Tíminn - 19.03.1996, Qupperneq 3

Tíminn - 19.03.1996, Qupperneq 3
Þri&judagur 19. mars 1996 3 Milli 200 og 300 íslendingar á sjávarútvegssýningunni í Boston: Marel með bullandi sölu á bitavélinni Gífurlegur áhugi var innan sjávarútvegsgeirans á sjávar- útvegssýningunni í Boston sem haldin var í síöustu viku. Milli 200 og 300 manns fóru héöan til Bandaríkj- anna. í þeim hópi voru fisk- sölumenn helstu fyrirtaekja, sölumenn tækja og búnaöar til sjávarútvegs og fleiri. Pétur Guöjónsson markaðs- stjóri hjá Marel hf. lét vel af sýningunni þegar Tíminn ræddi við hann í gær. Marel sýndi á sýningunni í 10. sinn ab þessu sinni. Það kom á óvart að bein sala á sýning- unni sjálfri var upp á 160 þús- und Bandaríkjadali, eða hátt í 11 milljónir króna. Yfirleitt kemur salan eftir sýningar og teygist yfir árið. „Við vorum þarna bæði með skurðarvél, flokkara, og nýtt tæki, litaflokkara fyrir laxaflök og síldarflök. Skurðarvélin sló í gegn ef svo má segja. Það er áberandi meiri áhugi í ár en ábur að skera í bita," sagði Pét- ur. Skuröarvélin eða bitavélin, er tölvustýrð vél, skilar góðri nýtingu og sker flak í hentugar fiskisteikur. Áhersla á veiöileyfagjald og auknar erlendar fjárfest- ingar. lönþing: Jafnræöi á milli atvinnugreina í ályktun Iðnþings er lögb áhersla á nauösyn þess ab tekib verði upp veiðileyfa- gjald og að erlendar fjárfest- ingar í íslensku atvinnulífi verbi auknar. Til að tryggja hámarksaf- rakstur í þjóöarbúskapnum og hagkvæmustu nýtingu fram- leiösluþátta þarf að ríkja jafn- ræði á milli atvinnugreina. Af þeim sökum telja Samtök ibn- aðarins að það verði ekki leng- ur undan því komist að leggja „sanngjarnt" gjald á nýtingar- rétt fiskimiðanna og er það m.a. rökstutt með réttlætis- og hagkvæmisrökum. Sjávarútvegsráöuneytiö: Skylt að flokka karfa Frá og með 1. maí nk. verður skylt að flokka allan karfaafla í gullkarfa og djúpkarfa um borð í veiðiskipum. Ennfrem- ur verður skipstjórum gert aö greina á milli þessara tegunda í afladagbókum. Samkvæmt reglugerö sjávar- útvegsráðuneytisins skal einnig landa og vigta hvora tegund sér- staklega og eiga vigtarmenn að skrá á vigtarnótu hvora tegund- ina sé um að ræða. Þá eiga hafn- arstarfsmenn að skrá tegundirn- ar sérstaklega í aflaskráningar- kerfið Lóðsinn. Þessi ákvörðun sjávarútvegs- ráðuneytisins er í samræmi við ályktun sem samþykkt var á síb- asta aðalfundi LÍU þar sem skor- að var á ráðuneyti aö skylda skip til að koma með karfa flokkaðan að landi. Sömuleiðis telur Hafrannsóknastofnun brýnt að karfi sé flokkaður eftir tegundum um borö í veiðiskip- um til ab hægt sé ab afla áreið- anlegra gagna um aflasamsetn- inguna, því eins og kunnugt er þá er ástand karfastofnanna tal- ið lélegt, einkum gullkarfa. í ályktuninni kemur fram að veiðileyfagjald má nota til sveiflujöfnunar í þjóðarbú- skapnum, þótt það eitt og sér dugi ekki til að jafna þær miklu sveiflur sem einkennt hafa starfskilyrði fyrirtækja. Þessvegna sé einnig nauðsyn á verðjöfnun til að skjóta styrk- ari stoðum undir fjölbreytt at- vinnulíf, fjölgun starfa og bætt lífskjör. Þá telja Samtök iðnaðarins að það þurfi að auka erlendar fjárfestingar í innlendu at- vinnulífi. Hinsvegar sé það ekki nóg að reyna ab glæða áhuga erlenda fjárfesta á at- vinnulífinu ef þeir mega ekki kaupa hlutabréf í innlendum fyrirtækjum. Til að snúa vörn í sókn í þessum efnum er lagt til að hlutabréfamarkaburinn verði stórefldur og fjölga þar skráð- um fyrirtækjum og þá ekki síst í iðnaði. í þessum efnum eru stjórn- völd og hagsmunaaðilar hvött til að taka höndum saman með breyttum leikreglum, fræbslu og hvatningu, enda sé virkur hlutabréfamarkaður og greiður aðgangur að upplýs- ingum forsenda þess ab inn- lendir og erlendir abilir leggi fé í íslenskt atvinnulíf. -grh Pétur sagði að almennur áhugi hefði verið á vélunum og búast mætti við miklum viðbrögðum innan skamms tíma. „Þetta var örugglega okkar besta sýning," sagði Pétur. Á sýningunni voru ýmis fyr- irtæki með bása, ÍS, SH, Eim- skip og Marel, en auk þess sameiginlegur bás frá íslenska útflutningsráðinu, sem þótti mælast vel fyrir. Fiskútflytj- endur utan stóru samtakanna voru þarna á ferðinni en þeir vinna aðallega utan