Tíminn - 30.04.1996, Síða 7

Tíminn - 30.04.1996, Síða 7
Þribjudagur 30. apríl 1996 IlfWMTOJ!!® 7 íslendingar leggja sitt afmörkum til endurvakins áhuga á Grœnlandi á abskilnabi vib Danmörku: Aðskilnaðarsinnar vilja reka Dani úr landi — og leysa þannig atvinnuleysib Hjónin ívar Jónsson, lektor viö Háskólann í Nuuk, og Lilja Mósesdóttir hagfræö- ingur skrifuöu grein undir fyrirsögninni „Grænland getur sjálft" í grænlenskt dagblaö fyrr í þessum mán- uöi um efnahagslegar for- sendur fyrir sjálfstæöi græn- lensku þjóöarinnar. Örfáum dögum seinna, þann 16. þessa mánaöar, voru svo stofnuö grænlensk grasrótar- samtök aöskilnaöarsinna. í greininni kemur fram aö Grænlendingar geti verið bjartsýnir á efnahagslega framtíö sína, einkum sé litiö til möguleika á olíufram- leiöslu. Þá hafi tekjur af út- flutningi verið hærri þar en á íslandi allt frá árinu 1979 þeg- ar Grænlendingar fengu heimastjórn. ívar og Lilja telja að mikill sparnaður geti falist í að kaupa vörur frá öðrum og ódýrari löndum en Dan- mörku, en 75% innflutnings koma frá herraþjóðinni. Tíminn hafði samband við ívar og sagði hann samtökin vera þverflokkspólitísk, en neitaði því að íslendingar væru framarlega í þessum hópi og sagði þau hjónin ekki tengjast samtökunum. Hins vegar hefðu aðskilnaðarsinnar leitað mikið til þeirra eftir upplýsingum um fyrirkomu- lag mála á íslandi og í mál- flutningi þeirra væri oft tekið mið af Islandi. Félagsmálaráðherra Græn- lands sagði í Tímanum fyrr í vetur að ekki væri mikill áhugi á aðskilnaði, en að sögn ívars fer gagnrýnin á tengslin við Danmörku vaxandi, þó að landsstjórnin færi mjög hægt í sakirnar. Sú kynslóð, sem bar- ist heföi fyrir heimastjórninni á sínum tíma, væri nú komin til valda. „Maður hefur á til- finningunni að það séu ákveð- in kynslóðaskipti í þessu. Yngri kynslóðin er miklu menntaðri en Grænlendingar voru fyrir 20 árum og hjá henni er vaxandi óánægja með einokun Dana á efri stöð- um í kerfinu." Landsstjórnin er hins vegar ósátt við hve harkalega að- skilnaðarsinnar hafa gagnrýnt veru Dana á Grænlandi. En mjög erfitt er fyrir Grænlend- inga að komast í hærri stöður þar sem ráðið sé út frá dönsk- um stöðlum, sem geri mun meiri menntunarkröfur en t.d. hér á landi. „Hugmyndafræði þessarar hreyfingar gengur að miklu leyti út á það að Danirn- ir séu óþarfi. Það er 15% at- vinnuleysi hérna og um 15% af vinnuaflinu hér er hið svo- kallaða tilkallaða vinnuafl, sem er fyrst og fremst Danir," segir ívar og líta margir því svo á að hægt sé að skipta Dönum út af vinnumarkaðnum og skrúfa þannig fyrir atvinnu- leysið.____________ Breyta skólakerfinu Töluverður skortur er á menntuðum Grænlending- um, t.d. í heilbrigðisstéttum, sjávarútvegi og meðal verk- fræðinga. Menntunarskortur- inn hefur verið talinn standa í vegi fyrir því að þjóðin geti orðið efnahagslega sjálfstæð. Að sögn ívars þarf því að breyta skólakerfinu, sem nú taki einkum mið af dönsku at- vinnulífi, og stýra fólki meira inn á þær brautir sem nýst gætu á atvinnumarkaðnum. Því þurfi að byggja upp menntakerfi sem hafl styttri námsbrautir og veiti ófag- lærðu starfsfólki faglega þjálf- un, enda sé mikill skortur á faglærðu starfsfólki og at- vinnuleysi mikið hjá þeim ófaglærðu. Varðandi háskólamenntun, sem ekki verði hægt að veita í Háskólanum í Nuuk, benda þau ívar og Lilja á að flestar smáþjóðir sendi nemendur til Skyldari inúítum, Sömum og indíánum Grein ívars og Lilju gengur m.a. út frá því að menningar- leg sérstaða Grænlendinga sé ein forsenda þess að hún eigi að reka sitt eigið sjálfstæða