Tíminn - 12.04.1996, Side 1
80. árgangur Föstudagur 12. apríl 70. tölublað 1996
'Sfr®
:W'
->'yf ‘
'
Sólin gaf fögur fyrirheit um komandi sumar
í höfuöborgirmi í gær. Sóiin skein giatt á þessar kátu stúikur sem brugöu sér í laugarnar til aö njóta veöurblíöunnar.
Tímamynd: CS
Mannbjörg varb þegar rœkjubát hvolfdi í Mjóafiröi í Isafjarbardjúpi:
Tilkynningaskyldan
vissi ekki um bátinn
Ekkert sam-
komulag um
þinghald
Ekkert samkomulag er á milli
stjórnar- og stjómarandstööu-
flokkanna um störf Alþingis
nú á vordögum. Þingflokkar
stjómarandstöðunnar hafa
krafist þess aö ríkisstjórnin
dragi til baka fmmvörpin um
stéttarfélög og vinnudeilur og
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna og hafa neitað
aö mæta á nefndarfundum
utan venjubundins fundar-
tíma þingnefnda. Af þeim
sökum hefur veriö aflýst
fundi er halda átti í efnahags-
og viðskiptanefnd Alþingis
næstkomandi laugardag.
Við upphaf þingfundar á
fimmtudag kvaddi Svavar
Gestsson sér hljóðs og lýsti því
yfir að ekkert samkomulag væri
í þinginu á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu. Ríkisstjórnin
hafi rofið friðinn og þingmenn
stjórnarandstöðunnar myndu
ekki mæta til funda í nefndum
Alþingis sem boðaðir yrðu utan
hinna hefðbundnu fundartíma.
Alla vegna myndu þeir ekki
mæta til slíkra fundarhalda í
nefndum er efnt yrði til um hin
umdeildu stjórnarfrumvörp.
Ríkisstjórnin hefur lýst því yf-
ir að frumvörpin um stéttarfé-
lög og vinnudeilur og réttindi
og skyldur opinberra starfs-
manna verði ekki dregin til
baka en ljáð verði máls á breyt-
ingum á þeim til að nálgast
sjónarmið verkalýðshreyfingar-
innar. Verkalýðsforingjar hafa
undanfarna daga átt fundi með
ráðherrum og þingflokkum
stjórnarflokkanna þar sem þessi
viðkvæmu mál hafa verið til
umræðu. Ríkisstjórnin vonast
til að í þeim viðræðum verði
unnt að komast að samkomu-
lagi um viðkvæm atriði þannig
að frumvörpin fái endanlega
gerð í meðförum nefnda þings-
ins en verði ekki dregin til baka
og efnt að nýju til fundarhalda
á vegum félagsmálaráðuneytis-
ins til að endursemja þau frá
grunni.
-ÞI
„Viö erum náttúrlega afar
ósáttir viö aö þetta skuli vera
afturvirkt, þaö er aö segja aö
tekiö sé af sjóönum fyrir áriö
'95," sagöi Sigmar B. Hauks-
son, formaöur Skotveiöifélags
íslands í samtali viö Tímann í
gær.
Guðmundur Bjarnason um-
hverfisráðherra hefur úthlutað
tæpum 6 milljónum króna úr
Veiðikortasjóði til fjögurra
rannsóknarverkefna. Aðallega
er um að ræða rjúpnarannsókn-
ir á vegum Náttúrufræðistofn-
unar íslands (4,5 millj.) en einn-
Mannbjörg varö í gær þegar
rækjubáturinn Kolbrún ÍS
hvolfdi í Mjóafiröi í ísafjarö-
ardjúpi eftir aö hafa steytt
þar á skeri. Tveir voru í
áhöfn og komust þeir
ómeiddir á kjöl þar sem
þeim var bjargaö af heima-
manni frá Látrum í Mjóa-
ig anda- og gæsarannsóknir
sömu stofnunar (850.000), refa-
rannsóknir á vegum HÍ
(250.833 kr.) og rannsóknir
Karls Skírnissonar á sníkjudýr-
um í rjúpu (250.000).
