Tíminn - 24.04.1996, Blaðsíða 16
IMWI
Mi&vikudagur 24. apríl 1996
Y
Vebrib (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær)
• Su&urland: Noröaustan kaldi og skýjaö me& köflum. Hiti 4 til 9
stig.
• Faxaflói og Brei&afjör&ur: Austan og nor&austan gola eða kaldi
og sums sta&arléttskýjab. Hiti 4 til 8 stig.
• Vestfirðir: Austan kaldi og bjartvi&ri. Hiti 4 til 6 stig.
• Strandir og Nor&urland vestra: Austan kaldi og skýjab. Hiti 3 til
7 stig.
• Nor&urland eystra: Noröaustan stinningskaldi og hætt vi& smá-
skúrum. Hiti 3 til 5 stig.
• Austurland a& Glettingi og Austfiröir: Allhvass nor&austan og
skúrir eba slydduél. Hiti 2 til 6 stig.
• Su&austurland: Nor&austan og norban kaldi og úrkomulítib. Hiti
4 til 8 stig.
Jón Baldvin Hannibals-
son um skýrslu utanríkis-
rábherra:
Sjö línur
um ESB
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr-
verandi utanríkisrábherra,
sagði ab einungis væri varib sjö
línum til ab fjalla um Evrópu-
málin í skýrslu Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisrábherra á
Alþingi. Hann sagbi ab lítib
væri fjallab um þau tvö stóru
mál, er nú snúi ab íslendingum
á vettvangi utanríkismála, þab
væru hafréttarmálin og sam-
runaferlib í Evrópu.
Jón Baldvin sagbi aö utanríkis-
rábherra segbi þó ab engum leið-
um yröi lokað, en forsætisráð-
herra hafi nýverið látið hafa eftir
sér í blaðaviðtali að umsókn um
aðild að Evrópubandalaginu væri
út í hött.
Jón Baldvin sagði aö ísland hafi
breytt um stefnu í Evrópumálum.
Landið væri aðili að NATO,
OECD og nú síðast aðili að Evr-
ópska efnahagssvæðinu, EES.
Hann sagði aö aðild að Evrópu-
sambandinu væri rökrétt fram-
hald af þessari samvinnu, en nú
hafi íslensk stjórnvöld tekið upp
nýja stefnu. Jón Baldvin vitnabi í
ræðu utanríkisrábherra þar sem
fram kemur að engin boð hafi
borist um breyttar forsendur, er
opnað gætu fyrir þann möguleika
að sækja um aðild að ESB. Hann
sagði að ekki ætti að bíða eftir ein-
hverjum slíkum bobum, heldur
yröu stjórnvöld hér á landi að
vinna heimavinnuna sína, fylgj-
ast með málum og ræba við
bandalagið. Nú væru íslendingar
áhrifalausir hvað ESB-málefni
varðar, en vegna EES-samningsins
þyrftu þeir að taka þegjandi við
margvíslegum reglum sem frá
Evrópu bærust. Jón Baldvin kvað
einkennandi að þeir, sem hæst
hefðu talað gegn EES-samningn-
um á sínum tíma, væm þeir sem
lofuðu hann mest í dag og teldu
hann leysa allan vanda varðandi
samskipti við Evrópu. -ÞI
Ríkisstjórnin styöur alþjóöavœöingu fyrirtœkja og leggur áherslu á samvinnu stjórnvalda og
einkageirans á alþjóölegu viöskiptasviöi. Utanríkisráöherra:
Víðtækt samráð
skapar sóknarfæri
„Ef stjórnvöld og einkageir-
inn taka höndum saman,
má opna dyr sem annars
væru lokaðar," sagbi Halldór
Ásgrímsson utanríkisráb-
herra í ræbu sinni um utan-
ríkismál á Alþingi í gær.
Hann sagbi ríkisstjórnina
stabrábna í því ab stybja
framkomna þróun í alþjóba-
væbingu vibskiptalífsins,
sem sjávarútvegurinn hefur
leitt, og brýnt væri ab „sam-
eina sem mest dreifba krafta
okkar á hinu alþjóblega viö-
skiptasvibi."
