Tíminn - 19.03.1996, Qupperneq 8
8
8Mmi
Þriðjudagur 19. mars 1996
IÞROTTIR
PJETUR SIGURÐSSON
IÞRO'
Molar...
... Gengib hefur veri6 frá félaga-
skiptum þeirra Gu&mundar Vals
Sigurbssonar og Sigurðar B.
Jónssonar í FH. Gu&mundur Val-
ur, sem lék meö FH á árum áður,
þjálfa&i og lék með Ægi í fyrra,
en Sigurður lék meö KR-ingum
og Skagamönnum þar áður.
... Þorbjörn Atli Sveinsson lék
með Fram um helgina í deildar-
bikarnum, þegar liöib mætti
Gróttu, og gerði þar tvö mörk.
Þorbjöm Atli hefur verlð meiddur
að undanförnu, en með honum í
framlínu Fram lék Haukur Hauks-
son. Það er næsta víst að þarna
er á ferð eitt minnsta framlínupar
í íslensku knattspyrnunni, því
báðir eru þeir afar smáir vexti.
... Vestmannaeyingar og Skaga-
menn fóru um helgina til Kýpur,
þar sem liðin taka þátt í móti
næstu daga. Með í förinni var
einnig Kristinn Jakobsson knatt-
spyrnudómari.
... Enn einu sinni varð að aflýsa
knattspyrnuleik í Brasilíu á milli
Flamingo og Itaperuna, en þegar
tvær mínútur voru liönar af leikn-
um hrundu girðingarnar um-
hverfis völlinn og áhorfendur
þustu inná. Dómara leiksins
fannst öryggisgæsla ekki í lagi og
hélt heim á leiö, án þess aö leik-
urinn væri flautaður á að nýju.
... Þjálfari rúmenska landsliðsins
í knattspyrnu hefur sagt starfi
sínu lausu. Ástæðan er sú að til-
lögur hans um mótafyrirkomulag
og dagsetningu á umferðum í
deildarkeppninni voru að engu
hafðar.
... Þó að íslendingar spóki sig í
veðurblíðunni er ekki hægt aö
segja það sama um granna okkar
í Danmörku. Danskir knatt-
spyrnumenn fengu að finna fyrir
því um helgina, þegar fresta varð
fyrstu umferðinni í dönsku úr-
valsdeildinni vegna mikilla kulda.
Danskir knattspyrnumenn fá
þriggja og hálfs mánaðar frí yfir
háveturinn og átti keppnin að
hefjast að nýju um helgina, en
forráðamenn danska knatt-
spyrnusambandsins vonast til
þess aö geta byrjað um næstu
helgi.
... lan Rush er nú á síðasta
keppnistímabili með Liverpool.
Rush hefur skorab 250 mörk í
deildarkeppni með þremur lið-
um, Chester, Liverpool og Ju-
ventus, 95 mörk í bikarkeppni
með þessum liðum, 25 mörk í
Evrópukeppninni með Juve og
Liverpool, sjö mörk í Super Cup
og þrjú í gó&ger&arskildinum. Að
auki hefur hann gert 28 mörk
meb landsliði Wales. Alls gera
þetta 404 mörk á ferlinum og
þykir líklega dágott.
... KR og Kefiavík hafa tryggt sér
réttinn til að leika til úrslita um
íslandsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik, en KR sló út Grindavík
og Keflavík sló út Breiðablik í
undanúrslitum keppninnar.
... Kim Magnus Nielsen sigra&i á
Sjóvá-Almennar skvassmótinu,
sem haldið var um helgina í
Veggsport viö Gullinbrú, en mót-
ið gefur punkta til íslandsmóts,
sem fram fer 12,-14. apríl næst-
komandi. Heimir Helgason varð í
ööru sæti. Hrafnhildur Hreins-
dóttir sigraði í opnum flokki og
Þórveig Hákonardóttir í A-flokki
kvenna.
Knattspyrna:
Verðmæti leikmanna
Ajax um 6,6 milljarðar
Ajax hefur á undanförnum ár-
um byggt upp frábært knatt-
spyrnulið, sem hefur náb frá-
bærum árangri. Þrátt fyrir aö
hafa selt frá sér marga frábæra
knattspyrnumenn á síðustu sex
árum, s.s. Dennis Bergkamp,
Bryan Roy og Clarence Seedorf
auk margra annarra, fyrir um
3,2 milljarba, þá er verbmæti
þeirra leikmanna sem nú eru í
eigu Ajax talib vera um 6,6
milljarbar króna.
