Tíminn - 21.03.1996, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.03.1996, Blaðsíða 1
80. árgangur Fimmtudagur 21. mars 57. tölublað 1996 Óskar C. jónsson í Borgarapóteki hampar hér einum öskubakka sem skilaö var inn á reyklausa deginum í gær. Almennt virbast undirtektir hafa verib drœmar, en í Borgarapóteki kom þó slatti af bökkum inn. Tímamynd: þök Flest atriöi í frumvarpi um vinnulöggjöfina málamiölun. Atvinnurekendur hafa boöiö ASI og BSRB til frekari viörœöna um máliö. Vinnumálasambandiö: Óttast ekki átök á vinnumarkaði Stjórn LR skoöar fyrst keppinauta Viöars frá því í haust: Ekki auglýst eftir leikhús- stjóra hjá LR Stjórn LR stefnir ab því ab rába leikhússtjóra sem fyrst segir Sig- urbur Karlsson, formabur LR, en ekki er gert ráb fyrir ab aug- lýsa stöbuna enda gæti þab ferli tekib eina 2-3 mánubi og stjórn- inni ber ekki skylda til ab aug- lýsa. Sá hópur fólks sem sótti um leikhússtjórastöbuna þegar Vibar var rábinn verbur fyrst skobabur ab sögn Sigurbar. Óvíst er hvort rábinn verbi ab- stobarleikhússtjóri. Ab sögn Sigurbar er stjórnin ekki farin ab ræba vib ákvebna einstaklinga. Hann segir þab ekki rétt sem birst hafi í fjölmiðlum að kannaður hafi verið sá möguleiki ab stjómin gæti sinnt starfi leik- hússtjóra fram yfir abalfund. Hins vegar hafi sú hugmynd verið uppi ab ef staðan yrði auglýst að stofna þá verkefnavalsnefnd sem gæti farið ab undirbúa næsta leikár en fallib var frá því og talin hallæris- lausn þar sem ráðinn leikhússtjóri kæmi þá til starfa þegar skipu- lagningu leikárs væri nánast lok- ib. Aðrir möguleikar voru kann- aðir og í ljós kom að stjórnin væri ekki bundin neinum reglum og þyrfti t.d. ekki að rába úr umsækj- endahópnum frá því í haust held- ur gæti rábib þann sem henni lit- ist best á. -LÓA Svartolíumengun í Meö- allandsfjöru: Fjöldi fugla dauöur Á annab hundrab olíublautir fuglar hafa fundist í Mebal- landsfjöru á milli Skaftárósa og ósa Eldvatna í þessari viku, flestir daubir. Enginn olíuflekkur sást á sjón- um vib flug yfir fjörurnar á fyrr- nefndu svæði en olía í litlum klumpum í fjörunni. Sýni af ol- íunni hefur verib greind hjá Rannsóknarstofu í lyfjafræbi og reyndist um svartolíu ab ræba. Hollustuvernd ríkisins brýnir enn einu sinni fyrir sjófarendum ab taka tillit til umhverfisins og dæla ekki olíu í sjóinn. -GBK Aöstoö íslendinga viö Bosníu-Hersegóvínu: 100 m. króna á næstu 4 árum Ríkisstjórnin hefur samþykkt ab veita 10 milljónum laóna til bráðaabgerba í Bosníu-Herseg- óvínu. Abstobin verbur veitt á þessum ársfjórbungi. Nefnd á vegum utanríkisrábherra mun á næstu vikum móta tillögur um hvernig 100 milljóna króna framlagi íslands til endurreisnar Bosníu-Hersegóvínu verbur var- ib. -GBK Ámi Benediktsson stjórnarfor- mabur Vinnumálasambandsins segir ab frumvarp félagsmálaráb- herra um breytingar á Iögum um stéttarfélög og vinnudeilur sé í langflestum greinum málamiblun þeirra sem hafa fjallab um málib á fundum í tæp tvö ár. Hann segir vibbrögb verkalýbshreyfingarinn- ar alveg stórfurbuleg og ekki í neinu samræmi vib raunveruleik- ann. Þar fyrir utan sé ekkert sem hindrar þab ab abilar vinnumark- abarins geti ekkí rætt málib áfram og komib sér saman um tillögur til breytinga. En atvinnurekendur opnubu á slíkar vibræbur vib ASÍ og BSRB í fyrradag, þegar efni frumvarpsins var kynnt. „Ef menn vilja ekki, þá segja menn allan fjandann. Þab sem menn eru ab segja núna er að vib viljum