Tíminn - 16.03.1996, Blaðsíða 13

Tíminn - 16.03.1996, Blaðsíða 13
Laugardagur 16. febrúar 1996 fHTlimi fcUufi. 13 UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. Bretland: Kvennaaðgerðir gegn vopnasölusamningi Snemma morguns í lok janú- ar læddust fjórar konur inn á svæöi British Aerospace fyr- irtækisins í Lancashire. Þær læddust inn í flugskýlið, en þar inni var orrustuflugvél af geröinni Hawk, sem hafa m.a. verið notaöar til þess aö gera árasir á A-Tímor, viö Indónesíu og valdiö þar dauöa saklausra borgara. En eins og Tíminn hefur sagt frá hefur stjórn Indónesíu beitt grimmilegum aögeröum gegn íbúum A-Tímor, sem berjast fyrir sjálfstæöi. Taliö er allt aö 2-300.000 manns hafi látiö í aögeröum stjórn- arinnar frá árinu 1975, en þá réöist her Indónesíu inn í eyjuna. Vopnaðar hömrum Þegar konurnar voru komn- ar óséöar inn í flugskýlið tóku þær upp hamrana sem þær voru með. Og þær létu höggin dynja á flugvélinni og búnaði hennar. Umrædd flugvél var Konurnar fjórar sem létu hamarshöggin dynja á breskri Hawk orustuvél sem átti ab senda til Indónesíu. Skemmdir kvennanna námu um 200 milljónum íslenskra króna. Meb þessu vildu þœr mótmœla vopnasölusamn- ingi upp á 75 milljarba milli ríkisstjórnar Bretlands og Indónesíu. sú fyrsta af 24 sem ríkisstjórn Bretlands á aö afhenda stjórn Það er skrifstofa Cheng Hsueh- sheng, borgarfulltrúa í Taípeiborg á Taívan, sem stendur fyrir útgáfu spilanna. Prentub hafa veriö 5.000 eintök af spilunum, og er stefnt aö því aö selja þau einkum söfnurum, en ágóöinn á aö renna til líknarmála, aö því er útgefend- urnir segja. „Kaupendur greiöa fyrir þaö sem þeim þykir hæfa," sagöi einn starfsmaöur skrifstof- unnar. Drottningarnar í spilastokkn- um eru frambjóöendurnir til embættis varaforseta landsins, og gosarnir eru kosningastjórar þeirra. -GB/Reuter Taívanbúar halda skopskyninu, gefa út spila- stokk meö pólitísku ívafi: Jókerarnir eru Deng Xia- oping og Jiang Zemin Þaö er greinilegt aö Taívanbúar hafa ekki misst skopskynið þrátt fyrir lítt dulbúnar hótanir og ógnvekjandi framferöi Kínverja þessa dagana. Deng Xiaoping og Jiang Zemin, forseti Kína, eru jó- kerarnir í spilastokki sem kemur á markaö í Taívan nú um helg- ina, en Lee Teng-hui, forseti Ta- ívans, er hjartakóngurinn. Hinir kóngarnir þrír eru mótframbjóð- endur Lees í forsetakosningun- um sem fara fram í næstu viku, þeir Peng Ming-min, frambjóö- andi Lýöræöislega framfara- flokksins, og Lin Yang-kang og Chen Li-an, báöir óháöir fram- bjóöendur. Franska þingiö: Vill minnka hávabann Franska þjóöþingiö samþykkti í gær aö bann veröi lagt á sölu lítilla hljómtækja sem geta haft hljóöstyrk sem er meiri en 100 desíbel. Samkvæmt upplýsing- um frá verslunum getur hljóö- styrkur flestra vasadiskótækja sem seld eru í Frakklandi oröiö allt aö 113 desíbel þegar hlust- aö er í heyrnartólum, en sum tæki framleiöa allt aö 126 des- íbela hávaöa. Læknar halda því fram aö ef hljóðstyrkurinn fer yfir 100 des- íbel geti það valdiö varanlegum heyrnarskaða á nokkrum klukku- tímum, en nokkrar mínútur nægja ef styrkurinn fer yfir 115 desíbel. Lögin sem þingiö sam- þykkti gera ráö fyrir því aö settir séu aövörunarmiöar á öll vasa- hljómtæki þar sem fram kemur að þaö geti valdið heyrnarskaöa ef hlustaö er á fullum styrk um lengri tíma. Jean- Francois Matt- ei, þingmaðurinn sem lagði fram frumvarpiö, sagði ab vasadiskóin væru að framleiða heila kynslóð af heyrnarlausu fólki. -GB/Reuter Indónesíu síöar á þessu ári, en stjórnir landanna geröu með sér samning árið 1993 um sölu þessara flugvéla. Sölusamning- urinn hljóöaöi upp á 750 milljónir punda (75 milljaröar ísl. króna). En á móti þurfti ríkisstjórn Bretlands að láta 100 milljónir punda í styrk vegna byggingar raforkuvers á Indónesíu. Talið er að bygging þess komi til meö að eyöa dýr- mætum regnskógum í Ind- ónesíu og stuðla aö miklum fólksflótta. í fyrstu voru högg kvenn- anna ekki mjög þung, en þeg- ar þær komust aö því að þær höfðu komist algerlega óséðar inn í flugskýlið þyngdust höggin. Eyöilögbu konurnar búnað á vélinni fyrir tvær milljónir punda, m.a. radar- búnað og stýribúnaö fyrir flug- skeyti. Og í flugstjórasæti vél- arinnar settu þær ljósmyndir sem teknar voru þegar her- menn stjórnar Indónesíu drápu 270 manns í mótmæl- um í höfuðborg A-Tímor, Santa Cruz árið 1991. Ríkisstjórn Bretlands og full- trúar British Aerospace segja að vélarnar eigi aðeins að nota í þjálfunarskyni, en í markaös- setningarbæklingi fyrirtækis- ins segir að Hawk orrustuvélar séu mjög hentugar til árása á skotmörk á jöröu niðri og aö þær geti boriö margar tegund- ir vopna, m.a. klasasprengjur og napalmsprengjur. Skemmdir upp á 200 milljónir Ástæður aðgeröa kvennanna eru að mótmæla sölu vélanna til Indónesíu og sagði ein þeirra, Iögfræðingurinn Jo- anne Wilson, aö fjöldi sak- lausra borgara hafi verið drep- inn með breskum vopnum. Hún segist skammast sín vegna þessa. Hjúkrunarfræð- ingurinn Andrea Needham segir að hún hafi verið búin að berjast í þrjú ár gegn þessum flugvélasamningi, meö bréfa- skriftum og fleiru. En ekkert hafi gerst og því hafi þær ákveðið að grípa til þessara að- geröa. Þegar þær höföu verið í yfir klukkustund í flugskýlinu hringdu konurnar í fjölmiöla, enda var ekki ætlun þeirra að laumast í burtu. Þær voru handteknar og síöar ákærðar fyrir að hafa skemmt búnað fyrir um 200 milljónir ís- lenskra króna. Þrjár kvenn- anna eru félagar í hreyfingu sem hefur á undanförnum ár- um staðið fyrir aðgerðum sem þessum. Hreyfingin ber heitið „Plógskerarnir" og hóf aðgerð- ir sínar í Bandaríkjunum árið 1980, þegar þrír félagar af- tengdu tvo kjarnaodda í Penn- sylvaníu-fylki. Aðgerð bresku kvennanna er sú 56. sem hreyfingin stendur fyrir, en sú fyrsta sem er eingöngu fram- kvæmd af konum. GHÁ / The Guardian AÐALFUNDUR íslenskra sjávarafurða hf. verður haldinn föstudaginn 29. mars 1996 í Súlnasal Hótel Sögu, og hefst fundurinn kl. 900. DAGSKRÁ 1. Ávarp Porsteins Pálssonar, sjávarútvegsráðherra. 2. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 8. grein samþykkta félagsins. 3. Breytingar á samþykktum. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Ársreikningur félagsins mun liggja fyrir á skrifstofu fyrirtækisins að Sigtúni 42, Reykjavík, viku fyrir fundinn. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn íslenskra sjávarafurða hf. AÐALFUNDVR OLÍS 1996 Aðalfundur Olíuverzlunar íslands hf. fyrir rekstrarárið 1995, verður haldinn íSunnusal (áður Átthagasal) Hótels Sögu, fimmtudaginn 21. mars n.k. kl. 16:00. Dagskrá: Samkvæmt 13. gr. samþykkta félagsins. Ársreikningur félagsins og gögn vegna fundar munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu félagsins að Héðinsgötu 10, Reykjavík, 7 dögum fyrir fundinn. RB Stjórn Olíuverzlunar íslands hf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.