Tíminn - 27.03.1996, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.03.1996, Blaðsíða 1
80. árgangur Miðvikudagur 27. mars 61. tölublað 1996 Björn Crétar Sveinsson: Félagsmála- nefnd hendi framvarpinu „Ég get ekki séö a6 viö þurfum aö mæta þar nema til aö segja þeim aö henda þessu út," segir Björn Grétar Sveinsson for- maöur VMSÍ um féiagsmála- nefnd Alþingis sem hefur fengiö til meöferöar frumvarp ti! laga um breytingar á lögum um stéttarfélög og vinnudeii- ur. Formaöurinn hafnar öllum tillögum til breytinga á frum- varpinu af hálfu löggjafans á þeim forsendum aö verkalýðs- hreyfingin vilji semja um þessi mál viö sína viðsemjendur. „Það er ekkert svo ambögulegt í þess- um málum að það sé ekki hægt að semja um þau," segir Björn Grétar. Hann segir að áform stjórnvalda til breytinga á rétt- indum launafólks og samskipta- reglum á vinnumarkaði hafi gert það að verkurn að verka- lýðshreyfingin, jafnt á almenna sem opinbera markaðnum, hafi aldrei verið sameinaðri en um þessar mundir. -grh Rafmagnib upp um 3% Borgarráö staöfesti í gær 3% gjaldskrárhækkun hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur frá og meö 1. apríl nk., en slík hækkun haföi áöur veriö af- greidd í stjórn veitustofnana. í veitustjórn höfðu sjálfstæð- ismenn bókaö að gjaldskrár- hækkun styrkti stöðu RR en minntu hins vegar á að þeir teldu afgjaldið sem krafist er í borgarsjóð vera of hátt. Fulltrúar R-listans hins vegar bókuðu á móti að hækkunin væri ekki til komin vegna af- gjaldsins heldur vegna hækkun- ar gjaldskrár Landsvirkjunar. Einnig bentu þeir á að gjaldskrá- in hafi ekki hækkað frá 1993, en á sama tíma hafi vísitala bygg- ingakostnaðar hækkað um 10,6%. ■ RáÖherra í niburrifi Umhverfisrábherra klippti ígœr fyrsta bútinn af Sandey, Sanddœluskipi Björgunar hf., 600 tonna stálskipi. Skipib verbur hlutab nibur í brotajárn sem flutt verbur út. Fyrirtækib Skipabrot ehf. hefur verib stofnab til ab stunda niburrif stálbáta og skipa og selja stálib til endurvinnslu. Til brábabirgba hefur fyrirtœkib komib upp abstöbu vib Skarfaklett í Sundahöfn. Fram ab þessu héfur vibgengist ab stálskip séu dregin á haf út og þeim sökkt en þab þykja ekki lengur ásœttanleg vinnubrögb vegna aukinnar vitundar um umhverfisvernd. Á mynd- inni má sjá Cubmund Bjarnason umhverfisrábherra og Einar Ásgeirsson skoba málmbút sem búib er ab klippa úr skipinu. Tímamynd: cs s s s Utvegsmenn í LIU íhuga abgeröir vegna breytinga á fiskveibikerfi krókabáta. Trúnabur vib stjórnvöld brostinn: Hóta að sigla í land Mjög mikil reiöi er meðal út- vegsmanna í LÍÚ vegna áformaöra breytinga á fisk- veiöistjórnarkerfi krókabáta sem Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráöherra geröi á dögun- um viö Landssamband smá- bátaeigenda og ríkisstjórnin hefur samþykkt fyrir sitt leyti. Eiríkur Ólafsson formaöur Út- vegsmannafélags Austfjaröa segir aö þaö sé ekki útilokaö að austfirskar útgeröir muni sigla flotanum í land á næst- unni og viöbúiö aö annað eins muni gerast í öörum lands- fjóröungum, enda sé allur trúnaöur viö sjávarútvegs- ráðuneytið og stjórnvöld