Tíminn - 19.04.1996, Síða 8

Tíminn - 19.04.1996, Síða 8
8 Föstudagur 19. apríl 1996 Þab yröi kostnabar- samt og hœttulegt fyrir Bandaríkin, er sagt í Washington. Og í því hefbu Bandaríkin varla neina áreibanlega bandamenn, eins og í kalda stríbinu vib Sovétríkin Fyrir skömmu þótti ófrið- lega horfa í samskiptum Kína og Taívan og margt er í óvissu viðvíkjandi fram- vindu þeirra mála. í því sam- hengi er bollalagt um að kalt — ef ekki heitt — stríð Bandaríkjanna og Kína geti verið í aðsigi. í Bandaríkjunum og víðar þykir mörgum líklegt að Kína stefni að því að gerast forystu- ríki Austur- og Suðaustur-Asíu, risaveldi þess heimshluta eins og það gjarnan var fyrr á tíð. Til þess að færa út ítök sín og áhrif í því samhengi geti ýmsar að- ferðir komið til greina af hálfu Kína. Vera kunni að tilgangur- inn með þeirri útþenslustefnu sé öðrum þræði að leiða athygli almennings frá vandamálum innanlands og valdabaráttan eftir Deng Xiaoping sé atriði í því samhengi. Containment Einnig kunni hér að liggja á bak við þörf, sem kínverskir ráðamenn þykist sjá að sé fyrir hendi, á að sameina þjóðina um eitthvað í stað marxismans-len- ínismans-maóismans, sem mjög sé úr sér genginn sem rík- ishugsjón og hugmyndafræði- legt bindiefni. í því sambandi telji kínverskir ráðamenn hvað vænlegast að leiða athygli síns fólks að fornri frægð Kína og endurreisn þess sem Ríkisins i miðið. í því sambandi hefur komið fram meðal ráðamanna í Wash- ington orðið containment, sem þýtt er „innilokunarstefna". Þetta hugtak var um alllangt skeið leiðarljós Bandaríkjanna í kalda stríðinu gegn Sovétríkjun- um. Samkvæmt því skyldi kom- ið í veg fyrir að Sovétríkin færðu út hernaðarlegt og stjórnmála- legt yfirráðasvæði sitt. Nú hugsa Bandaríkjamenn til þess með hrolli nokkrum aö til greina gæti komið að taka upp containment gagnvart Kína. Hrollurinn í þeim í því sam- hengi er skiljanlegur. Fyrir Bandaríkin myndi þetta hafa í för með sér stórfellda útgjalda- aukningu til hermála. Kína er þegar sjötta mesta viðskipta- land Bandaríkjanna, en með containment yrði að líkindum búið með það. í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, þar sem Bandaríkin hafa yfirleitt fengið sínu framgengt frá því að kalda stríðinu lauk, myndi Kína lík- lega beita neitunarvaldi eitt- hvað álíka títt og Sovétríkin í eina tíð, ef containment yrði upp tekið. Trúlegt er einnig að Kína yrði þá óþjálla Bandaríkjunum en fyrr í kjarna- og efnavopnamál- um. Það myndi og kannski auka á ný aðstoð við Rauða kmera og Norður-Kóreu. Til að bæta sér upp tap vegna minnkandi við- skipta við Vesturlönd og banda- rískra viðskiptahindrana væri Ungt fólk í Hanoi, klcett í stíl viö efnahagsundrin. Svo er nú komiö aö ýmsir telja aö „Charlie" (eins og Bandaríkjamenn kölluöu víetnamska kommúnista í eina tíö) sé oröinn besti vinur Bandaríkjanna í Suöaustur- Asíu. hugsanlegt að það yrði útbærara en fyrr á kjarnavopnatækni við Pakistan, einnig til að efla það gegn Indlandi, sem lengi hefur verið keppinautur Kína. Það myndi e.t.v. tengjast íran (sem þegar kaupir af því mikið af vopnum) vináttuböndum til að tryggja sér olíu, sem það hefur vaxandi þörf fyrir. Ekki einsleit fylking „Aðalvandinn við