Tíminn - 03.05.1996, Blaðsíða 9

Tíminn - 03.05.1996, Blaðsíða 9
Föstudagur 3. maí 1996 9 CAT TROMLUSLÁTTUVÉL CAT diskasláttuvélar frá Pöttinger eru með einföldum og sterkum drifbúnaði og vinnslubreidd- in er frá 2,45-3,30. Styrktur rammi sem nær út að enda greiðunnar eykur endingu hennar. Hægt er að skipta um hluti í greiðu án þess að rífa hana í sundur. Enginn innri skór er í vélinni sem gerir það að verkum að hey dregst ekki með þóttfarið sé í fyrra Ijárfar. Þegar snúið er á enda teigs eru tvær stillingar á lyftuhæð án þess að þurfi að stöðva vélina. Lyftistrokkur færir sláttuvélina að miðju dráttarvélar á þrítengi og þyngdarpunkturinn er framarlega í flutningum. 13 ára reynsla er af þessari sláttuvél hér á landi. CAT E 170-190 tromlusláttuvélarnarfrá Pöttingereru með nýtískulegri tengingu við dráttarvélar, búnar lyftustrokki og vökvalyftubúnaði. Vinnslubreiddin er frá 1,65-1,85 m. Þetta eru ódýrar og vandaðar vélarsem góð reynsla er af hér á landi. Úrvals heyvinnu- vélar frá PÖTTINGER Velþekktar hér á landi og sumar prófaðar hjá Bútæknideild. POTTINGER CAT-DISKSLATTUVEL HIT-HEYTÆTLA NHK-POKKUNARVEL 11 : HIT heytætlurnar frá Pöttinger eru fullkomnustu heytætlur hér á markaði, búnar tvöföldum hjöruliðum á ytri stjör- num, vökvalyftu og stórum dekkjum. HIT 58 er með vökvastýringu úr ekilshúsi til skekkingar við skurðkanta og girðingar. Tindabjargir eru staðalbúnaður. TOP stjörnumúgavélarnar frá Pöttinger eru með miðstjörnu sem er með því breiðasta á markaðnum, sem gerir að átak á armana verður minna og eykur endingu. Vélarnar eru fáanlegar með veltiöxli sem er staðalbúnaður á TOP 420N. HJORULIÐUR SNUNINGS- KRANS DUUN haugsugan er sú afkastamesta á markaðnum. Hún er með vinkildrifi, vökvastrokkum úr galv- aníseruðu og ryðfríu efni og saxara sem saxar 84.000 sinnum á mínútu. Haugsugan er fáanleg bæði sem brunndæla og skádæla. Pökkunarvélin frá NHK er mjög fullkomin og sérstæð. Hún pakkar um leið og bundið er. Vélin er tengd aftan í rúllubindivélina og er það mjög vinnusparandi, því aðeins þarf eina dráttarvél og einn mann við bæði að binda og pakka. Þetta fyrirkomulag er umhverfisvænt, því það sparar dísilolíu og vélin þjappar jarðveginn minna. Pökkunarvélarnar eru mjög afkastamiklar og sú elsta hér á landi hefur pakkað yfir 10.000 rúllum. Þetta er góður kostur fyrir stærri bú og verktaka. Vönduðu snjóplógarnir, snjóblásararnir og moksturstækin frá TRIMA eru þekkttæki hér á landi, en sífellt fleiri kaupa þau hjá Bújöfri vegna verðs. Uppgerðu mjólkurtankarnir frá Mueller eru vel kunnir hérlendis. Tankarnir eru með nýjum kælivélum og eru sérlega góður kostur vegna endingar og verðs. 1 árs ábyrgð er á tönkunum. Bújöfur hefur átt gott samstarf við marga aðila víðs vegar um landið, sem sjá um þjónustu við við- skiptavini á hverjum stað. Sífellt er verið að þétta það þjónustunettil hagsbóta fyrir viðskiptavini. Valmet mun á næstu vikum senda hingað til lands þjónustuskóla sem mun þjálfa þjónustuaðila Bújöfurs. Bújöfur vill þakka viðskiptavinum fyrir frá- bærar móttökur og vonast eftir góðu sam- starfi eftirleiðis sem hingað til. BUIJOFUR KRÓKHALSI 10-110 REYKJAVÍK • SÍMI: 567 5200 FAX: 567 5218 • FARSÍMI: 854 1632 ÁGÚSTA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.