Tíminn - 17.04.1996, Qupperneq 10

Tíminn - 17.04.1996, Qupperneq 10
10 gtmtnn Miðvikudagur 17. apríl 1996 Stórsýningin ofhlabin Freyja Hilmarsdóttir og Olil Amble á hryssum sínum. Tímamynd Eiríkur jónsson Hestamannafélagið Fákur gekkst fyrir stórsýningu hesta- manna í Reiðhöllinni í Víðidal um síðustu helgi. Þátttakendur í þessari sýningu voru auk Fáksmanna hestamannafélög- in í nágrenni Reykjavíkur, en auk þess komu kynbótahross víða að. Það, sem háði þessari sýningu, var að hún var ofhlaðin. Það þarf að gæta þess við sýningar í Reið- höllinni að þær taki ekki yfir lengri tíma en tvær og hálfa klukkustund. Þaö var hins vegar gaman að gefa svo mörgum hestamannafélögum færi á því að kynna sig. En þá þarf að gæta þess að fjölbreytni sé í þeirri kynningu og ekki séu allir með skrautsýningar. Þarna vantaði meiri mun á sýningaratriðum. En ég endurtek að atriðin vom vel æfð og skiptingar gengu vel. Skemmtilegasta sýning aðkomu- félaganna fannst mér vera frá Herði í Mosfellsbæ, en þar sýndu 10 konur gæðinga sína í vel æfðri sýningu. Þau atriði, sem þarna voru til skemmtunar umfram hefð- bundnar hestasýningar, voru vel heppnuð. Má þar minna á sýn- ingu Ástu Dóru á tamningu hunda og kindar. Þetta atriði vakti mikla kátínu sýningar- Hestarnir Eins og greint hefur verib frá, þá nálgast óðum sýningar kynbóta- hrossa. Mjög margir stóðhestar eru í þjálfun vítt og breitt um landið. í HESTAMÓTUM á næst- unni munum við flytja fréttir af þeim hestum, sem nú koma í dóm í fyrsta sinn, svo og af þekkt- um stóðhestum sem fara í endur- dóm. Byrjað verður á því að segja frá hestum sem stefnt er með á FM'96, en þeir skipta trúlega tugum. Hjá Eiríki Guðmundssyni á Heiði er ungur foli, Garri brúnn 4 v. frá Gmnd í Hrunamannahreppi. Hann er undan Kveik frá Miðsitju og Flugsvinn frá Bræðratungu, sem sagt hálfbróðir Gusts frá Gmnd sem nú skín sem skærast. Garri er í eigu Einars Loga Sigurgeirssonar á Flúð- um. Elri frá Heiði, sem líka er hjá Ei- ríki, fer í endurdóm í vor. Elri er undan Hrafni frá Holtsmúla og Selju frá Hreðavatni. Hann er að hluta í eigu Hrossaræktarsambands Suðurlands. Hópur af stóðhestum hjá Þórbi Þorgeirssyni Hjá Þórði Þorgeirssyni á Árbakka em margir stóðhestar í þjálfun sem stefnt er með á FM'96. Við byrjum á sonarsyni Rauðhettu, Stefni frá Kirkjubæ. Stefnir er rauðnösóttur 5 v. undan Glúmi frá Kirkjubæ og Andromedu frá Kirkjubæ. Glúmur faðir hans er undan Raubhettu Þátt- ardóttur, þeirri frægu hryssu, og móðirin er líka Þáttardóttir. Stefnir er í eigu Kirkjubæjarbúsins. Þá er Svaði frá Árbakka, rauður 4 v. und- an Biskupi frá Hólum og Emblu frá Árbakka. Svaði er í eigu Árbakka- búsins. Annar hestur í eigu þess bús er Álftarleggur, leirljós, glófextur, blesóttur 5 v. Hann er undan Byl frá Kolkuósi og Kolbrá frá Tungu á Svalbarðsströnd, sem sagt hrein- ræktaður Kolkuóshestur. Þar næst er Öngull rauðblesóttur 4 v. frá Akurgerði undan Anga frá Laugarvatni og Stjörnu frá Akur- gerði. Eigandi Önguls er Guðmund- ur Ingvarsson. HEJTA- MOT KARI ARNORS- SON gesta. Sama má segja um kerru- aksturinn þar sem danskur kerrumeistari sýndi listir sínar. Kerruakstur hlýtur fyrr eba síðar að koma upp sem keppnisgrein á íslandi, enda hafa íslenskir brokkhestar sýnt að þeir valda vel þessu verkefni. Brokkiö í Gusti frá Grund í sérflokki Af kynbótahrossunum, sem þarna komu fram, vakti Gustur frá Gmnd mesta athygli. Hann var sýndur af hestaíþróttamanni ársins, Sigurði