Meðal annars hefði þegar
náðst árangur af þessari sam-
vinnu í viðskiptum við Rúss-
land og í ágúst er t.d. fyrirhug-
uð ein viðamesta viðskiptaferð
á vegum utanríkisráðuneytis-
ins og einkaaðila til Kóreu. Þá
lofa góðu ferðir sem farnar
hafa verið til Pakistan, Suður-
Afríku og Namibíu.
Ráðherrann minnti á að í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar væri lögð áhersla á að
sameina krafta opinberra aðila
og stofnana, sem á einn eða
annan hátt koma að útflutn-
ingsmálum. í því sambandi
hefur samstarf utanríkisráðu-
neytisins og Útflutningsráðs
verið eflt með það m.a. að
markmiði að virkja þau áhrif
og tengsl, sem ráðuneytið hef-
ur víða um heim, og tengja
það við þá þekkingu og sam-
bönd sem Útflutningsráð hef-
ur í íslensku viðskiptalífi. Auk
þess væri í utanríkisráðuneyt-
inu unnið að útflutnings-
hvetjandi aðgeröum í sam-
Menntamálaráöuneytiö kaupir menntatengdan
rekstur Islenska menntanetsins ehf.:
Kennaraháskólinn
sinni rekstrinum
Menntamálarábuneytið hefur
gert samning vib íslenska
menntanetib ehf. um kaup á
menntatengdri þjónustu fyrir-
tækisins. Samhliba þessu hefur
veriö gerbur samningur viö ís-
lenska menntanetib um ab þab
veiti kaupanda rábgjöf og ab-
stob varbandi rekstur netsins
frá 1. júlí 1996, þegar kaupandi
tekur ab sér reksturinn til 30.
júní 1997. Gert er ráb fyrir ab
reksturinn standi undir sér meb
því ab skólar greibi fyrir þá
þjónustu sem veitt er.
í skýrslu sem menntamála-
ráðuneytiö lét vinna um stöðu
íslenska menntanetins er lagt til
að Kennaraháskóla íslands verði
falið að sinna þeim rekstri og
þjónustu sem áður var á hönd-
um íslenska menntanetsins ehf.
Búist er við að samningur um
þetta verði undirritaður á næst-
unni. Samvinna hefur verið
höfð við Samband íslenskra
sveitarfélaga og mun það eiga
aðild að stjórnun og rekstri
menntanetsins.
Fjárhagsstaða íslenska
menntanetsins ehf. hefur verið
mjög slæm og fékk fyrirtækið
nýlega greiðslustöðvun. Að
mati menntamálaráðuneytisins
hefði það haft mjög slæm áhrif
fyrir menntakerfið á landinu ef
rekstur þess hefði lagst niður.
Um 90% af skólum landsins eru
tengdir netinu. Rúmlega 100
nemendur stunda fjarnám til
kennaraprófs í KÍ í gegnum net-
ið, 80 nemendur við Fósturskól-
ann og 100 nemendur við Verk-
menntaskólann á Akureyri. -BÞ
vinnu við atvinnulífið.
Þá er nefnd skipuð fulltrúum
utanríkisráðuneytis, iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytis og
sjávarútvegsráðuneytis auk
Iðnþróunarsjóðs og Þróunar-
sjóðs sjávarútvegsins að kanna
og gera tillögur um hvernig
stjórnvöld geta stutt við bakið
á fjárfestingum íslenskra fyrir-
tækja erlendis. Ráðherra sagði
að fjárfestingar sjávarútvegs-
fyrirtækja erlendis hefðu skil-
að þjóðarbúinu miklu og gaf
lítið fyrir þá gagnrýni, sem
fram hefur komið á þessar fjár-
festingar erlendis, á sama tíma
og fjárfesting innanlands væri
ekki mikil.
Sem dæmi um samvinnu
stjórnvalda og einkageirans í
útflutningsmálum þá er í ág-
úst n.k. fyrirhuguð opinber
heimsókn til Kóreu. Með í för
verða fulltrúar útflutningsfyr-
irtækja, ferðamála, sérfræðing-
ar í fjárfestingarkynningu og
fulltrúar fyrirtækja sem stunda
innflutning frá Kóreu. Búist er
við að þetta geti orðið ein
viðamesta viðskiptaferð sem
farin hefur verið á vegum ut-
anríkisráðuneytisins.
