Tíminn - 03.05.1996, Qupperneq 10
10
Föstudagur 3. maí 1996
Þátttakendur í námskeibinu á dögunum, fyrir framan húsakynni Bújöfurs aö Krókhálsi.
Bújöfur hf.:
Námskeið fyrir þjónustuaðila
Bújöfur, sem er umboðsaöili
fyrir hinar finnsku Valmet
dráttarvélar hafa nýlega lokib
námskeiði fyrir umboðs- og
vibgerðarabila af landsbyggð-
inni og sótti hátt á annan tug
manna námskeibið.
Þorgeir Elíasson, fram-
kvæmdastjóri Bújöfurs hf.,
segir að námskeiðið hafi verið
í höndum dansks kennara,
sem kom gagngert hingað til
lands til að sjá um það, auk
þess sem þjónustuskóli hafi
einnig verið með í för.
Um var að ræða þriggja
daga námskeið og fór það
fram í húsakynnum Bújöfurs
að Krókhálsi í Reykjavík.
-PS
Fjölbreytt úrval véla
í vorverkin
Áburðardreifarar
Ávinnsluherfi
Taðdreifarar
Hnífaherfi
Haugsugur
Sturtuvagnar
Flutningakassar
VÉLAR&
ÞJÓNUSTAhf
JÁRNHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK, SIMI 597 6500, FAX 567 4274
Frétt í Búvélafréttum um þýska samanburöarkönnun
á dráttarvélum sýndi óeölilega mikinn mun á olíu-
eyöslu dráttarvéla:
Byggt á röngum
forsendum
í ljós hefur komib ab upplýs-
ingar þær sem birtust í Búvéla-
fréttum í vetur, þar sem vitnab
var í grein í þýska tímaritib
Profi og fjallabi um saman-
burbarkönnun á olíunotkun
tíu dráttarvélartegunda, eru
byggbar á röngum forsendum.
í síðara hefti tímaritsins birtist
leiðrétting, þar sem fram kom að
upplýsingarnar hefðu verið
byggðar á upplýsingum framleið-
enda og hefðu miðast við olíu-
eyðslu undir miklu álagi. í sama
blaði birtust hins vegar tölur þar
sem miðað er við eyðslu í al-
mennri notkun og koma þá allt
aðrar tölur í ljós.
í fyrri fréttinni var helmings-
munur á milli þeirra sem eyddi
minnstri olíu, eða Fendt 380 LSA
og þeirri sem eyddi mestu, en
það var Valmet 6300 A og þótti
þessi munur óeðlilegur. En sam-
kvæmt hinum nýju upplýsingum
hefur annað komið í ljós.
Samkvæmt þeirri könnun kem-
ur í ljós að John Deere kemur
best út og þar á eftir kemur Case,
Valmet í þriðja sæti, Massey
Ferguson í fjórða og Fendt í
fimmta sæti, en þarna er um að
ræða vélar í samsvarandi stærðar-
flokkum. -PS
Búvélakörmun RALA
Reime mykjudælan
Gerb: Reime. Framleib-
andi: Reime, a.s. Nær-
bö, Noregi. Innflytj-
andi: Ingvar Helgason
hf., Reykjavík.
Yfirlit
Reime mykju-
dælan kom til
prófunar í desem-
bermánuði 1994.
Dælan var notuð alls í 125 klst.,
bæði við blöndun í áburðar-
geymslum og til dælingar á um
560 tonnum í flutningatanka.
Dælan er miðflóttaaflsdæla
tengd á þrítengi dráttarvéla og
knúin frá aflúttaki. Hún vegur
um 470 kg. Hún er ætluð til dæ-
lingar á þynntum búfjáráburði,
hvort heldur er í flutningatæki
eða til blöndunar í áburðar-
geymslum.
Halla dælunnar má breyta frá
nær láréttri stöðu í vinnu upp í
nær lóðrétta stöðu. Þá má einnig
breyta hæð hennar á burðar-
ramma. Það gefur ýmsa mögu-
leika á dælingu um lúgur á
áburðargeymslum án þess að
hafa sérstaka dælubrunna. Þá má
víða koma henni að við losun úr
fjárhúsum. Afköst hennar eru
verulega háð þykkt áburðarins.
Þau voru allt að 5100 1/mín. við
mjög lágt þurrefnisinnihald
áburðarins. Við algenga þykkt, 5-
6% þurrefni, voru afköst dælunn-
ar 3800 1/mín. Aflþörf dælunnar
mældust mest um 31,6 kW (43
hö.) í vatni.
Vartengsl stöðvar dæluna, ef
fastir aðskotahlutir komast í inn-
taksop hennar. Þeir valda því
ekki skemmdum. i lok reynslu-
tímans gaf sig pakkdós á efra
drifhúsi án sjáanlegra ástæðna.
Að öðru leyti var ekki unnt að
merkja óeðlilegt slit á dælunni í
lok reynslutímans. Hún er frem-
ur léttbyggö, virðist traustlega
smíðuð og er tiltölulega auðveld
í meðförum. ■
Taarup stjörnumúgavélin
Gerb: Taarup, Kverneland 752. Framleib-
andi: Maskinfabrikken Taarup, Kertem-
inde, Danmörku. Innflytjandi: Ingvar
Helgason hf., Reykjavík.
Yfirlit
Taarup-Kverneland 752
stjörnumúgavélin var reynd af
Bútæknideild Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins sumarið
1995 og notuð alls í 44 klst.
Stjörnumúgavélin er tengd á
þrítengi dráttarvélar og knúin frá
aflúttaki. Hún vegur um 710 kg.
Múgavélin reyndist raka vel og
skilja eftir litla dreif við algengar
aðstæður. Gera má ráð fyrir að
dreifarmagn í rakstrarfari sé að
jafnaði 70-80 kg þe./ha vib öku-
hraðann 4,6-10,9 km/klst., en
við bestu aðstæður um 40-50 kg
þe./ha. Við erfið skilyrði er dreif-
armagnið oft um 140-150 kg
þe./ha. Þrátt fyrir mikla vinnslu-
breidd, reyndist vélin fylgja vel
ójöfnum á yfirborði landsins.
Hún getur rakað frá girðingum
og skurðbökkum. Liður í beisli
vélarinnar gefur svigrúm til að
vinna með vélinni í beygjum.
Rakstrarfar vélarinnar er allt að
3,5 m á breidd. Hæfilegur öku-
hrabi var oftast um 8-12 km/klst.
og afköst að jafnaði um 2,8
ha/klst. Vélin rýrir framþunga
meðalstórra dráttarvéla verulega
og getur þurft að þyngja þær til
að uppfylla ákvæði um þunga-
hlutföll á dráttarvélum. Múgavél-
in er lipur í tengingu og notkun.
Festingar á rakstrarörmum vélar-
innar eru ekki nægilega traustar.
Nokkrar skemmdir urðu á vélinni
af þeim ástæðum. Að öðru leyti
er vélin traustlega byggð, aðrar
bilanir komu ekki fram og ekki
var unnt að merkja óeðlilegt slit
á henni í lok reynslutímans. ■