Matthíassyni. Gustur hefur nú skotist upp á stjörnuhimininn, sem sýnir hve nauðsynlegt er fyrir stóbhesta- eigendur að koma hestum sín- um á framfæri öbm hverju, en þeir þurfa þá ab vera í góðu formi, eins og Gustur virðist vera núna. Abalsmerki Gusts er Þá er Þórður með nokkra eldri hesta, sem verða endurdæmdir. Þar má nefna Jó frá Kjartansstöðum, Galdur frá Laugarvatni og Kolfinn frá Kvíarhóli, sem allir eru 1. verð- launa hestar. Því hefur einnig verið hvíslað að Seimur frá Víðivöllum fremri komi í dóm. Ekki er þó tekin ábyrgö á þeirri frétt. Þá er Þórður með í þjálfun Galsa Angason frá Ytri-Skógum, sem kom 4 v. í dóm í fyrra og verður nú endurdæmdur. í framhjáhlaupi má geta þess að hjá Þórði er grár Orrasonur 5 v. frá Glúmsstöðum á Héraði. Móðirin er Birta frá Mýnesi undan Gáska frá Hofsstöðum. Þessi foli fer í dóm í vor, en hann á ekki rétt inn á fjórð- brokkið og þar stendur hann í fremstu röð stóðhesta. Hann skeiðaði líka vel á þessari sýn- ingu. Þá voru sýndir þrír bræður frá Brún við Akureyri. Menn vom spenntir fyrir því að sjá þann yngsta, Hljóm frá Brún, en hann hafði ekki sést hér syðra áður. Þessi hestur fékk óvenju háan hæfileikadóm á síðasta ári, þá 4ra vetra. En hann stóð ekki undir þeim dómi nú. Kannski þarf hann lengri hvíld eftir sum- arið í fyrra, en svo eiga hestar sína misjöfnu daga eins og mannfólkið. Hinir bræburnir stóðu fyrir sínu. Kjarnholtastóðhestarnir vom margir mættir til leiks og er með ólíkindum hve Magnús í Kjarn- holtum hefur komið fram með marga frambærilega stóbhesta nú síðustu árin. En fyrir flokkn- um fór kynbótahryssan og stób- hestamóðirin Klobrá frá Kjarn- holtum og var gaman að sjá til- þrifin hjá þessu hrossi 19 vetra gömlu, sem verið hefur í folalds- eign á annan áratug. Af Kjarnholtahestunum fannst mér mest til um Sindra og Kolskegg. Þeir hafa létta bygg- ingu og eru fluga reiðhestar. En þetta er persónulegt mat og verður að líta á það sem slíkt. ungsmótið. Jarl Kolfinnsson frá Búðardal fer líka í dóm. Móðir hans er Rispa frá Búðardal. Jarl er rauð- blesóttur 5 v. uppalinn á Stóðhesta- stöðinni og er í eigu Skjaldar Skjald- arsonar í Búðardal. Piltssonurinn Heljar frá Skarði, sem er í eigu Kari Berg á Gullberastöðum, fer líka í dóm. Móðir hans er Helena frá Skarði. Hver veit nema Þórður lumi á fleiri hestum, sem við getum sagt frá seinna. í næstu HESTAMÓTUM verður sagt frá hestum á Stóðhestastöðinni og fleiri tamningamenn bætast svo í hópinn. Aðrir stóðhestar, sem þarna komu fram, eru góðir gripir, en bættu ekki við þab sem sést hef- ur til þeirra áður. Þab sama gildir um systkini frá Bjarnanesi. Af kynbótahryssunum er það að segja að þar hefði veriö nóg að vera með eina sýningu úr hvorum flokki, A og B. Þetta voru góðar hryssur sem menn geta verið ánægðir með, en fátt um stjörnur sem menn eru m.a. að koma á svona sýningar til að sjá. Fákur á stóran hóp afreksmanna í hestaíþróttum Sýning þeirra Fáksbræðra Sig- urðar og Davíðs Matthíassona var skemmtileg, en þó verða þeir sem aðrir að gæta þess ab ríða ekki of geyst í Höllinni, því beygjur eru þar krappar og ekki ástæða til að þenja gæðingana þar. En þeir bræður eru nú með- al snjöllustu knapa í hópi yngri manna. Eins var gaman að sjá þær stöllur Freyju Hilmarsdóttur og Olil Amble. Þær riðu hryssum sínum settlega og sýndu að kon- ur standa körlum ekki að baki í hestamennskunni, hvort heldur er í reiðmennsku eða ræktun. Það kom líka mjög