hagkerfi. ívar segir sjálfstæðis- baráttuna fyrst og fremst vera rekna á efnahagslegum nót- um, en hins vegar búi mjög sterkur þjóðernislegur andi undir niðri og mikið vísað í sérstöðu menningarinnar. „Þeirra sjálfsmynd liggur nær inúítum í Alaska og Kanada, Sömum og indíánum og það er þeim mjög mikilvægt að vera hluti af annarri menn- ingu en þessar norrænu þjóð- ir, þó þeir tilheyri þeim líka." Samt hafa Grænlendingar haft lítið samstarf við þessa þjóðflokka í Norður-Ameríku og norðurhluta Skandinavíu, en hafa þó verið í nokkru sam- bandi við nýtt sjálfsstjórnar- svæði inúíta í Kanada. Að- skilnaðarsinnar hafa hins veg- ar, auk þess að líta til íslands, haft mikið samband við Fær- eyinga og birtist grein Lilju og ívars í færeysku blaði nú í vik- unni. Samkvæmt heimildum Tímans vakti greinin tölu- verða athygli þar, en stutt er liðið frá birtingu og hafa við- brögð því ekki borist þeim ívari. Skíöaparadís Nú eru 17 ár síðan heima- stjórninni var komið á á Grænlandi og gefa samtökin grænlensku þjóðinni 15 ára aðlögunartíma til að ná fullu sjálfstæði. Aðspurður hvernig það væri mögulegt, sagði ívar að sérstaklega þyrfti að byggja markvisst upp innanlands- framleiðsluna og taka upp við- skipti við önnur lönd, en öll ívar jónsson. Frá Nuuk. verslun til Grænlands fer fyrst í gegnum Danmörku. „Það hefur verið mikil umræða um það hér að beina viðskiptun- um til Bandaríkjanna." ívar telur ekki hagkvæmt fyrir Grænlendinga að fara út í mikla matvælaframleiðslu til eigin nota, þar sem dýrt yrði að koma á fót miklum land- búnaði fyrir svo litla þjóð. Að sögn ívars eru veðurfarsskil- yrði og túnspretta þó betri á Suður-Grænlandi en víða á ís- landi. Almennt-er gert ráð-fyrr. Markaöstorg í Nuuk. ir að verði Grænland sjálf- stætt, haldi þeir áfram að flytja inn megnið af matvör- um. Gullgröftur og olía Aðspurður hvaða auðlindir Grænlendingar hyggjast nota til að brúa biliö sem myndast þegar danska ríkið hættir að styrkja rekstur samfélagsins, segir ívar menn einkum líta til ferðamennskunnar og orku- framleiðslu. Mikil leit hafi ver- ið gerð að gulli og erlend fyrir- tæki hafi verið að leita að olíu, en miklar líkur eru taldar á að hún sé til staðar. Varðandi ferðamannabrans- ann hafa Grænlendingar sett sér það takmark að ná inn um 61.000 ferðamönnum árið 2005. Uppbygging ferða- mennskunnar hefur staðið nú í nokkur ár og helst er litið til þess að komast inn á skíða- markaðinn. „Það er á teikni- borðinu að byggja upp svona aðstöðu, líkt og í Ölpunum, með stóru skíðahóteli. Það verður tekin ákvörðun um þetta af landsstjórninni á næsta ári." útlanda til að leita sér frekari menntunar. Það kæmi Græn- lendingum til góða ef þeir færu víðar en til Danmerkur að sækja háskólamenntun, sem stendur þeim til boða að kostnaðarlausu enn sem kom- ið er, enda sé það sjálfstæðri þjóð ekki hollt að vera hug- myndafræðilega og akadem- ískt háð einu þjóðríki. Ástandið svart Lífskjör á Grænlandi eru nokkuð góð, en að sögn ívars er rótin að þessari umræðu um aðskilnað við Danmörku sá að fólk eygi ekki mikla möguleika á starfsframa, enda sé vinnu- markaðurinn mjög lokaður fyrir Grænlendingum. Ástand- ið sé því svart og sjálfsmorðs- tíðni há, þó ab drykkja hafi minnkað mikið síðustu ár. Hann telur að Grænland geti orðið, sem sjálfstætt lýðveldi, ein af ríkustu þjóðum heims, líkt og íslendingar. „Þeir hafa möguleika á að skipuleggja sitt hagkerfi betur, auka innan- landsframleiðslu og þjónustu- greinar og þá ætti þeim að tak- ast það." LÓA-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.