Tíminn - 16.03.1996, Síða 11
Laugardagur 16. mars 1996
-----X.---------
11
GINSENG — lœkningamáttur byggbur á goösögunni einni er nú rannsakaöur afmeira kappi
en nokkru sinni fyrr. Innihaldsrýrar ginsengafuröir á markaöi hér. María Ásgeirsdóttir lyfja-
frœöingur um viöamiklar erlendar rannsóknir:
Ginseng virðist gagnast sem
vörn gegn krabbameini
Ýmsar heilsuvörur, sem
innihalda ginsengrót og
fluttar voru inn fyrir nokkr-
um árum, reyndust haldlitl-
ar svo ekki sé meira sagt.
Vörur þessar voru seldar í
apótekum og stórmörkuðum
og voru nánast innihalds-
lausar af ginsengrótinni.
„Innihaldið var stundum
þannig að í þessu voru engin
virk efni, en margt af þessu
hvarf af markaði, annaö er því
miður enn í umferð. Háskóli
íslands rannsakaði innihaldið
á sínum tíma og þá kom ýmis-
legt í ljós, sumt var nánast á
núlli varðandi innihald gin-
sengs," sagði María Ásgeirs-
dóttir lyfjafræðingur hjá Lyf
hf. Hún hefur fylgst vel með
ginsengrannsóknum, enda
þótt hún eigi engra hagsmuna
aö gæta varðandi ginseng, því
fyrirtæki hennar selur ekki
slíkar afurðir.
Ginseng gegn
krabbameini
María skrifar um ginseng-
neyslu í síðustu Lyfjatíðindum
og varpar fram spurningunni
um það hvort ginseng sé vörn
gegn krabbameini í mönnum.
Samkvæmt niðurstöðum um-
fangsmikilla rannsókna bend-
ir flest til að þarna sé samband
á milli.
Vitnar María í grein sinni til
stórrar rannsóknar sem gerð
var í háskólanum í Seoul í Kór-
eu, en Kóreumönnum er að
sjálfsögðu málið skylt, því úr
ginsengi vinna þeir hollustu-
afurðir sem þeir selja um heim
allan. Þrátt fyrir notkun gin-
sengrótarinnar um árþúsundir
í Asíulöndum og á Vestur-
löndum á síðari áratugum,
Iiggja sáralitlar rannsóknir á
efninu fyrir, en goðsagnir hafa
myndast um áhrifamátt rótar-
innar.
Þessi rannsókn dr. Taik-Koo,
sem nú starfar við rannsóknar-
stofnun í krabbameinsrann-
sóknum, og dr. Soo- Yong
Choi og samstarfsmanna
þeirra, náði til 1.987 para.
Samkvæmt grein Maríu Ás-
geirsdóttir er niðurstaðan
ótvíræð, ginseng virðist gagn-
ast sem vörn gegn krabba-
meinum af ýmsum toga.
Ýmsar verkanir ginsengext-
rakts hafa veriö skráðar síð-
ustu 30 árin, segir María í
grein sinni. Má þar nefna ým-
is áhrif á taugakerfið, róandi
áhrif, vörn gegn magasári af
streituálagi, minnkun þreytu,
áhrif á innkirtlastarfsemi,
styrking á ónæmiskerfinu og
margt fleira.
ÖKUMENN
Athugið að lil þess að við komumsi ferða okkar þurlum við að losna
við bilreiðar al gaogsienum Kærar þakkir
Blmdir og sionskertir
reynd að vísindamenn vita ekki
fullkomlega hvaða efni það eru
í ginsengrótinni sem hafa þessi
áhrif. Auknar rannsóknir síbari
ára munu eflaust svara þeirri
spurningu.
„Ég hef haft mikinn persónu-
legan og faglegan áhuga á
rannsóknum á ginsengi og
fylgist vel með þeim málum í
frístundum," sagði María Ás-
geirsdóttir. „Ég hef haft sam-
band við dr. Yun og fengib bréf
frá honum um rannsóknirnar.
Þetta eru hálærðir menn með
víst fimm síðna tilvitnanir í
lærdómstitla og rannsókna-
störf og hafa afbragðs tækni-
lega aðstöðu til rannsókna í
sínu heimalandi," sagbi María
Ásgeirsdóttir. -JBP
Fundur um sögu-
kennslu í fram-
haldsskólum
Sagnfræðingafélag íslands, í
samráði við Félag sögukenn-
ara, heldur ráöstefnu um
sögukennslu í framhalds-
skólum í dag, laugardag, kl.
13.30 í Kornhlööuloftinu
(bak viö veitingahúsið Lækj-
arbrekku).