Utanríkisráðherra gat þess
einnig að á næstu vikum verð-
ur afrakstur ferðar til Pakistan
kynntur fyrir íslenskum sjáv-
arútvegsfyrirtækjum, en í byrj-
un þessa mánaðar fór þangað
sendinefnd undir forystu ut-
anríkisráöuneytisins. En
ákveðið var að fara þangað eft-
ir að kjörræðismaður íslands í
Pakistan hafði óskað eftir því
að kannaðir yrðu samstarfs-
möguleikar í sjávarútvegi.
Með í þeirri för voru fulltrúar
Útflutningsráðs, Þróunarsjóðs
sjávarútvegsins og samstarfs-
vettvangs sjávarútvegs og iðn-
aðar.
Til marks um árangur af
ferðum sem þessum nefndi
ráðherra m.a. aö viðskipti ís-
lenskra og rússneskra fyrir-
tækja hefðu tekið fjörkipp eft-
ir ferö viðskiptasendinefndar
til Múrmansk undir forystu
ráðuneytisins og Útflutnings-
ráðs.
En hátt í tuttugu fyrirtæki
áttu fulltrúa í sendinefndinni,
sem sýndi rússneskum stjórn-
völdum og fyrirtækjum þá
möguleika sem íslensk sjávar-
útvegsfyrirtæki búa yfir. Þá
hefði sendinefnd undir for-
ystu sömu aðila farið til S.-Afr-
íku og Namibíu í desember sl.,
og hefði sú för staðið fyllilega
undir væntingum.
-grh
Ólafur Ragnarsson frá Vöku-Helgafelli afhenti Fríöu Siguröardóttur og móbur hennar, Ingibjörgu Möller,
skrautritub viburkenningarskjöl vib hátíblega athöfn í Þjóbarbókhlöbunni í gœr.
Mœögur hlutu Islensku barnabókaverölaunin í ár:
Grillaðir bananar verðlaunaðir
Islensku barnabókaverðlaun-
in voru afhent í gær í 11. sinn
og varb bókin Grillabir ban-
anar fyrir valinu sem skrifub
var af mæðgunum Ingibjörgu
Möller, kennara vib Hlíba-
skóla, og Fríbu Siguröardótt-
ur, 16 ára nema í Kópavogs-
skóla.
Mæbgurnar tóku á móti verð-
laununum, að upphæð 200.000
kr., og fyrstu eintökunum af
bókinni í Þjóðarbókhlöðunni í
gær. Ármann Kr. Einarsson
sagði við athöfnina að sér væri
það sérstakt ánægjuefni að af-
henda verðlaunin í annað sinn
til kennara við sinn gamla
skóla, en þar starfar einnig Þór-
ey Friðbjörnsdóttir sem hlaut
verðlaunin í fyrra, og Hlíðaskóli
gæti nú með sanni kallast skóli
skáldanna. Alls bárust á sjötta
tug handrita í samkeppnina að
þessu sinni sem er um helmingi
meira en verið hefur.
Handritið ab Grilluðum ban-
önum var sent undir dulnefn-
inu Guðmundur heljarskinn
sem átti vel við enda gerist sag-
an að mestu á Vestfjörðum þar
sem Guðmundur þessi nam
land. Ólafur Ragnarsson, for-
maður stjórnar Verðlaunasjóðs
íslenskra barnabóka, afhenti
mæðgunum viðurkenningar-
skjöl en þar segir dómnefnd
m.a. um söguna: „Þetta er
skemmtileg og jafnframt spenn-
andi saga um ævintýraferð
nokkurra ungmenna um
óbyggðir íslands. Höfundarnir
hafa einkar gott vald á íslenskri
tungu, stíllinn er léttur og leiftr-
ar af kímni. Samvinna höfund-
anna skilar sér í fjörlegum texta
á máli sem börn og unglingar
þekkja." -LOA