Tíminn - 12.03.1996, Page 1
Kratar og ASÍ 80 ára. Listasafn og plöntur í tilefni
dagsins:
Benedikt skálar
í Færeyjum
„í tilefni dagsins ætlum viö að
gera dagamun og stefnum t.d.
aö því að ganga frá kaup-
samningi á nýju húsnæði fyrir
Listasafnið í Ásmundarsal. Til
að reyna að tryggja framtíð-
ina ætlum við að færa forseta
íslands plöntur til gróðursetn-
ingar í Vinaskógi," segir Bene-
dikt Davíðsson forseti ASÍ.
í dag, 12. mars, eru liðin 80 ár
frá stofnun Alþýðuflokksins og
ASI en í árdaga var flokkurinn
og sambandið eitt og hiö sama.
ASÍ hyggst hinsvegar gera þess-
um tímamótum í sögu sam-
bandsins betur skil á þingi þess
sem hefst í Kópavogi 20. maí
nk.
Þá eru litlar líkur á því að for-
seti ASÍ skáli með forystumönn-
um Alþýðuflokksins um næstu
helgi þegar hin eiginlega afmæl-
ishátíð flokksins verður haldin,
því þá verður Benedikt, ásamt
Birni Grétari Sveinssyni for-
manni VMSÍ og Sævari Gunn-
arssyni formanni Sjómanna-
sambandsins, í Þórshöfn í Fær-
eyjum þegar haldið verður uppá
70 ára afmæli færeysku verka-
lýðssamtakanna.
Hinsvegar munu kratar í for-
ystu ASÍ taka þátt í hátíðahöld-
unum um næstu helgi meb fé-
lögum sinum, eins og t.d. Her-
var Gunnarsson annar af tveim-
ur varaforsetum ASÍ. -grh
Sjá einnig vibtal við Jón Bald-
vin Hannibalsson á blaðsíðu 11
Endurskobun laga Atvinnuleysistryggingasjóbs:
Á lokastigi í nefnd
„Menn hafa veriö ab reyna að
ná sem víbtækustu samkomu-
lagi og þess vegna hefur þetta
starf dregist á langinn," segir
Hervar Gunnarsson annar af
tveimur varaforsetum ASÍ um
starf nefndar sem vinnur að
endurskobun iaga um At-
vinnuleysistryggingasjóð og
vinnumiðlanir.
Á fundi nefndarinnar í gær
var stefnt að því að ljúka starfi
hennar, en nefndin hefur fund-
að töluvert frá því hún var skip-
uð í ágúst í fyrra. Hervar sagði
fyrir fundinn í gær að í fundar-
lok mundu að öllum líkindum
liggja fyrir helstu atriöi sem
nefndarmenn væru sammála og
ósammála um. Hann segir að
framkomin frumvarpsdrög séu
sífellt að taka breytingum og því
of snemmt að tjá sig um einstök
efnisatriöi. Auk þess sé það tölu-
verð vinna að endurskoöa lög
sjóðsins og einnig lög um vin-
numiölanir.
Fyrir tæpum hálfum mánuði
eða svo voru drög að nýju frum-
varjri um sjóbinn kynnt á fundi
ASI, en um svipaö leyti birti VSÍ
„óskalista" sinn um breytingar á
lögum og starfsemi sjóðsins. En
ríkisstjórnin stefnir að því að af-
greiða frumvarp til laga um
breytingar á sjóðnum og lögum
um vinnumiðlanir á yfirstand-
andi þingi. -grh
Steini Totu, meölimur í Bifhjólasamtökum lýöveldisins, segir aö atvik eins og upp komu um
helgina í Kaupmannahöfn og Osló, þegar meölimir Hells Angels drápu einn og sœröu fjóra í skotárás, ýti ávallt
undir fordóma fólks gagnvart bifhjólasamtökum líkt og Sniglunum. Steini segir dönsku Vítisenglana alrœmd eit-
urlyfjasamtök sem hafi nánast útrýmt ööru gengi fyrir nokkrum árum. Tímamynd: gva
Halldór
valdamikill
Halldór Blöndal, sam-
gönguráðherra er valda-
mikill þessa dagana því
auk þess ab gegna emb-
ætti samgönguráðherra
þá gegnir hann einnig
embættum forsætis- og
fjármálarábherra.
Davíb Oddsson, forsætis-
ráöherra, hefur verið er-
lendis vegna fundarhalda
en hann hafði þá tekið að
sér að gegna embætti fjár-
málaráðherra í fjarveru
Fribriks Sófussonar, fjár-
málaráðherra, sem er í er-
lendis í leyfi. Samkvæmt
heimildum blaösins var
Þorsteinn Pálsson, dóms-,
kirkjumála og sjávarútvegs-
rábherra, í veikindaleyfi
þegar forsætisráðherra fór
úr landi.
-ÞI
Félagsmálaráöherra:
Sjálfstætt starfandi munu
fá atvinnuleysisbætur
Páll Pétursson, félagsmála-
ráöherra, kvabst standa við
hvert orb sem hann hafi sagt
í stjórnarandstöbu um at-
vinnuleysisbætur til bænda
og annarra sjálfstætt starf-
andi einyrkja á borb vib vöru-
bílstjóra og trillukalla. Hann
sagbi ab aðstæður þeirra hvab
þetta varbar væru óviðun-
andi og kvabst myndi beita
sér fyrir breytingum á lögum
og reglugerð um þau efni.
Steingrímur J. Sigfússon
spurði ráðherrann hvað liði
breytingum á reglum um at-
vinnuleysisbætur til þessara að-
ila þar sem þeir nytu nær engra
réttinda þrátt fyrir að vera gert
að greiða tryggingagjald í at-
vinnuleysistryggingasjóð.
Hann rifjaði upp ummæli Páls
Péturssonar frá 2. mars á síðasta
ári þegar Páll var þingmaður í
stjórnarandstöðu og sagði
hann hafa kallað þessar bætur
hundsbætur. Páll Pétursson
kvaðst hafa skipaö tvær nefndir
til þess ab endurskoba lög um
atvinnuleysisbætur og hann
vildi bíba eftir niðurstöðum
hennar áður en teknar yrðu
Páll Pétursson
félagsmálaráöherra.
ákvarðanir um hvernig þetta
yrði leyst. Steingrímur J. Sigfús-
son taldi aumt hjá ráðþerran-
um að skjóta sér á bakvið
nefndastörf í þessu efni því
brýnasta vandann mætti leysa
með reglugerðarbreytingu sem
hann hefði í hendi sinni og
væri þegar búinn að hafa í um
átta mánuði. Páll Pétursson
sagði að þarna þyrfti að verða
breyting á en hann hafi viljað
sjá hugmyndir nefnarmanna
áður en hann tæki ákvarðanir
um til hvaða ráða yrbi gripið.
-ÞI