Tíminn - 12.03.1996, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.03.1996, Blaðsíða 1
Kratar og ASÍ 80 ára. Listasafn og plöntur í tilefni dagsins: Benedikt skálar í Færeyjum „í tilefni dagsins ætlum viö að gera dagamun og stefnum t.d. aö því að ganga frá kaup- samningi á nýju húsnæði fyrir Listasafnið í Ásmundarsal. Til að reyna að tryggja framtíð- ina ætlum við að færa forseta íslands plöntur til gróðursetn- ingar í Vinaskógi," segir Bene- dikt Davíðsson forseti ASÍ. í dag, 12. mars, eru liðin 80 ár frá stofnun Alþýðuflokksins og ASI en í árdaga var flokkurinn og sambandið eitt og hiö sama. ASÍ hyggst hinsvegar gera þess- um tímamótum í sögu sam- bandsins betur skil á þingi þess sem hefst í Kópavogi 20. maí nk. Þá eru litlar líkur á því að for- seti ASÍ skáli með forystumönn- um Alþýðuflokksins um næstu helgi þegar hin eiginlega afmæl- ishátíð flokksins verður haldin, því þá verður Benedikt, ásamt Birni Grétari Sveinssyni for- manni VMSÍ og Sævari Gunn- arssyni formanni Sjómanna- sambandsins, í Þórshöfn í Fær- eyjum þegar haldið verður uppá 70 ára afmæli færeysku verka- lýðssamtakanna. Hinsvegar munu kratar í for- ystu ASÍ taka þátt í hátíðahöld- unum um næstu helgi meb fé- lögum sinum, eins og t.d. Her- var Gunnarsson annar af tveim- ur varaforsetum ASÍ. -grh Sjá einnig vibtal við Jón Bald- vin Hannibalsson á blaðsíðu 11 Endurskobun laga Atvinnuleysistryggingasjóbs: Á lokastigi í nefnd „Menn hafa veriö ab reyna að ná sem víbtækustu samkomu- lagi og þess vegna hefur þetta starf dregist á langinn," segir Hervar Gunnarsson annar af tveimur varaforsetum ASÍ um starf nefndar sem vinnur að endurskobun iaga um At- vinnuleysistryggingasjóð og vinnumiðlanir. Á fundi nefndarinnar í gær var stefnt að því að ljúka starfi hennar, en nefndin hefur fund- að töluvert frá því hún var skip- uð í ágúst í fyrra. Hervar sagði fyrir fundinn í gær að í fundar- lok mundu að öllum líkindum liggja fyrir helstu atriöi sem nefndarmenn væru sammála og ósammála um. Hann segir að framkomin frumvarpsdrög séu sífellt að taka breytingum og því of snemmt að tjá sig um einstök efnisatriöi. Auk þess sé það tölu- verð vinna að endurskoöa lög sjóðsins og einnig lög um vin- numiölanir. Fyrir tæpum hálfum mánuði eða svo voru drög að nýju frum- varjri um sjóbinn kynnt á fundi ASI, en um svipaö leyti birti VSÍ „óskalista" sinn um breytingar á lögum og starfsemi sjóðsins. En ríkisstjórnin stefnir að því að af- greiða frumvarp til laga um breytingar á sjóðnum og lögum um vinnumiðlanir á yfirstand- andi þingi. -grh Steini Totu, meölimur í Bifhjólasamtökum lýöveldisins, segir aö atvik eins og upp komu um helgina í Kaupmannahöfn og Osló, þegar meölimir Hells Angels drápu einn og sœröu fjóra í skotárás, ýti ávallt undir fordóma fólks gagnvart bifhjólasamtökum líkt og Sniglunum. Steini segir dönsku Vítisenglana alrœmd eit- urlyfjasamtök sem hafi nánast útrýmt ööru gengi fyrir nokkrum árum. Tímamynd: gva Halldór valdamikill Halldór Blöndal, sam- gönguráðherra er valda- mikill þessa dagana því auk þess ab gegna emb- ætti samgönguráðherra þá gegnir hann einnig embættum forsætis- og fjármálarábherra. Davíb Oddsson, forsætis- ráöherra, hefur verið er- lendis vegna fundarhalda en hann hafði þá tekið að sér að gegna embætti fjár- málaráðherra í fjarveru Fribriks Sófussonar, fjár- málaráðherra, sem er í er- lendis í leyfi. Samkvæmt heimildum blaösins var Þorsteinn Pálsson, dóms-, kirkjumála og sjávarútvegs- rábherra, í veikindaleyfi þegar forsætisráðherra fór úr landi. -ÞI Félagsmálaráöherra: Sjálfstætt starfandi munu fá atvinnuleysisbætur Páll Pétursson, félagsmála- ráöherra, kvabst standa við hvert orb sem hann hafi sagt í stjórnarandstöbu um at- vinnuleysisbætur til bænda og annarra sjálfstætt starf- andi einyrkja á borb vib vöru- bílstjóra og trillukalla. Hann sagbi ab aðstæður þeirra hvab þetta varbar væru óviðun- andi og kvabst myndi beita sér fyrir breytingum á lögum og reglugerð um þau efni. Steingrímur J. Sigfússon spurði ráðherrann hvað liði breytingum á reglum um at- vinnuleysisbætur til þessara að- ila þar sem þeir nytu nær engra réttinda þrátt fyrir að vera gert að greiða tryggingagjald í at- vinnuleysistryggingasjóð. Hann rifjaði upp ummæli Páls Péturssonar frá 2. mars á síðasta ári þegar Páll var þingmaður í stjórnarandstöðu og sagði hann hafa kallað þessar bætur hundsbætur. Páll Pétursson kvaðst hafa skipaö tvær nefndir til þess ab endurskoba lög um atvinnuleysisbætur og hann vildi bíba eftir niðurstöðum hennar áður en teknar yrðu Páll Pétursson félagsmálaráöherra. ákvarðanir um hvernig þetta yrði leyst. Steingrímur J. Sigfús- son taldi aumt hjá ráðþerran- um að skjóta sér á bakvið nefndastörf í þessu efni því brýnasta vandann mætti leysa með reglugerðarbreytingu sem hann hefði í hendi sinni og væri þegar búinn að hafa í um átta mánuði. Páll Pétursson sagði að þarna þyrfti að verða breyting á en hann hafi viljað sjá hugmyndir nefnarmanna áður en hann tæki ákvarðanir um til hvaða ráða yrbi gripið. -ÞI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.