Tíminn - 03.05.1996, Qupperneq 1
80. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 3. maí 83. tölublaö 1996
Astþór Magnússon er ekki
á leið í forsetaframboð. Ef
enginn annar forsetafram-
bjóðandanna er tilbúinn til
að gerast alþjóðlegur frið-
arleiðtogi þá:
Gæti dúsaö á
Bessastöðum
í þágu friöar
„Ef þaö kemur enginn annar
fram sem getur leitt þetta á
viðunandi hátt þá er ég til-
búinn til ab gera allt — þó aö
ég þurfi aö dúsa á Bessastöð-
um sem einhver forseti í
fjögur ár til aö gera einhverj-
ar breytingar," sagöi Ástþór
Magnússon, stofnandi Friöar
2000, á blaöamannafundi
sem hann hélt í gær í tilefni
af útkomu Fréttabréfs Friðar
2000.
Fréttabréfið er í bókarformi og
verður dreift á öll heimili í land-
inu. Forsíðan er skreytt Bessa-
stöðum með fyrirsögninni
Virkjum Bessastaði en Ástþór
segist ekki á leið í framboð eins
og er heldur vilji hann „reyna
að hafa áhrif á það hvernig
embættið virki," og bætti því
við að íslendingar hefðu ekkert
við skrautforseta að gera. Þess
má geta að fréttabréfinu fylgir
óútfylltur seðill þar sem lands-
mönnum er gefinn kostur á að
senda Ástþóri stuðningsyfirlýs-
ingu fyrir framboði hans til for-
seta, og setja má ófrímerkt í
póst.
Undanfarið hafa birst auglýs-
ingar á strætisvögnum og fjöl-
miðlurn sem vísað hafa í Bessa-
staði en Ástþór segir þær ekki
bundnar við framboð af sinni
hálfu heldur sé tímasetningin
valin með tilliti til þess að nú sé-
um við að fara að velja nýjan
forseta og hann vilji breyta
áherslum forsetaembættisins.
Stefnuskrá forsetans segist hann
lýsa í fréttabréfinu sem og því
hvernig væntanlegur forseti
gæti tekið þátt í friðarbaráttu
Friðar 2000.
Aðspurður um fjármögnun
útgáfunnar og auglýsingaher-
ferðarinnar segist hann borga
það allt úr eigin vasa enda hafi
hann hagnast á viðskiptum,
nánar tiltekið tölvuforritun, er-
lendis. „Þetta skiptir náttúru-
lega einhverjum milljónum en
það eru bara smáaurar miðað
við þá hagsmuni sem eru í húfi
ef ab heimurinn í kringum okk-
ur hrynur og mannkynið út-
rýmist."
-LÓA
£
oA
m
Astþór Magnússon á blaöamannafundi í bókbandsvinnustofunni Flatey ígœrdag. Meö Bessastaöa-veggspjaldiö og hlaöa af bók sinni, sem hver lands-
maöur fœr ókeypis í hendur. Tímamynd: þök
Harösnúiö liö útgeröarmanna víöa aö af landinu heimsœkir ráöuneytin. Kvartaö undan
krókabátunum. Eiríkur Tómasson:
Þetta eru augljós mistök
Fimmtán galvaskir útgerbar-
menn víöa aö af landinu
gengu í gær á fund sjávarút-
vegsnefndar í gærdag. Þeir
mótmæla harðlega þeirri end-
urskoðun sem nú fer fram á
lögum um stjórn fiskveiða.
Krókabátar fá of mikib í sinn
hlut af afla viö íslandsstrend-
ur meina stórútgerðarmenn.
„Frumvarp sjávarútvegsráð-
herra er augljóslega mistök,"
sagði Eiríkur Tómasson útgerð-
armaður í Grindavík í samtali
við Tímann í gær.
í gærmorgun heimsótti hóp-
urinn stjórn LÍÚ, forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra , og
s j ávarútvegsráðherra.
Eiríkur sagði að Davíb Odds-
son hefði greinilega sett sig vel
inn í málið og Halldór Ásgríms-
son væri að sjálfsögðu vanur
maður í málefnum sjávarút-
vegsins. Hins vegar hefði það
verið þrautin þyngri að rökræða
mál við Þorstein Pálsson.
„Þessari baráttu er ekki lokið,
við höldum áfram og einhver
verður að játa á sig og leiðrétta
mistökin," sagði Eiríkur Tómas-
son í gær.
Útgerðarmennirnir bentu
Steingrími Sigfússyni, formanni
sjávarútvegsnefndar Alþingis,
meðal annars á í gær ab ekkert
samráð hefði verið haft við sam-
tök útgerðarmanna varðandi
endurskoðun laganna, það væri
andstætt öllum. fyrri vinnu-
brögðum.
-JBP
Samskip hf. gerir það gott:
Fjórar milljónir
verða milljarður
Hagnabur af rekstri Sam-
skipa hf. varö 183 milljónir
króna á síðasta ári. Þetta
kom fram á aðalfundi félags-
Rautt ljós á vínveitingaleyfi
Borgarráö hefur ákveöiö aö
ekki veröi mælt meö nýjum
vínveitingaleyfum í miö-
borg Reykjavíkur um tiltek-
inn tíma.
Ákvörbunin verður auglýst
með fyrirvara ábur en hún
gengur í gildi.
Skrifstofustjóra borgar-
stjórnar og borgarlögmanni
hefur verib faliö að undirbúa
auglýsingu um ákvörðunina
þannig að þeir sem hafa í
hyggju að leggja inn umsóknir
um vínveitingaleyfi gefist
tækifæri til þess áður en til
stöðvunar kemur.
Þetta er gert í samræmi við
umsögn borgarlögmanns, sem
jafnframt mælti með því að
tveimur nýjum veitingastöð-
um, að Pósthússtræti 9 og
Hafnarstræti 7, verði veitt vín-
veitingaleyfi á grundvelli jafn-
ræbisreglu. Borgarráö féllst á
þá röksemd borgarlögmanns.
-GBK
ins í gær. Þetta er besta af-
koma félagsins til þessa.
Eigið fé jókst um 209 millj-
ónir í fyrra milli ára, og er nú
rétt um einn milljarður króna.
Olafur Ólafsson forstjóri fyr-
irtækisins benti á að á tveim
árum hefði eigið fé Samskipa
vaxið úr 4 milljónum króna í
999 milljónir króna, 300 koma
úr rekstri og 700 milljónir sem
nýtt hlutafé.
í efnahagsreikningi má lesa
ab eiginfjárhlutfall Samskipa
hf. var 31,4% um síðustu ára-
mót. Stjórnendur félagsins
segjast telja fjárhagsstöðuna
„viðunandi".
-JBP
Tíu aðferðir
til að losna
við eigin-
manninn
Yfirskrift fræðslu og ráð-
gjafar um hollari lífshætti
hefur gamansama yfirskrift:
10 leiðir til að losna við eig-
inmanninn á 10 árum. En
öllu gamni fylgir nokkur al-
vara. Hér er um að ræða
kynningu á almennings-
hlaupum og heilbrigðisráð-
gjöf og forvarnarstarfi í
sambandi við þau. Fyrsta
kynning er í Kringlunni á
morgun laugardag. Ab
þessu standa fjölmargir að-
ilar, Félag hjúkrunarfræö-
inga, Heilsuefling, Reykja-
víkur Maraþon, íþróttir fyr-
ir alla, Tannverndarráð,
Vímulaus æska og Mann-
eldisráð. -JBP