contain- ment-stefnu [gagnvart Kína]," hefur The New York Times eftir háttsettum (og ónefndum) embættismanni í Washington, „er að við höfum ekki einn ein- asta bandamann í Asíu til að hjálpa okkur til að framfylgja henni. Það var annað með Sov- étríkin. Gegn þeim höfðum við marga góða bandamenn." Og víst er um það að ríki Aust- ur- og Suðaustur-Asíu og Eyja- álfu eru næsta ólíkleg til að skipa sér í einsleita fylkingu um eitt eða neitt, þar á meðal í bandalag gegn Kína. Japan hall- Ætla má aö valdabarátta eftir Deng Xiaoping sé eitt af vandamálum kín- versku forvstunnar. efnahagsmætti Suður-Kóreu, leitar nú eftir bættum samskipt- um við hana. Hætta er á stríði á milli Suður- og Norður-Kóreu. Kínverska borgríkið Singapúr hefur undanfarið sýnt tilburði til þess að hallast að „móður- landinu" og gagnrýnir vestræn gildi. Spáð er góðum sambönd- um milli Kína og Taílands, og Kína er einn besti vinur Búrma erlendis. Ástralía, sem fram að síðari heimsstyrjöld reiddi sig á breska herflotann sér til verndar og síðan um skeið á Bandaríkin, hefur um skeið verið að þreifa fyrir sér um stefnu gagnvart Áustur- og Suðaustur-Asíu ann- ars vegar og Vesturlöndum hins vegar, án þess líklega að hafa komist að niðurstöðu. Von um Víetnam Víetnamskir kommúnistar eru nú líklega sá aðili, sem Bandaríkin hvað helst gætu reitt sig á sem bandamann gegn Kína. Þeir hafa ráðið ríkjum í landi sínu öllu frá því að þeir sigruðu Saigonstjórnina, vin Bandaríkjanna, 1975. Víetnöm- um hefur staðið stuggur af Kína frá fornu fari og verið gæti að þeir væru til viðtals um að leigja Bandaríkjunum flotastöðvar. Eins og sakir standa er heldur gott á milli Rússlands og Kína, og því hefðu Bandaríkin nú, ef verulega kólnaði milli þeirra og Kína, litla möguleika á að geta látið út „rússneska spilið" gegn Kína, hliðstætt því að þau létu út „kínverska spilið" gagnvart Sovétríkjunum á fyrrihluta 8. áratugar. Hvað sem Bandaríkin gera, geta þau ekki hindrað að Kína eflist sem stórveldi, bæði efna- hagslega og í alþjóðastjórnmál- um, segir áðuráminnstur emb- ættismaður. Það, sem hann og fleiri leggja til um stefnu Banda- ríkjanna gagnvart Kína, er „uppbyggileg afskipti" (constructive engagement). Með því mun vera átt að Banda- ríkin haldi áfram að leggja áherslu á samskipti og viðskipti við Kína, þar eð með því móti muni þau hafa möguleika á að hafa áhrif á stefnu þess á ýms- um sviðum, þótt sú viðleitni geti stundum reynst erfið og tekið á taugar og þolinmæði. Veggblöö á Lýörœöismúr í Peking 1979: Köldu stríöi Bandaríkjanna og Kína myndi líklega fylgja aukin harka gegn lýörœöissinnum og andófsmönnum í síöarnefnda landinu. Kalt stríb Banda- ríkjanna og Kína? BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON ast líklega helst að þeim valkosti að treysta því að Bandaríkin vegi á móti Kína, þó með tregðu, sem gæti snúist upp í að það tæki þann kostinn að hall- ast að Kína. Andúð á Japönum er mikil í Suður-Kóreu og má ekki mikið út af bera til að upp úr sjóði milli þess ríkis og Jap- ans, eins og sýndi sig nýlega er deilur blossuðu upp út af skeri í Japanshafi sem bæði ríki telja sig eiga. Kína, hrifið af vaxandi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.