Tíminn - 17.04.1996, Side 3

Tíminn - 17.04.1996, Side 3
Mi&vikudagur 17. apríl 1996 WIÍ!WÍ®Í®Í 3 Gó6 afkoma hjá Kaupfélagi Skagfirðinga Aflvaki: Fullvinnsla sjávarafuröa raunhœfur kostur en varaö viö óraunhœfri bjartsýni: Fullvinnsla sjávarafuröa er ekki töfralausn „Niöurstaöa höfundar er sú aö raunhæfir kostir eru til fullvinnslu sjávarafuröa hér- lendis þegar litiö er til al- mennra aöstæöna, aö upp- fylltum skilyröum um stærö, aögang aö markaöi og hrá- efni og fjárhagslegt bol- magn," segir Einar Kristinn Jónsson rekstrarhagfræöing- ur í skýrslu um fullvinnslu sjávarafuröa á vegum Afl- vaka. Hann varar jafnframt viö óraunhæfum kröfum, hugmyndum og bjartsýni. Fullvinnsla eöa framhalds- vinnsla sjávarafla hérlendis sé ekki til þess fallin aö leysa vanda flestra fiskvinnslufyr- irtækja né atvinnuvanda einstakra byggöarlaga eöa starfsgreina. Höfundi sýnist ein megin- forsendan fyrir sjávarrétta- verksmiðju á Islandi vera sú aö hún sé nægilega stór til aö standa undir þeirri umfangs- miklu vöruþróun sem slík framleiðsla krefst. Einungis ör- fá fiskvinnslufyrirtæki í land- inu virðast hafa nægilega buröi til aö standa fyrir svo umfangsmikilli framhalds- vinnslu aö hún standist kostn- aöarsama vöruþróun og mark- aðskröfur til lengri tíma. Fisk- réttaverksmiðja yrði að fram- leiða að lágmarki 10-15 þúsund tonn á ári, þ.e. álíka og stærstu fiskvinnslufyrirtæk- in í landinu (innvegið hráefni til Granda er t.d. um 15 þús.t á ári). Slík verksmiðja mundi veita atvinnu fyrir 150-400 manns. Óraunhæft væri að ætla að hægt sé aö reisa hér margar slíkar verksmiðjur. Miðað við framboð hentugs hráefnis sé ekki raunhæft að ætla að grundvöllur sé fyrir fleiri en eina stóra framleiðslu- einingu m.v. núverandi skil- yrði, eða í besta falli tvær á að- skildum svæðum og í mis- munandi framleiðslu. Viðbúið væri að flytja þyrfti inn er- lendan fisk til vinnslunnar. Aðeins örfá þéttbýlis- og at- vinnusvæöi komi til greina þar sem saman fari fullnægj- andi framboð á fjölbreyttu og sumpart vel menntuðu vinnu- afli, umfangsmikil umskipun- arhöfn og greið nálægð við hefðbundnar fiskvinnslu- stöðvar. Höfuðborgarsvæðið væri einn álitlegasti staðarval- kosturinn fyrir slíka starfsemi. Einar Kristinn nefnir ýmis rök þeirra íslensku fyrirtækja sem reka fiskréttaverksmiðjur erlendis, einkum í Evrópu, frekar en hérlendis. Aðveldara sé að koma þeim vörum í dreifingu hjá heildsölufyrir- tækjum sem framleiddar eru í viðkomandi landi, einkum þó í Þýskalandi. Lítil hefð sé fyrir fiskréttaframleiðslu hérlendis, heimamarkað skorti og þjálfað starfsfólk í matvælaiðnaði sömuleiðis. Framleiðsla 200- 300 vörutegunda kalli á flókna framleiðslu- og birgðastýr- ingu. Stærstu viðskiptavinir ís- lenskrar fiskvinnslu séu jafn- framt fiskréttaframleiðendur, þannig að framleiðsla hér- lendis í samkeppni við þá mundi styggja þá og stugga frá. Styrkjakerfi í ESB og Nor- egi virðist greiða allt að 25- 50% af fjárfestingum í bygg- ingum og tækjabúnaði, en því sé tæpast til að dreifa hér. Næsti áfangi þessa verkefnis af hálfu Aflvaka hf. felst í nán- ara mati á íslenskri samkeppn- isstöðu með ítarlegum saman- burði á innlendum og erlend- um rekstrarskilyrðum „sjávar- réttaverksmiðju". Til nokkurs samanburðar má benda á aö 420 starfsmenn fiskréttaverksmiðju SH í Band- ríkjunum framleiddu 25 þús- und tonn árið 1994 fyrir 7,3 milljarða króna (292 kr./kg). Álíka margir starfsmenn verk- smiðju SH í Bretlandi fram- leiddu hins vegar nærri helm- ingi minna, eða 13.600 tonn fyrir 3,6 milljarða (265 kr./kg), m.a. fiskborgara fyrir McDon- alds. Frá Cuttormi Óskarssyni, fréttaritara Tímans á Saubárkróki. Hagnaður af rekstri K.S. án þátt- töku í rekstri dótturfyrirtækja félagsins nam kr. 20,3 milljón- um á árinu 1995 en á árinu 1994 var hagnaburinn 24,8 milljónir. Ef tekib er tillit til áhrifa af rekstri dótturfyrir- tækja og þeirra fyrirtækja sem K.S. á eignarhlut í er hagnabur- inn á sl. ári 135,2 milljónir en var 13,6 milljónir á árinu 1994. Þarna kemur til sala á togar- anum Drangey SK. sem seldur var til Vopnafjarðar á árinu. Eigið fé K.S. var 1.224,3 millj- ónir í árslok og eiginfjárhlutfall var 55,1% en var 52% árið 1994. Velta Kaupfélags Skagfiröinga og