sýningar- innar og gera sölusamninga í fundarsölum og hótelsvítum. Margir þeirra eru sagðir hafa náð árangri í tengslum við sýninguna, en hana sækja nánast allir sem einhverju máli skipta í sjávarútvegsvið- skiptum. Athygli vakti hversu mikla áherslu seljendur sjávarafurða leggja á skelfisk, meðal annars frá eldisstöðvum. -JBP Skipulag ríkisins: Tvöföldun Reykjanesbraut- ar samþykkt Skipulag ríkisins hefur lokið viö frumathugun á umhverf- isáhrifum mislægra gatna- móta Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar í Kópavogi og tvöföldunar Reykjanes- brautar frá Nýbýlavegi suður fyrir Fífuhvammsveg í Kópa- vogi. Skipulagsstjóri hefur fallist á fyrirhugaba framkvæmd með þeim skilyrðum að hljóðtálmar verði settir meðfram byggð í Urðarholti og umhverfis mis- lægu gatnamótin og aö hljób- mengun á íbúðarsvæðum um- hverfis Reykjanesbraut verði mæld á fimm ára fresti. Ef ein- hver sér ástæðu til ab kæra þennan úrskurð til umhverfis- ráðherra er honum heimilt ab gera það innan fjögurra vikna. Löndun. Aflaverömœti í janúar og febrúar sl. rúmlega þriöjungi meira en í sömu mánuöum í fyrra: Gjöfull febrúarmánubur Afli í sl. febrúarmánuöi var sá langmesti sem veriö hefur í einum mánuði frá því byrjað var að skrá aflatölur, eða 455 þúsund tonn. Þaö er 90 þús- undum tonna meiri afli en í þeim mánuði sem næstur kemur. Þessi mikli afli er aðal- Iega vegna loönunnar en í mánuðinum veiddust alls 408 þúsund tonn af loðnu, sem einnig er aflamet. Þetta kemur m.a. fram í bráða- birgðatölum um fiskaflann, samkvæmt Útvegstölum. Þar kemur einnig fram að aflaverð- mætið í sl. janúar og febrúar var um 10,7 milljarðar króna sem er rúmlega þriðjungi meira en fyrir sömu mánuðina í fyrra. Þar af er lobnan verðmætust, eða þrír milljarbar króna, verðmæti þorsks nemur tveimur og hálf- um milljarði og verðmæti rækju er tæpir tveir milljarðar króna samkvæmt áætlun Fiskifélags ís- lands. Sérstök athygli er vakin á því að aflaverðmæti loðnu hefur vaxiö meira en sem nemur aukningu aflans vegna aukinnar frystingu. Tii marks um hvað loðnuveið- Skrifstofa um náttúruvernd á noröurslóðum til Akureyrar íslendingum hefur boðist að skrifstofa stofnunar um náttúruvernd á noröurslóö- um veröi framvegins staðsett hér á landi en hún hefur haft aðsetur í Kanada. Stofn- unin er hluti af samstarfi norblægra landa og tengist einnig starfsemi Norður- skautsráðsins, það er þeirra landa sem liggja næst Norð- urpólnum. Guðmundur Bjarnason um- hverfisráðherra hefur kynnt þetta mál í ríkisstjórn íslands og fengið samþykki fyrir þeim tillögum sínum að skrifstofan verbi flutt til íslands. í fram- haldi af því er hugmyndin að stofnunin verði staðsett á Ak- ureyri, en þar er fyrir stofnun Vilhjálms Stefánssonar, og vinni þessar tvær stofnanir sem fjalla um norburslóðir að einhverju leyti saman. Gert er ráð fyrir að tvö stöðugildi fylgi þessari stofnun og ef af verður muni hún flytjast til Akureyr- ar í tengslum vib setur Nátt- úrufræðistofnunar íslands og verða til húsa á sama stað í mibbæ Akureyrar. -ÞI in var gób í sl. mánuði má nefna að loðnuaflinn hefur aðeins tvisvar sinnum náð því að vera meiri en 300 þús. tonn í einum mánuði frá því loðnuveiðar hóf- ust hér við land. Á loðnuárun- um svoköllubu 1975-1981 var t.d. mesti mánaðarafli í loðnu 257 þúsund tonn. Hinsvegar hefur heildaraflinn í einum mánuði aöeins fimm sinnum náb því ab fara yfir 300 þúsund tonn og er þab allt á þessum ára- tug, eða í febrúar á árunum 1990, 1992, 1993, 1994 og í mars í fyrra. Af öðrum tegund- um má nefna að rækjuaflinn í febrúar sl. var um 7 þúsund tonn á móti 4800 tonnum á sama tíma í fyrra, eða ríflega 40% meiri. Hinsvegar var botn- fiskaflinn í febrúar sl. svipaður og á sama tíma í fyrra eða um 38.500 tonn. Af einstökum botnfisktegundum er þorskafli lítið eitt meiri og svo virðist sem bátaflotinn hafi aukið hlut sinn í aflanum á kostnað togara. Aftur á móti fór ýsuafli niður um fjórðung, eða úr tæpum 4 þúsund tonnum í feb. 1995 í 3 þúsund tonn 1996 og ufsaafli um ríflegan fjórðung, úr 4.936 tonnum í feb. 1995 í 3.614 tonn í sama mánuði í ár. Hinsvegar jókst afli í grálúbu og í steinbít. -grh

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.