjarlcegb frá risanum í norbri. Kínverjar lýstu þvíyfir á þribjudag ab vibamiklar herœfingar myndu hefjast á haf-
inu í kringum Taívan í dag, fimmtudag, og standa yfir í eina viku, meb þab í huga ab prófa sérstaklega þau flug-
skeyti sem kínverski herinn hefur yfir ab rába. Reu,er
Austurríki:
Ný ríkisstjórn
Aþjóöaheilbrigöismálastofnunin:
Smitsjúkdómar
aukast í A-Evrópu
Alþjó&aheilbrigðismálastofn-
unin (WHO) vill rekja þa& til
hruns kommúnismans a& út-
breiösla smitsjúkdóma á borö
við kóleru og barnaveiki hefur
aukist verulega aö undanförnu,
einkum í Austur-Evrópu.
"Það sem viö erum að sjá í dag
er ótrúleg endurkoma smitsjúk-
dóma sem við töldum okkur
hafa unnið bug á," sagði Jo As-
wall, framkvæmdastjóri WHO í
Evrópu. Verulega aukningu hef-
ur mátt greina á útbreiðslu kól-
eru, barnaveiki, berkla og kyn-
sjúkdóma á borð viö syphilis í
Austur-Evrópu eftir að Sovét-
veldið hrundi.
WHO telur að það myndi að-
eins kosta um 20 milljónir doll-
ara, eða um 130 milljónir ísl.
króna, að hrinda af stað bólu-
setningarherferð sem myndi
nægja til þess að halda þessum
sjúkdómum í skefjum, en um-
heimurinn væri ekki enn farinn
að gefa þessum vanda gaum.
-GB/Reuter
Tveir stærstu stjórnmálaflokkar
Austurríkis, Sósíaldemókrata-
flokkurinn og Þjó&arflokkur-
inn, hafa myndaö samsteypu-
stjórn eftir Iangar og strangar
stjórnarmyndunarviöræ&ur, og
er þaö í 14. sinn frá strí&slokum
sem þessir tveir flokkar starfa
saman í stjórn.
Bæði Franz Vranitzky, leiðtogi
sósíaldemókrata og kanslari
Austurríkis, og Wolfgang
Schússel, leiðtogi Þjóðarflokks-
ins, sem er flokkur íhaldssamra,
lýstu sig ánægða með stjórnar-
sáttmálann. En stjórnarand-
staðan hét því aö berjast af alefli
gegn sparnaðaráformunum sem
eru kjarninn í sáttmálanum.
-GB/Reuter
Náttúruverndarsamtök aö blekkja sjálfa sig og aöra meö því aö bjarga sjávarfuglum úr olíumengun?
Flestir fuglanna deyja skömmu eftir
„björgun"
Þegar alvarleg mengunarslys
ver&a í hafi og olíubrák berst
upp á nálægar strendur fylgja
því jafnan myndir í fjölmi&lum
af máttförnum sjávarfuglum aö
berjast um í olíunni, hröktum
og hræddum. Og sí&an er sýnt
frá því þegar starfsmenn nátt-
úruverndarsamtaka bjarga
þessum greyjum, hreinsa af
þeim olíuna og hlúa aö þeim
eftir bestu getu á&ur en þeim er
sí&an sleppt frjálsum a& nýju.
Vísindamenn hafa nú gert
rannsóknir á lífslíkum þeirra
fugla sem lenda í slíkum hremm-
ingum, og niðurstöðurnar eru
ekki uppörvandi. Flestir fuglanna
verða fyrir alvarlegu áfalli þegar
mannshöndin meðhöndlar þá
svo rækilega sem gera þarf í slík-
um tilvikum, jafnvel þótt til-
gangurinn sé góður og farið sé af
eins mikilli nærgætni að þeim og
frekast er unnt. Þar á ofan hafa
þeir yfirleitt orðið fyrir alvarlegri
eitrun af olíunni, sem ekki bara
hefur þakið líkama þeirra um
langa hríð heldur hafa þeir inn-
byrt töluvert magn af henni þeg-
ar þeir eru að reyna að hreinsa sig
sjálfir.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknanna deyja flestir þessara
fugla innan 10 daga frá því að
þeim er sleppt lausum að hreins-
un lokinni. Aðeins einn af hverj-
um 10 lifir lengur en í eitt ár, og
litlar líkur eru á að þeir sem lifa
eignist nokkurn tíma afkvæmi.
Það er breskur vísindamaður,
Brian Sharp, sem hefur séð um
framkvæmd þessara rannsókna.
Hann starfar í Bandaríkjunum og
hefur farið í gegnum bandarísk
gögn um afdrif sjávarfugla sem
bjargað hefur verið síðustu 30 ár-
in. Hann komst að því að 97%
þeirra deyi annað hvort á meðan
verið er að hreinsa þá eöa stuttu
eftir að þeim er sleppt aftur frjáls-
um. Líkurnar á því að fuglar sem
Hraktir og hrœddir fuglar sem lent
hafa í olíumengun lifa yfirleitt ekki
lengi eftir ab sjálfbobalibar á vegum
náttúruverndarsamtaka hafa farib
líknandi höndum sínum um þá.
lent hafa í olíumengun deyi
skömmu eftir björgun eru hundr-
aðfalt meiri en líkurnar á því að
það gerist hjá fuglum, sem bjarg-
að hefur verið úr annars konar
hremmingum.
Sharp hefur sakað þau náttúru-
verndarsamtök sem staðið hafa
fyrir björgunaraðgerðunum um
að vera að blekkja sjálf sig, og þar
meö um leið stuðningsaðila sína
sem þau leita eftir fjármagni til.
„Ég held að þetta sé allt saman
vel meint," segir hann. „En á
hinn bóginn tel ég að þarna sé
verið að blekkja almenning á
grimmilegan hátt og sömuleiðis
sjálfboðaliðana sem af lífi og sál
leggja gífurlega mikið af mörkum
til þess að lina þjáningar fugl-
anna."
Sharp óttast að olífélögin hafi
komið sér upp „þægilegu sam-
bandi" við náttúruverndarfélög-
in sem vinna að því að bjarga
fuglum úr olíumengun. Olíufé-
lögin gefa fé til hreinsunarað-
gerðanna og bæta þar með
ímynd sína út á við, en þaö sé í
hæsta máta villandi og beini at-
hygli almennings frá þeim vanda
sem raunverulega er við aö glíma,
sem er að koma í veg fyrir olíu-
mengunina. -GB/The Sunday Times