vel út á þess- ari sýningu hve jafnt var þar skipt milli kynja og kynslóðabil var þar ekki fyrir hendi. Þetta er eitt af aðalsmerkjum hesta- mennskunnar og gott að það komi fram á svona sýningum. Á þessari sýningu fór fram töltkeppni. Það er þáttur sem mér finnst að ekki eigi þar heima. Töltkeppnin er of tíma- frek og passar tæplega inn sem sýningaratriði. Sýning á tveimur til fjómm úrvalstölturum er bet- ur við hæfi í svona dagskrá. Það er hins vegar alltaf gaman að sjá vekringum hleypt góðan sprett í gegnum Höllina. Sýningar Fáksmanna sýndu ab þeir eiga marga afreksmenn í hestaíþróttum. Skrautsýning þeirra var vel útfærð og búningar skemmtilegir. Sú sýning hefði notið sín enn betur, ef ekki hefði verið jafn mikið af skrautsýning- um og raun bar vitni. Þó hér sé að ýmsu fundið varð- andi sýninguna, þá var yfirbragð hennar gott, en hún var verulega ofhlaðin eins og fyrr segir. Sú hugmynd sýningarstjóra að bjóða nágrannafélögunum að vera meb er góð, og ástæða til að efna til slíkra sýningar árlega. Það hve atriðin voru hvert öðru keimlíkt nú verður að teljast byrjunarörbugleikar. Það verður betra næst. Á öllu þessu svæði er mikil gróska í hestamennsku og alveg þess virði að því sé komið á framfæri, og á Fákur þakkir skilið fyrir þab. Drög að dagskrá Fjórðungsmóts hestamanna Aðalvöllur: Miðvikudagur 3. júlí Brekkuvöllur: Laugardagur 6. júlí Kl. 14:00 Mótssetning Kl. 09:00-12:00 A-flokkur gæðinga — dómar Kl. 14:30- 19:00 Hæfileikadómar kynbótahrossa Kl. 13:00-16:00 B-flokkur gæðinga — dómar Hryssur 4 v. Bama- og unglingavöllur: Hryssur 5 v. Kl. 09:00-12:00 Unglingaflokkur — dómar Aðalvöllur: Fimmtudagur 4. júlí Barnaflokkur — dómar Kl. 09:00-12:00 Hæfileikadómar kynbótahrossa Kl. 13:00-16:00 Barnaflokkur — dómar, framhald Hryssur 6 v. og eldri Ungmennaflokkur — dómar Kl. 13:00-19:00 Hæfileikadómar kynbótahrossa Aðalvöllur: Stóðhestar 4 v. Kl. 16:30-19:30 Ræktunarbússýningar Stóðhestar 5 v. Sýning afkvæmahrossa Stóðhestar 6 v. og eldri Ræktunarbússýningar — framhald Brekkuvöllur: Kl. 20:30 Úrslit í úrvalstölti á íþróttavelli Kl. 09:00-12:00 Forkeppni — B-flokkur. Kvöldvaka Kl. 13:00-16:00 Forkeppni — A-flokkur. Dansleikur Bama- og unglingavöllur: Aöalvöllur: Sunnudagur 7. júlí Kl. 09:00-12:00 Forkeppni — Unglingaflokkur Kl. 10:00-11:30 Hópreið, helgistund, ávörp Kl. 13:00-17:00 Forkeppni — Barnaflokkur Kl. 14:15-15:30 Kynbótareib, verðlaun íþróttavöllur: Forkeppni — Ungmennaflokkur Hryssur 4 v. Hryssur 5 v. Kl. 20:00-22:30 Forkeppni úrvalstöltara Hryssur 6 v. og eldri Aöalvöllur: Föstudagur 5. júlí Hryssur með afkvæmum Kl. 09:00-13:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa Kl. 15:30-17:00 Kynbótahross, verðlaun Hryssur 4 v. Stóðhestar 4 v. Hryssur 5 v. Stóðhestar 5 v. Hryssur 6 v. og eldri Stóðhestar 6 v. og eldri Kl. 14:00-16:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa Stóðhestar 4 v. Brekkuvöllur: Stóðhestar með afkvæmum Stóðhestar 5 v. Kl. 12:30-14:00 Barnaflokkur — úrslit Stóöhestar 6 v. og eldri B-flokkur — úrslit Kl. 16:30-17:30 Afkvæmasýndar hryssur Ungmennaflokkur — úrslit Kl. 17:30-19:00 Afkvæmasýndir hestar Kl. 17:15-18:30 Unglingaflokkur — úrslit Allir hópar sýndir í röð eftir mótsskrá. A-flokkur — úrslit Kl. 20:00-23:00 Kappreiðar — undanrásir og úrslit. Kl. 18:30 Mótsslit Kl. 19:00 Sameiginlegur útreiðartúr Kl. 23:00 Dansleikur sem vib sjáum í vor

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.