brostinn. Hann segir aö með þessum samningi við Landsamband smábátaeigenda hafi sjávarút- vegsráðherra höggviö að rótum kvótakerfisins og stuöningur viö aflamarkskerfið sé að bresta. Til marks um það sé skiptingin á þorskinum um 60% í staö þess að vera 97% í upphafi kvótans vegna þessa „sérhagsmuna- Búnaöarbankinn biti sem margir renna hýru auga til. Cuöni Agústsson, alþingismabur og banka- rábsmaöur vill snúa umrœöunni vib: Ætti aö fela okkur ab reka ríkisbankana Bankaráð Búnaðarbanka ís- lands sat á fundi í gærdag, — þar var ekki minnst á þær breytingar sem nú er mikið talað um, svokallaöa „háeff- un" og hugmyndir íslands- banka hf. um aö innbyrða Búnaöarbankann undir sínu þaki. Guðni Ágústsson alþingis- maður er í bankaráðinu og helsti varnarmaður þeirra Bún- aðarbankamanna. Hann sagöi í gær að hann undraðist umræð- urnar um bankann, en hann undraðist þó ekki að margir litu hann hýru auga. „Það er verulega athyglisvert hvernig bankar sem hafa verið að tapa og hafa verið í fremur slæmum málum undanfarin ár horfa girndaraugum á Búnaðar- bankann og vilja sameinast honum. Snjallast tel ég nú við þessar aðstæöur að Búnaðar- bankanum veröi falið að reka þessar bankastofnanir, Lands- bankann og íslandsbanka hf. næstu 5 árin eða svo, og ná þar fram bæði góðum rekstri og hagræðingu, að ég tali ekki um nýju viðskiptasiðferði á íslandi. Þar yrði til stór bankablokk und- ir handleiðslu Búnaðarbankans, sem væri í stakk búin að keppa við hvaða erlendan banka sem Gubni Agústsson. er," sagði Guðni Ágústsson í gær. Guðni sagði að sérstaklega yrði þetta ánægjulegt fyrir fyrir- tæki eins og Búnaðarbankann ef þetta yrði gert, til dæmis ef hann mætti notfæra sér yfirfær- anlegt tap íslandsbanka hf. upp á 3 milljarða sem hann á enn ónotað. „Ég fæ ekki betur séð en að ef Búnaðarbankanum yrði falið að koma rekstri þessara tveggja banka í lag, þá þýddi það sparn- að í bankakerfinu upp á einn til tvo milljaröa, ef vel tekst til," sagði Guðni Agústsson. -JBP hóps" sem smábátaeiegendur eru. Á stjórnarfundi LÍÚ í gær, sem stóö frá hádegi og fram til 16,30, fór mestur tími til að ræða áður- nefnt samkomulag stjórnvalda við LS. Á fundinum kom einnig fram það sjónarmið að það væri best að hætta að veiða sam- kvæmt útgefnum kvóta og veiða þess í stað frjálst. Meðal útvegs- manna er haft á orði að það sé vonlaust að beita stjórnvöldum einhverjum rökum heldur sé það hnefarétturinn sem dugar í samskiptum við þau. En eins og kunnugt er þá gerir samkomulag stjórnvalda við Landssamband smábátaeigenda m.a. ráð fyrir því að heildar- þorskafli krókabáta, 21.500 tonn, verði hlutfallstengdur við 155 þúsund tonna heildarþorsk- afla, eba 13,9%, allir banndagar veröi felldir niður, tímabila- skipting afnumin og sóknardag- ar verði 84. Á fundinn mætti einnig Ari Edwald aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherra og mun hann hafa fengið að heyra það óþvegið frá stjórnarmönnum, en ráðherra hélt til Tromsö í Noregi í gær á fund í Norður-Atlantshafs sjáv- arspendýraráðinu, NAMMCO. -grh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.