ekki og erum ekki þroskabri en þetta. Vib treystum okkur ekki til ab fara inn í nútímann," segir Árni um vibbrögð verkalýbshreyfingar- innar. Hann telur ab frumvarpib sé til bóta en hefði kosib ab þab hefbi gengib lengra í einstökum atriðum. Hann vill hinsvegar ekki tjá sig um hvaba atribi þab eru að svo stöddu. Aftur á móti segist hann ekki óttast Árni Benediktsson. átök á vinnumarkabi vegna áform- abra breytinga á lögum um stéttar- félög og vinnudeilur og vonast til að menn ræbi efnisatribi frum- varpsins og skoði þær breytingr sem þeir telja að þurfi ab gera. Stjórnarformaður Vinnumála- sambandsins segir vibbrögb verka- lýðshreyfingarinnar vera svo „gagn- sæ" ab almennir félagsmenn í verkalýbshreyfingunni átta sig á því ab þab er ekkert á bak vib þessi „gíf- uryrði" í foruystu verkalýbshreyf- ingarinnar. Hann minnir á ab þegar áfanga- skýrslan um málib var gefin út í nóvember sl. hefbi verib búib ab halda eina 40 fundi í nefndinni, sem falið var ab endurskoða sam- skiptareglur á vinnumarkaöi auk þess sem menn hefðu þá verib bún- ir ab ná saman í veigamiklum mál- um sem eru í frumvarpinu ab und- anskildu ákvæbi um atkvæba- greibslur. í því sambandi nefnir Árni svo- kallaba viðræbuáætlun, þ.e. ab byrja samningavibræbur fyrr en áb- ur og stefna að því ab ljúka samn- ingagerb í þann mund sem samn- ingar falla úr gildi. Einnig voru menn sammála hvernig samning- umbobinu verbi háttab þannig ab þab liggi alveg Ijóst fyrir hver fer meb samningsumbobið hverju sinni. Auk þess voru menn sam- mála um hvernig samningum skuli lokib. Árni segir ab meb þessu sé reynt ab leysa þau vandamál sem verib hafa og ollu m.a. deilum á sl. ári þegar deildar meiningar vom um þab ab þeir sem sömdu síbar hefbu náð fram meiri kauphækkun- um en þeir sem sömdu í byrjun. Hann segir ab meb þessu sé reynt ab ná fram meira réttlæti og þá ekki síst vegna kröfu einstakra félaga og sambanda innan ASÍ sem töldu að þetta hefbi farib úrskeibis í fyrra. -grh Reyklausi dagurinn í gœr. Fáir öskubakkar skiluöu sér í apó- tekunum aö því er viröist: Dræmar heimtur öskubakka „Þab eru bara tveir búnir ab skila öskubökkum hjá okkur í dag — en þab eru líklega tveir síbustu Breibhyltingarnir sem reyktu, ég fullyrbi þab. Þab reykir enginn lengur í hverfinu," sagbi lyfja- tæknir í Breibholtsapóteki um mibjan dag í gær. Um sama leyti höfbu tveir skilab bökkum í Reykjavíkurapóteki og ennfrem- ur tveir í Mosfellsapóteki. „Hingab hafa bara tveir komib og skilab," sagbi afgreibslukona í Mos- fellsapóteki, í handboltabæ „kjúk- linganna" sem svo eru kallabir. „Þab selst mikib af tyggjóinu og öbru til ab venja menn af reyking- um. Þab er upp og ofan meb reyk- ingar hérna mebal Mosfellinga. En kannski eru menn ekkert akkúrat tilbúnir ab hætta ab reykja í dag, en ættu að hugsa máliö vandlega." „Viö höfum fengib tvo viðskipta- vini hingað í dag sem skilubu ösku- bökkum. Hér er mest fólk á vinnu- stöbum og trúlega fer fólk ekki með eigur vinnustaðarins og skilar, fer frekar í apótekin úti í hverfunum með bakkana heiman frá sér," sagbi Hjördís Claessen yfirlyfjafræðingur í Reykjavíkurapóteki í gær. Átak Tóbaksvarnanefndar, sem gekk út á aö skila öskubakka og fá 10% afslátt af nikótínvörum virtist illa kynnt og abeins auglýst í einu dagblaði. Ekki var ab sjá að margir hefbu tekið eftir þeirri auglýsingu, alla vega voru viöbrögbin lítil. -JBP

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.