Bergkamp var seldur frá Ajax
til Inter Milan fyrir um 700 millj-
ónir króna árib 1993 og í fyrra
var Seedorf seldur fyrir um 450
milljónir króna til Sampdoria. í
liðinu núna eru margir frábærir
knattspyrnumenn, s.s. Marc Ov-
ermars, Ronald de Boer, Frank de
Boer, Jari Litmanen, Edgar Davis,
Finidi George og svo mætti lengi
telja. Flestir knattspyrnumenn í
Ajaxlibinu eiga það sameiginlegt
að vera eftirsóttir af öbrum liðum
og þá flestir af stærstu félögum í
Evrópu.
Eins og ábur sagbi er söluverð-
mæti leikmanna Ajax talið vera
um 6,6 milljarbar króna og þar er
Marc Overmars dýrastur, en ab
öllum líkindum getur Ajax feng-
ið um einn milljarð króna fyrir
kappann, en bæði Arsenal og
Manchester Utd vilja fá hann til
liðs við sig.
Tvíburinn Ronald de Boer
kemur þar næstur á eftir, en Ju-
ventus er á höttunum eftir hon-
um og er taliö vilja borga allt að
800 milljónir króna fyrir hann.
Það sama má segja um tvíbura-
bróður hans, Frank, en Juventus
er þó ekki talið vilja borga nema
550 milljónir.
Spænsku stórliðin Barcelona og
Valencia hafa verið að bera ví-
urnar í Finnann Jari Litmanen,
en verðmæti hans er taliö vera
um 650 milljónir króna. AC Mil-
an hefur veriö aö skoða Edgar
Davis og ku lítast nokkuð vel á
hann, en hann mun kosta um
300 milijónir.
Flestir leikmanna Ajax eru
samningsbundnir félaginu fram á
næsta ár eða lengur, en þó eru
einhverjir með samninga fram á
sumarið, eða fram í júní. Það er
óvíst hvernig mál þeirra fara,
með tilliti til Bosman-málsins, en
þeirra á meðal eru þeir Edgar Da-
vis og Nwankwo Kanu, sem Inter
Milan er á höttunum eftir.
Innanhússmeistaramót Islands í sundi:
Sex íslandsmet sett í Eyjum
Sex Islandsmet voru sett á
Innanhússmeistaramóti ís-
lands í sundi, sem fram fór í
Vestmannaeyjum um helg-
ina, en þar féllu mebal annars
met Ebvarbs Þórs Ebvarbsson-
ar í 100 og 200 metra bak-
sundi og met Bryndísar Ólafs-
dóttur í 200 metra skrib-
sundi.
Það var Vestmannaeyingur-
inn Logi Jes Kristjánsson sem
sló met Eðvarðs Þórs í baksundi
og sigraði í báðum greinum,
auk þess sem hann nábi í gull í
50 metra baksundi.
Eydís Konráðsdóttir setti tvö
íslandsmet, bætti eigið met í
100 metra skriðsundi og síðan
9 ára gamalt met Bryndísar í
200 metra skribsundi, auk þess
sem hún sigraði í 200 metra
flugsundi bg 100 metra bak-
sundi.
Arnar Freyr Ólafsson vann
þrenn gullverölaun í 200 og
400 metra skriðsundi og í 200
metra fjórsundi. Ríkharður Rík-
harðsson setti íslandsmet í 100
metra flugsundi, en sigraði auk
þess í 100 metra skriðsundi og
varð í öðru sæti í 50 metra
skriösundi. ■
DHL-deildin í körfuknattleik:
Staöa Keflavíkur vænleg
Staða Keflvíkinga er vænleg í
úrslitakeppni DHL-deildar-
innar í körfuknattleik, en
þeir hafa nú þegar unnib tvo
leiki gegn Njarðvíkingum og
þurfa því aðeins að sigra í
einum leik til viöbótar til aö
tryggja sig í úrslitaleikina
gegn annað hvort Grindavík
eða Haukum, þar sem staðan
er 1-1.
Keflvíkingar sigruöu Njarðvík
í öðrum leik félaganna nokkuö
örugglega 89-79 í íþróttahúsinu
í Keflavík. Staðan í hálfleik var
reyndar 47-54, Njarðvíkingum í
vil, en Keflvíkingar voru sterk-
ari í síðari hálfleik. Falur Harb-
arson var stigahæstur Keflvík-
inga með 27 stig, Davíö Griss-
om gerbi 19 stig, en hann var
jafnframt bestur Keflvíkinga.
Rondey Robinson var sem oft
áður stigahæstur Njarðvíkinga
meb 21 stig, en Teitur Örlygs-
son var hins vegar þeirra besti
maöur og gerði hann 20 stig.
