Tíminn - 17.04.1996, Page 16

Tíminn - 17.04.1996, Page 16
T Vebriö (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland og Faxaflói: Austan og noröaustanátt, víöast stinnings- kaldi. Smáskúrur á stöku staö, en úrkomulaust aö mestu seinna í dag. Hiti 7 til 11 stig • Breiöafjöröur: Noröaustan stinningskaldi eöa allhvasst. Úrkomu- laust aö mestu. Hiti 2 til 5 sitg. • Vestfiröir: Víöa hvassviöri í dag. Él, einkum noröan til. Hiti um eöa rétt yfir frostmarki. • Strandir og Noröurland vestra: Norölæg átt, allhvasst á annesj- um. Skúrir eöa slydduél. Hiti 0 til 3 stig. • Noröurland eystra: Noröaustan kaldi og fer aö rigna, en dálítiö él þegar kemurfram á daginn. Hiti 1 til 5 stig. • Austurland aö Glettingi og Austfiröir: Austan kaldi og rigning, en skúrir síödegis. Hiti 3 til 6 stig • Suöausturland: Skúrir. Hiti 5 til 9 stig. Þorsteinn hafbi ekkert samráö viö fiskvinnslufólk áöur en hann tók ákvöröun um þorskkvótann: Fiskvinnslufólk virt aö vettugi „Við erum mjög óánægb með þessi vinnubrögb. Það er alveg furbulegt þegar verib er ab tala vib hagsmunaabila í sjávarút- vegi ab þá skuli rödd fisk- vinnslufólks ekki hafa verib hleypt ab, eins og þab hafi engra hagsmuna ab gæta," segir Abalsteinn Á. Baldursson for- mabur fiskvinnsludeildar Verkamannasambands íslands. Hann segist ætla ab taka þetta mál upp á fundi framkvæmda- stjórnar VMSÍ sem haldinn verbur um helgina á Hellu. Mikil gremja og óánægja er meðal fiskvinnslufólks víba um land vegna þeirra vinnubragða Þorsteins Pálssonar sjávarút- vegsrábherra að ráðfæra sig ekki vib fulltrúa fiskvinnslufólks eins og annarra hagsmunaaðila í sjávarútvegi ábur en hann tók ákvörbun um það ab auka ekki þorskkvótann á yfirstandandi fiskveiðiári. En eins og kunnugt er þá kallaði rábherra til fundar við sig sl. sunnudag fulltrúa út- vegsmanna, sjómanna, vél- stjóra, smábátaeigenda og fisk- vinnslunnar til ab heyra sjónar- mib þeirra til kvótaaukningar í þorski. Ennfremur ráðfærði ráb- herrann sig við fulltrúa frá Far- manna- og fiskimannasam- bandinu áður en hann tók sína ákvörbun í málinu. Formaður fiskvinnsludeildar VMSÍ segir að persónulega væri hann þeirrar skoðunar að ráb- herra hefði átt að nota tækifær- ið og auka við þorskkvótann. Þó með því skilyrði að sá umfram- kvóti kæmi allur til vinnslu hér innanlands.. Hann segir ab þótt hann leggi mikið upp úr þekk- ingu og ráðgjöf fiskifræðinga, þá sé nauðsynlegt að leggja eyru við því sem sjómenn segja um aukna þorskgengd á miðunum. -grh Forstjóri Hafró segir ummœli um of náin tengsl stofnunarinnar viö sjávarútvegsráöuneytiö fráleit: Enginn þrýstingur Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar seg- ist aldrei hafa orbib var við þrýsting frá Sjávarútvegsráöu- neytinu varðandi störf stofn- unarinnar. Hann segir áhyggj- ur manna af því ab stofnunin sé of nátengd ráðuneytinu illskiljanlegar. Guðný Guðbjörnsdóttir al- þingismaður lét það álit sitt í ljós á Alþingi í fyrradag að ástæða væri til að auka sjálf- stæði Hafrannsóknarstofnunar. Guðný telur það geta háð stofn- uninni í starfi sínu að hún sé of nátengd pólitísku valdi vegna tengsla hennar við sjávarút- vegsráöuneytið. Jakob Jakobsson, forstjóri Hafró segir þessi ummæli ekki eiga við rök að styðjast. „Það væri undarlegt ef sjávar- útvegsráðuneytið væri að þvinga okkur til að koma með eins lágar ráðleggingar og mögulegt er. Ég hefði skiliö þessa gagnrýni ef við værum með mjög háar ráðleggingar í Einn látinn eftir sýkingu Ástand sjúklinganna tveggja sem liggja alvarlega veikir á Landspítalanum og Sjúkra- húsi Reykjavíkur af völdum salmonellu-sýkingar er óbreytt ab sögn Karls G. Krist- inssonar, formanns sýkinga- vamanefndar Landspítalans. Eitt dauðsfall hefur orðið á Landspítalanum sem að hluta til má rekja til salmonellu-sýk- ingarinnar. í öllum þessum þremur tilfellum er um ab ræða sjúklinga sem voru alvarlega veikir fyrir. -GBK afla og aðrir náttúrufræðingar að vara við glannaskapnum í okkur. En þetta er alveg gagn- stætt og þingmenn gera því skóna að náttúrufræðingar utan Hafrannsóknarstofnunar, sem eiga ab standa vörð um náttúru landsins, telji óhætt að