Stutt erindi flytja:
Erlingur Brynjólfsson, Fjöl-
brautaskóla Suðurlands:
Námsmat í sögn og staða sögu-
kennshmnar.
Ragnar Sigurðsson, Kvenna-
skólanum: Hugleiðing um
kennslu íslenskrar miðaldasögu.
Gunnar Karlsson, Háskóla
íslands: Hvers vegna eigum við
íslendingar að hafa samband við
miðaldir?
Baldur Sigurðsson, Kennara-
háskóla íslands: Gerð og gildi
ritgerða.
Lóa Steinunn Kristjánsdótt-
ir, Menntaskólanum við Sund:
Hvað á að kenna í íslandssögu
eftir 1945?
Allir áhugamenn um sögu
og sögukennslu velkomnir.
Kaffiveitingar.
Húsbréf
Ginsengpiantan: rót hennar hefur verið notuð sem lœkningalyf um þús-
undir ára. Þrátt fyrír takmarkaðar rannsóknir bendir flest til að jurtin búi
yfir miklum lcekningamœtti.
Afeitrar krabbameins-
valdandi efni
Á markaði hér á landi og víð-
ar í Evrópu ber mest á rauðu eð-
alginsengi, gerikomplexi, sem
er bætt vítamínum, og ginsana.
í rannsókninni í Kóreu kom
rauða ginsengið best út, en það
er unnið úr 6 ára rót ginseng-
plöntunnar.
Tilraunir þeirra Yun og Choi
hófust árið 1978 með tilraun-
um á músum. Tilraunin þá
leiddi í ljós að sannað þótti að
rautt ginseng afeitraði krabba-
meinsvaldandi efni af ýmsu
tagi. „Áhrifin eru aö sumu leyti
fólgin í aukinni virkni dráps-
frumunnar (natural killer cell)
til að vinna á krabbameins-
frumunni," segir í grein Maríu
Ásgeirsdóttur.
Rannsóknir á mönnum í Kór-
eu hófust 1990 meb rannsókn á
905 x 2, eða 905 pörum. Sú
rannsókn þótti sanna að „þeir
sem neyttu ginsengs væru í
minni hættu á því að fá krabba-
mein en hinir sem ekki neyttu
þess".
Stærsta rannsóknin kom síð-
an í kjölfarið, 1.987 pör úr hópi
sjúklinga Krabbameinssjúkra-
húss Kóreu, fjölbreyttur hópur
í samsetningu, hvað varðaði
aldur, menntun og störf.
Niðurstöður þessarar rann-
sóknar hafa nú verið kynntar í
læknablööum á Vesturlöndum
og vekja athygli, en þar er enn
staðfest að þeir sem taka inn
ginseng séu í minni áhættu að
fá ýmsar tegundir krabba-
meins.
Enn stendur eftir sú stað-
Innlausnarverð
húsbréfa í
4. flokki 1992 og
4. flokki 1994
Innlausnardagur 15. mars 1996.
4. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.452.881 kr.
1.000.000 kr. 1.290.576 kr.
100.000 kr. 129.058 kr.
10.000 kr. 12.906 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.497.121 kr.
* 1.000.000 kr. 1.099.424 kr.
1 100.000 kr. 109.942 kr.
1 10.000 kr. 10.994 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
cSg HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
SINFONIUH LJOMSVEITI N A FERÐALAG
Blindrafélagió
I
Hljómsveitarstjóri:
Lan Shui
Einleikari:
SigurSur Flosason
Kynnir:
Sverrir Guðjónsson
£/nis&Á/HÍ
Johann Strauss:
Ulf Adáker:
P. Tchaikovsky:
Forleikur úr
LeSurblökunni
Saxofónkonsert
Sinfónía nr. 4
0
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ DlGRANES, KÓPAVOGI
laugardaginn 16. mars, kl. 14.00
ÍÞRÓTTAHÚS SÓLVALLASKÓLA, SELFOSSI
mánudaginn 18. mars, kl. 20.00
Kór Fjölbrautaskólans á Selfossi tekur þátt í tónleikunum
Íþróttamiðstöðin, Borgarnesi
þriSjudaginn 19. mars, kl. 20.00
ÍÞRÓTTAHÚS GRINDAVÍKUR
miSvikudaginn 20. mars, kl. 20.00
Íþróttahúsið, Keflavík
fimmtudaginn 21. mars, kl. 20.00
Karlakór Keflavíkur tekur þátt í tónleikunum.
Andrés Björnsson leikur 1. þátt úr trompet-
konsert eftir Hummel.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS