Tíminn - 16.03.1996, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.03.1996, Blaðsíða 4
4 iBKtlttyiHMfllil Laugardagur 16. mars 1996 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu 150 kr. m/vsk. Grunnskólinn, ríkið og sveitarfélögin Undirbúningur aö endanlegum flutningi á rekstri grunnskóla til sveitarfélaga hefur staöiö yfir síöan lög- gjöf var sett um máliö í mars 1995. í júní var skipuö nefnd til þess aö meta kostnaö af tilfærslu verkefnisins og skilaöi hún af sér í febrúar síöastliönum. Á grundvelli þeirrar skýrslu var síöan undirritaö samkomulag milli fulltrúa fjármála, félagsmála og menntamálaráöuneytis og sveitarfélaganna um kostnaöar- og tekjutilfærslu vegna flutnings grunnskólans. Þetta samkomulag er meö fyrirvara um staöfestingu ríkisstjórnar og stjórnar og fulltrúaráös Sambands íslenskra sveitarfélaga. Veigamestu þættirnir í samkomulaginu eru eftirfar- andi: Gert er ráö fyrir aö heimila sveitarfélögunum aö leggja á 11,9% hámarksútsvar þann 1. janúar 1997 og 11,95% þann 1. janúar 1998. Tekjuskattur lækkar samsvarandi þessum hækkunum. Jafnframt mun ríkissjóöur verja 265 milljónum á ári af tekjuskatti áranna 1997-2001 til þess að styrkja framkvæmdir við grunnskólabyggingar í sveitarfélögum, sem eru meö 2000 íbúa og þar yfir, til þess að greiða fyrir einsetningu grunnskólans. Ákvæð- um til bráðabirgða í grunnskólalögum verður breytt á þann veg aö frestur til þess aö einsetja skóla veröur framlengdur um tvö ár. Samkomulagiö kveöur á um fleiri þætti, þótt þessir séu veigamestir. Þótt þaö sé meö fyrirvara um samþykki ríkisstjórnar, þarf Alþingi aö sjálfsögöu aö fjalla um þær lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til þess aö þaö nái fram aö ganga, breytingu á lögum um tekjustofna sveit- arfélaga og lögum um tekjuskatt og framlengingu á bráöabirgöaákvæöi grunnskólalaganna. Meö þessu samkomulagi eru viss þáttaskil í þessu máli. Ekki verður annaö séö en aö hér sé um mjög gott samkomulag fyrir sveitarfélögin aö ræöa. Staðreyndin er sú aö þau tóku aö sér aö standa straum af stofnkostnaði og rekstri grunnskóla áriö 1989 meö lögum um breytta verkaskiptingu og tekjustofna sveitarfélaga. Þrátt fyrir þaö kemur ríkiö nú aftur inn meö stuðning viö fram- kvæmdir viö grunnskólabyggingar án tillits til stæröar sveitarfélaga. Þaö ætti því ekkert aö vera því til fyrir- stööu aö einsetning skóla náist á næstu fimm árum, en þaö er langþráö markmið í málefnum þessa skólastigs og hefur mikla þýöingu fyrir aöstööu barna til náms. Þaö má aldrei gleymast í þessari umræöu aö flutningur grunnskólans er meira en tæknilegt og fjárhagslegt verkefni. Mestu skiptir aö skólinn fái aö þróast meö já- kvæöum hætti, veröi betri eftir breytinguna en fyrir hana. Eins og komið hefur fram, sögöu kennarar sig frá sam- starfi um flutning grunnskólans vegna fyrirhugaðs málatilbúnaöar á Alþingi varöandi lífeyris- og réttinda- mál opinberra starfsmanna. Nú hefur veriö boöaö aö frumvarpið um lífeyrisréttindin veröi látið liggja aö sinni. Vonandi greiöir þaö fyrir því aö kennarar endur- skoði afstööu sína til málsins, því nauðsyn ber til að ljúka tilfærslunni. Það er öllum fyrir bestu og eyöir óvissu um rekstur grunnskólans meöan flutningurinn er yfirvofandi en málinu ekki lokið. Oddur Ólafsson: Þversagnir og áreiti Aö ræða um framtíð eða framtíðarsýn í hverfulum heimi er líkast til tómt mál um að tala. Samt eru þeir nógu margir sem bulla um ókomna tíð, spá og gera áætlanir og ákveða fyrirfram hvað rthini verða afkomendunum fyrir bestu. Sitt sýnist hverjum og stefna menn gjarnan sitt í hverja átt- ina og sumir í margar áttir samtímis, svo að úr veröur illa skipulögð kaos. Dæmi um andstæð sjónarmið við mörkun framtíðarstefnu er ágreiningurinn um hvort breyta eigi ásýnd öræfanna með því að mann- skepnan taki að sér stjórn fall- vatna og virki stórt, eða hvort auðlegð óbyggðanna sé betur tryggð með því að láta þær í friöi. Hugsun þeirra sem vilja óbreytt landslag er ekki endilega sú að halda því óspilltu náttúr- unnar vegna, heldur að beinlín- is verði hægt að græða meira á henni í óbreyttu ástandi en með virkjunum og orkusölu. Spurningin er hvort gefur meira í hönd, orkusaia eða ferðamannabransi. Út og suður Stefnan í byggðamálum er að hvert ból, sem mannlíf þrífst nú á, skuli vera áfram í byggö og eru engin sérstök rök færð fyrir því. Þetta eru til- finningamál og eru rædd á þeim nótum. Reyndin er sú að byggðaröskunin eykst jafnt og þétt og er rétt sama hver er opinber stefna eða stefnuskrá stjórnmálaflokka. Það er eitthvað allt annað sem ræður því að byggðarlög veröa æ strjálbýlli og þéttbýlið vex að sama skapi. Framtíðarsýnin er eitt og þróunin annað. Mikiö kapp er lagt á að mennta ungdóminn, og helst til annarra verka, huglægra sem verklegra, en helst er þörf á í þjóðfélaginu. Útlendingar taka þau gjarnan að sér. En eftir því sem menntunin veröur meiri minnka líkurnar á að unga mennta- fólkið fái störf við hæfi. Margir nýta því sína góðu menntun erlendis. Eftir því sem fiskistofnar minna og fleiri komast í útrýmingarhættu vegna ofveiði stækkar flotinn að lestafjölda, togkrafti og veiðigetu. Ástandinu er bjargað um stundarsakir með rányrkju á fjarlæg- um miðum. Hvaö svo? Höfuðvandamál íslensks landbúnaðar er hve tæknivædd atvinnugreinin er og skilvirk. Fram- leiðslugeta er meiri en mannskapurinn fær torg- að. Svo er kvartað hástöfum yfir því að ekki fái nógu margir vinnu við bústörf. Eldra fólk er til trafala í samfélaginu. Það verður svo gamalt að lífeyririnn er löngu uppétinn þegar það deyr. Halda verður sem flestum í fullri vinnu til sjötugs til að spara lífeyrissjóðsgreiðslur. En eitt mesta vandamál nútíðar og framtíðar er að ekki er rúm fyrir ungt fólk á vinnumarkaði. Það gengur því atvinnulaust í enn ríkara mæli en gamlingj- arnir. Óútskýrt tilstand Lengi mætti telja upp allar þær þversagnir sem við blasa, en þetta dugir að sinni. Fjasað er um að leysa einstaka mál án nokkurs samhengis við önnur og beðið er með óþreyju eftir stóru happ- drættisvinningunum. Álver og kísiljárn voru lengi sá vonarpeningur sem treyst var á, og svo er enn. Ákvarðanir útlend- inga um að stækka verksmiðjur eða reisa nýjar eru gulrótin á prikinu, sem einblínt er á. Samgöngukerfi og jarðgangagröftur eiga með einhverjum dularfullum og óútskýrbum hætti að skapa fagra framtíð og þróttmikið þjóðlíf og leysa úr læðingi ný „atvinnutækifæri". í öllu þessu tilstandi hríðtapa peningastofnanir landsmanna fé — ausa því út í marklausar vitleys- ur. Skuldir fjölskyldna aukast dag frá degi og eru vaxnar mörgum þeirra yfir höfuð. Ríkið þykist vera að borga niður skuldir erlendis en safna þeim hér á landi, en sveitarfélög eru mörg svo illa á sig komin að þau ættu fyrir löngu að vera búin að segja sig til sveitar. Yfirvegun fremur en kapp Það má með sanni segja að ekki ríkir kyrrstaða í þjóðlífinu, þótt fæstir vita hvert stefna skuli. Þjóðkirkjan er að sporðreisast, aldargamalt menningarfélag að fremja sjálfsmorð og vinnumark- aður, opinber sem almennur, í uppnámi. Állar pakkaferðir til útlanda eru uppseidar og straumurinn aldrei eins stíiður og nú. Samt eru krárnar fleiri en á öðr- um stöbum og útvarps- og sjónvarpsrásir fleiri en með nokkru móti er hægt að komast yfir. Afþrey- ingin er yfirfljótandi. Þegar allt kemur til alls þurfum við kannski ekki neina sérstaka framtíöarsýn. Framtíðin kemur meö kostum sínum og göllum og taka verður á vandamálum hennar þegar þar að kemur og njóta þeirra kosta sem hún býður upp á. Það, sem nútíminn þarfnast öðru fremur, er ró- semi hugans. Það eru engin ný tíðindi og hafa ekki verið í þúsundir ára. Framkvæma þarf af yfir- vegun fremur en kappi og í upphafi skal endinn skoba. Óviðrá&anleg atburðarás Það er engin tilviljun, að í því andrúmslofti sem ríkir er hver atburðarásin af annarri sett af stað, sem svo enginn ræður við og verður að einhvers konar allsherjar hysteríukasti, sem ekki veröur séð fyrir endann á. Geirfinnsmálið og allt þab ætlar að verða sama endaleysan og það hófst á fyrir rúmum tveim ára- tugum og þjóðarsálin dinglar með og mun gera um sinn. Kannski nokkra áratugi enn. Nú er ríkissaksóknari búinn að fá rannsóknar- lögreglu annað mál í hendur, sem ef til vill á eftir að vera enn örðugra viðfangs og endalausara. Enn fleiri mál eru í gangi sem hræra upp í þjóð- arsálinni, sem alltaf virðist fá sitthvað nýtt ab nærast á og japlar á gömlum tuggum. Dregið úr lífsgæðum Hér áður var minnst á rósemi hugans, sem er ekkert auðfengib mál né einfalt. En óróleikinn í sálartetrinu og þjóðfélaginu öllu stafar ekki síst af öllu því mikla áreiti, sem hvergi er friður fyrir. Væntingar, sem framtíðarvonir voru bundnar við, standast ekki. Hræðilega vond fjármálastjórn leggur skuldaklafa á einstaklinga og verða heimili unga fólksins verst úti. Aldrei er staldrað við og spurt hvenær nóg sé nóg og hvort lífsgæðin byggist endilega á enda- lausum framförum og breytingum, eba kostnaðar- sömum framkvæmdum sem sannarlega draga úr lífsgæðum. Og langt er síðan mabur hefur heyrt orðatiltæk- ið, að einhver uni glaður við sitt. Og þrátt fyrir allar framtíbaráætlanirnar veit enginn hvað framtíðin ber í skauti sér, nema auð- vitaö vitlausar spár og endalaust áreiti. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.