dótturfyrirtækja þess nam 5,8 milljörðum á liðnu ári, þar af nam velta Fiskiðjunnar Skag- firðings 3,1 milljarði, sem er um helmingur veltunnar. Hlutur landbúnaðar var 769 milljónir og fer minnkandi sökum sam- dráttar í landbúnaði. En K.S. hefur fjárfest mikið í sjávarútvegi, til dæmis hefur fé- lagið fjárfest í skagfirskum sjáv- arútvegi 210 milljónir á tíu ára tímabili. Kaupfélag Skagfirðinga á 75% í Fiskiðjunni Skagfirðingi. Hjá K.S. og dótturfyrirtækjum þess vinna um 500 manns. ■ Kaupfélag Dýrfirbinga og Fáfnir hf.: Afkoman snúist úr tapi í gróða Skapti Haraidsson, prentari í Odda, skoöar arkir úr nýju símaskránni. Tímamynd: þök Símaskráin, 190 þúsund eintök og hvert þeirra 1,8 kíló aö þyngd, í prentvélunum í Odda: Þungt plagg en boöiö upp á tvískiptingu Rúmlega 5 milljóna króna hagnaöur varb af rekstri Kaupfélags Dýrfirbinga á síð- asta ári (4,7% af veltu) þar af 1,5 milljónir af reglulegri starfsemi. Vörusala félagsins og aðrar tekjur námu rúm- lega 106 milljónum kr. á ár- inu. Helmingur veltunnar var í abalbúb félagsins og tæplega fjórðungur í sölu- skála. Sala sérvöruverslunar minnkaði um rúman fjórb- ung milli ára, í kjölfar tak- markana á afgreiöslutíma og minna vöruvals. Átti það stóran hlut í nærri 9% sölu- samdrætti verslunardeilda í heild. Umskiptin voru veruleg m.v. 131 milljóna króna tap á félag- inu árið ábur, nær alfarið vegna afskrifta hlutafjár og við- skiptakrafna hjá dótturfyrir- tækinu Fáfni hf., sem er að 60% hluta í eigu Kaupfélags Dýrfirðinga. Félagið á einnig nærri helmingshlut í Sláturfé- laginu Barba hf. í frétt af aöal- fundi Kaupfélags Dýrfirðinga segir að miklu skipti fyrir fram- tíð kaupfélagsins að vel takist til í rekstri Fáfnis hf. og Barða hf., sem bæði hafa átt í fjár- hagslegum erfiöleikum. En veruleg umskipti urðu í rekstri Barða á síðasta ári. Aðalfundur Fáfnis hf. fjallaði um afbrigðilegt rekstrarár eftir nauðungarsamninga félagsins, sem byggðust á því að selja frystitogarann Sléttanes ÍS í aprílmánuði 1995. Óreglulegar tekjur Fáfnis vegna sölunnar og niðurfellingar skulda urðu hátt í 500 milljónir. Tap af reglulegri starfsemi, sem varð 120 milljónir árið 1994, fór lækkandi árið 1995. Taprekstur á bolfiskvinnslu er mönnum samt ennþá áhyggjuefni og leitað er leiða til ab vinna félag- ið út úr þeirri stöðu. Fram- leiðsla í frystingu og söltun varb 150% meiri á fyrsta fjórð- ungi þessa árs en á sama tíma- bili 1994 og framleiðsla fiski- mjöls hefur sexfaldast. Við nú- verandi aðstæður er ekki reikn- að með taprekstri á árinu 1996. Ýmislegt gæti þó skekkt þá mynd, t.d. verðbreytingar hrá- efnis og afurða og kostnaður af auknu birgðahaldi. Áhugi er fyrir að auka hlutafé í Fáfni og aðilar með skip og kvóta boðnir sérstaklega vel- komnir, enda em möguleikar til framleiðsluaukningar í ný- legu frystihúsi Fáfnis. Hjá Fáfni er einnig vilji til viðræðna um öflugt fiskvinnslu- og útgerðar- fyrirtæki á Vestfjörðum. Ein bók, rúmlega 1,8 kíló á þyngd sem samsvara tæplega 4 smörlíkisstykkjum, verbur afhent símnotendum í lok næsta mánabar. í Prentsmiðj- unni Odda er nú verið ab prenta símaskrána nótt sem nýtan dag. Upplagib í ár verb- ur 190 þúsund stykki. Hrefna Ingólfsdóttir, blaba- fulltrúi Pósts og síma, sagði í gær að bókin yrði um 1.100 síð- ur, eða 70 síðum minni en símaskrárnar tvær í fyrra. Boðið er upp á skrána með linum káp- um og hörðum. „Af því að við vitum núna að ákveðinn hópur fólks vill hafa skrána í tveim bindum til hægð- arauka fyrir sig, þá verður bobið upp á það ab fá bókina þannig. Þá skiptist bókin eftir miðju, Reykjavík öðru megin og lands- byggðin hinu megin. Reykjavík- urbókin talsvert stærri," sagði Hrefna í gær. Póstafgreiðslufólk segist eiga von á góðu. í Kópavogi sagði stöðvarstjórinn að á símstöð- inni þar yrðu um 10 þúsund símaskrár afhentar bæjarbúum og fyrirtækjum. Framundan væru því miklar lyftingar á þungri bók. Slík vinna tæki óneitanlega talsvert á. -JBP Absendar greinar scm birtast eiga í blaöinu þurfa aö vcra tölvuscttar og vistaöar á diskling sem texti, hvort scm cr í DOS cöa Macintosh umhverfi. Vclrit- aöar eöa skrifaöar grcinar geta þurft aö bíöa birtingar vegna anna viö innslátt.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.