Haukar sigruðu Grindvíkinga
í Grindavík, 74-84, eftir að hafa
tapaö fyrsta leiknum óvænt á
heimavelli sínum. Haukar
höföu tvö stig yfir í hálfleik. Ja-
son Williford gerði 25 stig fyrir
Hauka og Bergur Eðvarðsson
gerði 17 stig, en Hjörtur Harb-
arson gerði 15 stig fyrir Grind-
víkinga og Guömundur Braga-
son 14 stig. ■
Kvennalandslibib í knattspyrnu á móti í Portúgal:
Sjötta sætið
íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu hafnaöi í 6. sæti
eftir ósigur gegn Rússum í leik
um 5. sætið á alþjóðlegu móti,
sem haldið er I Portúgal, en alls
taka átta þjóbir þátt í mótinu.
Leiknum lyktaði með jafntefli,
1-1, og gerbi Margrét Ólafsdótt-
ir mark íslands, en liðið tapabi
síðan í vítakeppni; Rússar skor-
uðu úr þremur spyrnum, en ís-
lendingar úr tveimur. íslensku
stúlkurnar sigruðu í einum leik
af fjórum, er þær sigruðu
finnsku stúlkurnar, 3-1.
Knattspyrna
Deildarbikarkeppnin
3-1 Haukar-Tindastóll 0-1 Sindri-Víðir 0-3
3-1 Keflavík-Þór 2-1 Grindavík-Sindri 3-3
0-1 FH-Dalvík 6-1 Höttur-Léttir 2-1
6-1 Völsungur-FH 1-5 Skallagrímur-Ægir 1-0
.... 10-0 Léttir-Þróttur R 0-0 Fram-Grótta 3-1
3-1 Fylkir-Höttur 4-1 Þór A.-Breiðablik 1-6
5-1 Völsungur-Valur 0-2 ■
Evrópu-
boltinn
England
Úrvalsdeild
QPR-Manchestér Utd........1-1
Dichio - Cantona
Coventry-Bolton ..........0-2
- Stubbs 2
Liverpool-Chelsea ........2-0
Wright, Fowler -
Manch. City-Southampton ...2-1
Kinkladze 2 - Tisdal
Middlesbro-Nott. Forest...1-1
Mustoe - Allen
Sheffield Wed.-Aston Villa ...2-0
Whittingham, Hirst -
Tottenham-Blackburn.......2-3
Sheringham, Armstrong - Shear-
er 3
Wimbledon-Arsenal..........0-3
- Winterburn, Platt, Bergkamp
Leeds-Everton.............2-2
Deane 2 - Stuart, Kancelskis
Staðan í úrvalsdeild
Man. Utd.. 30 18 6 5 57-30 61
Newcastle. 28 19 4 5 52-26 61
Liverpool ..30 17 8 5 60-26 59
Aston V. ...31 16 7 8 46-31 55
Arsenal ..30 14 9 742-2751
Everton...31 13 9 9 48-34 48
Blackburn .31 14 6 11 46-36 48
Tottenh. ...29 13 9 7 37-29 48
Chelsea...31 11 11 9 36-34 44
Nott.For. ...29 11 11 7 39-40 44
West Ham 30 12 6 12 35-39 42
Leeds..... 28 11 6 11 35-41 39
Middlesbr. 31 9 8 14 29-42 35
Sheff.Wed .30 8 8 14 41-49 32
Man.City ..31 7 9 15 24-45 30
Coventry ..30 5 12 13 37-55 27
Wimbled. .30 6 9 15 42-61 27
Southam... 28 5 10 13 28-42 25
QPR ......31 6 5 20 27-49 23
Bolton ...30 6 4 20 31-58 22
1. deild
Derby-Watford.............1-1
Grimsby-Crystal Palace....0-2
Ipswich-Tranmere...........1-2
Millwall-Sheffield Utd....1-0
Oldham-Leicester..........3-1
Portsmouth-Wolves..........0-2
Reading-Norwich...........0-3
Southend-Charlton.........1-1
Stoke-Huddersfield........1-1
WBA-Barnsley ........... 2-1
Birmingham-Sunderland .....0-2
Staða efstu liba
Sunderl...36 18 12 6 48-26 66
Derby.....37 17 14 6 56-41 65
Crystal Pal.36 15 13 8 52-41 58
Charlton ...35 14 14 7 49-39 56
Stoke..... 35 14 12 9 46-36 54
Huddersf. .35 14 11 10 47-49 53
Ipswich...34 13 11 10 63-51 50
Leicester ...36 12 13 11 52-53 49
Southend ..36 13 10 13 41-44 49
Barnsley ....35 12 12 11 47-53 48
Skotland
Úrvalsdeildin
Rangers-Celtic............1-1
Falkirk-Partick...........1-2
Hearts-Hibernian .........1-1
Kilmamock-Motherwell......0-1
Raith-Aberdeen ...........2-2