veiða meira en viö leggjum til. Það er auðvitað fráleitt að eitthvað pólitískt vald sé að þvinga okkur til þess." Jakob bendir einnig á að í ljósi sögunnar sé fráleitt að segja að Hafrannsóknarstofnun starfi í skjóli sjávarútvegsráðuneytis- ins. í því samhengi minnir hann á deilur stofnunarinnar við ýmsa fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra. -GBK Vœnn stafli af umsögnum um frumvarp til laga um breytingar á lögum um stéttarfélög og vinnu- deilur hafbi borist inn á borb félagsmálanefndar Alþingis í gœr, en í dag rennur út frestur til skila inn umsögnum. Mikil vinna er því framundan hjá nefndarmönnum og formanni nefndarinnar, Kristínu Ástgeirsdóttur þingkonu Kvennalista. Ef ab líkum lætur munu þó umsagnir frá verkalýbs- félögum vera nánast á einn veg, þar sem þess er krafist ab frumvarpinu verbi vísab frá. Tímamynd: ÞÖK Mótmceli í utandagskrárumrœöu á Alþingi: Reglugerb um takmörkun á upplýsingum úr skattskrá Svavar Gestsson alþm. rébst í utandagskrárumræöu á þingi í gær harkalega á reglugerb nr. 176 frá 20. mars síöastliðnum um birt- ingu, útgáfu og aöra meö- ferb upplýsinga úr álagn- ingaskrá, skattskrá og virbis- aukaskattskrá. Hann sagöi ab meö þessari reglugerð væri verib ab takmarka upp- lýsingar til almennings um álagningu og tekjur einstak- linga og fyrirtækja og væru sumar greinar reglugeröar- innar næsta einstæðar. í reglugerðinni segir meðal annars aö öll útgáfa upplýs- inga úr álagningaskrá sé óheimil, hvort heldur í heild eða að hluta. Þó sé fjölmiðlum heimilt að birta upplýsingar úr álagningarskrá á þeim tíma sem hún liggi frammi. Aðeins megi þó birta upplýsingar á þann hátt sem þær komi fram í skránum en öll úrvinnsla úr þeim óheimil. Þá sé einnig óheimilt að birta kennitölur í álagningarskrám. Svavar Gestsson sagði að Verslunarráð íslands hafi kvartað yfir því að fjölmiðlar reiknuðu út tekjur einstak- linga og fyrirtækja eftir álögð- um gjöldum og hér væri því á ferðinni ritskoðun samkvæmt beiðni ráðsins. Tölvunefnd hafi haft þessa beiðni um að takmarka að- gang að skattskrá til meðferðar en ekki talið ástæðu til breyt- inga, en hjá fjármálaráðuneyt- inu hafi aðstandendur Versl- unarráðsins fengið umbeðna þjónustu. Kristín Ástgeirsdóttir, Kvennalista, sagði að um ára- tuga skeið hafi tíbkast að birta lista yfir hæstu skattgreibend- ur og reikna tekjur þeirra úr frá upplýsingum í skattskrá. Fjár- málaráðuneytiö hafi nú brugbist vib á þann hátt ab takmarka möguleika til slíks. Taldi ræöumaður að það myndi stangast á við frumvarp um upplýsingalög. Rannveig Guðmundsdóttir, Alþýðu- flokki, ræddi meðal annars um að þeir aðilar sem hefðu lága álagningu, stundum kallað vinnukonútsvar, vildu ef til vill fela kvað þeir greiddu til samfélagsins, en óþolandi væri að sjá ráðherra setja regl- ur sem drægju úr upplýsinga- skyldu stjórnvalda. Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóðvaka, krafðist þess ab rábherra tæki reglugerðina til baka en að öðrum kosti verði þingið að grípa inni og setja lög, sem tryggi að umræddar upplýs- ingar fái að koma fram. Sig- hvatur Björgvinsson, Alþýðu- flokki, benti á að samkvæmt reglugerðinni væri öll úr- vinnsla upplýsinga úr skatt- skrá óheimil og skipti þá engu hvort þær væru ætlaðar til birtingar eða ekki. Jón Kristjánsson, Framsókn- arflokki, tók undir þau sjónar- mib að ekki eigi að takmarka upplýsingar úr skattskrá og sagði að þær veittu abhald. Hann sagði að rétt væri aö taka þetta mál til nánari um- fjöllunar í tengslum við frum- varp til upplýsingalaga, sem nú sé til meðferðar í allsherjar- nefnd þingsins. Friðrik Sophusson, fjármála- rábherra, vísaði ummælum Svavars Gestssonar um að um- rædd reglugerð væri sett að beiðini Verslunarráðs íslands á bug. Reglugerðin væri sett sam- kvæmt bréfi Tölvunefndar og þótt rábherra dragi hana til baka myndi þab engu breyta um efni hennar þar sem Tölvunefnd hefbi vald í þessu máli. Fjármálarábherra viður- kenndi gagnrýni á reglugerð- ina og kvaðst hafa óskað eftir því ab málið yrði skoðað betur í ljósi þeirra umræðna sem um það hafi orðiö. -ÞI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.