Alls námu tekjur Veiðikorta-
sjóðs á síðasta ári um 16,8 millj-
ónum króna, en þær fengust af
sölu 11.208 veiðikorta.
Sigmar Hauksson sagði enn-
fremur að honum þætti stofn-
og rekstrarkostnaður óeðlilega
hár. „Við teljum að það sé erfitt
að færa rök fyrir þessum háa
stofnkostnaði og vísum til þess
firöi sem reri á báti aö slys-
staö. Þeir voru síöan fluttir
til ísafjaröar meö björgunar-
bátnum Daníel Sigmunds-
syni.
Björgunardeild Slysavarna-
félagsins og Tilkynningaskyld-
an vekja athygli á því að
áhöfnin á Kolbrúnu ÍS haföi
að það var til veiðistjóraemb-
ætti áður sem hlýtur að hafa átt
húsnæði og tölvuútbúnað. Okk-
ur finnst þessi stofnkostnaður
alltof hár og ekki ásættanlegur."
Rekstrar- og stofnkostnaður
vegna veiðikortanna var tæpar
7 milljónir króna í fyrra. Stór
hluti þess var stofnkostnaður,
m.a. vegna kaupa á tölvubúnaði
og gerðar kynningarmynd-
bands. Tekjur Veiðikortasjóðs
eftir gjöld vom tæpar 10 millj-
ónir króna, þannig að eftir er að
úthluta um 4 milljónum kr.
-BÞ
ekki tilkynnt sig úr höfn þegar
haldið var til veiða né látiö
vita á tilkynningaskyldum
tímum. í því sambandi er
minnt á mikilvægi þess fyrir
skip og báta að nota tilkynn-
ingaskylduna svo hægt sé að
hefja eftirgrennslan um þá
sem ekki tilkynna sig og hafa
kannski lent í vandræðum. Þá
sé það ekki síður mikilvægt
fyrir staðsetningu báta og
skipa svo hægt sé aö kalla aðra
til aðstoöar.
Það var um klukkan 11 í
gærmorgun sem SVFÍ-Til-
kynningaskyldunni tóku að
berast skeyti frá gervihnetti
sem hafði miðað út neyðar-
sendi. Á meðan beðið var eftir
staöfestingu barst tilkynning
frá flugvél sem hafði heyrt í
neyðarsendi og í framhaldi af
því var áhöfn björgunarbát-
ursins Daníels Sigmundssonar
kölluð út til að miða út send-
inn í Djúpinu. Skömmu síðar
barst tilkynning um rækjubát
á hvolfi í Mjóafirði. Þegar
björgunarbáturinn kom á slys-
stað var þyrla Gæslunnar að
koma á vettvang, auk þess sem
flugvél Flugmálastjórnar hafði
sveimað yfir honum. -grh
Himnaríki fer
til Svíþjóöar
Nefnd á vegum Norrænu ráö-
herranefndarinnar um leik-
hús og dans á Norðurlöndum
hefur úthlutaö styrkjum svo
auðvelda megi uppsetningar
leikrita á öörum Norðurland-
anna.
Við úthlutunina komu um
450.000 kr. í hlut Hafnarfjarðar-
leikhússins til að sýna Himna-
ríki eftir Árna Ibsen í Svíþjóð.
Þórey Sigþórsdóttir fékk styrk til
að sýna leikritið Varalitur og
hraun í Jónshúsi í Kaupmanna-
höfn. ■
Páll Skúla-
son ekki í
frambob
Páll Skúlason, prófessor ætlar
ekki aö bjóða sig fram til emb-
ættis forseta íslands.
Páll sendi frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem hann segir m.a.
„Að vandlega athuguðu máli tel
ég ekki rétt að sækjast eftir emb-
ætti forseta íslands. Ég er afar
sáttur við núverandi starfsvett-
vang minn og á þar ólokið ýms-
um verkum sem mér eru hug-
leikin. Þá skal því ekki neitað að
einnig vegur þungt sá fjárhags-
legi kostnaður sem kosingabar-
átta virðist hafa í för með sér."
Páll sendir öllum sem hafa
hvatt hann einlægar þakkir. ■
Formabur Skotvís um veibikortasjób:
Ósáttir vib stofnkostnað