Tíminn - 26.03.1996, Side 1
-
80. árgangur
Þriðjudagur 26. mars
60. tölublað 1996
Þórhildur
ráðin til LR
Leikhúsráð samþykkti með
þremur atkvæðum í gær-
morgun að ráða Þórhildi
Þorleifsdóttur, leikstjóra og
fyrrverandi alþingiskonu, í
stöbu leikhússtjóra við Borg-
arleikhúsið. Fulltrúi borgar-
innar sat hjá enda hafbi
hann lýst því yfir í síbustu
viku að hann tæki ekki þátt í
vali næsta leikhússtjóra.
Áður en Siguröur Karlsson
náði að tilkynna ráðningu
Þórhildar var þeim báðum
sunginn afmælissöngurinn til
heiðurs og fékk Þórhildur því
fjögurra ára ráöningarsamn-
ing í afmælisgjöf frá LR. Þór-
hildur tók við starfinu í gær og
ef að líkum lætur gegnir hún
því til ágústloka árið 2000. Sig-
urður sagbist telja að ráðning-
in væri skynsamleg og yrði
Leikfélaginu til farsældar.
Þórhildur kvaðst illa undir-
búin undir starfið, ef frá væri
talin 40 ára vinna í leikhúsi,
enda hefði ráðninguna borið
brátt að. Sitt fyrsta verk yröi að
ræöa við hvern og einn starfs-
mann leikhússins.
-LÓA
Þórhildur Þorleifsdóttir og Siguröur Karlsson rœba saman.
Engin stefnubreyting í endurskoöuöu varnarsamstarfi viö Bandaríkin en:
Verktakaeinokunin afnumin
Nú liggja fyrir endanleg drög ab
samkomulagi milli íslenskra og
bandarískra stjórnvalda um
framkvæmd varnarsamstarfs
þjóðanna tveggja á grundvelli
samningsins frá 1951. Gildandi
samkomulag frá árinu 1994 átti
að endurskoða að tveimur árum
liðnum sem nú hefur verib gert
og skal nýja samkomulagið
gilda næstu fimm ár.
Drögin fela aö mestu í sér staö-
festingu á samningnum frá 1994
en í þeim er þó staöfestur ásetn-
ingur ríkjanna að byggingafram-
kvæmdir og viðhaldsverkefni fyrir
varnarliðið verði boðin út á al-
mennum innanlandsmarkaði. Al-
mennum samkeppnisútboðum
verður komiö í framkvæmd í smá-
skömmtum og er því gert ráö fyrir
að einokun íslenskra aöalverktaka
og Keflavíkurverktaka á fram-
kvæmdum fyrir vamarliðið verði
endanlega afnumin í byrjun árs
2004. Settar veröa reglur um sam-
keppnisútboö á vegum vamarliös-
ins árið 1998. í nýja samkomulag-
inu er gert ráð fyrir einu almennu
útboði áriö 1999, tveimur árið
2000 og að þeim muni svo fjölga
smátt og smátt þar til einokuninni
verður endanlega aflétt árið 2004.
Að sögn Halldórs Ásgrímssonar,
utanríkisráðherra, var lögð áhersla
á að þessi aölögunartími næðist
svo fyrirtækin tvö gætu breytt
áherslum í sínum rekstri.
Annars segir Halldór enga
stefnubreytingu fólgna í sam-
komulaginu en í því er staöfest
áframhaldandi vera varnarliðs í
Keflavík, vamarviðbúnaður verði
óbreyttur, m.a. verði aldrei færri
en fjórar orrustuþotur og að rekst-
ur þyrlubjörgunarsveitar varnar-
liðsins verði óbreyttur. Auk þess
verði heræfingunni Norður-Vík-
ingur haldið áfram á tveggja ára
fresti.
Mikil áhersla var lögö á að draga
úr kostnaði við rekstur herstöðvar-
innar af hálfu Bandaríkjamanna
enda hafa framlög til vamarmála
verið skorin niður um 40% í
Bandaríkjunum á síðastliðnum ár-
um. Kostnaðarlækkunarnefnd hef-
ur það hlutverk að finna leiðir til
sparnaðar og má nefna hugmynd-
ir um að varaflugvöllur fyrir hluta
af flugflotanum geti verið á Aust-
urlandi í stað Skotlands, nánara
Halldór Asgrímsson, utanríkisráöherra og Grétar Már Sigurbsson.
Furöuleg sigling litháísks togara til heimahafnar. Siguröur Grétarsson:
Þettaerbara
„Sjálfsagt geta sjórán farið fram
árið 1996, og þetta er bara sjórán.
Þessi aðgerb er í blóra vib mín fyr-
irmæli. En ef ég segi eitthvað uppi
á islandi er ekkert farib eftir því.
í siðaðra manna þjóöfélagi draga
menn skip út úr leigunni, en þarna
er ekki farið aö settum reglum,"
sagði Sigurður Grétarsson fram-
kvæmdastjóri Úthafsafurða hf. á
Egilsstöbum í gær. Hann hefur rekiö
þróunarverkefni með togarann
Vydunas í tvö ár og gengið vel.
„Mér er ekki sama um íslenska sjó-
menn sem þarna eru um borð á
mínum vegum og eru nánast í gísl-
ingu," sagbi Sigurður í gær.
Sigling litháiska frystitogarans
Vydunas með fjóra íslenska sjó-
menn innanborös frá írlandi til Lit-
háen hélt áfram allan daginn í gær
án þess að skýringar fengust á. Sam-
band við skipið var rofið. Ekki var
talin ástæða til ótta vegna sam-
bandsleysis við skipið.
Sýslumannsfulltrúi á Seyðisfirði
fékk símhringingu á sunnudag frá
föður sínum sem er fiskiskipstjóri
sjoran
um borð, Jens Albertssyni. Sýslu-
mannsembættið sem slíkt hefur
hins vegar ekki neina lögsögu í mál-
inu að sögn Lárusar Bjarnasonar
sýslumanns. „Ég hef engan ótta af
þessu, skipið kemur til hafnar á
morgun (þribjudag) og þá heyri ég í
manninum og eflaust fljúga þeir
síðan heim," sagði Sigurlaug Helga-
dóttir eiginkona Jens á Stöðvarfiröi
í gær. Jens hefur starfað um borð
síðan um miðjan þennan mánuð
og því ekkert komið til hans kasta
sem fiskiskipstjóra. -JBP
samstarf á sviði heilsugæslu en
einnig er talið að fjölgun útboða
muni minnnka rekstrarkostnað
varnarstarfsins. -LÓA
Flóki boöar breytingu á
messutíma á föstudag-
inn langa:
Kórinn heldur
tónleika 2
klukkustund-
um síbar
Séra Flóki Kristinsson, sókn-
arprestur í Langholtskirkju,
hefur breytt messutíma á
föstudaginn langa og fært
hann til klukkan 15.00. Um
óhefðbundinn messutíma er
að ræða en þannig vill til að
Langholtskirkjukórinn unllir
stjórn Jóns Stefánssonar er
með tónleika sama dag sem
hefjast klukkan 17.00.
Viðmælandi Tímans innan
kórsins sagði í gær að þar á bæ
túlkuðu menn þetta ekki svo
aö þessi breyting á messutíma
væri tilviljun, en Flóki vissi
hins vegar ekki að kórinn
myndi spila án hljómsveitar
og þyrfti því ekki nema 10
mínútur eftir messu til aö gera
sig kláran. -BÞ
Sjá um Langholtsmálið
á bls. 3
I